Þjóðviljinn - 04.05.1989, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 04.05.1989, Qupperneq 16
Hvað fannst þér um fund kennara og Olafs Ragn- ars Grímssonar í fyrra- dag? b a b b Ellert Magnússon lyfjafræðingur: Það sem ég sá í fréttum var þa sem við er að búast. það lítur íll út hjá kennurum og ég stend me þeim, þeir verða auðvitað a hafa mannsæmandi laun. Sigríöur Pálsdóttir kennari. Því miður ég sá hann ekki, þann ig aö ég er ekki dómbær á hann - iSl Stefán Karlsson stjórnmálafræöingur. Ég var svo stutt á honum að ég get ekki dæmt alveg um það. Ég vil heldur ekki tjá mig að svo stöddu. Ragnheiður Indriðadóttir sálfræðingur. Ég missti af honum því miður. Mér er sagt að Ólafur hafi verið svivirðilegur. Eyþór Helgason nemi í verkfalli í Iðnskólanum. Skítsæmilegur fundur. Það sem óg heyrði þegar var þegar verið var að svívirða Ólaf og hlæja að honum. Mér finnst að kennarar ættu að vera í verkfalli í allt sumar og það kauplaust. þiómnuiNN Rmmtudoouf 4. maf 1989 82. tölubta* 54 óroangur ÁKVÖLDIN •81348 Á LAUGARDÖGUM 681663 Alaugardaginn halda sagn- fræðingar ráðstefnu um gagnrýni og hefst hún kl. 14.00 f Odda. Meðal fyrirlesara eru tveir ungir sagnfræðingar, Þórunn Valdimarsdóttir og Margrét Guð- mundsdóttir. Við spurðum þær hvers vegna sagnfræðingar þyrftu að ræða um gagnrýni? „Gagnrýni er ekki bundin við listir, hún er menningarpólitík,“ segir Þórunn. „Og það er mjög skýr menningarpólitík ef sagn- fræði er ekki sinnt af gagnrýnendum eins og okkur finnst brenna við. Fjölmiðlar snobba fyrir bókmenntum og list- um en afgreiða sagnfræðina með því að hún sé leiðinleg." „Við getum því miður ekki lifað á að skrifa fyrir hvert annað, hópur sagnfræðinga er of lítill til þess,“ segir Margrét. „Sjóðirnir eru líka margir og við verðum að skrifa fyrir almennan markað. Þess vegna verðum við að vita hvernig hann er, og þá skiptir al- mennileg umfjöllun um verk okkar í fjölmiðlum meginmáli. En ef við skoðum menningar- þætti ljósvakamiðlanna verðum við fljótt vör við að þar er aldrei minnst á sagnfræði. Hún er ekki hluti af íslenskri menningu.“ „Það er undarleg þversögn í því,“ segir Þórunn, „að annars vegar leita til dæmis kvikmynd- agerðarmenn ekki til sagnfræð- inga þó að þeir séu að gera mynd- ir sem eiga að gerast í fjarlægri fortíð, og öllum virðist standa á sama um vitleysurnar sem þeir gera - hins vegar er ungur sagn- fræðingur afhausaður fyrir kann- ski meinlausa villu í riti og þorir aldrei að skrifa framar! Það þarf að athuga ýmislegt í almennum Þórunn Valdimarsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir, ungir og vaskir sagnfræðingar. Menningarpólitík Sagnfræði er líka menning Sagnfræðingar og gagnrýnendur heyja einvígi á ráðstefnu á laugardag. Þórunn Valdimarsdóttir: Öttinn við gagnrýni kyrkir gleðina við sköpunina hugmyndum manna um sagn- fræði." „Fjölmiðlar móta skoðanir fólks og hugmyndir, einkum sjónvarpið. Þeir móta skoðanir fólks á því hvernig bækur eiga að vera,“ segir Margrét. „Og þær eiga að vera skemmtilegar. Það var áberandi til dæmis í skrifum um bók Illuga og Hrafns Jök - ulssona um nasistana að þar færu ungir og hressir blaðamenn sem kynnu að velja sér efni. Þetta gef- ur hugmynd um andstæðuna, gamla, fúla, fræðilega og þurra sagnfræðinga sem kunna ekki að velja sér efni! En sagnfræðingar eru ung og vösk stétt. Sjáðu bara tímaritin Nýja sögu og Sagnir, full af skemmtilegum greinum sem fólk veit ekki um vegna þess að það er ekki talað um þau en myndi hafa mjög gaman af.“ „Gagnrýnendur meta ekki frjómagn fræðanna,“ segir Þór- unn. „Sagnfræðin er eins og bók- menntirnar í stöðugri þróun í stíl, hugmyndum og formi. En held- urðu að ritdómarar finni það? Fjalla þeir um listrænt gildi text- ans eða hvernig sagnfræðingur- inn endurmetur fortíðina? Nei, það eina sem þeir gera er að reyna að finna villur! Svo eiga þeir svo einkennilega erfitt með að hrósa því sem vel er gert.“ „Það er líka mjög erfitt,“ bætir Margrét við. „Við fengum í námi það verkefni einu sinni að fara yfir texta frá yngri nemendum. Fyrst áttum við að finna villur hjá þeim og það var enginn vandi. Svo áttum við að finna eitthvað gott við verkefnin og hrósa höf- undum fyrir það. Þá fórum við öll í hnút! En það er ergilegt að þeg- ar ritdómarar eru kannski með tímamótaverk í höndunum sem gefur nýja sýn á fortíð lands og þjóðar þá skuli allt lenda í sparðatíningi." Hvað œtlið þið að tala um sjálf- ar? „Ég ætla að tala um tilfinningar þess sem skrifar bók og fær j gagnrýni, bæði út frá eigini reynslu og annarra sem ég þekki,“ segir Þórunn sem hefur skrifað tvö sagnfræðirit, Sveitina við sundin og ævisögu Einars Ól- afssonar í Lækjarhvammi. „Það er bæði óvirðing og niðurlæging við höfund að fá fljótvirknislegan dóm þegar hann er búinn að liggja óralengi yfir verki sínu og finnst það kannski hafa sérstakt gildi fyrir þjóðarsálina." Margrét ætlar að tala um gagnrýni á sagnfræðirit í fjölmiðl- um og hefur kynnt sér ritdóma frá síðustu árum. „Það er upp og ofan hvort það eru sagnfræðingar sem ritdæma. Fólk í pólitík skrif- ar um stjórnmálasögu, prestar skrifa um presta - yfirleitt er talið best að starfsstéttir skrifi hver um aðra! Það er varla hægt að kalla þetta gagnrýni, nær að taia um umfjöllun eða auglýsingar.“ „En forlögin eru ánægð ef bókar er getið í fjölmiðlum, alveg sama hvernig. Og svo fer að lok- um að fræðin eru kyrkt í stað þess að gagnrýnin örvi fræðimenn til dáða. Fólk óttast svo að gera ein- hverjar smávillur að það kyrkir gleðina af sköpuninni.“ Hverjir tala fleiri á ráðstefn- unni? „Lisa Schmalensec talar al- mennt um gagnrýni, og svo verða einvígi sagnfræðinga og gagnrýnenda," segir Þórunn. „Við ætlum að draga tvo gagnrýnendur á pall og láta þá hitta höfunda. Eiríkur Guð- mundsson hefur skrifað hvassa gagnrýni um bók Gísla Ágústs Gunnlaugssonar, Sögu Ólafsvík- ur, og þeir ræða saman um hana, og Sigurður Pétursson ræðir við Þorleif Friðriksson um bækur hans, Gullnu fluguna og Undir- heima íslenskra stjórnmála. Helgi Skúli Kjartansson á að ganga á milli, draga saman niður- stöður og stjórna umræðum.“ SA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.