Þjóðviljinn - 06.12.1988, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 06.12.1988, Qupperneq 12
FLÓAMARKAÐURINN Ný fótaaðgerðarstofa Guðríður Jóelsdóttir fótaaðgerðas- érfræðingur hefur opnað fótaað- gerðastofu að Borgartúni 31, 2. hæð til hægri. Tímapantanir alla virka daga kl. 9.30-10.30 í síma 623501. Flóamarkaður Opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 14-18. Enda- laust úrval af góðum og umfram allt ódýrum vörum. Gjöfum veitt mót- taka á sama stað og tíma. Flóa- markaður SDÍ Hafnarstræti 17, kjallara. Flóamarkaður Rússneskar vörur í miklu úrvali, m.a. tehettur, babúskur, vasaúr og ullarsjöl. Póstkröfuþjónusta. Uþþlýsingar í síma 19239. Sjóðsvél (búðarkassi) óskast Upþlýsingar í síma 21784 á kvöldin. Mótatimbur Nemendaleikhús Leiklistarskóla ís- lands vantar notað mótatimbur. Má vera mjög illa farið. Uþplýsingar í síma 25020 milli kl. 9 og 15. Til sölu Rafmagnsorgel til sölu, 1 hljóm- borð, 4 raddir, fótpedali fyrir hækk- un og lækkun. Upplýsingar í síma 35054. Commodore 64k tölva til sölu ásamt diskadrifi, kas- settutæki, 2 stýrispinnum og fjölda leikja. Selst ódýrt Upplýsingar í síma 32098, eftir kl. 20.00. í Hafnarfirði 70-75 ferm. 3 herbergja íbúð til sölu ódýrt ef samið er fljótt. Sér hiti og sérinngangur. Laus nú þegar. Uþp- lýsingar í síma 16718 og 52029. Óska eftir nagladekkjum undir Trabant, stærð 520x13 og gangi af 175x70x14. Upplýsingar í síma 616718 fyrir hádegi og eftir kl. 18.00. Til sölu glæsilegur æfingabekkur með 52 æfingum, svartur og silfur- grár, sem nýr. Leiðbeiningar og prógramm fylgja. Nánari upplýsing- ar í síma 621657. Sumarbústaðalóðir Til sölu eru 4 samliggjandi sumar- bústaðalóðir á Suðurlandsundir- lendinu. Upplýsingar veitir Berg- þóraísíma 24711 eftirkl. 17ogum helgar. Kjarakaup Af sérstökum ástæðum er til sölu nýr Skodi. Selst á 150 þús. stað- greitt. Upplýsingar í síma 611370. Furukojur til sölu Upplýsingar í síma 687083. Borðtennisborð óskast keypt. Sími 34627. Til sölu 4 lítið notuð snjódekk, negld, 3 felg- ur fyrir Chevrolet Monza til sölu á kr. 14.000. Upplýsingar í síma 53586 eftir kl. 17.30. Þvottavél Til sölu 2 ára Philco þvottavél. Uþp- lýsingar í síma 35269. Lítil rafmagnshella óskast gefins eöa fyrir lítið. Upplýsingar í síma 13297. STRAX - í desember Óska eftir 12 ára stúlku í nágrenni Austurbæjarskóla til að sækja 4 ára dreng á Grænuborg kl. 1 og vera með hann til kl. 4. Sími 28783. Millihurð óskast Gömul harmoníkuhurð eða milli- hurð úr tré óskast í stofuop. Hafið samband í sima 18681. Til sölu rauður baðsloppur nr. 44. Mjög vandaður. Sími 40691. Eldavél - borð Electrolux eidavél, 5 ára með blást- ursofni, yfir- og undirhita og eldhús- borð úr beyki, 160x90. Sími 76562 eftir kl. 17.00. Ódýrir, góðir sófar 2 sófar, 2ja og 3ja sæta til sölu ódýrt. Verð kr. 5.000 fyrir báða. Sími 32144 eftir kl. 19.00. Trip-trap barnastóll Óska eftir að kaupa Trip-trap barn- astól. Upplýsingar í síma 39632 eftir kl. 17.00. Rennibekkur Til sölu gamall, fremur lítill slitinn rennibekkur. Selst ódýrt. Upplýs- ingar í síma 40792. Til leigu Frá áramótum er 4ra herbergja íbúð með húsgögnum til leigu í 5-6 mánuði. Reglusamur háskólanemi er í einu herbergjanna. Upplýsingar í síma 91-36806. Sölufólk óskast til að selja bækur. Góð sölulaun. Upplýsingar í síma 28565 eða 25154. Óska eftir ódýrri eldavél í góðu lagi. Upplýs- ingar í síma 75476. Bráðvantar tannstangarstýri í Volkswagen bjöllu árg. 75 (amer- íska týpu). Sími 98-21884. Óskum eftir sófasetti gefins Upplýsingar í síma 10045, Björg, Laufásborg. Gott unglingarúm með skúffum, dýnu og 3 púðum til sölu á kr. 4.000. Upplýsingar í síma 74212 á kvöldin. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför móður okkar, tengdamóður og systur Guðmundu Þorgeirsdóttur Öldugötu 25A Þórdís Gunnarsdóttir Gunnar B. Gunnarsson Guðríður Valgeirsdóttir PéturGunnarsson Hrafnhildur Ragnarsdóttir Sigrún Gunnarsdóttir Bjarni G. Bjarnason Ásdís Gunnarsdóttir Guðlaugur Hermannsson Þorgeir Gunnarsson Sigurjón Gunnarsson Guðrún Þorgeirsdóttir Sigríður Þorgeirsdóttir Edda Kjartansdóttir ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Menningarmálanefnd AB Munið fundinn þriðjudaginn 6. desember kl. 17.00. - Þórunn. Alþýðubandalagið í Reykjavík Spilakvöld Þriðja og síðasta sþilakvöldið í þriggja kvölda keþþninni verður á þriðjudaq- 'nn kemur, 6. desember, á Hverfisgötu 105 og hefst klukkan 20.30. Þriq- kvöld° dakePPninn' haldi^ áfram en einnig sjálfstæð keppni þetta eina Allir velkomnir. - Stjórnin. ERLENDAR FRÉTTIR írak Blóðbrúðkaup í Bagdað Forsetasonur drepur einkavinföður síns og móðgar einn mikilvœgasta mann stjórnar hans Einn þeirra þekktari í röðum harðráðra valdstjórnenda heims er Saddam Hussein, forseti Iraks og leiðtogi þarlends ríkis- flokks, Baathflokksins. Þessi ann- ars frekar heppni og úthaldsgóði einræðisherra er um þessar mundir staddur í vanda, sem á hvorki upptök sín í innanlands- málum eða heimsstjórnmálum, heldur í fjölskyldu hans sjálfs. Þótt margt hafi breyst í írak í krafti olíunnar og innfluttra siða vestrænna, að minnsta kosti á ytra borði, eru stemmningin í samfélaginu og stjórnarhættir enn með þeim hætti, að Bagdað- kalífunum og fornmönnum á borð við Nebúkadnesar og Ass- úrnasírpal annan, sem grimmast- ur þótti margra kolgrimmra Ass- ýríukonunga, ætti að koma margt í þeim efnum kunnuglega fyrir sjónir, mættu þeir líta upp úr gröfum sínum. Harðstjórn Sadd- ams Hussein er talin óvenju grimm, jafnvel á mælikvarða Austurlanda nær. Hann hefur um sig þéttriðið valdanet gæðinga í flokki og her og ekki síður harð- snúna og vel skipulagða leyni- þjónustu. Sjálfur er hann harð- snúinn og slunginn og til þessa hefur honum tekist að gera að engu vonir, sem óvinir hans, er- lendir sem innlendir, kunna að hafa alið í brjósti um að steypa honum af stóli. Unnið ógrunsamlega Til að treysta sig í sessi hefur Hussein jafnan viðhaft þá meg- inreglu, að ganga ekki einungis ógrunsamlega milli bols og höfuðs á raunverulegum eða grunuðum andstæðingum, held- ur og einnig öllum þeim, sem taldir hafa verið eiga möguleika á að veita andstöðu. Baathflokkur- inn og herinn hafa þannig marg- sinnis mátt þola blóðugar hreins- anir og Kúrdar, fjölmennasti þjóðernisminnihluti landsins, og sjítar, stærsti trúflokkurinn með- al araba þar, hafa fengið þaðan af verri útreið. Hussein er ekki síður einvaldur í ríki sínu en fornkonungar Ass- ýríu og Babýlonar voru, í persón- udýrkun á sjálfum sér slagar hann hátt upp í þá og eftir því er vegur fjölskyldu hans. Heimildarmenn vel upplýstir úr innsta hring hafa þannig slegið því fram, að líklegt sé að elsti sonur valdhafans, Uday að nafni og nú 24 ára, erfi ríkið eftir haris dag. Nútímaprins úr Þúsund og einni nótt Þessi ungi maður hefur hingað til notið lífsins í skjóli valds föður síns engu miður en prins í Þúsund og einni nótt. í hvert skipti sem hann brá sér í ökutúr um götur Bagdaðar lokaði lögreglan öllum þeim götum, sem honum þókn- aðist að eiga leið um, svo að hann gæti komist leiðar sinnar á þeim hraða sem honum líkaði. Oft í viku var hann aðalgesturinn á börum lúxushótela borgarinnar, alltaf með skara af laglegu kven- fólki í kringum sig. í háskólanum í Bagdað gat hann sér mestan orðstír fyrir gleðskap við áfengi og konur. Þrátt fyrir þessar annir og æsku Uday Hussein-fært erfram hon- um til afsökunar að öl sé annar maður. forsetasonarins hlóðust á hann ófá trúnaðarstörf. Hann var for- seti olympíunefndar íraks og þar með íþróttamálaráðherra, for- maður íraska knattspyrnusam- bandsins og aðalritstjóri helsta íþróttablaðs landsins. Eins og nærri má geta um svo mikilvægan og önnum kafinn pilt slapp Uday Hussein alveg við það að gegna herþjónustu í stríðinu við íran, en'í því féllu um 200.000 írakar, samkvæmt einni ágiskun. Voldugur þjónn En svo kom að því að veruleg snurða hljóp á þráðinn hjá þess- um lánsama unga manni. Maður hét Kamil Hanna, sérlegur líf- vörður og einkaþjónn Husseins og enginn hversdagslegur þjónn,1 því að hann var nánasti trúnaðar- vinur húsbónda síns og þrátt fyrir lága stöðu á pappírnum í raun einn áhrifamestu manna í hirð einræðisherrans. Börn forsetans unnu honum litlu miður en föður sínum og kölluðu hann „ammu“ (frænda). Það var því ekkert almúga- brúðkaup, þegar dóttir Hanna var manni gift 18. okt. s.l. Meðal brúðkaupsgesta var öll íraska ríkisstjórnin, að ótöldum öðrum virðingamönnum. Uday Hussein var þar líka. Viskí eins og vatn Baathflokkurinn er fremur veraldlega sinnaður á íslamska vísu og leggur meira upp ur arab- ískri þjóðernishyggju en íslam. Sumt í íslömsku lögmáli er því ekki tekið mjög bókstaflega í Irak, t.d. bannið við áfengis- neyslu. En sökum þess að téð bann gilti þar um aldaraðir, svo sem í öðrum íslamslöndum, þá er vínmenning landsmanna ný af nálinni. Af því virðist leiða að þeim sé miður vel lagið að gæta hófs, þegar hinar svo lengi forb- oðnu veigar eru í boði. Þannig hættir mönnum til að þamba drykki á borð við viskí og vodka einsóg þyrstir menn vatn og aldin- safa, þegar þeir komast í þá. Þannig kvað það hafa gengið til í brúðkaupi dóttur Kamils Hanna, sem veitti skoskt viskí af miklum öðlingsskap. Þegar nokkuð var liðið á veisluna brá faðir brúðarinnar upp byssu og tók að skjóta upp í loftið. Þetta mun vera gamall bedúínasiður og raunar er það þekkt víðar að hafa skothríð til mannfagnaðar. Þetta fór engu að síður í taugarnar á Uday forsetasyni, og skipaði hann Hanna að hætta þessu. Líf- vörður forsetans brást reiður við Maaruf - Kúrdi til sýnis. og leit svo út að þeir myndu fara í hár saman, enda báðir orðnir veldrukknir. Taha Muhji el-Din Maaruf, varaforseti íraks og kúrdneskrar ættar, reyndi þá að stilla til friðar, en Uday rak hon- um kinnhest og æpti: „Burt með þig upp í fjöll, kúrdneski villi- maður!" Afdrifarík veislu- spjöll Þegar hér var komið sveif Hanna á Uday og hefur kannski ætlað að henda stráknum út. En forsetasonurinn var þá kominn með kylfu í hendur og laust einkavin föður síns slíku höggi í höfuðið, að hann hafði þegar bana. Fáeinum dögum síðar var Uday handtekinn og faðir hans tilkynnti í ríkisfjölmiðlum að sín fjölskylda væri ekki öðrum frem- ur yfir lögin hafin. Hussein vill í þessu máli sýna sig sem strangan en réttlátan landsföður. Hann hefur sínar ástæður til þess. Þrátt fyrir landsvenjur í írak hafa sér- réttindi og svall forsetasonarins gengið fram af mörgum. Kamil Hanna var vinmargur og þar að auki hafði Uday móðgað Maaruf varaforseta, sem er einn mikil- vægustu manna í stjórn Husseins. Maaruf kemur vel fyrir og þykir slyngur stjórnmálamaður. Huss- ein hefur þar að auki áhyggjur af ámæli því - furðu vægu þó miðað við tilefni - sem hann sætir á al- þjóðavettvangi fyrir útrýmingar- hernaðinn gegn Kúrdum. Til mótvægis við þetta þykir honum betra en ekki að geta bent á að Kúrdi sé í næstvirðulegasta emb- ætti ríkisins. Verði réttvísin látin ganga sinn gang í máli Udays, gæti svo farið að hann endaði ævina í gálgan- um. En heldur ólíklegt er að til þess komi. Þannig hefur nú frést að faðir hins drepna hafi opinber- lega beðið banamanni sonar síns griða. Því hefur líka verið haldið fram, forsetasyninum til afsökun- ar, að hann hafi ekki framið glæp- inn vísvitandi, heldur viti sínu fjæríölæði. Einnig kvað það hafa rifjast upp fyrir einhverjum í hirð einræðisherrans að Uday hafi fyrir nokkrum árum orðið fyrir höfuðhöggi miklu í umferðarslysi og síðan ekki verið fyllilega sjálf- ráður gerða sinna. Það er því lík- legast að Uday sleppi við gálg- ann, en staða hans sem ríkiserf- ingja gæti verið í meiri hættu. Því að einnig í Austurlöndum nær mun almennt til þess ætlast af valdhöfum að þeir opinberlega teljist heilir á sönsum. -dþ. 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. desember 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.