Þjóðviljinn - 19.04.1989, Side 1
Miðvikudagur 19. apríl 1989 73. tölublað 54. órgangur
Fjármálaráðuneyti/lífeyrissjóðir
Vaxtamúrínn bratinn
Tímamótasamningar um skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna. Raunvextirstrax í6%og lœkka Í5% íjúlí.
Stórhlutikaupanna gengistryggður. Húsnœðisstofnuntryggtlánsfé. Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra: Fylgt eftir með vaxtalœkkun á spariskírteinum og íbankakerfinu. Benedikt Davíðsson
stjórnarform. SAL: Tilbúnirað styðja við vaxtalœkkunarstefnu stjórnvalda
essi samningur markar tíma-
mót varðandi þróun raun-
vaxta og ekki síður varðandi að-
lögun íslensks vaxtastigs að er-
lendum peningamarkaði. Með
Álverið
Ólga vegna
fækkunar
starfsmanna
Hœgagangur íÁlverinu.
Rœtt um yfirvinnubann.
Forstjórinn vill verulega
fœkkun verkamanna.
Engar nýráðningar.
SigurðurT. Sigurðsson:
Liggur við að menn séu
farnir að sakna Ragnars
Mikillar óánægju gætir meðal
verkamanna í Alverinu í
Straumsvík með þá ákvörðun
forstjóra verksmiðjunnar að
fækka starfsmönnum með því að
ráða ekki í þær stöður sem losna.
Einnig eru starfsmenn ósáttir við
launakjör en Alverssamningarnir
gilda tU 1. september n.k.
- Það er óhætt að segja að tölu-
verð ólga sé meðal starfsmanna í
Straumsvík út af ýmsum málum.
Mér sýnist á öllu að það geti
gengið það langt með nýja for-
stjórann að menn fari að sakna
Ragnars, sagði Sigurður T. Sig-
urðsson formaður Verkamanna-
félagsins Hlífar í samtali við
Pjóðviljann í gær.
- Þótt búningarnir breytist þá
virðist stefnan vera sú sama. Það
liggur fyrir krafa frá þeim um að
fækka starfsfólki, og það svo
rösklega að það nær engri átt að
okkar viti, sagði Sigurður.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hafa verið uppi hugmynd-
ir í Álverinu um að sett verði á
yfirvinnubann, en engin ákvörð-
un hefur verið tekin í þeim efn-
um. Hins vegar munu vinnuaf-
köst vera með minnsta móti
vegna óánægju starfsmanna.
Oskum um endurskoðun og
breytingar á starfskjörum hefur í
engu verið svarað en samningar
eru í gildi fram í ágústlok. Sam-
kvæmt þeim hækka laun um
2,7% 1. maí n.k. og aftur um 1%
þann 1. ágúst. Þessar hækkanir
telja starfsmenn alls óviðunandi,
með tilliti til nýgerðra kjara-
samninga BSRB og ríkisins og
þeirrar kaupmáttarrýrnunar sem
orðið hefur frá því samningarnir
voru gerðir í fyrravor.
Christian Roth forstjóri ÍSAL
vildi ekkert láta hafa eftir sér um
stöðu mála í álverinu að svo
stöddu. Hann sagði þó að við-
ræður ættu sér stað á milli aðila.
-Ig./-phh.
þessum samningum hefur verið
rutt úr vegi helstu hindrunum
fyrir þeirri raunvaxtalækkun sem
stjórnvöld hafa stefnt að, segir
Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra um nýjan samning
fjármálaráðuneytis og samtaka
lífeyrissjóðanna um kjör á
skuldabréfakaupum sjóðanna af
Húsnæðisstofnun ríkisins. Samn-
ingurinn sem gildir til næstu ára-
móta gerir ráð fyrir því að vextir
á skuldabréfum með innlendri
verðtryggingu fari þegar niður í
6% og síðan niður í 5% frá og
með júlíbyrjun n.k.
Ráðgert er að lífeyrissjóðirnir
kaupi skuldabréf af Húsnæðis-
stofnun fyrir um 7 miljarða á
næstu 9 mánuðum og á það að
tryggja stofnuninni nægjanlegt
Kjararáð Kennarasambands
Islands og samninganefnd
ríkisins funduðu í gær og lagði
kjararáð KÍ þar til að áfram yrðu
rædd ýmis mál er snúa „að kenn-
urum sérstaklega og bættu skóla-
starfi,“ eins og segir í fréttatil-
kynningu. KÍ gerir hins vegar
fyrirvara um þá launaliði sem
samninganefnd ríkisins hefur
gert tillögu um og eru sambæri-
legir þeim sem um var samið í
BSRB-samningnum.
Loftur Magnússon, varafor-
maður KÍ var fáorður eftir fund-
lánsfé út árið. Það sem af er árinu
hafa sjóðirnir keypt skuldabréf af
Húsnæðisstofnun fyrir um IVi
miljarð.
Nýmæli er í þessum samning-
um að hluti skuldabréfakaupa líf-
eyrissjóðanna, allt frá 15-40% af
heildarkaupum hvers Iífeyris-
sjóðs, mun miðast við gengis-
tryggingu og erlenda nafnvexti,
sem í dag fela í sér um 5% raun-
vexti. Þá gerir samningurinn ráð
fyrir að skuldabréfin verði verð-
tryggð með núgildandi lánskjara-
vísitölu, en ágreiningur aðila uin
gildi þeirrar vísitölu verður
leystur fyrir dómstólum.
Reynist almennt raunvaxtastig
í landinu verða hærra á samnings-
tímanum en samningurinn við líf-
eyrissjóðina gerir ráð fyrir, verð-
inn, en sagðist aðspurður ekki
útiloka neina möguleika í stöð-
unni, ekki einu sinni þann að KÍ
næði samningum á undan HÍK
sem nú stendur í verkfalli.
Á fundinum í gær lagði kjara-
ráð KÍ fram hugmyndir um að
samninganefndir ræddu sérstak-
lega röðun í launaflokka og
launaþrep, orlof, heimavinnu,
endurmenntun og framhalds-
menntun, kennsluskyldu byrj-
enda og yfirvinnumál. Þá færi
fram endurskoðun á mati fyrir
háskólaár og rædd yrðu sérmál
ur vaxtastig þess hluta skulda-
bréfanna sem bundin eru inn-
lendri verðtryggingu, leiðrétt í
janúar á nk. ári. Nái hins vegar
þau markmið sem ríkisstjórnin
hefur sett sér í vaxta- og peninga-
málum fram að ganga í kjölfar
þessa samnings við lífeyrissjóð-
ina, mun ekki þurfa að koma til
leiðréttingar á vöxtum.
Fjármálaráðherra sagði í gær
að í beinu framhaldi af þessum
tímamótasamningi myndu vextir
af spariskírteinum ríkissjóðs
verða lækkaðir á samsvarandi
hátt. Seðlabankinn myndi taka
mið af því raunvaxtastigi sem
væri ríkjandi og hér væri búið að
móta grundvöll fyrir almennri
raunvaxtalækkun eins og
stjórnvöld hefðu stefnt að.
ýmissa hópa innan KÍ. Samn-
inganefnd tók við hugmyndum
KI til skoðunar og ákveðið var að
næsti fundur viðræðuaðila verði
haldinn á morgun.
Því virðist sem nokkuð miði í
þessum viðræðum á meðan lítið
haggast hjá Hinu íslenska kenna-
rafélagi og öðrum félögum
BHMR. Hætt er hins vegar við að
nái KÍ samningum áður en HÍK
eða önnur BHMR-félög hafa
samið komi það til að valda úlfúð
meðal kennarafélaganna
tveggja. KÍ hefur heitið HÍK
Benedikt Davíðsson stjórnar-
formaður Sambands almennra
lífeyrissjóða, sagði að lífeyris-
sjóðirnir hefðu alla tíð verið til-
búnir að fylgja eftir vaxtalækkun-
arstefnu stjórnvalda að upp-
fylltum ákveðnum tryggingum.
Ef þessi raunvaxtalækkun næði
fram á almennum peningamark-
aði myndi það einnig hafa áhrif á
útlánsvexti lífeyrissjóðanna.
Pétur Blöndal framkvæmda-
stjóri Landssambands lífeyris-
sjóða segir þetta samkomulag
ekki hafa í för með sér áhættu
fyrir lífeyrissjóðina. Hér væru
farnar ýmsar nýstárlegar leiðir
sem væru til bóta en hann hefði
ekki trú á því að þær skiluðu al-
mennri rauvaxtalækkun.
stuðningi á meðan á verkfalli þess
síðastnefnda stendur og hefur
sýnt þann stuðning í verki með
fjárframlögum. Semji KÍ hins
vegar á undan HÍK er hætt við að
gamlar ýfingar taki sig upp og
draumur margra um sameiningu
þessara systrafélaga verði fyrir
bí. Þessi staða gæti því orðið til
þess að dráttur verði á því að KÍ
skrifi undir samninga, en eins og
varaformaður KÍ orðaði það er
öllum möguleikum haldið opn-
um.
phh
-«g-
Verkfallsbrot hind-
rað. Verkfallsverðir í
BHMRkomuígærí
vegfyriraðdr. Jakob
Magnússon aðstoðar-
forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar kæm-
ist um borð í frystitog-
arann Harald Krist-
jánsson HF. í Hafnar-
fjarðarhöfn. Dr. Jakob
hafði ætlað sér að fara
með togaranum í
karfaleiðangurdjúpt
út af Suðurlandi enda
sérf ræðingur stofnun-
arinnaríöllu sem lýtur
að lifnaðarháttum
karfans. Ekki kom til
átaka og sneri dr. Jak-
ob viðeftirsmáorða-
hnippingarvið
verkfallsveröi. Mynd:
ÞÓM.
KÍ og ríkið
Viðræður í góðum gangi
KI vill rœðafrekar sérmál kennara og röðun í launaflokka en gerirfyrirvara um
launaliði. Loftur Magnússon: Ekki útilokað að samið verði á undan HÍK