Þjóðviljinn - 02.02.1989, Side 2
FRÉTTIR
Siglingar
Selnesið
hætt komið
Fékk á sig slagsíðu þegar sjór komst í
jafnvœgistanka
r
Isvartamyrki, miklum vindi og í
10 - 12 metra ölduhæð, 140
sjómílur suður af Ingólfshöfða í
gærmorgun kom slagsíða á flutn-
ingaskipið Selnes á leið þess til
Englands, fulllestað vikri.
Sjór komst í jafnvægistanka
skipsins að talið er í gegnum loft-
ventla og vegna slæmra aðstæðna
óskaði skipstjórinn strax eftir að-
stoð Landhelgisgæslunnar og
ennfremur voru björgunarþyrlur
hersins á Keflavíkurflugvelli í
viðbragðsstöðu. Skipverjum
tókst fljótlega að dæla sjó úr
tönkunum og rétta skipið við. Af
þeim sökum þurftu skipverjar
ekki á neinni aðstoð að halda og
fór þyrla Landhelgisgæslunnar
því aldrei lengra en til Eyja.
Um 6.800 rúmmetrar af vikri
eru í lestum skipsins og var í
fyrstu óttast að sjór hefði komist í
iestarnar sem reyndist síðan ekki
vera. Skipið er nú á hægri siglingu
til Englands. 12 manna áhöfn er
um borð.
-grh
BHMR
Viðræður strax
Samráðsfundur aðildarfélaga
BHMR sem haldinn var í gær
krefst þess að fjármálaráðhcrra
hefji nú þegar samningaviðræður
við samninganefnd BHMR.
Segir í ályktun félaganna að
þau hafi ítrekað óskað eftir við-
ræðum en án árangurs. Fullyrð-
ingar ráðherra um að slíkar við-
ræður hafi átt sér stað séu rangar.
Fordæma þau vinnubrögð ráð-
herrans að virða að vettugi rétt
háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna til samningaviðræðna.
Segjast félögin þegar hafa hafið
nauðsynlegan undirbúning að-
gerða til að ná fram rétti sínum.
Góður andi var á fundi forystumanna Verkamannasambandsins og ráðherra í gaer. Mynd:ÞÓM.
Kjaramál
VMSÍ á ráðherrafund
Ólafur Ragnar: Áherslur Verkamannasambandsins ílíkum dúr og
hugmyndir ríkisstjórnarinnar
Forystumenn Vcrkamanna-
sambands íslands gengu á
fund oddvita ríkisstjórnarinnar í
gær og kynntu þeim ályktun sam-
bandsins frá því í fyrradag um
áherslur í komandi samningum.
Einsog kunnugt er leggur VMSI
höfuðáherslu á þrennt; að tryggð
verði full atvinna, að jafnaður
verði mikill munur á lífskjörum
manna hérlendis og að verðbólgu
verði haldið í skefjum. Ennfrem-
ur kemur fram sú viljayfirlýsing í
ályktuninni að f komandi samn-
ingum verði fyrst og fremst lögð
áhersla á verndun kaupmáttar.
Það var á ráðherrum að heyra
að fundur þeirra og forkólfa
Verkamannasambandsins hefði
farið hið besta fram. Ólafur
Ragnar Grímsson kvað gestina
hafa kynnt ályktunina fyrir ráð-
herrum og væri hún mjög athygl-
isverð. í henni væru áherslur í
grófum dráttum þær sömu og
ríkisstjórnin hefði lagt frá upp-
hafi; í atvinnumálum, um jöfnun
lífskjara og að haída verðlagi í
skefjum.
Hinsvegar væri ekki orðið
tímabært að tíunda einstök atriði
þessa því enn væri mikið verk
fyrir höndum í búðum beggja við
útfærslu þeirra. En fundurinn
hefði verið mjög gagnlegur.
ks.
Borgarstjórn
Þjónustu í stað gæluverkefna
Stjórnarandstaðan leggur sameiginlegafram um 70 breytingartillögur við fjárhagsáœtlun
Sjálfstœðismanna. Framkvœmdir við ráðhúsið verði skornar niður um 300 miljónir.
Framlag til dagvistar- og öldrunarmála aukið verulega
Stjórnarandstaðan vill tvöfalda framlög borgarinnar til dagvistarmála.
Framkvæmdir í þágu borgar-
búa í stað skrautbygginga er
megin inntak þeirra tillagna sem
við leggjum fram að þessu sinni,
sagði Sigurjón Pétursson borg-
arfulltrúi Alþýðubandalagsins
þegar stjórnarandstöðuflokkarn-
ir kynntu sameiginlegar breyting-
artillögur sem lagðar verða fram
við aðra umræðu um fjárhagsá-
ætlun borgarinnar í kvöld.
Þetta er í þriðja sinn sem flokk-
arnir leggja fram sameiginlegar
breytingartillögur við fjárhagsá-
ætlun Reykjavíkur. Stjórnarand-
staðan leggur fram nær 70 tillögur
við frumvarp Sjálfstæðismanna.
Pær tillögur hafa í för með sér um
900 miljón kr. tilfærslu. 600 milj-
ónum verði varið í önnur verk-
efni en Sjálfstæðismenn vilja og
hætt verði við að veita Hita-
veitunni heimild til að taka lán
upp á 300 miljónir vegna fram-
kvæmda við veitingahúsið á
Öskjuhlíð
Mestu munar um aukið fram-
lag til dagvistarmála uppbygg-
ingu félagsaðstöðu fyrir ung-
linga, aukið framlag borgarsjóðs
í þágu aldraðra og til félagslegra
íbúða. Á móti leggur stjórnar-
andstaðan til að einungis verði
varið um 65 miljónum kr. til
framkvæmda við ráðhúsið á
þessu ári. Sjálfstæðismenn hafa
lagt til að varið verði 3065 miljón-
um kr. til áframhaldandi fram-
kvæmda við ráðhúsið.
Dagvistarmál
- Við gerum það að tillögu
okkar að borgin tvöfaldi framlag
sitt til uppbyggingar dagvistar-
heimila. Við viljum verja úr
borgarsjóði 4% af útsvarstekjum
ársins til þessa verkefnis Yrði sú
tillaga samþykkt myndi það þýða
að framlag borgarsjóðs yrði rúm-
lega 172 miljónir í stað 65 miljóna
kr. á þessu ári, sagði Kristín A
Ólafsdóttir.
Hún benti og á að í raun lækk-
aði framlag borgarsjóðs til þessa
verkefnis frá því í fyrra. Með
sama áframhaidi tæki u. þ. b.
aldarfjórðung að sinna þeim 2000
börnum sem nú væru á biðlista
eftir plássi. Hún sagði nauðsyn-
legt að bæta launakjör þeirra sem
störfuðu á dagvistarheimilum
þannig að auðveldara yrði að
manna þau.
Málefni aldraðra
- Við í stjórnarandstöðunni
höfnum þeirri stefnu Sjálfstæðis-
manna að byggja hér einungis
söluíbúðir fyrir aldraða. Við vilj-
um þess í stað byggja leiguíbúðir
og að einnig verði komið á fót í
Reykjavík sambýli fyrir aldraða
eins og gert hefur verið í Kópa-
vogi með góðum árangri, sagði
Guðrún Ágústsdóttir, þegar hún
fjallaðí um tillögur stjórnarand-
stöðunnar í öldrunarmálum.
Framlag til framkvæmda í þágu
aldraðra verði hækkað í tæplega
300 miljónir úr 164 miljónum.
Ráðist verði í byggingu nýs
hjúkrunarheimils, komið verði á
fót sambýli fyrir aldraða, einnig
að um 17 miljónuui verið varið til
leiguíbúða fyrir aldraða og 10
miljónum verði varið til kaupa á
hentugu húsnæði til reksturs dag-
vistar fyrir aldraða. Jafnframt að
stóraukið verði framlag borgar-
sjóðs til B-álmu borgarspítalans,
en sú bygging he; r verið í smíð-
um í 12 ár.
- Við erum þeirrar skoðunar
að í frumvarpi Sjálfstæðismanna
sé rekstri borgarinnar of þröngur
stakkurskorinn. Alvarlegasttelj-
um við hversu naumt er áætlað til
viðhalds skólabygginga, en
ástand skólahúsnæðis í eigu borg-
arinnar er vægast sagt víða bág-
borið, sagði Sigrún Magnúsdóttir
fulltrúi Framsóknar. Hún sagði
að þau gerðu að tillögu sinni að
auka framlagið til viðhalds skóla-
bygginga um 30 miljónir þannig
að varið yrði 63 miljónum á þessu
ári og gerð yrði þriggja ára áætlun
um átak til viðhalds skóla sem
víða eru að drabbast niður.
í allt gerir stjórnarandstaðan
tillögur um að auka rekstarút-
gjöld borgarinnar um 100 miljón-
ir kr. Auk viðhalds skólabygg-
inga, bætist við 24 miljón kr.
framlagt til að lagfæra þá staði í
borginni sem hvað hættulegastir
eru í umferðinni, eða svokallaðá
„svarta bletti". Einnig er lagt til
að fjárveiting til bókasafna verði
1,4 miljón í stað 400 þúsunda,
Rekstrarstyrkur til dagvistar-
heimila hækki um fimm miljónir,
Samtök um kvennaathvarf fái 2,5
miljónir í stað 1,5 miljóna. Félag
eldri borgara fái 1,5 miljónir í
stað 770 þús. svo nokkur dæmi
séu tekinn.
Unglingahús
Ein af þeim tillögum sem
stjórnarandstaðan flytur um fé-
lagsmál er að komið verið á fót
unglingahúsi í miðborginni.
Stjórnarandstaðan telur að með
því verði dregið úr reiðileysis-
hangsi unglinga.
Einnig leggur stjórnarandstað-
an til að komið verði á fót að-
stöðu fyrir æskulýðs- og tóm-
stundastarf í Austurbænum.
Fjölskyldudagar
Auk þeirra tillagna sem hér
hefur verið drepið á flytur stjórn-
arandstaðan fjölmargar aðrar til-
lögur. Má þar nefna tillögu um
stofnun Atvinnueflingarsjóðs.
Tillögu um að Reykjavíkurborg
gangist fyrir fjölskyldudögum.
Tillögu um að efnt verði til hug-
myndasamkeppni um breytingar
á sundstaðnum í Laugardal. Til-
lögu um kaup á snjóruðnings-
tækjum fil að hreinsa gangstéttir
borgarinnar. Einnig leggur
stjórnarandstaðan til að komið
verði á fót tilraunaskóla í Grafar-
vogi þar sem gert er ráð fyrir
rekstri dagheimilisskóla og skóla-
dagheimili undir sama þaki.
-sg
2 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Fimmtudagur 2. febrúar 1989