Þjóðviljinn - 10.05.1989, Qupperneq 9
MINNING
Axel Eyjólfsson
íslensk húsgagnasmíði, sem at-
vinnugreið heillar stéttar, á sér
ekki ianga sögu. Á fyrri hluta
þessarar aldar risu þó mörg hús-
gagnaverkstæði og stétt húsgagn-
asmiða varð til. Greinin jókst og
dafnaði alit fram að þeim tíma
þegar innflutt húsgögn og
innréttingar tóku í vaxandi mæli
að koma í stað íslensku húsgagn-
anna. Þá reyndi á þolrif margra
fyrirtækja í þessari iðn.
Axel Eyjólfsson húsgagna-
smíðameistari, sem lést 27. apríl
síðastliðinn, var einn fulltrúi
þeirra framsæknu og ötulu
manna sem tóku að smíða og
selja húsgögn á fjórða áratugn-
um, en þá lagði hann grunn að því
fyrirtæki sem borið hefur nafn
hans og staðið betur en mörg
önnur í umróti síðustu ára. Axel
hóf starf sitt á Akranesi en flutti
skömmu fyrir 1950 til Reykjavík-
ur. Par og í Kópavogi var fyrir-
tæki hans síðan. Með sókn og ný-
jungum svaraði hann breyttum
tímum og hörðum keppinautum.
Kynni mín og Axels Eyjólfs-
sonar hófust einn síðsumardag
1968. Þann dag gekk ég inn á
skrifstofu hans í Skipholti 7 og
spurði hvort hægt væri að komast
á samning í húsgagnasmíði. Axel
tók mér vel, ræddi við mig og
sagði mér frá ýmsu sem varðaði
húsgagnasmíði og nám í faginu.
Hann bað mig síðan að hafa sam-
band við sig næsta dag, þá skyldi
hann svara spumingu minni.
Svarið skýrt. „Þú ert velkominn
að hefja hér nám í húsgagna-
smíði“. Þannig var Axel, ákveð-
inn og skýr.
Á milli lærlings og meistara
tekst á margan hátt sérstakt sam-
band, eitthvað í ætt við samband
föður og sonar. Að nokkm leyti
er hlutur meistarans föðurlegt
uppeldi og í annan stað leiðsögn
og kennsla er duga skal starfsæv-
ina. Þá er gott að vera í höndum
trausts manns og njóta styrks
hans, kunnáttu og hæfni. Áxel
Eyjólfsson reyndist lærlingum
sínum vel. Hann lagði áherslu á
að þeir tækjust á við flest störf
sem á verkstæði hans vom unnin
og lærðu þau. Þannig var verk-
stæðið sá skóli sem því var ætlað
að vera. Ég minnist þess að hann
lagði ríkt á við útlærða starfs-
menn sína að þeir sinntu nýgræð-
ingum og leiðbeindu þeim.
Ekki veit ég hvað þeir em margir
sem luku námi í húsgagnasmíði
hjá Axel Eyjólfssyni, en um
langan tíma var það nær árviss
atburður á verkstæðinu að þar út-
skrifaðist húsgagnasmiður. Eins
og gengur hafa þeir síðan horfið
til ýmissa starfa en margir þeirra
vinna enn að iðn sinni og búa
þannig að þeim lærdómi sem þeir
öðluðust hjá Axel Eyjólfssyni.
Axel var róttækur í skoðunum
á þjóðfélagsmálum og studdi
stjórnmálasamtök sósíalista.
Hann hafði yndi af söng og góðri
tónlist og kunni að meta góðar
bækur. Ef til vill var það fyrir
áhrif hans að á meðan ég var
undir handarjaðri hans lagðist ég
í lestur rita þeirra stóru, Halldórs
og Þórbergs. Það bar líka við að
Axel gaukaði að mér ritum og
tímaritum um þjóðfélagsmál og
menningu sem hann taldi ungum
manni hollt að lesa. Leiðsögn
hans náði því ekki aðeins til hús-
gagnasmíðinnar. Þegar ég hóf af-
skipti af félags- og kjaramálum
iðnnema hvatti meistarinn mig. í
því fólst örvun sem var mikilvæg í
slíku starfi.
Ég gerði ráð fyrir að starfa í
þjónustu hans sem útlærður
sveinn. Svo hafði talast um milli
okkar. En atvikin höguðu því
þannig að mér bauðst að starfa að
fræðslumálum launafólks. Ég tal-
aði um þetta við hann og enn fékk
húsgagnasmíðameistari
F. 23. mars 191 lm*- D. 27. apríl 1989
ég örvandi hvatningarorð í veg-
anesti á leið til þessara nýju verk-
efna. Það var mikils virði.
Síðustu árin átti Axel við van-
heilsu að stríða og gat því ekki
helgað sig fyrirtqki sínu eins og
hann hafði gert um langan tíma.
Við tóku synir hans og héldu
starfinu áfram og reka nú glæsileg
fyrirtæki í húsgagnaiðnaði þar
sem meðal annars eru smíðuð
húsgögn sem hafa hlotið verð-
skuldaða athygli í fjarlægum
löndum. Starfið nlu hvílir á þeim
trausta grunni sem Axel Eyjólfs-
son lagði. Merku ævistarfi er lok-
ið en merkin um dugnað og elju
eru glögg.
Ég sem þessar línur rita á ekki
kost á að vera við útför míns
gamla læriföður vegna starfa í
öðru landi, en hugur minn nú er
við þau ár er ég átti í skjóli hans.
Fyrir þann tíma vil ég þakka.
Ættingjum sendi ég samúðar-
kveðjur.
Tryggvi Þór Aðalsteinsson
Okkur langar að minnast með
nokkrum línum félaga okkar og
lærimeistara Axels Eyjólfssonar
húsgagnasmíðameistara, en hann
lést þann 27. apríl síðastliðinn.
Axel var fæddur 23. mars árið
1911, að Bessastöðum á Álfta-
nesi, en ættaður var hann frá
Saurbæ á Kjalamesi. Foreldrar
hans voru Eyjólfur Eyjólfsson
bóndi þar og kona hans Sigríður
Loftsdóttir. Föður sinn missir
Axel þegar hann er 9 ára gamall
og elst upp eftir það að mestu hjá
séra Halldóri Jónssyni að Reyni-
völlum í Kjós. Dvelur hann þar
fram undir tvítugs aldur. Var
þetta eitt af mestu menningar-
heimilum sveitarinnar og talaði
Axel einkar hlýtt um séra Hall-
‘ dór og veru sína þar.
Hugur hans mun ekki hafa
beinst til búskapar en þó æxlaðist
það þannig að hann útskrifaðist
búfræðingur frá Hvanneyri árið
1933 og reisti nýbýlið Dalsmynni
í Saurbæjarlandi og bjó þar 1931-
1934. Eftir þetta flytur hann til
Akraness og iýkur þar trésmíða-
námi hjá Árna Árnasyni móð-
urbróður sínum. Á Akranesi er
Axel búsettur frá 1935-1946 og
stofnar þar sitt eigið fyrirtæki
1937.
Á þessum Akranesárum sínum
var Axel mjög virkur félagi í
starfi Sósíalistaflokksins og voru
flestir fundir flokksins haldnir á
heimili hans. Var hann varabæj-
arfulltrúi flokksins árið 1946, eða
síðasta árið, sem hann er búsettur
á Akranesi. Hinn 10. apríl 1937,
kvænist Axel Huldu Ásgeirsdótt-
ur ættaðri frá Bíldudal. Börn
þeirra eru Jakobína f. 21. jan.
1937, tónlistarkennari, Eyjólfur
f. 20. nóv. 1940, húsgagna-
smíðameistari, Sigurður f. 10.
sept. 1944, d. 7. júlí 1946, Sig-
ríður f. 7. sept. 1946, innanhús-
arkitekt, búsett í Danmörku, og
Þórður f. 12. júlí 1948, innanhús-
arkitekt. Barnabörnin eru orðin
13 og lét Axel sér ætíð annt um
hag þeirra. Hulda og Axel slitu
samvistir.
Axel kvæntist aftur 1958 Elínu
Jónasdóttur og eignuðust þau
einn son Matthías fæddan 1958,
bifvélavirkja í Reykjavík. Elín og
Axel slitu samvistum.
Axel var mjög kröfuharður við
sjálfan sig og aðra, það var því
eftirsóknarvert ungum mönnum
að komast í húsgagnasmíðanám
hjá honum, það var ekki einungis
að þeir nemar sem útskrifuðust
frá honum tækju góð próf heldur
lærðu þeir einnig að ástunda
stundvísi, því Axel var jafnan
fyrstur til vinnu og síðastur út að
kveldi.
Það einkenndi Axel mjög
krafa hans um vönduð vinnu-
brögð, enda þóttu húsgögn frá
honum jafnan vönduð og traust.
Axel hafði mikinn áhuga á
hönnun húsgagna, sem og öðrum
listum, auk þess sem hann var
hugmyndaríkur um nýjungar í
ýmsum útfærslum sem fram-
leiðslan kallaði á og leiddi það til
þess að hann fékk einkaleyfi á
nokkrum slíkum hugmyndum.
Það er á engan hallað, að telja
Axel frumherja hér á landi í
framleiðslu nýtískulegra hús-
gagna, en það var um 1950 sem
einkenni þess sáust. Til þess að
ná þeim góða árangri í fjölda-
framleiðslu húsgagna sem Axel
náði, var hann sí vakandi fyrir
þeirri þróun sem alltaf á sér stað í
smíði trésmíðavéla, hann var
alltaf með þeim fyrstu að tileinka
sér þær nýjungar og hefur það
haldið áfram í fyrirtækinu eftir að
hann lét þar af stjórn 1981 og
synir hans Eyjólfur og Þórður
tóku við. Það hefur verið ánægju-
legt að fylgjast með þróun fyrir-
tækisins Áxis síðan og er hún
vissulega í anda brautryðjand-
ans.
Axel hafði fleiri áhugamál en
vinnuna, hann hafði mikið yndi
af hestum og átti hesta allt til
1975, en þá nokkru áður þurfti
hann að fella sinn besta hest
Hóla-Blesa frá Vestur-Hópi, og
fannst honum enginn hestur geta
komð í hans stað. Það voru góðar
stundir þegar Axel bauð á hest-
bak og riðið var inn í Heiðmörk á
björtu vorkvöldi og tíminn stóð í
stað og fuglarnir hlustuðu á söng
ferðalanganna, en Axel hafði
góða söngrödd og naut þess að
taka lagið í góðra vina hóp. Þó að
Axel væri róttækur í skoðunum
hirti hann ekki um hátíðarhöld 1.
maí, til þess hafði hann of mikla
löngun til stangveiði, en það var í
mörg ár að hann fór með vinnufé-
lögum til silungaveiða í Meðal-
fellsvatn 1. maí, en þann dag má
jafnan hefja veiði í vötnum, Axel
var einnig góður laxveiðimaður.
Frá 1969 bjó Axel með Elínu
Sigurðardóttur, var samband
þeirra byggt á gagnkvæmu trausti
og reyndist Elín honum traustur
vinur, ekki síst eftir að heilsu
hans tók að hraka. Axel þurfti að
dveljast síðustu 5 árin á sjúkra-
deild Grundar.
Við sem þessar línur skrifum,
vitum að Áxel kveður þennan
heim með bros á vör, þannig var
hann alltaf þegar hann var
ánægður. Hann var ánægður með
dagsverkið, en ánægðastur var
hann að sjá fyrirtækið sem hann
stofnaði á Akranesi 1937 vera
enn að vaxa. Við lærisveinar hans
kveðjum hann með virðingu.
Útför Axels fer fram frá Foss-
vogskapellu í dag kl. 13.30.
Þorkell Gunnar Guðmundsson
Sverrir Hallgrímsson
Það mun hafa verið 1937, að ég
kynntist Axel Eyjólfssyni. Þá bar
ég út Morgunblaðið á Akranesi
ásamt öðrum dreng (Vigfúsi Sig-
urðssyni), og enn mann ég flest
hús kaupenda. Oft kom ég á
verkstæði Axels, þar sem hann
vann einn að smíðum, en hann
keypti alloft af mér blað. Um leið
skiptist hann á fáeinum orðum
við mig, en þá þekktu allir alla á
Akranesi. Ég þóttist býsna
fróður um alþjóðamál, hlustaði
með óskiptri athygli á alla þætti
Sigurðar Einarssonar frá út-
löndum, og mun Axel hafa
gengið á það lagið. Forsíðufréttir
voru umræðuefni okkar. Af stutt-
um athugasemdum Axels vakn-
aði skilningur á stefnumiðum
sósíalismans og jafnvel á upp-
byggingunni í Ráðstjórnarríkjun-
um, (þótt flest mál liti ég enn út
frá sjónarhorni hægri arms Al-
þýðuflokksins). Svo fór að ég
gekk upp að Sigtúnum til Sæ-
mundar og lét skrá mig í Mál og
menningu, en það gerðu fleiri í þá
daga.
Um áratugar skeið voru all-
mikil kynni með okkur Axel.
Lengstum dvaldist ég í Reykjavík
frá 1940, en á tíðum ferðum mín-
um upp á Akranes leit ég oft inn
hjá Áxel og granna hans, Þor-
valdi Steinasyni. Fylgdist ég með
stofnun Sósíalistafélags Akra-
ness, sem Axel Eyjólfsson hafði
forgöngu um ásamt Árna Ingi-
mundarsyni, Halldóri Þorsteins-
syni, Skúla Skúiasyni, Þórði
Valdimarssyni og Þorvaldi
Steinasyni. Á vegum félagsins
varð Axel vara-bæjarfulltrúi
1946, en ári síðar fluttist hann til
Reykjavíkur.
Á þessum árum á Akranesi
hugðu sósíalistar ekki að ætt
nokkurs manns. Þó skal hér stutt-
lega vikið að uppruna Axels
Eyjólfssonar, en frá honum sagði
sr. Halldór Jónsson á Reyni-
völlum í minningabók sinni. Áxel
var fæddur á Bessastöðum á
Álftanesi 23. mars 1911. Foreldr-
ar hans voru Eyjólfur Eyjólfsson
(Runólfssonar bónda á Saurbæ á
Kjalarnesi) og kona hans, Sig-
ríður Loftsdóttir (bróðurdóttir
Þórðar hreppstjóra á Neðra
Hálsi). Eyjólfur lést 1922 og fór
Axel þá að Reynivöllum til sr.
Halldórs Jónssonar, sem sagði
svo frá: „... og var þó nokkur ár,
fermdist þaðan og hálf ólst þar
upp. Síðan lærði Axel Eyjólfsson
trésmíði í Reykjavík, bjó svo
nokkur ár ógiftur í Dalsmynni,
sem hann gerði að nýbýli, en var
raunar hálf heimajörðin að
Saurbæ, reisti þar steinhús til
íbúðar; allstóra heyhlöðu og fjós
við hlið hennar. Þar bjó hann til
ársins 1934, að hann fluttist á
Akranes, setti sig þar niður sem
húsgagnasmiður og efnaðist þar
allvel, eignaðist gott íbúðarhús
og vann þar sem húsgagnasmið-
ur. En sumarið 1947 selur hann
húseign sína á Akranesi, kaupir
hús ... í Reykjavík ...“ (Ljós-
myndir, fyrra bindi Húsvitjun,
Átthagafélag Kjósverja, Reykja-
vík, 1953, bls. 114). Þess má geta
að Axel lauk námi í trésmíði á
Akranesi hjá Árna Árnasyni.
í Reykjavík stofnaði hann
Húsgagnaverslun Axels Eyjólfs-
sonar, sem síðar tók upp nafnið
Axis, og er landsþekkt fyrirtæki.
í þakkarhug kveð ég með þess-
um orðum fyrsta kommúnistann,
sem ég kynntist, Axel Eyjólfs-
son. Af sannfæringu var hann
kommúnisti til hinstu stundar.
Reykjavík,
á uppstigningardag 1989.
Haraldur Jóhannsson
Miðvlkudagur 10. maí 1989 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 9 L
VIÐHORF
Framhald af síðu 5
Lög gegn fjárfestingum er-
lendra aðila hafa að verulega
marki komið í veg fyrir það, að
norsk fyrirtæki yrðu féþúfa og
leiksoppur í höndum ytri afla.
Til eru hugsjónir, sem við ger-
um okkur, þótt okkur lánist ekki
ætíð að fylgja þeim eftir. Við
héldum okkur t.d. vera lausa við
kynþáttahleypidóma, en höfum
komist að því, að þeir eru til hér í
landi. En engu að síður: Einmitt
þau markmið, sem við keppum
að og náum ef til viil aldrei, - þau
markmið megum við síst yfirgefa
sjálfir eða fá þau öðrum til ráð-
stöfunar.
Og umfram annað - við vitum
það hérlendis af langri reynslu,
hvað í því felst að lúta stjórn ytri
aðila. Éf til vill vitum við betur en
margar grannþjóðir okkar í Evr-
ópu, hverju við höfum að tapa.
Orð eins og „sjálfstæði" og
„fullveldi" eiga sér enduróm í
okkur, og það ekki aðeins á þjóð-
hátíðardaginn. Og það þykir
sumum broslegt. Leyfum þeim
að brosa.
Vilji einhver eiga virkan þátt í
umræðum um EB, nægir ekki
lengur „að hafa sömu skoðun og
síðast“, að „vera með“ eða „vera
á móti“. Og það er ekki nóg
lengur að „vera með aðild“ eða
„vera á móti aðild“.
Afstaða í umræðunum um EB
krefst þess, að menn myndi sér
skoðun á því, hverjir máttarvið-
irnir eru í þjóðfélagsgerð okkar.
Að þeir geri upp við sig, hverjir
þessara máttarviða skipti mestu
og verði ekki fjarlægðir án þess
að jafnframt hrynji margt það í
samfélaginu, sem okkur er í mun
að vernda. Að menn komist að
því, hvers konar „aðlögun“ kann
að reynast auðveld, skynsamleg
og æskileg. Og um leið verðum
við að hafa í huga hver afstaða
okkar til EB verður, er til lengri
tíma er iitið.
Vegna þessa verður ekki að-
eins um að ræða tvö sjónarmið.
Sjónarmiðin verða fjölmörg.
Tvö sjónarmið munu lenda yst,
hvort til síns enda, í litrófi þessara
umræðna:
• að hafa ekki áhuga á að breyta
nokkrum sköpuðum hlut, og
• að sætta sig við hvað sem vera
skal, svo framarlega sem það
tryggir aðild að Evrópubanda-
laginu.
En það er einnig sjónarmið og
afstaða að taka þátt í leit að æski-
legum samvinnuháttum Noregs
við Evrópubandalagið. Við get-
um t.d. tekið þátt í mörgum sam-
vinnuverkefnum EB án þess að
vera aðilar að bandalaginu. Og
hluti af umræðunni felst einnig í
því, að menn myndi sér skoðanir,
jákvæðar eða neikvæðar, um
risaveldið EB, sem nú er í fæð-
ingu. Við höfum deilt iengi og af
gagnrýni um ástandið í Banda-
ríkjunum og Sovétríkjunum.
Ekkert er eðlilegra en að EB
hljóti jafnrækilega umfjöllun.
Opinskáar, málefnalegar,
rœkilegar og alhliða umræður um
EB munu einnig móta þá virku
afstöðu til nýsköpunar, sem okk-
ur er nauðsynleg, ef orðið „Nor-
egur“ á enn að vera okkur tákn
samstöðu, sjálfstœðis og fram-
fara, þegar árið 2000 gengur í
garð.