Þjóðviljinn - 11.01.1989, Qupperneq 1
Miðvikudagur 11. janúar 1989 7. tölublað 54. órgangur
Samvinnumál
KEA kaupir
hús Vals
Jóhannes Sigvaldason, stjórnarformaðurKEA: GertValtil
hagrœðingar. Viðrœður standayfir við Val um að hann kaupiþann bíl
sem KEA lét honum í té sem kaupfélagsstjóra
Valur Arnþórsson, kaupfélags-
stjóri KEA hefur selt KEA
íbúðarhús sitt að Byggðavegi 118
og hefur átt í viðræðum við stjórn
KEA um að kaupa bfl þann sem
KEA lét honum í té sem kaupfé-
iagsstjóra. Sem kunnugt er
hyggst Valur nú flytja búferlum
til Reykjavíkur, enda mun hann
taka við stöðu bankastjóra við
Landsbankann þann 1. febrúar
næstkomandi. Jóhannes Sig-
.valdason, stjórnarformaður KEA
staðfesti þetta í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
„Já, Valur seldi okkur hús sitt
að Byggðavegi. Það var gengið
frá þessu einhvern tíma seint í
haust þegar Valur þurfti að fara
að koma sér fyrir í Reykjavík,"
sagði Jóhannes. Aðspurður sagði
Jóhannes að það væri nú raunar
ekki vaninn að KEA keypti hús-
eignir af fyrrverandi starfsmönn-
um þó þeir þyrftu að flytja úr
byggðarlaginu. „Hins vegar hafa
kaupfélagsstjórar út á landi yfir-
leitt verið í húsnæði kaupfélag-
anna. Þetta var alla vega sam-
þykkt af stjórn KEA og við
myndum þá ráðstafa þessu húsi.
Þannig að ég sá ekkert athuga-
vert við þetta. Þetta var kannski
svolítil hagræðing fyrir Val en
öðru vísi var þetta nú ekki,“ sagði
Jóhannes.
Jóhannes sagði að Valur flytti
sennilega suður í byrjun febrúar
en fjölskylda hans byggi áfram að
Byggðavegi fram á vorið. ,;En við
erum komnir með afsal fyrir hús-
ið. Það er ekki búið að taka neina
ákvörðun um hvað við gerum við
húsið í framtíðinni.“
Jóhannes sagði enn fremur að
til tals hefði komið að Valur fengi
að kaupa bifreið þá sem KEA
hefur látið honum í té sem
kaupfélagsstjóra. „Raunar vor-
um við sennilega með of hátt verð
á bifreiðinni þegar við vorum áð
ræða þetta mál. Það var eitthvað
yfir gangvirði þannig að ég veit
ekki hvað verður að samningum.
Ég býst nú ekki við að Valur vilji
kaupa bílinn á einhverju verði
sem er yfir gangverði,“ sagði Jó-
hannes. Jóhannes vildi hins vegar
ekkert gefa upp um hvaða verði
KEA hefði keypt húseign Vals.
„Það er bara okkar Vals á milli
hvernig það var. Ég gef ekkert
uppi hvort það yfir eða undir
gangverði," sagði Jóhannes Sig-
valdason, stjórnarformaður
KEA að lokum. -phh
Stöð 2
Fjórðungssjúkrahúsið
Ekkertþýtt
af nýju
Forráðamenn Stöðvar 2 hafa
sent bréf til um 25 af þýðendum
sínum þar sem frekari þjónusta er
afþökkuð. Bréf þetta kemur í
framhaldi af einhliða ákvörðun
um útboð allra þýðinga til að ná
fram sparnaði.
Félagsbundnir þýðendur
Stöðvarinnar eru um 50 saman í
félagi, flestir í hlutastarfi. Þeir
hafa mótmælt harðlega tillögum
um útboð, sem feli í sér enn frek-
ari launalækkun, en samningur-
inn er um 30% undir taxta Sjón-
varpsins.
- Við höfum neitað frekari við-
ræðum við Stöð 2 þar til bréf
Stöðvarinnar hefur verið dregið
til baka. Við teljum það ekki sið-
legt að grípa til uppsagna á með-
an viðræður eru í gangi um
launamál, segir Ástráður Har-
aldsson, einn þýðendanna.
Þýðendur við stöðina hafa ver-
ið einhuga um að bjóða ekki í
þýðingar fyrir stöðina og hefur
nær ekkert nýtt efni verið þýtt
síðustu vikur.
Þessi vinnubrögð Stöðvar 2
samræmast að okkar mati á eng-
an hátt yfirlýsingum um eflingu
íslenskrar menningar og tungu,
sagði Ástráður Haraldsson.
-<g-
í
Vestfirðingar upp við vegg?
Gottfyrir Vestfirðinga en óholltfyrir aðra? Hollustuvernd skilar af sér.
Framkvœmdastjórinn: Uniþví ekki að vera stillt upp við vegg. Guðni
Jóhannesson: Vildi ekki láta gera á mér keisaraskurð á fœðingardeildinni
Ef ég væri kvenmaður mundi ég
ekki vilja láta gera á mér
keisaraskurð á fæðingardeild
nýja Fjórðungssjúkrahússins á
ísafirði vegna sýkingarhættu af
völdum ryks frá illa frágenginni
steinullareinangrun í loftstokkum
og frá glerullarmengun úr loft-
plötum, sagði Guðni Jóhannesson
verkfræðingur sem lauk nýlega
úttekt á frágangi þessara efna
fyrir stjórn sjúkrahússins.
f dag mun forstöðumaður
Hollustuverndar ríkisins Þórhall-
ur Halldórsson leggja fyrir stjórn
sjúkrahússins álit sitt á því hvort
frágangur byggingarinnar telst
fullnægjandi fyrir starfsemi þess
eður ei. Á þeim grundvelli munj
heilbrigðisráðherra síðan gefa út
starfsleyfi handa sjúkrahúsinu.
Talið er næsta víst að Þórhallur
muni telja fráganginn fullnægj-
andi.
Frágangur á einangrun loft-
stokka í byggingunni með steinull
ásamt því sem loftplötur eru úr
glerull hefur sætt mikilli gagnrýni
meðal yfirlæknis sjúkrahússins
og annarra starfsmanna þess
vegna þeirrar mengunar- og sýk-
ingarhættu sem þessum efnum er
samfara komist þau í opin sár.
Yfirlæknirinn Kristinn Bene-
diktsson hefur lýst því yfir að það
sé með öllu óviðunandi að flytja
inn í nýju bygginguna þannig frá-
gengna en hún er að nálgast ferm-
ingaraldurinn í byggingartíma.
Frágangur byggingarinnar er
þegar orðið að hitamáli á ísafirði.
Guðmundur Marinósson fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins sagði að hann mundi ekki
una því að vera stillt upp við vegg
í þessu máli. En heilbrigðisráð-
herra virðist vera full alvara að
flutt verði inn í nýju bygginguna í
mars.
Að sögn Fylkis Ágústssonar
formanns sjúkrahússtjórnar
verða þá teknar i notkun ein legu-
deild með 30 rúmum og skurð-
stofa en fullbúið mun verða pláss
fyrir 56 sjúkrarúm í byggingunni.
Þetta er þó nokkur aukning frá
því sem verið hefur í gamla
sjúkrahúsinu sem var byggt 1925
með 33 sjúkrarúmum og er löngu
orðið of lítið.
-grh
Málsókn Flugleiða
Viðskiptin endurskoðuð
Forystumenn BSRB, ASÍog VR: Fullur stuðningur við Suðurnesjamenn
Samningaumleitanir BSRB og
Flugleiða um orlofsflug verða
teknar til endurskoðunar ef Flug-
leiðir halda fast við málsókn sína
gegn Verslunarmannafélagi
Suðurnesja vegna verslunar-
mannaverkfallsins í vor leið.
Forystumenn í verkalýðshreyf-
ingunni taka óstinnt upp kæru
Flugleiða á hendur VS fyrir
bæjarþingi Keflavíkur í dag. Ás-
mundur Stefánsson sagði VS hafa
fullan stuðning ASÍ í málinu, og
Magnús L. Sveinsson formaður
VR telur kæru Flugleiða slæmt
innlegg nú þegar verkalýðshreyf-
ingin og atvinnurekendur eru að
undirbúa sig undir samningalotu.
Sjá síðu 5 og leiðara