Þjóðviljinn - 19.04.1989, Page 1

Þjóðviljinn - 19.04.1989, Page 1
Miðvikudagur 19. apríl 1989 73. tölublað 54. órgangur Fjármálaráðuneyti/lífeyrissjóðir Vaxtamúrínn bratinn Tímamótasamningar um skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna. Raunvextirstrax í6%og lœkka Í5% íjúlí. Stórhlutikaupanna gengistryggður. Húsnœðisstofnuntryggtlánsfé. Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra: Fylgt eftir með vaxtalœkkun á spariskírteinum og íbankakerfinu. Benedikt Davíðsson stjórnarform. SAL: Tilbúnirað styðja við vaxtalœkkunarstefnu stjórnvalda essi samningur markar tíma- mót varðandi þróun raun- vaxta og ekki síður varðandi að- lögun íslensks vaxtastigs að er- lendum peningamarkaði. Með Álverið Ólga vegna fækkunar starfsmanna Hœgagangur íÁlverinu. Rœtt um yfirvinnubann. Forstjórinn vill verulega fœkkun verkamanna. Engar nýráðningar. SigurðurT. Sigurðsson: Liggur við að menn séu farnir að sakna Ragnars Mikillar óánægju gætir meðal verkamanna í Alverinu í Straumsvík með þá ákvörðun forstjóra verksmiðjunnar að fækka starfsmönnum með því að ráða ekki í þær stöður sem losna. Einnig eru starfsmenn ósáttir við launakjör en Alverssamningarnir gilda tU 1. september n.k. - Það er óhætt að segja að tölu- verð ólga sé meðal starfsmanna í Straumsvík út af ýmsum málum. Mér sýnist á öllu að það geti gengið það langt með nýja for- stjórann að menn fari að sakna Ragnars, sagði Sigurður T. Sig- urðsson formaður Verkamanna- félagsins Hlífar í samtali við Pjóðviljann í gær. - Þótt búningarnir breytist þá virðist stefnan vera sú sama. Það liggur fyrir krafa frá þeim um að fækka starfsfólki, og það svo rösklega að það nær engri átt að okkar viti, sagði Sigurður. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans hafa verið uppi hugmynd- ir í Álverinu um að sett verði á yfirvinnubann, en engin ákvörð- un hefur verið tekin í þeim efn- um. Hins vegar munu vinnuaf- köst vera með minnsta móti vegna óánægju starfsmanna. Oskum um endurskoðun og breytingar á starfskjörum hefur í engu verið svarað en samningar eru í gildi fram í ágústlok. Sam- kvæmt þeim hækka laun um 2,7% 1. maí n.k. og aftur um 1% þann 1. ágúst. Þessar hækkanir telja starfsmenn alls óviðunandi, með tilliti til nýgerðra kjara- samninga BSRB og ríkisins og þeirrar kaupmáttarrýrnunar sem orðið hefur frá því samningarnir voru gerðir í fyrravor. Christian Roth forstjóri ÍSAL vildi ekkert láta hafa eftir sér um stöðu mála í álverinu að svo stöddu. Hann sagði þó að við- ræður ættu sér stað á milli aðila. -Ig./-phh. þessum samningum hefur verið rutt úr vegi helstu hindrunum fyrir þeirri raunvaxtalækkun sem stjórnvöld hafa stefnt að, segir Olafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra um nýjan samning fjármálaráðuneytis og samtaka lífeyrissjóðanna um kjör á skuldabréfakaupum sjóðanna af Húsnæðisstofnun ríkisins. Samn- ingurinn sem gildir til næstu ára- móta gerir ráð fyrir því að vextir á skuldabréfum með innlendri verðtryggingu fari þegar niður í 6% og síðan niður í 5% frá og með júlíbyrjun n.k. Ráðgert er að lífeyrissjóðirnir kaupi skuldabréf af Húsnæðis- stofnun fyrir um 7 miljarða á næstu 9 mánuðum og á það að tryggja stofnuninni nægjanlegt Kjararáð Kennarasambands Islands og samninganefnd ríkisins funduðu í gær og lagði kjararáð KÍ þar til að áfram yrðu rædd ýmis mál er snúa „að kenn- urum sérstaklega og bættu skóla- starfi,“ eins og segir í fréttatil- kynningu. KÍ gerir hins vegar fyrirvara um þá launaliði sem samninganefnd ríkisins hefur gert tillögu um og eru sambæri- legir þeim sem um var samið í BSRB-samningnum. Loftur Magnússon, varafor- maður KÍ var fáorður eftir fund- lánsfé út árið. Það sem af er árinu hafa sjóðirnir keypt skuldabréf af Húsnæðisstofnun fyrir um IVi miljarð. Nýmæli er í þessum samning- um að hluti skuldabréfakaupa líf- eyrissjóðanna, allt frá 15-40% af heildarkaupum hvers Iífeyris- sjóðs, mun miðast við gengis- tryggingu og erlenda nafnvexti, sem í dag fela í sér um 5% raun- vexti. Þá gerir samningurinn ráð fyrir að skuldabréfin verði verð- tryggð með núgildandi lánskjara- vísitölu, en ágreiningur aðila uin gildi þeirrar vísitölu verður leystur fyrir dómstólum. Reynist almennt raunvaxtastig í landinu verða hærra á samnings- tímanum en samningurinn við líf- eyrissjóðina gerir ráð fyrir, verð- inn, en sagðist aðspurður ekki útiloka neina möguleika í stöð- unni, ekki einu sinni þann að KÍ næði samningum á undan HÍK sem nú stendur í verkfalli. Á fundinum í gær lagði kjara- ráð KÍ fram hugmyndir um að samninganefndir ræddu sérstak- lega röðun í launaflokka og launaþrep, orlof, heimavinnu, endurmenntun og framhalds- menntun, kennsluskyldu byrj- enda og yfirvinnumál. Þá færi fram endurskoðun á mati fyrir háskólaár og rædd yrðu sérmál ur vaxtastig þess hluta skulda- bréfanna sem bundin eru inn- lendri verðtryggingu, leiðrétt í janúar á nk. ári. Nái hins vegar þau markmið sem ríkisstjórnin hefur sett sér í vaxta- og peninga- málum fram að ganga í kjölfar þessa samnings við lífeyrissjóð- ina, mun ekki þurfa að koma til leiðréttingar á vöxtum. Fjármálaráðherra sagði í gær að í beinu framhaldi af þessum tímamótasamningi myndu vextir af spariskírteinum ríkissjóðs verða lækkaðir á samsvarandi hátt. Seðlabankinn myndi taka mið af því raunvaxtastigi sem væri ríkjandi og hér væri búið að móta grundvöll fyrir almennri raunvaxtalækkun eins og stjórnvöld hefðu stefnt að. ýmissa hópa innan KÍ. Samn- inganefnd tók við hugmyndum KI til skoðunar og ákveðið var að næsti fundur viðræðuaðila verði haldinn á morgun. Því virðist sem nokkuð miði í þessum viðræðum á meðan lítið haggast hjá Hinu íslenska kenna- rafélagi og öðrum félögum BHMR. Hætt er hins vegar við að nái KÍ samningum áður en HÍK eða önnur BHMR-félög hafa samið komi það til að valda úlfúð meðal kennarafélaganna tveggja. KÍ hefur heitið HÍK Benedikt Davíðsson stjórnar- formaður Sambands almennra lífeyrissjóða, sagði að lífeyris- sjóðirnir hefðu alla tíð verið til- búnir að fylgja eftir vaxtalækkun- arstefnu stjórnvalda að upp- fylltum ákveðnum tryggingum. Ef þessi raunvaxtalækkun næði fram á almennum peningamark- aði myndi það einnig hafa áhrif á útlánsvexti lífeyrissjóðanna. Pétur Blöndal framkvæmda- stjóri Landssambands lífeyris- sjóða segir þetta samkomulag ekki hafa í för með sér áhættu fyrir lífeyrissjóðina. Hér væru farnar ýmsar nýstárlegar leiðir sem væru til bóta en hann hefði ekki trú á því að þær skiluðu al- mennri rauvaxtalækkun. stuðningi á meðan á verkfalli þess síðastnefnda stendur og hefur sýnt þann stuðning í verki með fjárframlögum. Semji KÍ hins vegar á undan HÍK er hætt við að gamlar ýfingar taki sig upp og draumur margra um sameiningu þessara systrafélaga verði fyrir bí. Þessi staða gæti því orðið til þess að dráttur verði á því að KÍ skrifi undir samninga, en eins og varaformaður KÍ orðaði það er öllum möguleikum haldið opn- um. phh -«g- Verkfallsbrot hind- rað. Verkfallsverðir í BHMRkomuígærí vegfyriraðdr. Jakob Magnússon aðstoðar- forstjóri Hafrann- sóknastofnunar kæm- ist um borð í frystitog- arann Harald Krist- jánsson HF. í Hafnar- fjarðarhöfn. Dr. Jakob hafði ætlað sér að fara með togaranum í karfaleiðangurdjúpt út af Suðurlandi enda sérf ræðingur stofnun- arinnaríöllu sem lýtur að lifnaðarháttum karfans. Ekki kom til átaka og sneri dr. Jak- ob viðeftirsmáorða- hnippingarvið verkfallsveröi. Mynd: ÞÓM. KÍ og ríkið Viðræður í góðum gangi KI vill rœðafrekar sérmál kennara og röðun í launaflokka en gerirfyrirvara um launaliði. Loftur Magnússon: Ekki útilokað að samið verði á undan HÍK

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.