Þjóðviljinn - 10.05.1989, Blaðsíða 12
—SPURNINGIN—
Hvaða áhrif hefur verk-
fallið á þig?
Ómar Garðarsson
blaðamaður
Vestmannaeyjum:
Dóttir mín er í framhaldsskóla og
hefur ekki getað stundað nám.
Ég á ekki von á því að verkfallið
leysist fyrr en í haust.
Ólafur Arnarson
fréttamaður:
Verkfallið hefur ekki áhrif á mig
persónulega. Ég á von á því að
það verði samið á næstu tíu
dögum.
Baldur Sigurðsson
bílstjóri hjá Hreyfli:
Það hefur ekki áhrif á mína vinnu.
Ég veit ekki hvenær það leysist.
Stefanía Ragnarsdóttir
gjaldkeri:
Það hefur ekki beinlínis áhrif á
mína fjölskyldu, en ég vona að
það leysist sem fyrst.
Elín Vilhelmsdóttir
kennari:
Ég er sjálf í verkfalli og vona
auðvitað að það leysist sem fyrst
þó það sé frekar óskhyggja en
hitt. Ég hef litla trú á því að samið
verði á næstu dögum.
HEFUR STAÐGREÐSLU
AF LAUNATEKJUM
ÞINUM
VERÐ SKILAÐ?
Hafi launagreiðandi ekki staðið skil á
staðgreiðslu sem hann hefur dregið aflaunum
kemur full álagning á launamann til innheimtu.
Staðgreiðsla launamanns er
bráðabirgðagreiðsla tekju-
skatts og útsvars og dregst
frá við álagningu opinberra
gjalda. Ef um vanskil á stað-
greiðslu er að ræða af hálfu
launagreiðanda koma full
álögð opinber gjöld til inn-
heimtu, nema leiðrétting hafi
fariðfram áður.
Nú hafa verið send til
allra launamanna yfirlit yfir
afdregna staðgreiðslu af
launatekjum þeirra á árinu
1988. Yfirlitið er byggt á skil-
um launagreiðenda á af-
dreginni staðgreiðslu launa-
mannatil innheimtumanna.
Mikilvægt er að launa-
menn beri yfirlitið saman við
launaseðla sína til þess að
ganga úr skugga um að réttri
staðgreiðslu hafi verið skilað
til innheimtumanna.
í þeimtilvikumsem um
skekkjur er að ræða skal
fyrst í stað leita skýringa hjá
launagreiðanda. Beri það
ekki árangur er mikilvægt að
umsókn um leiðréttingu á
sérstöku eyðublaði sé komið
á framfæri við staðgreiðslu-
deild RSK, Skúlagötu 57,
150 Reykjavík sem fyrst til
þess að tryggja að greiðslu-
staðan verði rétt við álagn-
ingu opinberra gjalda nú í
sumar.
Kynnfu þér yfirlit um staðgreiðsluskil.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI