Þjóðviljinn - 06.12.1988, Page 14
/f DAG/I
Jóla hvað?
Það finnst sjálfsagt mörgum að
minna muni fara fyrir jólahátíðinni
að þessu sinni en oftast áður,
jóladagarog áramót um helgi og
ekki nema einn aukafrídagur.
Slíkt er ekkert nýmæli, gerðist
síðastfyrir5árum. Hitteralvar-
legra að jólin verða að þessu
sinni haldin í skugga efnahags-
þrenginga og stóraukins atvinnu-
leysis. Það er því Ijóst að víða
verður þröngt um kost hjá lands-
mönnumumjólin.
Vissulega er slíkt áhyggjuefni,
en það má líka sgyrja; hefur jóla-
hald og kaupæði landsmanna í
kringum jólin ekki fyrir löngu farið
fram úröllu hófi? Hvereltirannan
uppi í stórinnkaupum á gjafa-
vöru, endurnýjun á húsbúnaöi,
glansi og glimmer. Veisluföng af
dýrustu sort, matarhátíö mikil og
allir una glaðir við sitt, ekki síst
kaupmennirnir í Kringlunum.
í fyrra var opnað stærsta versl-
unarmiðstöð landsins í Kring-
lunni. Þá töldu margir að verslun
við Laugaveginn væri dauða-
dæmd. Laugavegurinn er enn á
sínum stað með allar sínar versl-
anir og raunin sú að verslunum
hefur ekki fækkað heldur stór-
fjölgað á þessum tíma. Nú síðast
í liðinni viku var opnuð ný versl-
unarkringla við hliðina á þeirri
gömlu/nýju og aðrar kringlur opn-
aðar í Breiðholti og við Lauga-
veginn.
Kaupmenn tala um erf iða tíma.
Borgin sé yfirfull af verslunum.
Nú sé að duga eða drepast, ann-
að hvort bjargast mienn á jóla-
versluninni eða ekki. Sumir segja
að jólaverslunin verði trúlega
engu minni nú en um síðustu jól,
sem slógu víst öll met. Þrátt fyrir
auraleysi vilja menn halda sín jól,
og þeir sem á annað borð eiga
peninga, hafa aldrei haft eins
mikið á milli handanna og nú.
En er ekki rétt að landsmenn
staldri augnablik við? Hvaða
geggjunerþetta sem heltekur
þjóðina í hvert skipti sem jólin
nálgast? Jólahátíðin á ekki að
vera fjárhagslegur björgunar-
báturfyrirversluninaílandinu
sem er orðin allt of umf angsmikil
og óhagkvæm í alla staði. Höld-
um okkar jól í friði og á hófsaman
hátt. Ráðum okkar jólum sjálf, en
látum ekki kapphlaupiðog aug-
lýsingaskrumið stjórna ferðinni.
______________________j9-
ÍDAG
er 6. desember, þriðjudagur í sjö-
undu viku vetrar, sextándi dagur
ýlis, 341. dagur ársins. Sól kemur
upp í Reykjavík kl. 10.59 en sest
kl. 15.39. Tunglminnkandiá
fjórða kvartili.
VIÐBURÐIR
Nikulásmessa. Fæddur Kristján
Eldjárn forseti 1916. Fæddur
Einar H. Kvaran rithöfundur
1859. Þjóðhátíðardagur Finn-
lands.
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Nokkur hluti þeirra þjóðlegu
Reykvíkinga, sem nýlega hafa
keypt Helluofna og látið setja þá
upp í húsum sínum: Þórir Bald-
vinsson húsameistari, Ólafur
Johnson konsúll, Þorsteinn
Jónsson bankafulltrúi, Gasstöð
Reykjavíkur, Ólafur H. Jónsson
framkvæmdstj., Litir & Lökk
verksmiðja, Sigurbjörn Þorkels-
son kaupmaður, Sigurður Skúla-
son magister, Björn Ólafsson
stórkaupmaður, ValdimarÞor-
steinsson byggingameistari, Eyj-
ólfur Jóhannesson forstjóri, Ás-
geir Þorsteinsson verkfræðingur,
Olíuverzlun íslands, Þorvaldur
Thoroddsen framkvæmdastj.,
Helgi Hjörvarrithöfundur, Óli
Ólason kaupmaður, Nýjabíó,
Óskar Jónsson bólstrari, Bene-
dikt Sveinsson húsasmiður, Kol-
beinn Árnason kaupmaður,
Kristján Guðmundsson fram-
kvæmdastj. o. m. fl. Hf. Ofna-
smiðjan, Box491, Reykjavík.
Kjartan Ragnarsson -*
„Það ótrúlegasta“
UM UTVARP & SJONVARP jK
Gestastofan
Rás 1, kl. 15.03 sveita á Héraði. Kristján lítur nú
Ýmsir góðir gestir hafa heim- inn hjá Stefáni Bragasyni í dag og
sótt Stefán Bragason á Egilsstöð- stendur við í þrjá stundarfjórð-
um að undanförnu og hafa hlust- unga. Mun Kristján segja undan
endur Rásar 1 notið góðs af. - og ofan af ýmsu amstri sínu um
Flestir Héraðsbúar þekkja Krist- dagana, léttur í máli að venju, og
ján Björnsson frá Grófarseli í fluttar verða gamlar og nýjar
Jökulsárhlíð, og að góðu einu. upptökur frá skemmtunum á
Hann er nú reyndar fluttur úr Héraði, þar sem hann hefur
Hlíðinni og í Fellabæ, andspænis „tekið lagið“. - Þessi þáttur er
Egilsstaðakauptúni, og sér um að endurtekinn frá laugardagsk-
dreifa- póstinum til nokkurra völdi. -mhg
Tónlist Sibeliusar
Rás 1, kl. 22.30
Sten Kaalö er einn af þekkt-
ustu leikritahöfundum Dana um
þessar mundir. Eftir hann liggur
fjöldi leikrita, sum fyrir svið
önnur fyrir útvarp, og eru þau
þekkt víða um heim. - í kvöld
flytur Rás 1 eitt verka þessa höf-
undar, „Það ótrúlegasta“. Þar
leiðir höfundur hlustendur um
hið fjölskrúðuga mannlíf stór-
borgarinnar. Á sólarhrings rölti
okkar fylgjumst við með þeim
persónum, sem við sögu koma og
„hvernig líf þeirra tengist, að því
er virðist, á hinn ótrúlegasta
hátt.“ Sverrir Hólmarsson hefur
þýtt leikritið en leikstjóri er
Kjartan Ragnarsson. Leikendur
eru: Helgi Björnsson, Jón Hjart-
arson, Theodór Júlíusson, Ólafía
Hrönn Jónsdóttir, Kristján
Franklín Magnús, Sigurður
Skúlason, Þór Tuliníus, Margrét
Ólafsdóttir, Ragnheiður Arnar-
dóttir, Margrét Ákadóttir,
Eyvindur Erlendsson, Helga Þ.
Stephensen og Guðrún Birna Jó-
hannsdóttir.
-mhg
Rás 1, kl. 17.03
Á þjóðhátíðardegi Finna er
ekki óeðlilegt að tónlist eftir Jean
Sibelius sitji í öndvegi. Að þessu
sinni verða flutt eftir hann fjögur
tónverk. - Fyrst er það „Finn-
landia", sinfónískt ijóð. Hljóm-
sveitin Filharmonía leikur, Vla-
dimir Ashkenazy stjórnar. Þá
kemur „Karelia“, svíta op. 11.
Hljómsveitin Filharmonía leikur,
Vladimir Ashkenazy stjórnar. -
Síðan eru það þrír ljóðasöngvar.
Tom Krause, bariton, syngur,
Irwin Gage leikur á píanó. - Og
loks „En Saga“, sinfónískt ljóð
op. 9. Sinfóníuhljómsveitin í
Gautaborg leikur, Neeme Járvi
stjórnar.
-mhg
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
6 FOLDA
Hvernlg líður skjaldbökunni?^
Einusinni þegar ég var lítill
sá ég eina svona
í dýragarði
14 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 6. desember 1988