Þjóðviljinn - 16.02.1989, Síða 3
____________________FRÉTTIR____________________
Þjóðhagsstofnun
Þjóðartekjur minnka
Nýþjóðhagsspá. 4% samdráttur útflutningsframleiðslu. Vöruskiptajöfnuður samt hagstœður
ummiljarð. 5% rýrnun kaupmáttar haldist kaupmáttur fyrsta ársfjórðungs út árið
jóðhagsstofnun spáir því að
þjóðartekjur muni lækka um
2,5% og að landsframleiðslan
dragist saman um tæp 2% í ár.
Þetta kemur fram í nýrri þjóð-
hagsspá sem stofnunin sendi frá
sér í gær. Gangi þetta eftir mun
þetta í fyrsta skipti sem lands-
framleiðsla dregst saman í tvö ár í
röð.
I aflaspá stofnunarinnar er
reiknað með 5,5% minnkun
raunverðmætis heildaraflans á
árinu 1989, þar af er reiknað með
11% samdrætti í þorskveiðum frá
því í fyrra. Þrátt fyrir það er bara
reiknað með um 4% samdrætti
útflutningsframleiðslu sjávaraf-
urða vegna aukinnar hagkvæmni
í ráðstöfun aflans.
Reiknað er með því að vöruút-
flutningur dragist saman um
2,5% á árinu en á móti kemur að
búist er við mun meiri samdrætti í
innflutningi eða um 6% þannig
að vöruskiptajöfnuðurinn verði
jákvæður um I miljarð.
Ástæðan fyrir því að búist er
við mun minni vöruinnflutningi í
ár en í fyrra er rýrnandi
kaupmáttur en Þjóðhagsstofnun
gengur út frá því að kaupmáttur,
muni rýrna um 5% milli áranna
1988 og 1989 og er þá gengið út
frá því að kaupmáttur á fyrsta
ársfjórðungi ársins í ár haldist út
árið.
Gangi þetta eftir er þetta ann-
að árið í röð sem kaupmáttur
rýrnar, því samkvæmt upplýsing-
um Þjóðhagsstofnunar rýrnaði
kaupmáttur um 2,5% í fyrra mið-
að við árið 1987. Sú kaupmáttar-
rýrnun stafaði að miklu leyti af
minnkandi vinnutíma.
-Sáf
Hafís
Greiðfært frá
Rit að Homi
Siglingaleiðin frá Rit að Horni sem Iá frá Rit í vestanverða Bol-
er greiðfær, en fyllstu gætni ungarvík og ísmolar á víð og dreif
ber að gæta við siglingu á öllu á Isafjarðardjúpi.
svæðinu úti fyrir Vestfjörðum og Sjálf ísbrúnin lá 42 sjómflur
á Húnaflóa. Einkum í slæmu rétt vísandi NNV frá Horni, 37
skyggni og náttmyrkri. sjómflum norður frá Kögri, 30
í ískönnunarflugi Landshelgis- sjómílum NV - frá Straumnesi og
gæslunnar í gær var landföst ís- 30 sjómflur NV frá Barða. Þétt-
spöng norðvestur frá Barðanum. leikinn á ísnum var 7-9/10 svo
Frá Rit að Horni var þéttur ís á langt sem séð varð. Norðan ís-
öllum víkum og náði mest 2 sjó- spangarinnar við Barða og
mflur frá landi við Straumnes. Á norður fyrir Straumnes var
siglingaleið á Húnaflóa var engan dreifður ís á öllu svæðinu að þétt-
ís að sjá. Á ísafjarðardjúpi var leika 1 -3/10.
ísspöng 0,5 - 1,0 sjómflu breið, -grh
Sjófarendum ber að sýna fyllstu gætni við siglingar úti fyrir Vestfjörð-
um og á Húnaflóa vegna hafíss. Kort: Flugdeild Landhelgisgæslunn-
ar.
s
Isafjörður
Leitað
r
arangurs
✓
Agœtis leitarveður í
Isafjarðardjúpi ígœr.
Flotgalli bjargaði
áhöfn Kolbrúnar ÍS
Leitin að mönnunum tveim
sem saknað er af rækjubátnum
Dóra IS 213 hefur enn engan ár-
angur borið. Þeir heita Ægir Ól-
afsson og Ólafur Njáll Guð-
mundsson og eru Váðir búsettir á
ísafirði.
í gær var ágætis leitarveður í
ísafjarðardjúpi og leituðu ma.
flugvél Landhelgisgæslunnar og
flugvél frá flugfélaginu Örnum
auk fjölda báta og varðskips. Þá
gengu fjölmennar sveitir björg-
unarmanna fjörur. Leit verður
haldið áfram í býtið í dag en í
fyrrakvöld fundust lestarfjalir úr
bátnum vestur af Æðey skammt
þar frá sem Dóri ÍS var við rækju-
veiðar.
Öruggt er talið að flotgalli hafi
bjargað þeim félögum Haraldi
Konráðssyni og Gísla Jóni Krist-
jánssyni þegar bát þeirra, Kol-
brúnu ÍS, hvolfdi rétt utan við
Norðurtangann á ísafirði í fyrra-
kvöld vegna ísingar. Þeim varð
ekki meint af og fengu að fara
heim af sjúkrahúsinu í gær.
-grh
Samtök herstöðvarand-
stœðinga
Gegn
frekari
hervæðingu
Varaflugvöllurinn
augljóslega
herflugvöllur.
„Friðartímar“ mjög
teygjanlegt hugtakfyrir
Nató
Samtök herstöðvarandstæð-
inga hafa sent frá sér ályktun
„vegna þeirra hugmynda Jóns
Baldvins Hannibalssonar utan-
ríkisráðhcrra að Nató eigi að
kosta byggingu flugvallar hér á
landi“. Segir í ályktun SHA að
hér sé augljóslega um hernaðar-
flugvöll að ræða og að mun ódýr-
ari kostur sé að lengja þá flugvelli
sem fyrir eru, svo þeir geti sinnt
þörfum íslendinga fyrir alþjóð-
legan varaflugvöll.
Áður hafi verið reynt að beita
blekkingum varðandi hernaðar-
framkvæmdir hér á landi og er í
því sambandi vísað til ratsjár-
stöðvanna. SHA telja yfirlýsingu
þess efnis að flugvöllurinn verði
ekki notaður af Nató á friðartím-
um lítils virði og benda á að í
samningi um inngöngu íslands í
Nató fyrir fjörtíu árum, hafi verið
ákvæði um að hér yrði ekki her á
friðartímum. Tveimur árum síðar
hafi herinn komið og enn sé hann
hér. Hugtakið „friðartímar“ sé
því augljóslega mjög teygjanlegt í
skilgreiningum Nató.
SHA beina því þeirri áskorun
til allra herstöðvarandstæðinga
og friðarsinna í ríkisstjóm og á
Alþingi að þeir standi fast gegn
þessum hugmyndum og hindri
þar með enn frekari hervæðingu.
landsins.
Framfœrsluvísitalan
Verðbólgan níu prósent
Ólafur Ragnar Grímsson: Ótrúlegur árangur.
Minni þensla og aukin samkeppni dregur úr
verðhækkunum
Síðastliðna fimm mánuði hefur
framfærsluvísitalan hækkað
um 4%. Jafngildir það 9% verð-
bólgu á heilu ári. Hækkun af
völdum gengisbreytinga á þessu
tímabili er 1,5-2%, en það er mun
minna en gert var ráð fyrir.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði í gær er hann
kynnti þessar tölur að það að ná
verðbólgunni niður í 9% væri
ótrúlegur árangur, ekki síst í ljósi
þess að næstu mánuði þar á
undan hefði verðbólguhraðinn
verið í kringum 30%.
- Það að framfærsluvísitalan
hefur ekki hækkað um 4,5 % eins
og gert var ráð fyrir að hún myndi
gera vegna gengisfellinga, sýnir
að tekist hefur að draga úr þen-
slunni og að aukin samkeppni
veldur því að aðeins um helming-
ur af þeim hækkunum sem stafa
af gengisbreytingum hafa skilað
sér út í verðlag, sagði Ólafur
Ragnar Grímsson.
Lækkandi vextir í kjölfar minni
verðbólgu hafa leitt til rúmlega
9% lækkunar á húsnæðislið fram-
færsluvísitölunnar, þessi lækkun
hefur síðan leitt til 0,5 lækkunar á
framfærsluvístölunni á síðustu
mánuðum.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um hækkun óbeinna skatta or-
sakar um 1% hækkun á fram-
færsluvísitölunni. Gengisbreyt-
ingar hækka hana um 1,5-2%.
Hækkun ýmissa útgjaldaliða
meðal annars þeirra sem hækka
aðeins einu sinni á ári, valda um
1-1,5% hækkun framfærsluvísit-
ölunnar
-sg
Fiskmarkaðir
Samtengt í fyrsta sinn
Stærstu fiskmarkaðir landsins,
í Hafnarfirði og á Suðurnesj-
um voru samtengdir í fyrsta sinn í
gær þegar þeir stóðu fyrir sam-
eiginlegu fiskuppboði. Frekar lít-
Ul afli var í boði vegna lélegra
gæfta en hátt verð fékkst fyrir
aflann.
í þessu fyrsta samtengda upp-
boði markaðanna, var aðeins
hægt að kaupa af Suðurnesjum
frá Hafnarfirði en ekki öfugt, en
tenging í báðar áttir mun trúlega
koma fljótlega, að sögn Haraldar
Jónssonar stjórnarformanns
Fiskmarkaðarins í Hafnarfirði.
Haraldur sagði að þessi nýjung
hefði mælst vel fyrir og alls voru
12 sölur af Suðurnesjamarkaðn-
um suður til Hafnarfjarðar á
þessu fyrsta uppboði.
- Það verður boðið upp með
samtengingu kl. fjögur síðdegis
alla virka daga og að auki verðum
við með okkar eigin uppboð á
morgnana. Það hefur verið áhugi
fyrir því að samtengja markaðina
en eftir viðræður fyrr í vetur,
heltust Reykvíkingar úr lestinni
en við höfum ákveðið að gera
þessa tilraun í samstarfi við Suð-
urnesjamenn, sagði Haraldur.
-*g-
*
AÐALFUNDUR
Hf. Eimskipafélags íslands verður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu
fimmtudaginn 16. mars 1989,
og hefst kl. 14.00.
----------DAGSKRÁ-----------
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram
á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega
í hendur stjórnarinnar eigi síðar
en sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa
á skrifstofu félagsins í Reykjavík
frá 9. mars til hádegis 16. mars.
Reykjavík, 15. febrúar 1989
STJÓRNIN
Föstudagur 17. febrúar 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3