Þjóðviljinn - 04.05.1989, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 04.05.1989, Qupperneq 9
MENNING >. 't *' / '# »' ' . v - Þögult tunglið þráir fyllingu sína Þóra Jónsdóttir: Á hvítri verönd Bókaútgáfan Brún 1988 Fyrir jólin kom út fimmta ljóðabók Þóru Jónsdóttur, Á hvítri verönd. Fyrsta bók Þóru, Leit að tjaldstœði, kom út 1973. í öllum bókum sínum gefur hún lesendum hluta af reynslu sinni af að vera sú sem hún er: íslending- ur á síðari hluta 20. aldar, borgar- búi, kona sem þroskast og eldist en á lifandi minningar um að vera ung kona og lítil stelpa. Kannski verður stelpan henni nákomnari með árunum, til þess benda sum ljóðin í fyrsta hlutan- um sem heitir meira að segja „Mömmuleikir“. Þetta er lengsti, áhrifamesti og flóknasti hluti bókarinnar og hefst á ljóði um ljóðið. Það fylgir henni hvert sem hún fer, hún sér jafnvei andliti þess bregða fyrir í bakspegli, en samt óttast hún ekkert meira en að það yfirgefi hana. Hún er hrædd um að skáldgáfan reynist endaslepp og það vekur henni kvíða. Ljóðin í þessum hluta lýsa hlut- skipti stúlkna og kvenna. Sum eru heiðskír eins og Tvö höfuð á sama kodda (10), önnur flókin, jafnvel með óhugnanlegum blæ eins og Hlutverk (9). Lífið í ljóð- unum er oft innantómt, dapur- legt, stundum eirðarlaust, stund- um tregablandið og kyrrt. Draumar eru jafngildur þáttur af veruleikanum og vakan. Ljóðið sem bókin dregur nafn sitt af er gott dæmi (12): Á HVÍTRI VERÖND /svefni kleif hún stigu nœturinnar draumar flæktust í hári hennar urðu í vöku endurminning ekki greind frá deginum Hún leitar húss með hvítri verönd Pví gluggar hennar snúa út að engu SIUA AÐALSTEINSDÓTTIR í þessum aðstæðum verður vonin um að næsta kynslóð hljóti betra hlutskipti nokkur huggun um hríð (Sleginn vefur, 13), en varanlegri huggun er ljóðlistin þó að ekki kunni allir að meta hana, myndirnar sem „Þú hreifst... af veggjum sala þinna“ en voru einnig fuglar sem flugu burt „og hafa gert sér hreiður á annar- legum stöðum" (25). Miðhluti bókarinnar heitir „Fánadagar" og í samræmi við það eru þar ljóð um landið og tilfinningarnar til þess. Þarna eru margar fallegar myndir, en ljóðin eru helst til ópersónuleg og sjálf- virk. Herslumuninn vantar til dæmis á að Myndir árstíðanna (34) verði persónuleg upplifun, einkum af því að svanurinn í lok- in verður klisja miðað við hina persónugervingana. í síðasta hlutanum, „Morgunn- inn gengur hjá“, er ort um hverf- ulleika - morgun, nótt - líf, dauða - æsku, elli - fortíð, minn- ingar, framtíð. Eðlilegur tregi litar ljóðin sem þó vantar stund- um virka óhamingjuna í bestu ljóðum fyrsta hlutans. Best tekst hér til í ljóðinu Næturferð (54); í morgun þakti jörðina jafnfallinn snjór ég kom úr næturferð aftur í tímann og dvaldi um hríð í einskismannslandi uns dagurinn bauð mér að stíga ný spor í fönnina Og gæti hugsast að einhverjum detti í hug erótískt ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur um sporaslóð- ina í snjónum „frá mínum dyrum að húsi þínu“. En næturferð Þóru er ekki í hlýjan faðm, allt ljóðið túlkar einsemd og kuldinn um- lykur það. Ljóðin í Á hvítri verönd eru ekki alltaf auðskilin. Stundum kemur það til af því að skáldið vill ekki stafa boðskap sinn fyrir les- Þóra Jónsdóttir. anda, stundum tekst henni ekki að láta orðin segja það sem hún ætlar þeim að segja. En bestu ijóðin í bókinni bera skýr boð um hlutskipti manna, eða eins og Þóra sýnir með náttúrumyndum í Vaxandi tungli (24): Þögult tunglið þráir fyllingu sína hverfur á bak við ský stjarna hrapar SA Astraldjass Búá bíbopp Ellefu Júpíters-menn á stórdansleik í Casa- blanca Astraldjasssveitin Júpíters leikur alla tónlist nema bíbopp á stórdansleik sem boðaður hefur verið í Casablanca á Skúlagötru annað kvöld. Ellefu manns skipa sveitina, sem kennir sig við heimsálfurnar sjö og úthöfin fimm, og segir í frétt frá sveitinni að í framlóinu standi blásararnir Hjalti Arm- sterki, Goggi, Stráksi, Nonni nunna og Biddí bíbopp-hatari en rytmadeild er skipuð ívari grimma, Abdul, Ómari animal, Herði blómi og Kidda kræsler. Einkunnarorð Júpíter-sveitar- innar að þessu sinni eru „bú á bíbopp", en hljómleikarnir ann- að kvöld hefjast um 22.30. Kabarett Nýfútúrískt dada Inferno 5 á 22 með skáldskap og danshvata Nýfútúrískur dadaandi kabar- etthefðarinnar er eitt af því sem fjöllistamenn í hópnum „Inferno 5“ ætla að særa fram í Veitinga- húsinu Laugavegi 22 í kvöld og annað kvöld. Kabarett Inferno-hópsins á „22“ er fram færður í tilefni vænt- anlegrar forfrömunar listahóps- ins í Kaupinhafn þarsem hann sýnir á næstunni sjónleikina „Rykdjöfla“ og „Klumbudans- inn“ á hátíðinni „Fremtidens rum“. í kabarettinum eru gerningar og tónlist, og að auki koma fram skáldin Bragi Ólafsson, Einar Melax og Þorri, en að lokum verður leikið fyrir dansi. Dagskrá hefst um klukkan tíu bæði kvöld- Tannhauser án Tannhauser Rut Magnússon skrifar Norbert Orth - röddin þornaði Á fimmtudaginn var stóð Sin- fóníuhljómsveit íslands fyrir konsertuppfærslu á óperunni Tannháuser eftir Richard Wagn- er. Mikil alúð var lögð í þessa uppfærslu. 90 manna hljómsveit undir stjórn Petri Sakari aðal- hljómsveitarstjóra fengu til liðs við sig 9 einsöngvara, innlenda og erlenda, 70 manna kór íslensku óperunnar og erlendan kór- stjóra. Æft var í hálfan mánuð. Uppselt var á fyrstu tónleikana og allir biðu með eftirvæntingu fyrsta flutnings hér á landi á Tannháuser, enda búið að bíða lengi eftir því, þar sem óperan var frumflutt í Dresden árið 1845. Óperan er í þremur löngum þátt- um, og í öðrum þætti var auðheyrt að tenórinn Norbert Orth, sem söng titilhlutverkið átti skyndilega við raddlegt vandamál að stríða. Fram- kvæmdastjóri hljómsveitarinnar, Sigurður Björnsson, tilkynnti í lok síðara hlés, að allir útlendu söngvararnir hefðu kvartað yfir þurru lofti í Háskólabíói sem varð til þess að sækja þurfti lækni fyrir tenórinn og óvíst væri um framhald á flutningi óperunnar. Eftir nokkra bið var 3. þáttur fluttur án Tannháusers. í tilkynn- ingu Sigurðar kom fram að þurrkurinn í húsinu væri ástand sem hljóðfæraleikarar hljóm- sveitarinnar búa við daglega og hefðu einnig kvartað undan árum saman. Svona „óhapp“ á tónleik- um hér á landi er langt frá því að vera einsdæmi. Undanfarin ár hef ég varið tals- verðum tíma í að skipuleggja tón- leika og hef á þeim tíma orðið reynslunni ríkari hvað varðar al- menna aðstöðu til tónleikahalds hér. Söngvarar sem koma kvarta alltaf undan þurrki í tónleikasöl- um. Strengjaleikarar sem koma kvarta undan því að hljóðfæri springi og tónninn í þeim breytist af sömu ástæðum. Við erum sem sagt hvað eftir annað að koma í veg fyrir að tónlistarmenn geti gert það sem þeir eru ráðnir til að gera, vegna þess að ekki finnast lágmarksaðstæður í tónleikasal. En hingað til hefur enginn þeirra farið fram á skaðabætur vegna þessa. Þótt hér séu nefndir út- lendingar skulum við ekki gleyma, að íslenskir tónlistar- menn búa við sama ófremdará- stand árum saman, leggja sig fram um að þroska og þróa sína list en hafa fyrir löngu gefist upp á því að kvarta. Við kaupum hvað eftir annað dýra flygla og eftir nokkurra vikna dvöl hér þorna þeir upp og tónninn breytist. Og það er ekki aðeins rakastig sem veldur erfiðleikum. Fyrir stuttu hélt píanósnillingurinn Ruth Slenczynska tónleika í ís- lensku óperunni á nýjan flygil sem óperan og Tónlistarfélagið hafði keypt og hljómaði mjög vel að sögn viðstaddra. Sl. mánu- dagskvöld hélt Selma Guð- mundsdóttir tónleika á sama stað á sama flygil. Orðrétt stendur í DV skrifað af tónlistargagnrýn- anda blaðsins, Sigurði Guðjóns- syni: „Leikur hennar var daufur, kraftlaus, einbeitingarlaus og verulega karakteilaus. Hún var best í Páli (ísólfssyni). Af því að Páll er svo daufur, kraftlaus, ein- beitingarlaus og verulega karakt- erlaus í sinni músík.“ Að sögn viðstaddra, þar á meðal fremstu píanóleikara okkar, var það tau í metravís sem breitt var yfir leikmyndina á sviðinu og gjör- breytti hljómburði til hins verra. En gagnrýnanda DV hugkvæmd- ist ekki að sú gæti verið ástæðan, en skellir skuldinni á tónskáldið og píanóleikarann. Þetta er enn eitt dæmi, en af nógu er að taka. Nú eru 6 ár síðan fjölmenn Samtök um byggingu tónlistar- húss voru stofnuð og enn hljómar rödd þeirra eins og rödd hróp- andans í eyðimörkinni. Samtökin hafa lýst sig reiðubúin að koma til móts við yfirvöld um byggingu tónlistarhúss í Reykjavík og afla helmings þess fjár sem þarf, og hafa nú þegar sýnt að þeim er alvara. Tugir tónlistarmanna hafa gefið vinnu sína til styrktar þessu nauðsynjamáli og lýst sig reiðubúna til þess í framtíðinni þar til húsið rís. Nauðsyn á tón- listarhúsi er ekki umdeild en sagt að kostnaðarsamt viðhald á opin- berum byggingum og frágangur Þjóðarbókhlöðu þurfi að ganga fyrir. Gott og vel, en það er ábyrgðarlaus húseigandi sem ekki gerir ráð fyrir eðlilegu við- haldi bygginga sinna, og bók- hlaðan væri löngu búin ef farið hefði verið að lögum. Að bjóða tónlistarmönnum upp á núverandi aðstæður til tónlistarflutnings má líkja við að setja Chagall-sýninguna á síðustu Listahátíð inn í húsnæði sem fyrirfram væri vitað að myndi valda skemmdum á málverícun- um, enda voru þau málverk tryggð fyrir 300 milljónir. Er menntun og þekking tónlistarmanna, hljóðfærin og mannsröddin minna virði? Og hvað um tónlist- ina sjálfa? Hvenær öðlast ráða- menn skilning á gildi tónlistar- menningar okkar og þörfum hennar? Eins og er minnir skiln- ingsleysið á orð borgarstjórans í Liverpool þegar hinn frægi Amadeus-strengjakvartett var ráðinn til að spila á hans vegum og hann þakkaði þeim með að óska þeim velfarnaðar í framtíð- inni „svo þeim tækist að stækka litlu hljómsveitina sína“! 28. aprfl 1989 Rut Magnússon

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.