Þjóðviljinn - 17.05.1989, Page 2
FRÉTTIR
Vigdís gerir
víöreist
Vigdís Finnbogadóttir forseti fór
í morgun áleiðis til Ítalíu þar sem
hún mun haida erindi á alþjóða-
þingi um framtíðarsýn við há-
skólann í Bologna, en þing þetta
er lokaþáttur í tilefni af 900 ára
afmæli háskólans. Frá ftalíu held-
ur forsetinn til Bandaríkjanna
þar sem hún veitir viðtöku heið-
ursdoktorsnafnbót og flytur aðal-
ræðu við útskrift kandidata við
háskóla Luther College í Decor-
ah í Iowa, þar sem margir lands-
menn stunda nám. Þá mun Vigdís
skoða verksmiðju Iceland Sea-
food í Harrisburg og á þriðjudag í
næstu viku heilsar hún uppá Ge-
orge Bush í Hvíta húsinu og
heimsækir síðan höfuðstöðvar
veitingahúsakeðjunnar Long
John Silver. Ferðinni lýkur í Lou-
isville í Kentucky þar sem til-
kynnt verður um stofnun vísinda-
sjóðs í samstarfi háskóla borgar-
innar og Háskóla íslands.
Nýr flotaforingi
hersins
Yfirmannaskipti fóru fram hjá
herliðinu á Miðnesheiði í gær-
morgun. Nýr yfirmaður herliðs-
ins er Thomas F. Hall, en hann
var einn af yfirmönnum herliðs-
ins hérlendis á árunum 1982-85.
Frávik
frá heiðni
Norski sérkennslufræðingurinn
Knut Östrem flytur fyrirlestur í
Kennaraháskólanum á morgun
fimmtudag kl.16.30 sem hann
nefnir: Norræn viðhorf til frávika
frá heiðni til vorra daga. í erind-
inu fjallar Östrem um sögulega
þróun hugmynda um frávik og
viðbragða við afbrigðilegu fólki í
Noregi og víðar á Norður-
löndum, allt frá heiðnum sið.
Leitar hann víða fanga, m.a. all-
mikið í íslenskar heimildir. Fyrir-
lesturinn er öllum opinn.
Eftirlitið og
Október í Duus
Hljómsveitirnar Eftirlitið og
Október halda tónleika í Duus
húsi í kvöld og hefjast þeir stund-
víslega kl. 22.30. Það er landslið-
ið af pönkelliheimilinu sem er
uppistaðan í Október-sveitinni
og er þetta í fyrsta sinn sem
hljómsveitin kemur fram opin-
berlega. Eftirlitið mun m.a.
kynna efni af væntanlegri plötu
sveitarinnar á tónleikunum í
kvöld.
Jón Baldvin
til Finnlands
Utanríkisráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, fer ásamt eigin-
konu sinni í opinbera heimsókn
til Finnlands í næstu viku í boði
Pertti Paasio, utanríkisráðherra
Finnlands. Ráðherra mun m.a.
hitta að máli þá; Harri Holkeri
forsætisráðherra, Nauno Koi-
visto forseta Finnlands og Pertti
Salolaninen, utanríkisviðskipta-
ráðherra.
Barnahátíð í
Norræna húsinu
í tengslum við sýningu á teikning-
um og vatnslitamyndum eftir
Sjómenn varist kemísk efni
Stýrimannafélagið hefur mælst til þess við alla íslenska sjómenn að
þeir takmarki eins og mögulegt er notkun kemískra hreinsiefna um
borð í skipum sínum. Röskun lífríkisins í sjónum við strendur landsins
af völdum slíkra efna getur haft hinar ægilegustu afleiðingar fyrir
landsmenn alla segja stýrimenn og minna sjómenn á að fleira er
mengun en fljótandi rusl.
sænsku listakonuna Ilon Wikland
í Norræna húsinu, sem opnuð var
sl. laugardag, verður dagskrá
fyrir börn í sýningarsal hússins á
morgun kl. 16.00. Þar ætlar Wik-
land að teikna fyrir börnin á með-
an þær Silja Aðalsteinsdóttir,
Vilborg Dagbjartsdóttir og Sig-
rún Hallbeck lesa úr bókum eftir
Astrid Lindgren. Sigrún les á
sænsku og Vilborg úr nýrri bók
sem kemur út í haust.
Vinnumiðlun
í Vitanum
Hafnarfjarðarbær hefur komið á
laggirnar vinnumiðlun fyrir
skólafólk í Firðinum, 16 ára og
eldra. Miðlunin er til húsa í æsku-
lýðsmiðstöðinni Vitanum þar
sem er opið frá 10-12 og 13-16 alla
virka daga.
M-hátíð á
Austurlandi
Menntamálaráðuneytið efnir til
menningarhátíðar á Austurlandi
í samvinnu við sveitarstjórnir í
kjördæminu og hefst hátíðin á
föstudaginn kemur og stendur
allt fram til 20. ágúst n.k. Hátíð-
arhöldin hefjast kl. 18.00 á Egils-
stöðum með ávarpi menntamála-
ráðherra, en þar verður einnig
opnuð sýning á verkum úr Listas-
afni íslands. Um kvöldið verður
síðan samfelld dagskrá um
austfirska höfunda í samantekt
og flutningi félaga í Leikfélagi
Fljótsdalshéraðs og Tónlistarfé-
lagsins á Héraði.
Fiskvinnslu-
skólalög verði
endurskoðuð
Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins,
telur brýnt að 18 ára gömul lög
um Fiskvinnsluskólann verði
þegar tekin til endurskoðunar. í
samþykkt félagsins segir m.a. að
á tæpum tveimur áratugum hafi
margt breyst í skipulagi fisk-
vinnslumála og því nauðsynlegt
að endurskoða lög um skólann,
auk þess sem kynna þurfi betur
fyrir þjóðinni starfsemi skólans
svo hann verði fýsilegri valkostur
fyrir ungt fólk en hann er nú.
Fram meistari
meistaranna
íslandsmeistarar Fram unnu
Bikarmeistara Vals í meistara-
keppni KSÍ í gærkvöld. Leikur-
inn var háður á gervigrasinu í
Laugardal og lauk með tveggja
marka sigri Fram, 3-1. Guð-
mundur Steinsson skoraði tvíveg-
is fyrir Fram og Ómar Torfason
einu sinni. Valsmenn náðu ekki
að minnka muninn fyrr en um
miðjan síðari hálfleik. Lárusi
Guðmundssyni var þá brugðið
innan vítateigs. Birkir Kristins-
son varði vítaspyrnu Atla Eð-
valdssonar en Atli náði knettin-
um á ný og í seinna skiptið urðu
honum ekki á nein mistök. Þrátt
fyrir ágæt marktækifæri undir lok
leiksins náðu Valsmenn ekki að
minnka muninn frekar og Fram-
arar teljast því meistarar meistar-
anna.
Heiðurslaun BÍ
Listir og
beitarþol
Tveir listamenn, skákmaður og vistfræðingur
fá alls 11 mánaða starfslaun
Hlífar Sigurjónsdóttur fíðlu-
leikara, Guðjóns Pedersen leikara
og leikstjóra, Hannesar Hlífars
Stefánssonar skákmeistara og
Andrésar Arnalds vistfræðings
sem fæst við rannsóknir á beitar-
þoli landsins.
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu-
leikari hlaut heiðurslaun í 2 mán-
uði til að búa sig undir alþjóðlega
samkeppni fiðluleikara í Rotter-
dam 1989.
Guðjón Pedersen leikari og
leikstjóri hlaut heiðurslaun í 3
mánuði í því skyni að auðvelda
honum að fullnuma sig í leik-
stjórn. Hann ætlar að fylgjast
með störfum í leikhúsum í Þýska-
landi.
Hannes Hlífar Stefánsson
skákmeistari hlaut heiðurslaun í
2 mánuði í því skyni að auðvelda
honum þátttöku í skákmótum er-
lendis. Hannes Hlífar er í
Moskvu og bróðir hans veitti
laununum viðtöku fyrir hans
hönd.
Andrés Arnalds beitarþols-
fræðingur og doktor í vistfræði
hlaut heiðurslaun í 4 mánuði til
að taka saman efni og upplýsing-
ar um hvað þurfi til að koma
gróðurverndarmálum hér á landi
í viðunandi horf. Andrés er
staddur erlendis og faðir hans
veitti verðlaununum viðtöku
fyrir hans hönd. eb
Kópavogur
Bæjarstjómin svarar fyrir sig
Samvinnasveitarfélaga verður að byggjastágagnkvœmu tilliti, segja fulltrúar meirihlutans
Skipulagsforsendur hugsan-
legrar Fossvogsbrautar eru
gjörbreyttar frá þeim tíma þegar
hugmyndin um þessa fram-
kvæmd varð til, segja þrír fulltrú-
ar bæjarstjórnarmeirihlutans i
Kópavogi í svarbréfi, sem Þjóð-
Norðmenn minnast þess í dag
að 175 ár eru liðin frá því
stjórnarskrá landsins var sam-
þykkt á Eiðsvelli. Mikil hátíða-
höld hófust í Osló í gær og meðal
viðstaddra eru Guðrún Helga-
dóttir forseti Sameinaðs Alþingis
og Friðrik Óiafsson skrifstofu-
viljanum hefur borist við áskorun
þriggja fyrrverandi bæjarstjórn-
arfulltrúa um að sverðin verði
slíðruð í stríðinu við borgarstjór-
ann í Reykjavík. Hinar breyttu
forsendur taka bæði til umhverf-
stjóri Alþingis.
Norðmenn búsettir hérlendis
halda einnig hátíð í dag. Minn-
ingarathöfn verður kl. 9.30 í Fos-
svogskirkjugarði en síðan sérstök
barnahátíð kl. 10.30 við Norræna
húsið og í kvöld verður 17. maí-
veisla í Naustinu.
isþáttarins og umferðarþarf-
anna, segir I bréfinu.
„Þrátt fyrir margítrekaðar
samþykktir bæjarstjórna í Kópa-
vogi um útivistarsvæði í Foss-
vogsdal hafa talsmenn Reykja-
víkurborgar haldið fast við að
braut skyldi lögð um dalinn ef
„umferðarleg" þörf reyndist á.
Það hefur gengið svo langt, að
um skeið var brautin sýnd á stað-
festu aðalskipulagi Reykjavíkur-
borgar inni í landi Kópavogs. Fé-
lagsmálaráðherra lét þó taka
þann hluta brautarinnar burt við
síðustu staðfestingu og sýndi þar
með réttum landeigendum til-
hlýðilegan sóma,“ segir í bréfinu.
Ennfremur segir að „ekki þurfi
öldungaráð til að sjá, að
nauðsynlegt er að sveitarfélög
geti haft með sér giftusamlega
samvinnu. En sú samvinna
tveggja verður ævinlega að
byggjast á gagnkvæmu tilliti og
gerir kröfu til að jafnan sé leitað
þeirra leiða sem, skynsamlegast-
ar geta talist miðað við þekkingu
og hugmyndir tímans. Arangurs-
laust höfum við leitað samkomu-
lags við Reykjavíkurborg um
sameiginlegt skipulag Fossvogs-
dals sem útivistarsvæðis. Þess
vegna áttum við ekki annarra
kosta völ en að ítreka yfirlýsingar
bæjarstjórnar svo að ekki gæti
misskilist.“
Undir bréfið rita þeir Guð-
mundur Oddsson, formaður
bæjarráðs, Heimir Pálsson, for-
seti bæjarstjórnar, og Skúli Sig-
urgrímsson bæjarfulltrúi.
Afmœli
Hátíð hjá Norðmönnum
Ingi R. Helgason forstjóri Brunabótafélags Islands afhendir Guðjóni Pedersen leikara og leikstjóra heiðurs-
laun. Mynd Jim Smart.
Igær voru veitt árleg heiðurs-
laun Brunabótafélags íslands.
Að þessu sinni var þeim skipt
milli fjögurra manna, þeirra
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. maí 1989