Þjóðviljinn - 16.02.1989, Blaðsíða 6
Viðtalsfundur
menntamálaráðherra í grunn-
skólum Reykjavíkur 16. febrúar
til 4. apríl 1989.
Svavar Gestsson menntamálaráðherra mun
halda viðtalsfundi með skólastjórum, foreldr-
um og kennurum í grunnskólum Reykjavíkur.
Markmiðið með fundunum er að gefa fólki
tækifæri til að reifa hugmyndir sínar og skoð-
anir í uppeldis- og menntamálum. Mennta-
málaráðherra og starfsfólk ráðuneytisins
mun skýra frá því helsta sem á döfinni er í
þessum málaflokkum þar.
Viðtalsfundir í framhaldsskólum borgarinnar
verða haldnir síðar.
Fyrsti fundurinn verður haldinn í Hagaskóla
fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20.30 fyrir skóla-
stjóra, foreldra og kennara í:
Austurbæjarskóla
Grandaskóla
Hagaskóla
Melaskóla
Landakotsskóla
Tjarnarskóla
Vesturbæjarskóla
Næsti fundur verður haldinn í Laugarnesskóla
þriðjudaginn 21. febrúar kl. 20.30 fyrir skóla-
stjóra, kennara og foreldra í:
ísaksskóla
Langholtsskóla
Laugalækjarskóla
Laugarnesskóla
Vogaskóla
Æfingaskóla K.H.Í.
Þriðji fundur verður haldinn í íþróttah. Selja-
skóla þriðjudaginn 7. mars kl. 20.30 fyrir skóla-
stjóra, foreldra og kennara í:
Breiðholtsskóla
Fellaskóla
Hólabrekkuskóla
Seljaskóla
Ölduselsskóla
Fjórði fundur verður haldinn í Hvassaleitisskóla
fimmtudaginn 16. mars kl. 20.30 fyrir skóla-
stjóra, foreldra og kennara í:
Álftamýrarskóla
Bústaðaskóla
Breiðagerðisskóla
Fossvogsskóla
Hlíðaskóla
Hvassaleitisskóla
Réttarholtsskóla
Fimmti fundur verður haldinn í Árbæjarskóla
þriðjudaginn 4. apríl kl. 20.30 fyrir skólastjóra,
foreldra og kennara í:
Árbæjarskóla
Ártúnsskóla
Foldaskóla
Selásskóla
Menntamálaráðuneytið
•rf % !S
HAFNARBORG
Menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar
Vinnustofan á þriöju hæð í Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar er laus til afnota fyrir listamann frá 1. mars til 30. apríl
nk.
Umsóknir þurfa að þerast fyrir 25. febrúar nk.
Stjórn Hafnarborgar
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Sveinbjörn Berentsson
Túngötu 1, Sandgerði
er lést 6. febrúar, verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju
laugardaginn 18, febrúar kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeir sem vildu minnast hans
vinsamlegast láti líknarstofnanir njóta þess.
Hólmfríður Björnsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn
FRETTIR
Þeir FH-ingar, Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri og Bergþór Jónsson form. FH hjálpuðust að við að
taka fyrstu skóflustunguna að nýja íþróttahúsinu í Kaplakrika. Mynd-lg.
Hafnarfjörður
Stærsta íþrótta-
hús landsins
Framkvæmdir hafnar við byggingu stœrðar íþróttahúss í Kaplakrika.
Tveir löglegir handknattleiksvellir í húsinu. Byggt ísamvinnu
bœjaryfirvalda og FH. Tilbúið eftir 12 mánuði
Fyrsta skóflustungan að nýju
og glæsilegu íþróttahúsi í
Hafnarfirði, á íþróttasvæði FH í
Kaplakrika, var tekin um sl.
helgi. Nýja húsið verður það
stærsta sem byggt hefur verið
hérlendis og á að vera tilbúið til
noktunar eftir aðeins 12 mánuði.
Salurinn í nýja húsinu sem er
tengt stúkubyggingu á FH-
svæðinu, er um 2000 fm. og for-
salur íþróttahússins og tækja-
geymslur um 700 fm. I húsinu
verða tveir löglegir handknatt-
leiksvellir 20 m. x 40 m. hvor og
færanlegir áhorfendabekkir sem
rúma allt að 2000 áhorfendur.
íþróttahúsið er reist í sam-
vinnu Hafnarfjarðarbæjar og FH
og kostar bærinn 80% af bygging-
arkostnaði og FH 20%. Bærinn
mun reka húsið á hefðbundinn
hátt, eins og önnur íþróttahús í
bænum og mun það nýtast öllum
íþróttafélögum bæjarins og öllum
almenningi í bænum. Arið 2005
eignast síðan FH húsið og mun
sjá um rekstur þess og umsjón, en
öðrum félögum mun gefast kost-
ur á að nota það eftir þann tíma.
Það er Hagvirki hf. sem reisir
nýja íþróttahúsið en framkvæmd-
in var boðin út í lokuðu útboði.
Tilboð Hagvirkis var uppá 132
miljónir.
-•g-
Ríkisreikningar
Fiskifélagið
Stóraukinn
fiskútflutningur
A lls seldu 28 togarar og 3 bátar erlendis í
janúar 4.359 tonn á móti 17 togurum og3
bátum 2.909 tonn á sama tíma í fyrra
Mun fleiri togarar seldu afla
sinn erlendis í janúar en á
sama tíma í fyrra. Alls seldu 28
togarar og 3 bátar 4.359 tonn
fyrir 326,4 miljónir króna í mán-
uðinum en í janúar í fyrra seldu
17 togarar og 3 bátar 2.909 tonn
fyrir 193,2 miljónir króna.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands um aflabrögð í
janúar er heildaraflinn núna rúm-
um 50 þúsund tonnum minni en
hann var í janúar 1988 og munar
þar mestu um minni loðnuafla nú
en þá vegna ótíðar í ár. Alls hafa
veiðst 204.023 tonn á móti
255.786 tonnum í janúar í fyrra.
Þá var loðnuaflinn 213.832 tonn
en aðeins 168.031 tonn í janúar.
Þrátt fyrir alla ótíðina sem ver-
ið hefur vekur það athygli að þor-
skafli bátaflotans er 2 þúsund
tonnum meiri í janúar í ár en
hann varíjanúarífyrra. Úr8.146
tonnum í 10.140. Hins vegar hef-
ur þorskafli togara dregist saman
um tæp þúsund tonn, frá því að
vera 14.533 tonn í janúar í fyrra í
13.833 tonn í janúar í ár. Smá-
vægileg aukning varð í afla smá-
báta í janúarmánuði og í heildina
tekið er þorskafli flotans í janúar
24.859 tonn á móti 23.403 tonn-
um í janúar í fyrra.
Heiidarafli togara í janúar var
19.665 tonn á móti 22.035 á sama
tíma í fyrra. Þar af var afli fryst-
itogara 16% núna og af heildar
þorski í afla togaranna var hlutur
frystitogara 21,2%.
-grh
Risna og
ferðalög
Miljón á dag íferðalög
innanlands. 730 miljónir
í bílakostnað
Samkvæmt fylgiskjali með
ríkisreikningi fyrir árið 1987,
sem fjárlaga- og hagsýslustofnun
hefur sent frá sér, kemur í Ijós að
á því ári var bifreiðakostnaður
ríkisins vegna aksturs og viðhalds
yfir 730 miljónir.
Ríkisbifreiðar voru þá 923 og
var rekstrar- og viðhalds-
kostnaður þess flota uppá rúmar
320 miljónir. Þá borgarði ríkið
tæpar 40 miljónir í leigubíla-
kostnað, rúmar 46 miljónir fyrir
bílaleigubíla og yfir 230 miljónir
vegna bifreiðanotkunar starfs-
manna ríkisins. Annar ósundur-
liðaður kostnaður vegna aksturs
var uppá tæpar 100 miljónir.
Á þessu sama ári var risnu-
kostnaður ríkisins um 100 miljón-
ir, þar af 86 miljónir í annað en
fastan kostnað. Þá borgaði ríkis-
sjóður um 645 miljónir í ferða-
kostnað starfsmanna sinna. Yfir
365 miljónir vegna ferða innan-
lands eða rétt um miljón á dag og
280 miljónir vegna ferða utan-
lands.
-Ig-
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. febrúar 1989