Þjóðviljinn - 25.01.1989, Side 9
MINNING
Sigurður Ámason
fynv. verkalýðsforingi og bóndi
Fœddur26. júní 1903 - Dáinn 18. janúar 1989
Sigurður var fæddur á Þuríðar-
stöðum í Eiðaþinghá, en fór það-
an að Heiðarseli í Hróarstungu
ogbjóþartil 1947,erhannfluttist
til Hveragerðis. Þar gerðist hann
garðyrkjubóndi og formaður
verkalýðsfélags Hveragerðis og
Þorlákshafnar.
Okkur Astu konu mína setti
hljóð, er við fréttum um fráfall
vinar okkar Sigurðar Árnasonar
er andaðist á elliheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi eftir langvar-
andi veikindi.
Það má segja um Sigurð að
enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur, því ekki var hægt að
hugsa sér betri nágranna heldur
en þau Sigurð og Önnu konu
hans.
Áður en yfir lauk hafði Sigurð-
ur átt margar þjáningarstundir,
sérstaklega síðustu árin, en þær
stundir eins og aðrar brást ekki
skapstilling né þolinmæði hins
reynda manns. Og aldrei heyrðist
hann æðruorð mæla. Beið örugg-
ur þess er koma skyldi.
Nú ert þú horfinn sjónum okk-
ar, kæri vinur. Við geymum um
þig hugljúfar minningar. Þökk-
um velvilja þinn, festu og dreng-
skap. Enda birti alltaf yfir, þegar
við hjónin sáum þig, er við rennd-
um í hlaðið hjá bústaðnum okk-
ar.
Oft hef ég undrast það hvað
þessi dugnaðarmaður gat alltaf
gefið sér tíma til að leiðbeina öðr-
um og hjálpa.
Sigurður átti mikið af verkfær-
um og ýmsum hlutum, sem aðra
vanhagaði um, og leið varla sá
dagur að einhver kæmi ekki til að
fá aðstoð hans eða að fá lánuð
áhöld sem hann vanhagaði um.
Sigurður var fríður maður og
sérstaklega góðlegur, enda
eignaðist hann fallega konu,
Önnu Guðjónsdóttur, fædda 13.
mars 1907 á Brekkum í Hvol-
hreppi. Giftust þau árið 1937.
Þau eignuðust eina dóttur,
Guðbjörgu Jónu, og einnig fóst-
urson, Björgvin Heiðar Árna-
son, og er hann kjörbarn þeirra.
Börn þeirra Sigurðar og Önnu
eru sérstaklega efnileg og mikil
mannsefni, enda hafa þau fengið
gott uppeldi, því hjónaband
þeirra Sigurðar og Önnu hefur
verið tii fyrirmyndar. Sást það
best á því hvað Ánna hugsaði um
Sigurð af undraverðri natni og
þolinmæði eftir að hann missti
heilsuna.
Um uppvaxtarár Sigurðar veit
ég lítið annað en það, að hann fór
í Eiðaskóla árið 1924 og var þar í
þrjá vetur. Síðast í framhalds-
deild, sem var þá starfandi við
skólann.
Þórgnýr Guðmundsson frá
Sandi, fyrrv. skólastjóri, skrifar
um Sigurð í tímaritið Heima er
best, og segir þar meðal annars:
„Hann var þúsund þjala smiður á
Eiðastað. Ef eitthvað fór aflaga
utan húss eða innan, var tíðum til
hans Ieitað um úrbætur. Vissi ég
dæmi þess að hann „skrópaði" úr
kennslustund, ef fyrir lá í skólan-
um óleyst verkefni til úrlausnar.
Hann var góður námsmaður,
en varla er hægt að segja að hann
hafi lagt sérlega hart að sér við
lesturinn. Þrátt fyrir það fékk
hann góða einkunn við
burtfararpróf, því vits var honum
ekki vant. Hann var orðheppinn
og voru tilsvör hans oft eftirtekt-
arverð.“
Sigurður var vel gefinn maður,
réttsýnn og stefnufastur. Var
alltaf viss um sigur hins góða að
lokum, þótt lengi þyrfti kannski
að bíða. Hann var að eðlisfari
hlédrægur maður, en lét til sín
taka þegar hart var deilt, og alltaf
kom fram sú viðleitni hans, að
taka málstað þeirra fátæku, og
styrkja gott málefni.
Sigurður var mjög minnugur á
það gamla, sérstaklega á menn og
málefni af Fljótsdalshéraði.
Hann kynntist mörgu fólki því
hann vann víða við lagfæringar
gamalla húsa og smíðar nýrra,
enda lék allt í höndum hans. T.d.
vann hann við byggingu Hall-
ormsstaðarskóla og við brúar-
gerð yfir Jökulsá á Brú.
Sigurður var mikill íþrótta-
maður á sínum yngri árum og tal-
inn besti knattspyrnumaður á
Héraði um tíma. Hann var um
skeið formaður íþróttafélagsins í
Hróarstungu.
Hreppsmál lét hann mikið til
sín taka og sat í hreppsnefnd
Hróarstunguhrepps lengi. Einnig
fór Sigurður í framboð til Alþing-
is fyrir Norðurmúlasýslu.
Þá má geta þess að Sigurður
var fulltrúi á Álþýðusambands-
þingum í mörg ár.
Um 1930 setti Sigurður á fót
skógerð á Fljótsdalshéraði og síð-
an á Selfossi. Þetta voru gúmmí-
skór, sem seldust mjög vel og
þurfti Sigurður að fá sér hjálpar-
menn til að anna eftirspurn.
Það var árið 1947 sem þau Sig-
urður og Anna. flytja til Hvera-
gerðis og kaupa þar lítið íbúðar-
hús, sem þau síðan stækka. Hús-
inu fylgdi gróðurhús en þau
byggja annað stærra svo þá eru
Háskólatónleikar
þau komin með sæmilega að-
stöðu til að sjá sér farborða.
Ræktuðu þau þar bæði tómata og
agúrkur. Þessi búskapur gekk
sæmilega, þótt Sigurður væri oft
að heiman við önnur störf.
Þess má geta hér að skömmu
eftir að þau Sigurður og Anna
flytja til Hveragerðis, var Sigurð-
ur beðinn um af læknum Land-
spítalans að setja á fót leirböð
fyrir fólk, sem lamast hafði, eða
fengið slæma gigt. Þetta tók Sig-
urður að sér. Kom á fót aðstöðu
fyrir sjúklingana og vann við
þessi leirböð þar til Náttúrulæn-
ingafélagið kom upp aðstöðu til
leirbaða hjá sér. Fyrir skömmu
tjáði Sigurður mér, að enn væri
fólk að koma til að þakka sér fyrir
þann bata sem það hafði fengið.
Taldi hann að þetta mundi hafa
verið í fyrsta sinn sem leirböð
voru reynd til lækninga hér á
landi.
Eins og fyrr segir var Sigurður
formaður verkalýðsfélags Hvera-
gerðis og Þorlákshafnar frá 1950-
1972 og gerður þá heiðursfélagi.
Að endingu langar mig og
eiginkonu mína að þakka hjart-
anlega fyrir allar þær ánægju-
stundir, sem við höfum átt saman
bæði í litla húsinu okkar og heima
hjá Sigurði og Önnu.
Við biðjum því þann sem öllu
ræður að létta sorg eftirlifandi
eiginkonu hans, barna hans og
barnabarna.
Ásta og Sveinn
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Selfossi og nágrenni
Almennur
félagsfundur
Almennur félagsfundur verð-
ur haldinn að Kirkjuvegi 7,
Selfossi, mánudaginn 30. jan-
úar kl. 20.30.
Ólafur R. Grímsson fjármála-
ráðherra og Margrét Frí-
mannsdóttir alþm. mæta á
fundinn og ræða stöðuna í
stjórnmálunum.
Nýir félagar velkomnir. Fjöl-
mennið. Stjórnin Margrét Olafur
Alþýðubandalagid á Suöurlandi
Þorrablót
Þorrablót kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Suðurlandi verður haldið í
félagsheimili Ölfusinga laugardaginn 4. febrúar og hefst klukkan 20.
Miðaverð er krónur 1800 og þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist eigi
síðar en 30. janúar til Ingibjargar í síma 34259, Björns s: 34389 og Inga s:
31479. Kjördæmisráð
20 ára afmælishappdrætti
Alþýðubandalagsins
Drætti frestað fram yfir mánaðamót svo allir geti gert skil.
Munið greiðslukortaþjónustuna í síma 91-17500.
Féiagsfundur ABR
Minnihlutinn í
Reykjavík -
AA-flokkarnir
Samvinna -
samfylking -
sameining?
Stuttar framsögur flytja Álf-
heiður Ingadóttir, Birna Þórð-
ardóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir
og Svanfríður Jónasdóttir.
Fundurinn verður haldinn að
Hverfisgötu 105
fimmtudaginn 26. janúar
klukkan 20.30. Félegar fjöl-
mennið, hér eru mál sem þarf
að ræða.
Stjórnin
Álfheiður Birna
Svanfríður Kristín
Rannsóknaráð ríkisins
auglýsir styrki til rannsókna
og tilrauna árið 1989
Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
ráðsins, Laugavegi 13, sími 21320.
Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur:
• Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eða fyrirtæki.
• Styrkfé á árinu 1989 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum
tæknisviðum.
Píanó og lágfiðla
Þriðju háskólatónleikar vormis- Dagný Björgvinsdóttir píanó-
seris verða í dag, 25. janúar, leikari flytja verk eftir Zoltán
kl.12.30-13.00 í Norræna húsinu. Kodály, Paul Hindemith og Ge-
Þá munu ungverski lágfiðlul- orge Enescu.
eikarinn Agnes Szekely og
íslandsdeild IBBY
Börn norðursins
Á sunnudaginn 29. janúar kl.
14.00 verður sýningin Börn
norðursins (Children of the
North) opnuð í Norræna húsinu.
Þetta er sýning á myndskreyting-
um í norrænum barnabókum sem
kemur hingað á vegum Norræna
hússins og Barnabókaráðsins.
Frá íslandi voru send verk eftir
Brian Pilkington, Önnu Cynthiu
Leplar og Sigrúnu Eldjárn.
I tengslum við sýninguna verða
ýmsar uppákomur bæði fyrir
börn og fullorðna, höfundar
munu lesa úr verkum sínum og
sagnaþulir segja sögur, börnum
gefst tækifæri til að kynnast
teiknimyndagerð, vinna við
myndlist og leikræna tjáningu.
Ráðstefna um barnamenningu
verður haldin í Norræna húsinu
4.febrúar.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
12. febrúar.
Sérstök áhersla skal lögð á:
- efnistækni,
- fiskeldi,
- upplýsinga- og tölvutækni,
- líf- og lífefnatækni,
- nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu,
- matvælatækni,
- framleiðni- og gæðaaukandi tækni
• Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal byggt á:
- líklegri gagnsemi verkefnis,
- gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina,
- möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á landi,
- hæfni rannsóknarmanna/umsækjenda
- líkindum á árangri
• Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að:
- samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur í
framkvæmd verkefnisins,
- fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni af mörkum,
- líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar í at-
vinnulífi. Þó er einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að lang-
frama uppbyggingu á færni á tilteknum sviðum.
Miðvikudagur 25. janúar 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9