Þjóðviljinn - 25.02.1989, Side 4
FRETTIR
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem heiðruðu mig og
glöddu með heimsóknum, símtölum, símskeytum, ræðum
og gjöfum á 70 ára afmæli mínu 15. febrúar s.l. Sérstakar
þakkir færi ég kirkjukór Akraness fyrir ógleymanlega heim-
sókn og söng.
Guð blessi ykkur öll
Ragnheiður Guðbjartsdóttir
Kjarvalsstofa
í París
Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa, sem
ætluð er til dvalar fyrir íslenska listamenn.
Reykjavíkurborg, menntamálaráðuneytið og
Seðlabanki íslands lögðu fram fé til þess að
koma upp slíkri starfsaðstöðu í Parísarborg með
samningi við stofnun, sem nefndist Cité Internati-
onale des Arts og var samningurinn gerður á
árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miðborg Parísar,
skammt frá Norte Dame dómkirkjunni.
Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvals-
stofu og gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma
þar til stjórnar Cité Internationale des Arts, er
tekur endanlega ákvörðun um málið. Dvalartími
er skemmstur 2 mánuðir en lengst er heimilt að
veita listamanni afnot Kjarvalsstofu í 1 ár.
Þeir sem dvelja í Kjarvalsstofu greiða dvalar-
gjöld, er ákveðin eru af stjórn Cité Internationale
des Arts og miðast við kostnað af rekstri hennar
og þess búnaðar, sem þeir þarfnast. Þessi gjöld
eru lægri en almenn leiga í Parísarborg. Dvalar-
gestir skuldbinda sig til þess að hlíta reglum Cité
Internationale des Arts varðandi afnot af hús-
næði og vinnuaðstöðu og jafnframt skuldbinda
þeir sig til þess að dvöl lokinni að senda stjórn
Kjarvalsstofu stutta greinargerð um störf sín.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot
Kjarvalsstofu, en stjórnin mun á fundi sínum í
apríl fjalla um afnot listamanna af stofunni tíma-
bilið 1. júlí 1989 - 30. júní 1990.
Skal stíla umsóknir til stjórnarnefndar Kjarvals-
stofu. Tekið er á móti umsóknum til stjórnar-
nefndarinnar í skjalasafni borgarskrifstofanna að
Austurstræti 16, en þar liggja einnig frammi um-
sóknareyðublöð og afrit af þeim reglum, sem
gilda um afnot af Kjarvalsstofu.
Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að
koma til greina við þessa úthlutun.
Umsóknum skal skila í síðasta lagi 22. mars n.k.
Reykjavík, 22. febrúar 1989
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu
HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR
BARÓNSSTÍG 47
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar eftir að ráða:
Hjúkrunarfræðing á næturvaktir í heimahjúkrun
frá og með 1. maí n.k. 60% starf.
Sjúkraliða á kvöldvakt í heimahjúkrun. Hluta-
starf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
22400.
Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, á eyðu-
blöðum sem þarfást, fyrirkl. 16.00 mánudaginn
6. mars n.k.
Hugi P. Hraunfjörð
Fannborg 1, Kópavogi
andaðist að hjúkrunarheimilinu Reykjalundi fimmtudaginn
23. febrúar síðastliðinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda
Börn hins látna
Aðstandendur Leikbrúðulands með
Mjallhvíti, dvergana og nornina.
Mjallhvít til
Hollands
Leikbrúðulandi hefur verið
boðið að taka þátt í alþjóðlegri
brúðuleikhúshátíð í Dordrecht í
Hollandi í vor og mun sýna þar
Mjallhvíti.
Sýningum hér á íslandi er þó
ekki alveg lokið því eftir jólafrí
og hlé á sýningum vegna ófærðar
hefur verið ákveðið að hafa fjór-
ar sýningar á leikritinu. Pær
verða næstu sunnudaga að Frí-
kirkjuvegi 11 og hefjast klukkan
15. Miðasala er opin frá klukkan
13 sýningardagana en hægt er að
panta miða í síma Æskulýðsráðs,
622215.
Skipaskrá 1989
Elsta skipið
77 ára
Siglingamálastofnun:
Meðalaldur fiskiskipa er
17,5 ár og hefur lækkað
um 1 ár
Elsta skipið í íslenska flotanum
er 5 brúttólesta þilfarsbátur
Nakkur SU 380 sem smíðaður var
1912 en meðalaldur fiskiskipa er
nú 17,5 ár og hefur lækkað um 1
ár frá því 1. janúar 1988. Þetta
kemur fram í nýútkominni skrá
yfir íslensk skip sem Siglingamál-
astofnun ríkisins gefur út.
Á aðalskipaskrá 1. janúar í ár
voru skráð 1103 þilfarsskip og þar
af 957 skráð sem fiskiskip, 32 þilf-
arsskip eru skráð sem vöruflutn-
ingaskip, en önnur skip skráð
með hliðsjón af verkefnum sínum
svo sem varðskip, farþegaskip,
rannsóknaskip o.fl. eru samtals
H4.
Á síðasta ári fjölgaði þilfars-
skipum um 66, fiskiskipum um
58, opnum vélbátum um 137,
vöruflutningaskipum fækkaði um
2 og af skrá voru tekin 33 skip.
Um áramótin voru umsamin og í
smíðum 22 þilfarsskip en 14 fiski-
skip voru í smíðum erlendis fyrir
íslenska aðila. _grh
Umhverfisvernd
Landgræðslu-
átak
Félagasamtök á Húsavk eru að
undirbúa landgræðslu- og land-
nýtingarátak í bæjarlandinu, þar
sem megináhersla verður lögð á
skógrækt. Liður í undirbúningn-
um er ráðstefna, sem haldin verð-
ur á Hótel Húsavík Iaugardaginn
4. mars nk. Þar munu sérfræð-
ingar á sviði landgræðslu og skó-
græktar flytja erindi og landbún-
aðarráðherra mun einnig mæta.
Áformað er að bæjarlandinu
verði skipt niður í reiti, sem út-
hlutað verður til einstakra félaga
og samtaka, er síðan fá það verk-
efni að vernda gróður og rækta
skóg á svæðinu. Er stefnt að því
að hefjast handa þegar í vor.
-ólg
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Auglýsing um próf fyrir
skjalþýðendur og dómtúlka
Þeir, sem öðlast viija réttindi sem skjalþýðendur
og dómtúlkar, eiga þess kost að gangast undir
próf, er haldin verða í mars-apríl, ef þátttaka verð-
ur nægjanleg.
Þeim sem hyggjast þreyta slíkt próf, gefst kostur
á að taka þátt í undirbúningsnámskeiði, sem
hefst 6. mars n.k. Frestur til að tilkynna þátttöku í
því námskeiði ertil 3. mars n.k. Námskeiðsgjald
er kr. 5.000.
Frestur til innritunar í próf er rennur út 14. mars
n.k. og skal þá jafnframt greiða prófgjaldið, kr.
20.000.
Skráning þátttöku í undirbúningsnámskeiðinu fer
fram í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, sími
609010. Umsóknum um þátttöku í prófinu skal
skila til ráðuneytisins á sérstökum eyðublöðum,
sem þar fást.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
22. febrúar 1989
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Öldrunarþj ónustudeild
Laus er staða verkefna-
stjóra á vistunarsviði
öldrunarþjónustudeildar
Æskileg er menntum félagsráðgjafa, en starfið
felst í yfirumsjón með húsnæðis- og vistunarmál-
um aldraðra hjá Reykjavíkurborg.
Um er að ræða 100% stöðu sem er laus nú
þegar.
Umsóknarfrestur er til 4. mars n.k. Umsóknar-
eyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð.
Nánari upplýsingar veitir Þórir S. Guðbergsson
og Ásta Þórðardóttir í síma 25500.