Þjóðviljinn - 15.03.1989, Blaðsíða 11
Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðingur
Er pólitíkin
deyjandi tík?
Hvað ertu að gera núna, Þor-
steinn?
„Ég er að undirbúa erindi um
heimspekilegar hliðar á vísinda-
sögu. Svo er ég að kenna vísinda-
sögu og grúska í íslenskri vísinda-
sögu í öndverðu."
Hvað varstu að gera fyrir tíu
árum?
„Þá var ég nýlega kominn til
baka eftir eitt ár í Bandaríkjun-
um þar sem ég lagði stund á vís-
indasögu, og vorið 1979 var ég að
kenna hana í fyrsta sinn. Þá var
ég líka að byrja að skrifa bókina
mína, Heimsmynd á hverfanda
hveli, þótt hún kæmi ekki út fyrr
en löngu seinna. Auk þess hafði
Ragnar Arnalds þáverandi
menntamálaráðherra platað mig
í stjórn Lánasjóðs íslenskra
námsmanna og það fór mikill tími
í hann þessa vormánuði.“
Hvað finnst þér gaman að gera
í frístundum?
„Ég les mikið, og þá veit maður
reyndar ekki alltaf hvort maður
er að lesa sér til ánægju eða vegna
vinnunnar. Vinnan verður líka
skemmtun - og það eru mikil
forréttindi. Svo reyni ég að fylgj-
ast með í menningunni, sérstak-
lega leiklist og myndlist. Ég hef
gaman af að fara í gönguferðir í
náttúrunni, sinna fjölskyldunni
og góðum vinum ... Þetta er ekk-
ert sérstaklega frumlegt, er það?
Svo stunda ég líkamsrækt,
leikfimi og blak, og fer út og
hleyp ef ég kemst ekki reglulega í
leikfimi.“
Hvaða bók ertu að lesa núna?
„Ég er að lesa greinar um vís-
indasögu, Vetenskapen och för-
nuftet, um vísindi og skynsemi
eftir finnska heimspekinginn von
Wright. Það er vitur maður og vel
að sér. Svo hef ég verið að lesa
bækurnar frá fyrra ári, til dæmis
Markaðstorg guðanna eftir Ólaf
Jóhann Ólafsson."
Hvað finnst þér gott að lesa í
rúminu á kvöldin?
„Ljóð.“
Hvaða bók myndirðu hafa með
þér á eyðiey?
„Þegar ég hef farið til útlanda
til langdvalar hef ég hyllst til að
taka með mér Stein Steinarr sem
eins konar naflastreng. En ég
gæti líka hugsað mér að hafa
Njáls sögu með mér, eða eitthvað
eftir Laxness.“
Hver var eftirlætisbarnabókin
þín?
„Ég hafði mjög gaman af
Ævintýrabókunum eftir Enid
Blyton sem voru að koma út í
fyrsta sinn þegar ég var strákur.
En ég las svo sem allan fjandann,
byrjaði 8-10 ára að lesa íslend-
ingasögurnar.“
Hvað sástu síðast í leikhúsi?
„Haustbrúði eftir Þórunni Sig-
urðardóttur. Það var mjög vel
heppnuð sýning, fannst mér, lif-
andi og gott leikhús. María Sig-
urðardóttir var ótrúlega góð í
hlutverki Appoloníu og sýndi vel
hvernig hún eldist og breytist á
árunum sem leikritið nær yfir.
Þarna urðu til þrjár til fjórar
sannfærandi persónur á sviðinu
sem gáfu manni margt að hugsa
um.“
Er eitthvað í leikhúsunum ann-
að sem þig langar til að sjá?
„Ég gæti alveg hugsað mér að
sjá Nashyrningana eftir Ionesco í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð.“
En í bíó?
„Þar er ég búinn að sjá allt sem
mig langar til að sjá í bili - nema
Kristnihaldið, ég þarf að sjá
það.“
En í sjónvarpi?
„Við feðgarnir eru áhugasamir
um Derrick og vorum sérstaklega
ánægðir með þáttinn síðast, þá
var enginn myrtur! Svo fylgist ég
náttúrlega með Matador, öll
þjóðin er fallin fyrir þeim þátt-
um. Það er skrítið að það var eng-
inn hrifinn af þessu í Svíþjóð þeg-
ar þættirnir voru sýndir þar ný-
lega, kannski sýnir það meiri
tengsl milli Dana og íslendinga í
hugsunarhætti, við kunnum að
meta danskan húmor en Svíar
ekki.“
En í útvarpi?
„Ég hlusta ekki á útvarp nema
einstaka sinnum á klassíska tón-
list. Ég er heyrnarskertur og get
síður nýtt mér það sem ég heyri
en það sem ég sé.“
Hefurðu alltaf kosið sama
stj órnmálaflokkinn?
„Já já, ég fékk traust og gott
uppeldi á því sviði. Þegar ég var í
barnaskóla var faðir minn í stjórn
Dagsbrúnar og einu sinni á ári
birtist mynd af honum á forsíðu
Þjóðviljans. Þá var híað á mann í
skólanum! En það er ekkert
óumbreytanlegt, ég gæti alveg
tekið upp á því einhvern tíma að
kjósa annan flokk!“
Hvaða stjórnmálamann langar
þig mest til að skamma?
„Davíð Oddsson er óvinsælasti
stjórnmálamaður á þessu heimili
núna, út af ráðhússbyggingu og
ævintýrinu í Öskjuhlíðinni. Ann-
ars finnst mér hafa dregið úr
valdahroka hans, það kemur fyrir
nú orðið að hann dregur í land ef
hann fær nógu sterk mótrök.“
Hvernig myndir þú leysa efna-
hagsvandann?
„Ég myndi reyna að skipu-
leggja efnahagsmálin betur,
draga úr milliliðum og fjársóun,
reyna að ná tökum á óhóflegri
einkaneyslu og sukki í einka-
rekstri og sjá til þess að fólk fengi
laun eftir raunverulegu framlagi.
Ég myndi reyna að sjá skynsam-
lega lausn á vanda sjávarútvegs
og landbúnaðar. Auðvitað eru
byggðamálin erfið og viðkvæm,
LESANDI
VIKUNNAR
en það er hægt að spara með
betra fyrirkomulagi. Auðlinda-
skattur freistar mín, að láta fólk
borga fyrir að nýta sameiginlegan
rétt okkar, það kæmi betra skipu-
lagi á veiðarnar.“
A að lækka kaupið ef fyrirtæki
gengur illa?
„Sem almenn regla, nei. En
það getur verið hugsanlegt að
grípa til slíks ráðs í einstökum til-
vikum ef starfsmenn kjósa það
vegna þess að þeir hafa sérstök
tengsl við fyrirtækið."
Hvernig á húsnæðiskerfið að
vera?
„Ég bjó lengi í Danmörku og
fannst kerfið þar á allan hátt
miklu betra en hér. Aukin
áhersla á öruggt leiguhúsnæði á
sanngjörnu verði og Búsetakerfi
væri æskilegt. Það er afskaplega
vitlaust að gera það að sáluhjálp-
aratriði að fólk eigi endilega
steinsteypuna í kringum sig.“
Hvaða kaffitegund notarðu?
„Ég nota Bragakaffi frá degi til
dags þótt sumir í fjölskyldunni
séu ekki ánægðir með það. En
þegar mig langar í sterkt kaffi
nota ég Gevalia expresso og
brugga í sérstakri könnu. Það er
reyndar líka gott úr venjulegri
kaffivél.“
Hvað borðarðu aldrei?
„Ég get ómögulega nefnt neitt
sem ég borða ekki nú orðið, og
mér finnst flestur matur góður.
Ég borðaði helst ekki sósu og lítið
af kartöflum þegar ég var ung-
lingur, svo var ég við nám í Dan-
mörku og á Kannibalnum í Kaup-
mannahöfn var lítið annað á disk-
unum en sósa og kartöflur. Eftir
það borðaði ég allt.“
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á Jsiandi?
„í Danmörku. Þó hef ég líka
reynt að búa bæði í Svíþjóð og
Bandaríkjunum. En á íslandi er
best að búa - þrátt fyrir allt.“
Hvernig finnst þér þæeilegast
að ferðast?
„Mér finnst mest gaman að
ferðast í bíl, hæfilega frjálst og
afslappað, ákveða engar dag-
leiðir fyrirfram heldur leika af
fingrum fram. Það er líka þægi-
legt að ferðast með lestum og leitt
að þær skuli vera að hverfa fyrir
bílum og flugvélum."
Hvernig sérðu framtíðarlandið
fyrir þér?
„Framtíðarlandið er land þar
sem fólk nýtir hæfileika sína og
allir hæfileikar eru metnir. Efna-
hagskerfið er lagað að fólkinu
þannig að það sem það hefur
fram að færa er metið alhliða,
bæði stórt og smátt. Yfirborðs-
mennska er þar lítil sem engin
heldur snýst lífið um raunveruleg
verðmæti."
Hvaða spurningu langar þig til
að svara að lokum?
„Hvort pólitíkin sé tík sem er
að deyja?“
Er pólitíkin tík í dauðateygjun-
um, Þorsteinn?
„Mér finnst hún mjög komin á
efri ár og vera að fletjast út í yfir-
borðsmennsku. Það er sami
grautur í sömu skál hjá flestum
stjórnmálaflokkum og virðist
ekki skipta máli gagnvart
launþegum hverjir eru í ríkis-
stjórn, munurinn fer að minnsta
kosti sífellt minnkandi. Það er
engin tilviljun að nú skuli talað
um að steypa þeim saman sem
áður voru erkifjendur, og vert að
taka eftir þessu og hugsa um það
þó að kannski hljóti þetta að fara
svona og ekki öðruvísi. Þessi þró-
un berst til okkar frá hinum stóra
heimi, hún er ekki séríslenskt
fyrirbæri. Kalda stríðinu er lokið
og það er ekkert Víetnamstríð,
stórveldin færast nær hvort öðru.
Nú eru þeir tímar að það dregur
úr öllum andstæðum að því er
virðist, eða þá að andstæður í
þjóðfélaginu falla síður að ríkj-
andi flokkakerfi. Þetta verðum
við að hugsa um og velta fyrir
okkur hvort við getum gert
eitthvað til að skerpa andstæð-
urnar aftur - ef ástæða er til.“
SA
þlÓÐVIUINN
FYRIR50ÁRUM
Tékkóslóvakía limuð sundur
enn-eftirvaldboði Hitlers-
stjórnarinnar. Slóvakíaog Rút-
henía lýsa yfir „sjálfstæði"-
Þýzki herinn ræðst inn í Slóvakíu,
- Ungverjar ráðast inn í Rúthen-
íu.
Eimskip hætt við að senda
Goðafoss til New York í tilefni af
heimssýningunni.
I DAG
15. MARS
miðvikudagur í tuttugustu og
fyrstu viku vetrar, tuttugasti og
fimmti dagur góu, 74. dagur árs-
ins. Sól kemur upp í Reykjavík kl.
7.46 en sest kl. 19.29.Tungl vax-
andiáöðru kvartili.
VIÐBURÐIR
Þjóðvarnarflokkur íslands stofn-
aður 1953. Júlíus Sesar myrtur
44 f.Kr. Fjöldamorðin í Mylai í
Víetnam 1968.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúðavikuna
10.-16. mars er í Laugarnesapóteki og
Ingólfs Apóteki.
Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
f 0 frídaga). Siðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur...........sími 4 12 00
Seltj.nes...........sími 1 84 55
Hafnarfj............sími 5 11 66
Garðabær............sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík..........sími 1 11 00
Kópavogur..........sími 1 11 00
Seltj.nes..........sími 1 11 00
Hafnarfj...........sími 5 11 00
Garðabær...........sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virkadaga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráöleggingar og tima-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar I sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspit-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspitalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51 f 00.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðinviö
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspitali Hafnarfiröi:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spítalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19
Sjúkrahúsið Akureyri: alla daga 15-16
og 19.19.30. Siúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alladaga 15.30-16og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum
efnum. Simi 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opiö virkadagafrá
kl. 10-14. Simi 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
simi21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrirsifjaspellum, s. 21500,simsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við iækni/hjúkrunarfræöing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafaveriöofbeldi eða orðið fyrirnauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags-og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Félag eldri borgara. Opið hús í Goöheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
ogsunnudagakl. 14.00.
Bilanavakt (rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Simi
21260allavirkadagakl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús" krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameirissjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samt ök áhugafólks um alnæmisvand-
ann vilja styðja við smitaða og sjúka og
aðstandendur þeirra. Hringið i síma 91 -
224400 alla virka daga.
GENGIÐ
Gengisskráning 14. mars 1989 kl.
9.15.
Sala
Bandaríkjadollar........... 52,78000
Sterlingspund.............. 90,34400
Kanadadollar............... 44,08600
Dönskkróna................. 7,25500
Norskkróna.................. 7,76580
Sænskkróna.................. 8,26500
Finnsktmark................ 12,12220
Franskurfranki............. 8,34200
Belgískurfranki............. 1,35060
Svissn. franki............. 33,05980
Holl. gyllini.............. 25,05760
V.-þýsktmark............... 28,27530
Itölsklira................. 0,03855
Austurr. sch................ 4,01980
Portúg. escudo............. 0,34380
Spánskur peseti............ 0,45480
Japansktyen................. 0,40577
(rsktpund................. 75,56800
KROSSGÁTA
I Lárétt: 1 harma4 blunda 8 flóðs 9 atorka 11 Iitla12dramb14
Y 2 3 m 4 6 6 7
:: • samstæðir15ljós17 eimurinn19hás21 bleyta 22 tómi 24 þó25 eggja Lóðrétt: 1 munntóbak 2stertur3skoða4 skrafir 5 tryllt 6 klúry rði 7 hraðanum 10sterka 13glata16nabbi17 lofttegund 18 liðug 20 fljótið 23 varðandi Lausnásíðustu krossgátu , Lárétt: 1 gölt 4 gaut 8 áreitni 9 asni 11 saug 12 skilti 14nn 15læða 17 áttur 19 för 21 Stó22 tólg 24 tagl 25 sina
ð 10 11
12 13 n 14
r“i k l j 1® L J
n 1S L. J 10 20
¥T~ n 22 □
2* n 2% k Lóðrétt: 1 gras2láni3 trillu 4 gisiö 5 ata 6 unun 7 tignir 10 skatta 13 tært 16 afli 17 ást 18 tóg20ögn23ós
Miðvikudagur 15. mars 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11