Þjóðviljinn - 02.02.1989, Síða 5
VIÐHORF
Til vamar útlendingum
eða útlendingahatur Olafs Hauks og Jakobínu
Kæri Ólafur Haukur og Jakob-
ína.
Mér finnst hálferfitt að sitja
orðalaust undir samsæri ykkar
gegn blásaklausa erlenda ferða-
fólkinu sem langar að koma hing-
að til lands og njóta náttúrunnar,
sem og ferðamannaiðnaðinum
hér á landi almennt. Því það
verða hvorki fiskveiðar né
sauðkindin sem mun gera þetta
land byggilegt eftir 50 til 100 ár,
eftir að fiskurinn verður bæði
horfinn vegna gróðurhúsaáhrif-
anna (um 8-10 stiga hita meðal-
hitastigshækkun verður á íslandi
næstu 50 árin að mati vísinda-
manna; sjá m.a. próf. og dr.
Dean Abrahamson 1988) og
vegna mengunar í höfunum.
Hingað munu líklega koma tún-
fiskar úr suðurhöfum í stað
þorsksins og loðnunnar í kringum
landið og verða í ofanálag flestir
líklega óætir innan fárra áratuga
héðan í frá, vegna mengunar í
höfunum hér við land sem annars
staðar.
Þaö sem gera mun
ísland byggilegt
eftir öld er...
Það verður því aðallega tvennt
sem mun gera þetta land byggi-
legt eftir 50 - 100 ár:
* Koma allra tegunda erlendra
ferðamanna í miljónatali hingað
til lands og
* Nýting og sala á orkuauð-
lindum Islands innanlands og til
útianda. Bæði nýting vatnsafls-
ins, og lág- og háhitasvæðanna.
Lítum aðeins nánar á þessa
möguleika og hina misskildu út-
lendingafyrirlitningu Ólafs
Hauks og Jakobínu;
Miljónir ferðamanna til
íslands á ári
Á síðastliðnu ári komu hingað
til lands um 130 þúsund erlendir
ferðamenn. Gáfu þeir af sér að
mati ferðamálafrömuða um 12%
þjóðartekna íslendinga, sem aft-
ur segir sína sögu um framtíðar-
möguleika þessarar atvinnu-
greinar.
Á Spáni koma um 50 miljónir
Magnús H. Skarphéðinsson skrifar
ferðamanna árlega, enda er þjón-
usta við ferðamenn langstærsti
atvinnuvegurinn þar í landi.
Leikur einn væri að koma ferð-
amannastraumnum á íslandi upp
í eina miljón á ári svona til að
byrja með. Sem aftur gerði þá
aílan sjávarútveg og landbúnað
óþarfan bæði tekjulega séð og
sem hobbí, sem stór hluti þeirra
er í dag.
Margir segja sem svo að landið
þoli ekki slíkan ágang fólks. En
Um 90-95% af orkuauðlindum
íslands eru enn ónýttir og engum
til gagns, á rneðan t.d. meira en
20 kjarnorkuver eru látin fram-
leiða rafmagn á Bretlandseyjum
með tilheyrandi óleysanlegum
umhverfisvandamálum. Að ó-
gleymdum hinum 100 kola- og ol-
íuraforkuverum þar í landi einn-
ig, sem eru að drepa lífið á þessari
jörðu hægt og sígandi með ógnar-
framleiðslu sinni á koldíoxíði.
í dag er komin fram tækni sem
vöru. Því nú er völ á öðrum lífs-
stfl. Þess vegna skulum við söðla
um hægt og hljótt, en ákveðið.
Misskilið útlendingahatur
Ólafs Hauks og Jakobínu
En það er þessi hroki gagnvart
útlendingum sem er og hefur ver-
ið landlægur hér á íslandi öldum
saman sem skýtur líka upp kollin-
um hjá ykkur báðum, Ölafur og
Jakobína.
„Það er leikur einn að stýraþvíhverniggengið
er um landið hérþótt ferðamennirnir væru í
miljónum taldir á ári hverju. Ogþað er einmitt
það sem mun byrja að gerast fyrir alvöru
nœstu 30 til 40 árin. “
það er rangt mat. Það er leikur
einn að steypa göngustíga við
Gullfoss, Geysi og í Ásbyrgi, - og
við Þingvallavatn, Mývatn og
aðrar þær náttúruperlur landsins
sem aðsókn yrði að. Sem og að
gera aðrar þær nauðsynlegu ráð-
stafanir svo hingað gætu að skað-
lausu komið miljónir erlendra
ferðamanna árlega, án þess að of-
nota landið nokkuð meira en
móðir jörð gæti sjálf lagað á stutt-
um tíma og með góðri aðstoð
okkar við landgræðslu og upp-
græðslu þess.
Fyrir nú utan hversu fjárhags-
lega gott væri að fá almennilegt
fjármagn inn í landið til að rækta
allan uppblásturinn upp strax, en
ekki eftir einhverjar aldir eins og
allt stefnir í nú.
Nýting og sala á orku frá ís-
landi með sæköplum
Nýting og sala á orkuauð-
lindum Islands innanlands og er-
lendis. Bæði nýting vatnsaflsins,
og lág- og háhitasvæðanna.
gerir okkur kleift að selja raf-
magn í gegnum sækapal til Skot-
lands með aðeins 10% afföllum
orkunnar. Svo fátt stendur orðið í
veginum fyrir þessum orkusölu-
iðnaði nema stöðnum hugarfars-
ins.
Áætlað hefur verið að slík
orkusala myndi nema um tvö-
földum öllum gjaldeyristekjum
íslendinga í dag. Semsagt yfir-
bjóða allar fiskveiðar (og hval-
veiðar) og hinn hefðbundna land-
búnað í dag og gott betur. Og það
án þess að drepá svo mikið sem
eitt einasta dýr eða mann.
Væru nú svona atvinnuvegir
ekki smekklegri heldur en þeir
sem byggjast á þessu eilífðar-
drápi allra dýra sem hér ráfa um
villt eða fangelsuð af okkar völd-
um? Mér og fleirum er farið að
finnast það. Við lifum á tímum
sem bjóða upp á aðra möguleika
sem næstu kynslóðum á undan
okkur aldrei buðust. Og þess
vegna ættu menn að fara að byrja
að hugsa svona fantasíu fyrir al-
Mér er spurn; Hafið þið eða
aðrir íslendingar eitthvert bréf
upp á vasann frá skaparanum um
einkaafnot af þessu landi hér
þrátt fyrir tfmabundna búsetu á
því - og það í heimildarleysi að
því er best verður séð? Eg hef
ekki ennþá heyrt um útgáfu slíkra
einkaleyfisbréfa í heimi hér og
álít þar til annað sannara reynist
að ykkur vanti svoleiðis vottorð.
Og á meðan svo er þá ætla ég bara
að vona að allir heimsins ferða-
menn komi til íslands langi þá
bara til þess. í miljónatali von-
andi, og tugmiljónatali ef svo ber
undir.
Það er leikur einn að stýra því
hvernig gengið er um landið hér
þó ferðamennirnir væru í miljón-
um taldir á ári hverju. Og það er
einmitt það sem mun byrja að
gerast fyrir alvöru næstu 30 til 40
árin hvort sem okkur líkar betur
eða verr. Spurningin er því um að
stýra þróuninni, en láta hana
ekki afskiptalausa eins og flest
hér er yfirleitt haft þangað til í
óefni er komið.
Ferðamannaiðnað
og orkusölu
í stað dýraterrorismans
Sem betur fer munu miljónir
ferðamanna koma til íslands ár-
lega í framtíðinni segi ég bara.
Því ferðamannaiðnaður er eitt af
því fáu sem bjarga mun búsetu í
þessu landi næstu aldirnar. Svo
mikið er víst. Ekki verður það
fiskurinn, sem heldur okkur á
floti enn um sinn. Og alls ekki
verður það sauðkindin. Fiskur-
inn heldur ekki bara okkur á floti
heldur líka sauðkindinni, loðdýr-
unum og nánast öllum hinum
dýraterrorista-iðngreinunum líka
sem við íslendingar höfum streist
við í sveita okkar andlits að koma
okkur upp síðastiiðna áratugi illu
heilli.
Nei, má ég heldur biðja um
fiskveiðar og hvalveiðar en þessa
óþverrans kjúklingarækt og loð-
dýrarækt, eða bara hvaða fang-
elsisbúraterrorisma annan sem
okkur dettur í hug núorðið.
Að vísu hafa hvalveiðar þá sér-
stöðu að búið er að gera alþjóða-
samkomulag um friðun hvaldýr-
anna sem við íslendingar erum
aðilar að. Ber því okkur orða-
laust að standa við þá samninga
hvað sem minnimáttarkennd
okkar í samfélagi þjóðanna segir.
Því ber að setja bann við hval-
veiðum einna efst á þennan út-
rýmingarlista á holokostiðn-
greinum okkar sem allra fyrst.
Nýrrar hugsunar
og siöferðis
í atvinnumálum er þörf
En samskipti við útlendinga,
viðskiptaleg og menningarleg, er
það sem mun gera búsetu á þessu
kalda landi mögulega í framtíð-
inni. Miklu meira en var í fortíð-
inni. Koma erlendra ferðamanna
til hvaða lands sem er mun ávallt
verða einn af hornsteinum allra
slíkra samskipta. Kveðjur.
Magnús cr nemi í HÍ og fyrrver-
andi vagnstjóri hjá SVR.
Pólitík á laugardegi
Guðrún á fyrsta fundinum
Spjallfundir umpólitíkina íhádeginu á laugardögum á vegumABR og Þjóðviljans
Guðrún Helgadóttir verður
fyrsti gesturinn í fundaröð
sem Alþýðubandalagið í Reykja-
vík og Þjóðviljinn hafa sameinast
um að standa fyrir nú á útmánuð-
um og frammá sumar ef vel þykir
takast.
Spjállfundunum hefur verið
valið samnafnið „pólitík á laugar-
degi“ og verða hafðir í hádeginu á
laugardögum frá ellefu til tvö í sal
Alþýðubandalagsins á Hverfis-
götu 105. Stefnteraðþvíaðfund-
irnir verði með óformlegu sniði
og byggist allajafna á spjalli,
spurningum, athugasemdum og
skoðanaskiptum um atburði vik-
unnar í pólitík, en stöku sinnum
verði kvæði vent í kross og hugað
að fyrirfram ákveðnum efnisþátt-
um.
Á fyrsta fundinum nú á laugar-
daginn hefur Guðrún Helgadóttir
umræður. Þing er að hefjast eftir
miklar vangaveltur um efna-
hagsmál, en í nánd uppgjör á
vinnumarkaði, og má búast við
fjörugum umræðum.
Kjaramálin verða í brennidepli
laugardaginn í næstu viku, en þá
verða þeir Björn Grétar Sveins-
son formaður Jökuls á Höfn og
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB gestir fundarins. Síðan
verður stokkið yfir einn laugar-
dag, en þann 25. er von á Svavari
Gestssyni menntamálaráðherra.
Viku síðar, 4. mars, verða full-
trúar frá Kvennalista málshefj-
endur, og laugardaginn þar á eftir
verður Arni Bergmann ritstjóri
Þjóðviljans gestur fundarins og
reifar breytingar miklar í Austur-
vegi —og svo koll af kolli ef vel
gefur.
Samstarf Þjóðviljans og Al-
þýðubandalagsfélagsins í
Reykjavík um þessa fundi miðar
að því að skapa óformlegan vett-
vang fyrir áhugamenn um pólitík
á vinstrikanti til að meta saman
viðburði, stefnur og strauma, og
gefa jafnframt þeim sem helst
standa í eldlínunni færi á að skipt-
ast á skoðunum og hugmyndum
við félaga sína. Gert er ráð fyrir
að ntargir tali stutt frekar en fáir
lengi.
Odýrt snarl verður á boðstól-
um um hádegisbilið, og kaffi all-
an fundartímann.
-rn
Pólitík á
laugardegi
ÞjóðviljinrVAIþýöubandalagiö í Reykjavík
Fimmtudagur 2. febrúar 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5