Þjóðviljinn - 09.03.1989, Síða 3
FRÉTTIR
Slysavarnafélag íslands
Óvenjulega
mikið um slys
og óhöpp
14 sjómönnum afl5 bjargað þegar tveir
vertíðarbátar sukku með hálftíma millibili
fyrir vestan og sunnan. Enn einu sinni sanna
flotgallar ágœti sitt
Eg man bara ekki eftir annarri
eins ótíð og verið hefur að
undanförnu á sjónum með til-
heyrandi óhöppum og slysum.
Skip hafa verið að fá á sig brot,
brúargluggar brotnað, gúmbáta
hefur tekið út af togurum, skip og
bátar hafa verið hætt komin við
strendur landsins, rækjubátar
hafa sokkið og nú síðast sukku
tveir vertíðarbátar með stuttu
millibili fyrir vestan og sunnan,
sagði Hálfdán Henrysson deildar-
stjóri hjá Slysavarnafélagi Is-
lands.
f fyrrakvöld sökk Sæborg SH
377 frá Ólafsvík skammt undan
Rifi á Snæfellsnesi eftir að bátur-
inn hafði fengið á sig tvö brot
með stuttu millibili þegar bátur-
inn var á heimleið úr róðri. 7 af 8
manna áhöfn Sæborgar tókst að
komast um borð í gúmbörgunar-
bát og var bjargað um borð í Ólaf
Bjarnason SH en skipstjórans er
saknað. Prátt fyrir víðtæka leit á
sjó og landi hefur hann ekki fund-
ist. Leit verður haldið áfram í
dag.
Þá sökk Nanna VE 294
skammt úti fyrir Vík í Mýrdal
eftir að hafa fengið á sig brot að
aftan þegar verið var að hífa inn
trollið, og við það komst mikill
sjór inn um skutlúgurnar sem
lagði skipið á hliðina. 7 manna
áhöfn skipsins tókst að komast
um borð í gúmbát og var bjargað
um borð í Þórunni Sveinsdóttur
VE. Mun það vera í fjórða sinn
sem Sigurjóni Óskarssyni og
áhöfn hans tekst að bjarga sjó-
mönnum úr lífsháska.
f báðum þessum tilfellum kom
mikilvægi flotgallanna í Ijós því
hluti áhafna beggja bátanna lenti
í sjónum en varð ekki meint af
vegna þess að þeir voru í vinnu-
flotgöllum. Þá er enn í fersku
minni þegar rækjubáturinn Kol-
brún IS sökk rétt utan við
Norðurtangann á ísafirði í bruna-
gaddi og mannbjörg varð. Talið
er víst að skipverjar hefðu ekki
lifað af veruna í ísköldum sjónum
ef þeir hefðu ekki verið í flot-
göllum.
-grh
=tns og sjá mó tekur barnavagninn hennar Jórunnar sig vel út á skíðunum og
hafa þau komið að góðum notum í ófaerðinni. Mynd: Borgfirðingur/lngimundur
Ingimundarson.
Borgarnes
Skíði undir bamavagn
Eg vissi í fyrstunni ekki hvað
Jórunn var að fara þegar hún
kom til mín fyrir skömmu og bað
mig að smíða fyrir sig skíði undir
barnavagninn sinn. En eftir
hennar leiðsögn rissaði ég upp
teikningu af skíðunum undir
vagninn og eftir því sem ég best
veit hafa þau komið að góðum
notum, sagði Björn Hermanns-
son verksmiðjustjóri hjá Vírneti
hf. í Borgarnesi.
f síðasta tölublaði Borgfirðings
er sagt frá ungri konu, Jórunni
Jónsdóttur sem er ísfirskrar ættar
en er búsett í Borgarnesi, sem
datt niður á það snjallræði að láta
Björn smíða fyrir sig skíði undir
barnavagninn sinn til að komast
áfram í ófærðinni. í sjálfu sér er
hugmyndin ekki ný af nálinni og
hefur það lengi tíðkast fyrir vest-
an þegar mikil snjóalög eru að
skíði séu fest undir barnavagna.
En fyrir Borgnesinga var hér um
algjört nýmæli að ræða.
Að sögn Björns eru skíðin
smíðuð úr blikici. Þau eru 80 sm
að lengd og vega um 7 kíló. Þó er
hægt að hafa þau mun léttari með
því að smíða þau úr plasti. Þrátt
fyrir að þau hafi komið að góðum
notum í Borgarnesi hafa ekki
fleiri séð ástæðu til að láta smíða
barnavagnsskíði fyrir sig en fyrir
þá sem eiga í erfiðleikum með að
komast leiðar sinnar með yngstu
börnin er þessari hugmynd hér
með komið á framfæri.
-grh
Fimmtudagur 9. mars 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
EAGL/h, AIR
■ •■■■■• ■ I
Amarflug er enn inni í myndinni.
Orlofsferðir
Ekki samið við
Flugleiðir
Gengiðfrá samningum við Sterling Airways ídag. Arnarflug
enn inni í myndinni, en effélagið verður lagt niður eru
viðrœður við þýskflugfélög í bakhöndinni. Ennfremur hefur
mönnum dottið íhug aðfá Guðna „íSunnuu tilþess að leigja
Arnarflugsvél ríkisins tilflugsins. Ekkisvo vitlaus hugmynd,
segir Guðni
Við munum taka endanlega
ákvörðun um málið í dag og
væntanlega verður samið við
Arnarflug og Sterling Airways á
morgun um þrjú til fjögur þúsund
sæti tii meginlandsins í sumar.
Þetta sagði Hallgrímur Hall-
grímsson, sem á sæti í ferðanefnd
BSRB í samtali við Þjóðviljann í
gær. Hallgrímur sagði að
Samvinnuferðum-Landsýn hefði
verið falið að leita tilboða í þessar
ferðir, og hefðu tilboð borist frá
þessum aðilum og Flugleiðum að
auki. Tilboði Flugleiða hefði ver-
ið hafnað vegna málareksturs fé-
lagsins gegn verkalýðshreyfing-
unni.
Magnús Oddsson sölustjóri
Arnarflugs sagði að tilboð Arnar-
flugs fælist annars vegar í 600-
1000 sætum með áætlunarflugi
félagsins til Amsterdam og hins
vegar væri um að ræða um 10
leiguflug til Saarbrucken í Þýska-
landi.
Arnarflug hefur ekki flugleyfi
til Kaupmannahafnar eða ann-
arra Norðurlanda, og því verður
samið við danska flugfélagið
Sterling Airways um ferðir til
Kaupmannahafnar. Er fulltrúi
þess væhtanlegur til Reykj.'víkur
í dag til þess að ganga frá samn-
ingum.
Á hinn bóginn ríkir enn óvissa
með framtíð Arnarflugs og talið
að enn líði nokkrir dagar þar til
niðurstaða fæst í því máli. Vanda-
málið er því að komist samningar
ekki á við Arnaflug þá hefur Ster-
ling Airways ekki flugleyfi á Þý-
skaland. Því gæti komið til þess
að semja þyrfti við þýsk flugfélög
og mun Sterling Airways hafa
lofað að vera verkalýðsfélögu-
num innan handar með útvegun
sambanda.
Þriðji möguleikinn sem ræddur
hefur verið og er enn á dagskrá er
sá að tekin verði á leigu þota sú
sem fyrrum var í eigu Arnarflugs
en er nú eign ríkissjóðs. Ríkis-
sjóður hefur hins vegar ekki
flugrekstrarleyfi og því hefur ver-
í BRENNIDEPLI
ið rætt við Guðna Þórðarson „í
Sunnu“ sem rekur ferðaskrifstof-
una Flugferðir -Sólarflug. Óljóst
er hvort til þessa möguleika þarf
að grípa.
„Ekki svo vitlaus
hugmynd“
- Launþegasamtökin hafa ekki
beðið mig um þetta, sagði Guðni
Þórðarson í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, - og ég mun ekki snerta
við Arnarflugsvélinni á meðan
félagið er starfandi. Enda skilst
mér að vélin sé til sölu. En fari
svo illa að Arnarflug verði gert
gjaldþrota og hætti starfsemi, þá
er þetta tæknilega hægt og í raun-
inni alls ekki svo fráleit hug-
mynd. Ég hef flugrekstrarleyfi og
það tæki mig ekki nema nokkra
daga að vinna þá pappírsvinnu
sem þarf, til þess að hrinda svona
hugmynd í framkvæmd.
Þessi hugmynd er annars trú-
lega til komin vegna þess að ég er
nú með í undirbúningi áætlunar-
flug frá íslandi til Spánar og frá
Mun Guðni „í
Sunnu“ leigja
Arnarflugsvélina
af ríkinu og flytja
launafólk í orlof?
Akureyri til Kaupmannahafnar
og London. Umsóknir mínar þar
að lútandi eru til umfjöllunar í
Flugráði.
- Ég vil hins vegar taka það
fram að lokum, sagði Guðni,-að
ég vil Arnarflugi allt hið besta og
myndi aldrei leggja stein í þess
götu.
Ódýrar ferðir
Reiknað er með að ferðir þess-
ar verði ódýrari en gengur og ger-
ist á ferðamarkaðnum, og hefur í
því sambandi verið talað um allt
niður í 11.000 króna fargjald til
Kaupmannahafnar og til baka.
Helgi Daníelsson sölustjóri
Samvinnuferða var spurður að
því hvernig stæði á þessum verð-
mun og þeim fargjöldum sem
ferðaskrifstofurnar bjóða al-
mennt á orlofsferðum.
Helgi sagði að hægt væri að
bjóða þetta svona ódýrt með því
að reikna með 100% nýtingu og
taka engan sölukostnað og enga
þjónustu aðra en flugið inn í
dæmið. Með þessu tækju félögin
á sig vissa áhættu, en um leið
gerði þetta ýmsum kleift að kom-
ast út fyrir landsteinana, sem
ekki gætu það að öðrum kosti.
En eruð þið ekki í beinni sam-
keppni við sjálfa ykkur með þess-
um ódýru ferðum?
- Það má kannski segja það, en
þessar ferðir eru þó fyrst og
fremst fyrir þá sem ekki ættu kost
á utanlandsferð með öðru móti.
Það er líka rétt að hafa það í huga
að sumarhúsin sem félögin eru að
bjóða í námunda við Saarbruck-
en eru ekki sambærileg hvað gæði
og aðstöðu varðar og þau sem við
bjóðum í Hollandi, Danmörku
og Frakklandi. Þar er einnig boð-
ið upp á fararstjórn og aðra þjón-
ustu, sem er ekki fyrir hendi í
Saarbrucken. -ólg/phh