Þjóðviljinn - 01.06.1989, Qupperneq 5
GARÐAR OG GRÓÐUR
Ingibjörg Sigmundsdóttir og
Hreinn Kristófersson eru
bjartsýnishjón sem reka garð-
yrkjustöð í Hveragerði. Þau
rækta aðallega garðplöntur, bæði
til sölu út um landið og eins fyrir
Kirkjugarða Reykjavíkur.
Ingibjörg er alin upp í garð-
yrkjunni og tók við stöðinni að
föðursínum látnum. Hreinn, sem
áður starfaði sem vélvirki, kann
vel við sig innan um litadýrð og
angan blóma.
Ingibjörg og Hreinn senda
plöntur og selja út um allt land.
Til þess að reka svona fyrirtæki
verður útsjónarsemi og hag-
kvæmni að ráða hverju handtaki.
Gróðrarstöð Ingibjargar, eins
og fyrirtæki þeirra hjóna heitir,
er m.a. í nýjum átthyrndum skála
sem er bæði frumleg og skemmti-
leg bygging en auk þess hagkvæm
að því leyti að öll birta nýtist
mjög vel.
Yfir sölutímann fer vinnan upp
í 20 stundir á sólarhring. Venju-
lega er aðalsölutíminn frá miðj-
um maí og fram til 17. júní. Tíðin
er þó önnur núna og er óþarfi að
fjölyrða um veðurfar vetrarins.
Ingibjörg og Hreinn hafa einn
mann í vinnu hjá sér allt árið og
yfir sumartímann starfa hjá þeim
þar að auki 10 manns. Það eru
mest skólakrakkar og skyldfólk.
Gott væri að eiga fleiri systur,
segir Ingibjörg. Þú meinar
bræður, hvíslar húsbóndinn um
leið og hann kinkar kolli til eins af
íbúum gróðurhússins, en það er
lítill skógarþröstur sem hefur
byggt sér hreiður í tómatplöntu-
potti.
Gróðrarstöð Ingibjargar nær
yfir nokkuð stórt svæði þar sem
ræktað er á 2000 fermetrum undir
gleri og annað eins í vermireitum.
Ingibjörg og Hreinn rækta aðal-
lega sumarblóm og fjölær blóm.
Eftir að öllum sumarblómum
hefur verið komið fyrir í vermi-
reitum setja þau niður grænmet-
isplöntur í helming gróðurhús-
anna og jólastjörnu í hinn hlut-
ann. Þannig má nýta gróðurhúsin
allan ársins hring. Ingibjörg segir
að erfitt sé að gefa alhliða ráð-
leggingar um blóm í görðum, þar
sem hver garður hefur sín sér-
einkenni. eb
Ir.gibjörg og Hreinn ásamt börn-
unum Kristbjörgu og Hákoni
Daða í lengsta skálanum þar
sem líka er gaman að leika sér að
sögn Hákons. Mynd: Jim Smart.
Stofujurtirnar standa í röðum og
bíöa þess að skreyta híbýli fólks.
Mynd: Jim Smart.
SLÁTTUVÉLALEIGA
Alhliöa vélaleiga, verktakar.
Leigjum út sláttuvélar, ýmis garðáhöld og vélar.
BORTÆKNI SF.
SÍMI 46980, 46899
Nvbvlaveai 22, 200 Kópavogi.
Opið alla daga
Blómadýrð
áríð
um kring
Garðyrkju-
félag Islands
Garðyrkjufélag íslands var
stofnað árið 1885. Á fyrstu árum
félagsins var megináhersla lögð á
að hvetja menn til að rækta holla
garðávexti, miðla fræðslu um þá
ræktun og aðstoða við útvegun á
fræi, garðyrkjuáhöldum o.s.frv.
Síðar lagði félagið mikla
áherslu á ylræktina eftir að gróð-
urhúsabyggingar hófust hér-
lendis að einhverju marki.
Félagar í Garðyrkjufélagi ís-
lands munu nú vera um 5000 og
deildir frá félaginu eru starfandi á
19 stöðum á landinu.
Garðyrkjufélag íslands gefur
út fréttablað til meðlima sinna og
er Ólafur B. Guðmundsson
ábyrgðarmaður þess. Félagið er
nú til húsa að Frakkastíg 9.
Um þessar mundir er garð-
yrkjurit ársins 1989 að koma út en
Ólafur B. Guðmundsson ritstýrir
einnig því myndarriti sem er um
300 síður með fróðlcgum grein-
um prýtt miklum fjölda mynda
sem eiga erindi við hvern þann er
lætur sig gróðurinn varða.
eb
FEGRIÐ GARÐINN OG BÆTID
MED SANDI.GRJÓTI OG ÁBURÐI
SANDUR
SIGURSTEINAR VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR
Þú færö sand og allskonar prjót hjá okkur.
Viö mokum þessum efnum a bíla eöa
í kerrur og afgreiðum líka í smærri
einingum, traustum plastpokum sem
þú setur í skottiö á bílnum þínum.
Afgreiðslan við Elliðaár er opi
mánud.-föstud: 7.30-18.
in:
7.30-18.00
laugard:7.30-17.00
Ath. lókað í hádeginu
Nú bjóðum viö enn betur: Lífrænan og ólíf-
rænan áburö, hænsnaskít, skeljakalk
og garðavikur. Öll þessi úrvals efni
eru sekkjuö í trausta piastpoka og
tilbúin til afgreiöslu.
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 13
SÍMI:68 18 33