Þjóðviljinn - 04.05.1989, Blaðsíða 13
Varnarleikur
Framhald af bls. 7
ingu fyrirtækjanna bakdyra-
megin. Fyrir nokkrum árum var
borgaraleg ríkisstjórn í Svíþjóð.
Hún þjóðnýtti meira á fjórum
árum en Jafnaðarmenn höfðu
gert á fjörutíu árum. Frjáls-
hyggjuliðið í Sjálfstæðisflokkn-
, um ber alla ábyrgð á fjörbrotum
þessara fyrirtækja. Því miður
munu þeir ekki reynast borgun-
armenn fyrir þeim reikningum, ef
þeim væri framvísað og þó.
Hagnaður banka og sparisjóða á
s.i. ári var svipaður og halli sjáv-
arútvegsins er metinn nú. En þeir
ættu að sjá sóma sinn í að hafa
hægt um sig, meðan aðrir sinna
björgunarstörfum á slysstað: Það
var nefnilega ekki bara að þeir
sinntu ekki slysavörnum; þeir
bjuggu til slysagildrur. Þeir ættu
því ekki að nefna snöru í hengds
manns húsi - en það er fjárm-
agnskostnaðurinn í Valhöll íhald-
sins.
5. Verðbólgan: Allir vita að
gengisfelling virkar sem olía á eld
verðbólgunnar svo að enn reynist
særingaþula íhaldsins óráð hið
mesta. Verðbólga verður ekki
kveðin niður nema með sam-
ræmdum aðgerðum á mörgum
sviðum: T.d. með því að koma á
jafnvægi á peningamarkaði og
opna hann fyrir erlendri sam-
keppni; með því að reka ríkissjóð
án halla; með því að vinna kerfis-
bundið að lækkun tilkostnaðar í
opinberum rekstri; með lækkun
nícisútgjalda.
* Sjálfstæðisflokkurinn lætur
mikinn um nauðsyn þess - í orði; í
ríkisstjórn reyndist hann hins
vegar þungur á fóðrum í þágu sér-
hagsmuna og fyrirgreiðslupots.
Athafnasöm
umbótastjórn
Alþýðuflokkurinn lætur frýj-
unarorð þeirra Sjálfstæðismanna
um stefnubrigði sem vind um
eyrun þjóta. Við munum ekki
hlaupast frá borði þótt eitthvað
bjáti á um sinn. Það hvarflar ekki
að okkur að leggjast í hugsýki
með barlómskórnum.
Þessi ríkisstjórn mun sitja út
kjörtímabilið og stýra skipi sínu
heilu í höfn.
Við munum ótrauðir vinna
áfram að því að leysa fjárhags-
kreppu útflutningsfyrirtækjanna
án þess að fórna markmiðum um
stöðugleika í efnahagsumhverf-
inu með ótímabærum gengis-
kollsteypum. Þetta gerum við
með skuldbreytingu, fjárhags-
legri endurskipulagningu og sam-
runa fyrirtækja, endurskipulagn-
ingu fjármagnskerfisins og opnun
þess, lækkun vaxta og fjármagns-
kostnaðar.
Ríkisstjórnin vinnur að því í
kyrrþey að skapa forsendur fyrir
hóflegum kjarasamningum sem
ætlað er að draga úr kaupmáttar-
fallinu án þess að stofna atvinnu-
örygginu í hættu. Aðgerðir til að
treysta atvinnuöryggi: Sumarat-
vinna unglinga, skógrækt, land-
græðsla, auknar félagslegar íbúð-
abyggingar.
Verkin sína merkin. Mála-
fjöldinn á borðum þingmanna
Rannsóknaskip
Sovéskt
til sýnis
Áhöfnin á Akademik Krylof,
hafrannsóknaskipi sovéska flot-
ans, sem nú liggur hér við bryg-
gju, býður öllum sem áhuga hafa
að skoða skipið laugardaginn
ó.maí frá klukkan 15.00
Mönnum gefst kostur á að
skoða skipið og rannsóknarstofur
þess og spyrja leiðangursmenn
um rannsóknir þær sem það
stundar. Skipsleikhúsið sýnir
leikritið Búff.
Skipstjóri á Akademik Krilof
er Vladímír ívanof en leiðangurs-
stjóri Viktor Oblivanov.
VIÐHORF
sannar að hér er að verki umbóta-
stjórn sem hugsar fram í tímann,
þótt stjórnarandstaðan vilji æðr-
ast í fortíðinni.
Hugsýki í hálfleik
Þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi
reynst draughræddur í ríkisstjórn
og særingarþulur hans reynst
máttlausar í stjórnarandstöðu,
verður að vona að honum takist
ekki að draga þjóðina með sér
ofan í þunglyndiskast að ástæðu-
lausu.
Það kemur fyrir góð keppnis-
lið, eins og núv. ríkisstjórn er, að
falla í hugsýki í hálfleik. Réttu
viðbrögðin eru hins vegar að
endurskipuleggja sóknarleikinn,
hvetja liðið til dáða, svo að það
einbeiti sér að því að vinna seinni
hálfleik.
Ríkisstjórnin mun sitja út
kjörtímabilið, enda ríkir þar góð-
ur vinnuandi. Þetta er umbóta-
stjórn sem á mörgum verkum ó-
lokið.
Árangur
Með myndun núv. ríkisstjórn-
ar á elleftu stundu á s.l. hausti
tókst að koma í veg fyrir stöðvun
fjölda fyrirtækja í útflutnings-
greinum og þar með bægja frá
hættunni á fjöldaatvinnuleysi
sem frjálshyggjupostularnir
spáðu að yrði á bilinu 10-15 þús.
manns á þessum vordögum. Það
hefur tekist í stórum dráttum að
tryggjafulla atvinnu. Ráðstafanir
hafa verið gerðar til þess að
greiða fyrir sumaratvinnu skóla-
fólks með fjárframlögum til skó-
græktar og landgræðslu. í athug-
un er að verja þegar á þessu ári
auknu fjármagni til nýfram-
kvæmda við íbúðabyggingar
innan félagslega kerfisins. Með
því að hafna gengislækkunark-
ollsteypum hefur ríkisstjórnin
skapað forsendur fyrir friðsam-
legum lausnum á vinnumarkaðn-
um og vinnur nú í kyrrþey, í sam-
starfi við aðila vinnumarkaðarins
að því að ljúka kjarasamningum
án kollsteypu. Nær fullvíst má
telja að framundan séu talsverðar
verðhækkanir á erlendum fisk-
mörkuðum sem muni duga til að
vega upp brottfall sérstakra verð-
bóta á frystar fiskafurðir.
Þannig hefur ríkisstjórninni,
þrátt fyrir örðugar kringumstæð-
ur tekist að heyja varnarbaráttu
með viðunandi árangri.
Þetta eru nokkur dæmi um
verk athafnasamrar umbóta-
stjórnar. Framundan bíða mörg
stór verkefni, sem hrinda þarf í
framkvæmd fyrir lok kjörtíma-
bilsins. Ég nefni nokkur dæmi:
* Ríkisfjármál: Á næsta þingi
þarf að tryggja framgang nýrri
löggjöf um skattlagningu eigna-
og fjármagnstekna og fylla þar
með upp í gat í íslenskri skattal-
öggjöf, en taka upp skattareglur
á þessu sviði til samræmis við það
sem tíðkast í grannlöndum okk-
ar. Jafnframt gefst þá tilefni til að
draga úr eignasköttum.
A minni tíð í fjármálaráðu-
neytinu var vinna hafin við
endurskipulagningu innheimtu-
kerfis skatta í því skyni að tryggja
mun betri skattframkvæmd, í
samræmi við tillögur „skattsvik-
anefndarinnar“. Þær hugmyndir
snerust um skipulagsbreytingar á
innheimtukerfinu, auknar heim-
ildir til hertra innheimtuaðgerða
gagnvart söluskattasþjófnaði,
strangari kröfur um leyfi til
verslunar- og viðskipta (og þ. m. t.
heimildir til þess að vera vörslu-
aðilar söluskattsfjár) og heimildir
til sviptingar slíkra leyfa við
endurtekin brot.
Að loknu þinghléi ber nauðsyn
til að fjármálaráðuneytið einbeiti
sér að tillögugerð um hagræðingu
í opinberum rekstri og lækkun
ríkisútgjalda. Fyrir liggja í fjár-
málaráðuneytinu frá minni tíð
fullbúin frumvörp um sjálfstæði
ríkisstofnana. Þessi ríkisstjórn
þarf að horfast í augu við að það
kerfi allsherjar ríkistryggingar á
framleiðslu og sölu landbúnað-
arafurða, sem hinn vanhugsaði
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA
og meingallaði búvörusamningur
felur í sér, er sprungið. Þetta út-
heimtir mikla vinnu og um leið
vilja til samkomulags um
ásættanlegar málamiðlanir.
* Húsnæðismál: Með nýrri lag-
asetningum kaupleiguíbúðir og
húsbréfakerfi hillir loks undir
frambúðarlausnir í húsnæðismál-
um. Að íslendingar geti búið við
sæmilega skilvirkt og manneskju-
legt kerfi varðandi fjármögnun
íbúðarhúsnæðis.
* Lífeyrisréttindi: Á næsta
þingi ber að leggja fram frum-
varp, sem fullbúið var í fjármála-
ráðuneytinu um endurskoðun á
löggjöf um lífeyrissjóði og líf-
eyrisréttindi. Við jafnaðarmenn
munum leita samkomulags við
samstarfsaðila okkar um þær
hugmyndir sem við settum á
oddinn í seinustu kosningabar-
áttu um einn lífeyrissjóð fyrir alla
landsmenn og samræmingu líf-
eyrisréttinda.
* Kerfisbreyting í atvinnulífi: í
ljósi þeirra kerfislægu erfiðleika
sem sjávarútvegurinn hefur
gengið í gegn um á undanförnum
árum þurfa stjórnarflokkarnir nú
að leggja fram mikla vinnu við
endurskoðun stefnunnar í sjávar-
útvegsmálum í heild. í því felst að
taka grundvallarþætti kvótakerf-
isins til endurskoðunar, að útfæra
nánar hugmyndir sjávarútvegs-
ráðherra um aflamiðlun og fisk-
vinnslustefnu og tengja þetta
hvorttveggja skipulögðu átaki í
markaðsmálum okkar.
* Sjálfstæð utanríkisstefna:
Þessi ríkisstjórn hefur þegar sýnt
í verki að hún hefur burði til að
reka sjálfstæða utanríkisstefnu
og leggja sjálfstætt mat á íslenska
hagsmuni í samskiptum við aðrar
þjóðir. f tillögum um endurskip-
ulagningu utanríkisþjónustunnar
er lögð megin áhersla á aukið
starf að umhverfisverndarmálum
og alþjóðlegum samskiptum á því
sviði; leggja ber höfuðáherslu á
verndun lífríkis hafsins og ís-
lenskt frumkvæði, í samstarfi við
bandalagsþjóðir okkar, að til-
lögum um afvopnun á og í höfun-
um.
* Fjölskyldustefna: Eitt af
mikilvægari verkefnum þessarar
ríkisstjórnar er að móta og fram-
kvæma samræmda fjölskyldu-
stefnu. Það er veigamikill þáttur í
þeirri viðleitni að festa velferð-
arríkið í sessi og gera það mann-
eskjulegra. Fjölskyldustefna
hlýtur að taka á þáttum eins og
vinnutíma, hlut kvenna á vinn-
umarkaði, dagvistun barna, átaki
við byggingu félagslegra íbúða,
samræmingu á lífeyrisréttindum
aldraðra o.fl.
Að snúa vörn
í sókn
Það á að vera metnaður þessar-
ar ríkisstjórnar að sýna í verki, að
hún ráði ekki aðeins fram úr
stundarerfiðleikum í efna-
hagsmálum heldur skilji hún eftir
sig umbótamál, sem treysta und-
Samvinnuskólanum á Bifröst
var að veqju slitið 1. maí sl.
Að þessu sinni útskrifuðust 29
nemendur með Samvinnuskólap-
róf sem jafnframt er stúdentsp-
róf.
Hæstu einkunn á Samvinnu-
skólaprófi að þessu sinni hlaut
Hildur Sólveig Pétursdóttir - 9,7
- og kom fram í ræðu Jóns Sig-
urðssonar, skólastjóra, við
skólaslitin, að það væri hæsta
meðaleinkunn sem nokkru sinni
hefur náðst við Samvinnuskólann
frá stofnun hans 1918.
irstöður velferðarríkisins og festa
það í sessi.
Það er í erfiðleikunum sem
reynir á menn og flokka. Við
jafnaðarmenn erum staðráðnir í
því að hlaupast ekki frá verkum
okkar í miðjum klíðum. Það er
hlutskipti þessarar ríkisstjórnar
að skipuleggja varnarbaráttu við
erfiðar aðstæður. Hingað til hef-
ur henni tekist það stóráfallalítið.
Við höfum komið í veg fyrir
stöðvun útflutningsatvinnuveg-
anna og afstýrt fjöldaatvinnu-
leysi. Við eygjum nú bjartari
tíma framundan. Hingað til hefur
ríkisstjórnin orðið að einbeita sér
að lausn skammtímavandamála,
sem hrannast hafa upp á löngum
tíma. Á næstunni mun gefast
betra ráðrúm til að undirbúa
framkvæmd hinna þýðingar-
miklu umbótamála, sem hún nú
hefur á dagskrá. Þannig mun
þessi ríkisstjórn snúa vörn í sókn
og sigla skipi sínu heilu í höfn,
eftir viðburðaríka og sögulega
sjóferð.
Við skólaslitin voru nokkur
ávörp flutt og skólanum bárust
gjafir og kveðjur. f lokaræðu
skólastjóra kom fram að hér eftir
starfar Samvinnuskólinn ein-
vörðungu sem sérskóli á há-
skólastigi, en nemendum mun
nokkuð fjölga á næsta vetri. frá
því sem var nú í vetur.
Framhaldsdeild Samvinnu-
skólans í Reykjavík verður slitið
12. maí nk. og er það einnig í
síðasta skipti sem stúdentar
munu útskrifast þaðan.
13
‘SS?
~ ~—-—__
Nú stendur yfir dreifing á sumarstarfs-
bæklingi íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur.
Að vanda er í bæklingnum að finna
upplýsingar um nánast alla þá starfsemi
sem félög, samtök og stofnanir í Reykjavík
gangast fyrir nú í sumar.
sirniar?
Bæklingnum er
dreift til allra nemenda grunnskólanna í
borginni og eru foreldrar hvattir til að kynna
sér vel ásamt börnum sínum þá möguleika
sem þar er að finna.
Innritun í starf á
vegum fþrótta- og tómstundaráðs hefst á
sérstakri innritunarhátíð í Laugardalshöll
laugardaginn 20. maí kl. 13.00-17.00.
Samvinnuskólinn
Hæsta próf frá upphaf i
Síðustu stúdentarnir útskrifaðir frá
Samvinnuskólanum. Mun starfa eftirleiðis sem
sérskóli á háskólastigi