Þjóðviljinn - 22.03.1989, Qupperneq 1
Miðvikudagur 22. mars 1989 57. tölublað 54. órgangur
Grœnfriðungar
Mótmæltu í
Danmörku
Tókst ekki að stöðva
sýningu „Lífsbjargar í
norðurhöfum“
Mynd Magnúsar Guðmunds-
sonar, Lífsbjörg í norðurhöfum,
var sýnd á TV2 í Danmörku í gær-
kvöldi. Grænfriðungar efndu í
gærdag til blaðamannafundar og
sögðust hafa reynt að koma í veg
fyrir að myndin yrði sýnd, en það
hefði ekki tekist.
Þeir sögðust ætla að lögsækja
sjónvarpsstöðina, Magnús Guð-
mundsson og ef til vill fleiri. Ein-
ungis væru fimm dagar síðan þeir
fengu að sjá myndina og hefðu
enn ekki getað svarað nema gróf-
ustu ásökunum á hendur sér í
henni. Þeir vilja fá dómsúrskurð
þess efnis að myndin sé ósönn.
SA
Fornleifar
Grafið í
Tjarnargötu
í sumar
Reykjavíkurborg
hefur veitt2 miljónir
tilfornleifarannsókna
í Tjarnargötu 8
Fornleifarannsóknir hefjast í
Tjarnargötu 8 1. maí, og hefur
Reykjavíkurborg veitt 2 miljónir
til þeirra rannsókna sem fara
fram á vegum Arbæjarsafns
undir stjórn Margrétar Hallgríms-
dóttur fornleifafræðings.
Lóðin Tjarnargata 8 liggur að
Suðurgötu 3-5 þar sem merkustu
menjar frá fyrstu öldum byggðar
fundust á árunum 1971-75. Varð-
veisluskilyrði eru talin sérlega
góð á þessu svæði og er viðbúið
að þar finnist ýmislegt Iauslegt úr
tré. Fyrirhugað er að byggja á
lóðinni síðsumars og verður
rannsóknunum því að vera lokið
fyrir þann tíma.
Af öðrum rannsóknum má
nefna að athugun á rústum í Við-
ey verður haldið áfram þar sem
Iíklegt er talið að hið forna
klaustur hafi staðið.
í blaðinu í dag er skýrt frá
skýrslu um niðurstöður forn-
leifarannsókna í Aðalstræti og
Suðurgötu á árunum 1971-1975
sem Else Nordahl stýrði.
eb.
Sjá baksíðu
Bankakerfið
Halda uppi hávöxtum
með handaflinu einu
Lögmálframboðs og eftirspurnar knýr á um lœkkun raunvaxta, en bankastjórar
þráast við. Innlán til banka aukist um 2,6% frá áramótum, útlánin ekkert. Lausafé
helmingi meira í febrúarlok en um áramót. Skuldarar borga brúsann
Innlán í bankakerfið hafa aukist
síðan um áramót um 2,6%, en
útlánin á sama tíma staðið í stað,
samkvæmt upplýsingum sem
Þjóðviljinn fékk frá Seðlabanka í
gær. Lausafjárstaða bankanna í
febrúarlok hafði tvöfaldast frá
áramótum, og aukist úr 4,1 milj-
arði í 8,2 miljarða, og vaxtamun-
ur í heildina verið bönkunum
heldur í óhag.
Samkvæmt hefðbundnum við-
skiptalögmálum ættu bankar og
aðrar peningastofnanir því að
hafa lækkað raunvexti umtalsvert
síðustu vikur og mánuði þarsem
framboð á fjármagni hefur verið
mun meira en eftirspurnin. Þó
hafa raunvextir staðið í stað, og
nafnvextir rokið upp, langt um-
fram eðlileg verðbólguviðbrögð
að mati ýmissa kunnáttumanna.
Bankar hafa því að undan-
förnu verið reknir með reiknings-
legum halla, en tekið þann kost
að vega hann upp með viðhaldi
hárra raunvaxta og hækkun
nafnvaxta, sem fyrst og fremst
leggst á þau lán sem þegar hafa
verið tekin.
Haldi þetta áfram er við því að
búast að sögn kunnáttumanna að
enn dragi úr eftirspurn einstak-
linga og fyrirtækja eftir lánsfé,
sem mundi enn auka óvirkt
lausafé bankanna og skekkja af-
komugrunn þeirra.
Meðal þeirra þátta sem taldir
eru hafa áhrif í átt til lækkunar er
sú ákvörðun fjármálaráðherra að
breyta söluskattskilum kaup-
manna sem dró verulega úr láns-
•fiárþörf í smásöluversluninni.
Onnur ástæða er talin sú að líf-
eyrissjóðirnir hafa forðast ríkis-
skuldabréf með 5% vöxtum og
keypt bankabréf í hrönnum í
staðinn, sem hefur aukið mjög
ávöxtunarkröfur til bankanna á
skömmum tíma.
Staðan virðist þvx vera sú núna
í bankakerfinu að stjórnendur
þess haldi hávöxtunum uppi með
handafli einu saman, og velti
herkostnaðinum yfir á einstak-
linga og fyrirtæki sem eru að
borga af teknum lánum með sí-
hækkandi breytilegum vöxtum.
-m/phh
Sjá síðu 3 og leiðara
Úr Ræxnu Sigurðar Thoroddsens. Mynd Jim.
Ingibjörg Haraldsdóttir, Þorlákur Kristinsson og Guðmundur Georgs-
son hjá Samtökum herstöðvaandstæðinga.
1949-1989
NATO í 40 ár
Samtmun ég vaka! Menningardagar Samtaka
herstöðvaandstœðinga22. til30. marsí
Listasafni alþýðu
ann 30., mars eru liðin 40 ár
síðan Islendingar gengu í
hernaðarbandalagið NATO og
létu þar með af þeirri hlutleysis-
stefnu sem mörkuð var þegar
landið hlaut sjálfstæði.
Þessari ákvörðun var sterklega
mótmælt þegar í upphafi innan
alþingis sem utan.
Herlaust og hlutlaust land og
boðberi friðar í vígvæddum heimi
er það sem ísland ætti með réttu
að vera.
Herstöðvaandstæðingar hafa
haldið þessari hugsun á lofti öll
þessi ár og ætla síður en svo að
láta deigan síga. Samtökin efna
nú til menningardaga í Listasafni
alþýðu til þess að stuðla að því að
halda hugmyndinni vakandi og
auka fylgi hennar.
25 myndlistarmenn verða þar
með verk til sýnis og er sérstök
athygli vakin á því að í kaffistofu
safnsins verður sýning á
„Ræxnu" eftir Sigurð heitinn
Thoroddsen, en það eru skop-
myndir af þeim þingmönnum
sem samþykktu aðild Islands að
NATO ásamt formála sem Sig-
urður samdi.
Myndlistarsýningin myndar
ramma um fjölbreytta tónlistar-
og bókmenntadagskrá sem birt
var í Nýju Helgarblaði á föstu-
daginn var.
Menningardagskráin hefst í
kvöld kl. 20.30 í Listasafni alþýðu
með því að Svava Jakobsdóttir
rithöfundur flytur ávarp og Örn
Magnússon stjórnar sönghóp
sem flytur nokkur lög tengd
friðar- og þjóðfrelsisbaráttu.
Allir eru velkomnir án boð-
skorta. Sérstakir heiðursgestir
við opnunina eru þeir menn sem
sögðu NEI bæði innan og utan
veggja alþingis þennan dag. Eins
hefur þeim ntönnum sem saksótt-
ir voru vegna mótmælanna á
Austurvelli, verið boðið sérstak-
lega.
Listasafn alþýðu er til húsa að
Grensásvegi 16 og opnunartími
sýningarinnarverðurfrákl. 16-22
virka daga og 14-22 aðra daga.
Menningardögunum lýkur
með baráttufundi í Háskólabíói
sunnudaginn 2. apríl kl. 14. Þar
verður m.a frumflutt leikritið
Réttlætið gegn RÚV eftir Justus í
leikstjórn Brynju Benediktsdótt-
ur.
eb
Alþingi
Seðlabankinn í brennidepli
i því í gær að
breyting á Seolabankalögum
yrði afgreidd frá alþingi í nótt.
Eitt nýmælanna mun gegna lykil-
hlutverki í áætlun ríkisstjórnar-
innar um lækkun vaxta, „skerpa
heimildir stjórnvalda til að
tryggja hóflegar vaxtaákvarðan-
ir.“
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra fullyrti í umræðunni um
mál þetta á alþingi í gær að
breytingarnar snertu á engan hátt
nafnvaxtahækkanir banka og
sparisjóða að undanförnu. Hins-
vegar væri ljóst að raunvextir
væru hærri hér en í grannríkjum
okkar og því ekki óeðlilegt að
rýmka heimildir Seðlabanka til
þess að hlutast til um þá. ks