Þjóðviljinn - 30.03.1989, Qupperneq 2
Það eru mikil þrengsli í kennslustofum MR. Þeir Svavar og Steingrímur, báðir fyrrverandi nemendur
skólans, gátu þó troðið sér milli púlta og fylgst með kennslu af óskiptum áhuga. Mynd ÞÓM
MR
Menntó fyrir mjóa!
Nemendur MR skora á stjórnvöld að leysa húsnœðisvandann
Nemendur Menntaskólans í
Reykjavík skora á ríkisstjórn
íslands að finna nú þegar fram-
tíðarlausn á húsnæðisvanda
skólans. Það reynir mjög á þol
líkamans að þurfa að bora sér og
troða í miklum þrengslum í bar-
áttunni fyrir andlegu fæðunni.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum eru mjög mikil þrengsli í
MR og fer kennsla fram í mörg-
um misgóðum byggingum í ná-
grenni gamla skólans. Minnsta
kennslustofan, sem rúma á 12-15
nemendur, er um 16 fermetrar að
stærð og sitja nemendur í fremri
borðaröð sveipaðir krítarskýi
með lappirnar í kuðung undir
smáum borðunum.
Til þess að vekja athygli á því
ófremdarástandi sem ríkir í pláss-
leysinu boðuðu forsvarmenn
Nemendasambands MR til fund-
ar í gær þar sem ráðherrarnir þrír,
Steingrímur Hermannsson,
Svavar Gestsson og Ólafur R.
Grímsson, voru leiddir um húsið
til þess að sjá með eigin augum
hvers konar síldartunnuástand
ríkir í þessu gamla menningar-
setri. Að skoðunarferð lokinni
var ráðherrum afhent áskorun frá
nemendum þess efnis að finna nú
þegar framtíðarlausn á húsnæðis-
vanda skólans.
Formaður skólafélagsins Þórir
Auðólfsson skipaði húsnæðis-
málanefnd í haust og hefur
nefndin haft tal af ýmsum sem
þetta mál varðar og gengið á fund
fjárveitinganefndar Alþingis.
Eins tekur húsnæðismála-
nefndin við hugmyndum um um-
bætur bæði frá nemendum og
starfsfólki.
Vinnuaðstaða kennara er einn-
ig bagaleg. Má t.d. nefna að eitt
af þeim vinnuherbergjum sem
ætluð eru kennurum er 10 ferm-
etrar að stærð og er meiningin að
13 kennarar skipti öllum þessum
fermetrum á milli sín. Kennt er í
fatahengjum, ræstingarklefum
og jafnvel inni á skrifstofu Guðna
rektors.
Húsnæðismálanefndin bendir
á að ekki væri úr vegi að hafa
ákveðin inntökuskilyrði í skólann
fyrir utan grunnskólaprófið, og
er eitt af þessum skilyrðum að
nemendur séu alls ekki breiðari
en 100 sm. Sem sagt menntó fyrir
mjóa. eb
FRETTIR
Lífeyrissjóðirl ríkið
Gengistryggð
skuldabréf?
Viðrœður lífeyrissjóðanna og ríkisins hefjast
von bráðar þótt enn sýnistsitt hverjum um
ágœti nýju lánskjaravísitölunnar
Vonir standa til þess að form-
legar viðræður fjármálaráðu-
neytis og lífeyrissjóðanna um
skuldabréfakaup hinna síðar-
nefndu hefjist fyrir helgi. Að sögn
Más Guðmundssonar, efna-
hagsráðgjafa fjármálaráðherra,
hefur ágreiningur þessara aðilja
vegna lánskjaravísitölu verið
lagður til hliðar í bili. I staðinn
séu menn nú að þreifa fyrir sér
með hugmyndir um gengistrygg-
ingar skuldabréfanna.
Alkunna er að tvennt hefur
orðið lífeyrissjóðunum og ríkis-
valdinu að ágreiningsefni undan-
farið. Annars vegar hin nýja
lánskjaravísitala, en í henni
skipar launavísitala þriðjung og
vegna þess þykjast sjóðirnir hafa
misst spón úr aski sínum. Hitt
ágreiningsefnið eru vextirnir;
hingaðtil hefur ríkið greitt sjóð-
unum 6,8% vexti en vill nú ná
raunvöxtum niður í 5%.
Már tjáði Þjóðviljanum í gær
að höggvið væri á báða hnútana
með því að taka mið af
heimsmarkaðskjörum við kaup
lífeyrissjóðanna á skuldabréfum
vegnahúsnæðiskerfisins. Gengis-
trygging hefði í för með sér hóf-
lega vexti, einsog ríkisstjórnin
óskaði, og öruggar tryggingar,
sem væri vitaskuld forgangskrafa
sjóðanna. ks
Gjaldþrot
Stefnir í metár
Félagsmálaráðuneytið: Ríkisábyrgð vegna gjaldþrota
38,5 miljónir króna fyrstu 3 mánuði ársins
Það sem af er þessu ári hefur
ríkissjóður þurft að greiða
38,5 miljónir króna vegna ríkis-
ábyrgðar vegna gjaldþrota til 400
aðila. Það þýðir að 13 miljónir
króna hafi verið greiddar úr rík-
issjóði á mánuði á móti 7 miljón-
um í fyrra.
Að sögn Óskars Hallgríms-
sonar forstöðumanns Vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins urðu 84 fyrirtæki gjald-
þrota á síðasta ári og þá námu
greiðslur úr ríkissjóði vegna ríkis-
ábyrgðar samtals 86 miljónum
króna til 850 aðila eða 7,2 miljón-
um króna á mánuði. Óskar sagði,
að ef svo fram færi sem horfði
stefndi í metár hvað varði gjald-
þrot fyrirtækja. -grh
Talið í biskups-
kjöri í dag
Úrslit úr fyrstu umferð í bisk-
upskjöri verða kunngjörð í dag,
en talið verður á biskupsstofu.
Alls greiddu 199 atkvæði af 201
sem eru á kjörskrá. Fjórir prestar
hafa lýst því yfir að þeir séu í
kjöri, þeir Heimir Steinsson, Jón
Bjarman, Ólafur Skúlason og
Sigurður Sigurðsson. Hljóti eng-
inn þeirra helming greiddra at-
kvæða í þessari kosningu verður
kosið á milli þeirra þriggja sem
flest atkvæði fá og síðan áfram
þar til einhver hefur hlotið meira
en helming atkvæða.
Landbúnaðarvörur
hækka ekki
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
auka við niðurgreiðslur landbún-
aðarafurða, þannig að ekki komi
til hækkunar á útsöluverði þeirra
nú um næstu mánaðamót. Ás-
mundur Stefánsson forseti ASÍ
sagði í útvarpsfréttum í gærkvöldi
að þessi ákvörðun skipti miklu
fyrir framhald samningavið-
ræðna því ef landbúnaðarafurðir
hefðu hækkað, myndi það hafa
valdið sprengingu í samninga-
viðræðunum.
Helgi annar
í New York
Helgi Ólafsson lenti í öðru sæti
ásamt fjórum öðrum skák-
mönnum á opna New York skák-
mótinu sem lauk í fyrrakvöld.
Fyrir síðustu umferðina var Helgi
í efsta sæti ásamt þremur öðrum.
Hann gerði jafntefli í síðustu
skák sinni, en bandaríska stór-
meistaranum Fedorowicz tókst
að sigra andstæðing sinn og
hreppti því einn efsta sætið. Helgi
hlaut 6,5 vinninga í 9 skákum en
Margeir Pétursson hlaut 6 vinn-
inga ásamt fjölda annarra skák-
manna. Þeir Jón L. Árnagon og
Karl Þorsteins hlutu 4 vinninga
og Hannes Hlífar Þorsteinsson
fékk 3,5 vinninga.
Johann og
Margeir jafnir
á ELO-listanum
Margeir Pétursson stórmeistari
hefur náð Jóhanni Hjartarsyni
skákbróður sínum að stigum eftir
gott gengi á undanförnum vikum
en Jóhann hefur á sama tíma tap-
að töluverðu af stigum vegna
slæms árangurs eftir einvígið við
Karpov fyrr á árinu. Þeir félagar
eru með 2595 stig samkvæmt
stigatöflu fyrir marsmánuð en á
hæla þeim kemur Jón L. Árnason
með 2560 stig, Helgi Ólafsson
með 2540 stig og Friðrik Ólafsson
með 2530 stig. Alls eru 114 inn-
lendir skákmenn komnir með
2000 ELO-stig eða fleiri.
Fyrirlestur
um Oman
Hussein Sheahdeh, blaðamaður,
heldur flyrirlestur í kvöld kl.
20.30 um ríkið Oman við Persa-
flóa í Menningarmiðstöðinni í
Gerðubergi. Sýndar verða lit-
skyggnur og myndband en fyrir-
lesturinn verður fluttur á ensku.
Sheahdeh hélt fyrirlestur hér-
lendis fyrir rúmu ári á vegum
Blaðmannafélagins við góðar
undirtektir. Þá hefur verið opnuð
í Borgarbókasafninu í Gerðu-
Helga Mogensen forkólfur Markaðstorgsins og Ástbjörn Egilsson
framkvæmdastjóri Miðbæjársamtakanna með Kolaportið í baksýn.
Markaðstorg
í Kolaportinu
Annan laugardag verður opnað
Markaðstorg í fyrsta sinn í
Reykjavík og verður það til húsa í
Kolaportinu, bílageymslunni
undir Seðlabankabyggingunni.
Það er Helga Mogensen, eigandi
veitingahússins Á næstu grösum,
sem stendur fyrir markaðstorg-
inu í samvinnu við Miðbæjarsam-
tökin og með aðstoð borgarinn-
ar. Á markaðstorginu má selja
allt sem mönnum dettur í hug,
bæði gamalt og nýtt. Um 180
sölubásar verða á markaðnum og
geta þeir sem hafa áhuga á kaup-
mennsku leitað frekari upplýs-
inga í síma 621170.
Þjóðlíf
eykur söluna
Tímaritið Þjóðlíf jók útbreiðslu
sína nokkuð á síðustu mánuðum
bergi, farandsýning á bókum og
ljósmyndum frá Oman og að auki
liggur þar frammi margvíslegt
kynningarefni um Oman.
nýliðins árs, samkvæmt tölum úr
upplagseftirliti vikublaða og
tímarita hjá Verslunarráðinu. Nú
eru prentuð 10 þús. eintök af
hverju tölublaði og þar af fara
tæplega 6 þús. til áskrifenda. Á
sama tíma hefur bæði Æskan og
Heimsmynd minnkað upplag sitt
en tímaritið Heilbrigðismál aukið
nokkuð við útbreiðslu sína.
Hagnaður af
Tollvörugeymslunni
Þrátt fyrir nokkurn samdrátt á af-
greiðslum hjá Tollvörugeymsl-
unni í Reykjavík á sl. ári varð
reksturinn hagstæður og hagnað-
ur tæpar 10.3 miljónir. Fyrirtæk-
ið hyggst reisa sér framtíðarað-
stöðu á Kleppsvíkursvæðinu.
Miljarður
úr fiskeldinu
Heildartekjur af fiskeldi hér-
lendis á sl. ári námu um einum
miljarði samkvæmt samantekt
Veiðimálastofnunar. Alls eru nú
reknar 125 fiskeldis- og haf-
beitarstöðvar í Iandinu og fjöl-
gaði þeim um 12 á síðasta ári.
Alls voru framleidd í þessum
stöðvum rúmlega 10 miljón göng-
useiði, rúmlega 1.200 tonn af laxi
og 156 tonn af silungi. Framleiðs-
lugeta stöðvanna var hins vegar
um 21,5 miljónir seiða og 7.600
tonn af matfiski. Á þessu ári er
áætlað að framleiða um 4 þús.
tonn af laxi og 400 tonn af silungi
og að árið 1990 verði fram-
leiðslan komin upp í 8.500 tonn af
laxi og 600 tonn af silungi. Þá er
áætlað að um 5 miljónir göngus-
eiða fari í hafbeit á þessu ári og
4,5 miljónir seiða í áframeldi.
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Flmmtudagur 30. mars 1989