Þjóðviljinn - 01.06.1989, Síða 8
Höfum ávallt fyrirliggjandi:
Gosbrunna, úti og inni, styttur, dælur og Ijós,
garðdverga, fugla o.fl. til garðskreytinga.
Vörufell hf.
Heiðvangi 4, Hellu
Sími 98-7 58 70
Opið kl. 14-18 eða eftir samkomulagi.
Lokað þriðjudaga.
Hjá okkur er gróðrarstöðin full
af úrvalsplöntum, sem bíða
eftir að komast í garðinn þinn:
- Rósir
- Skrautrunnar
- Fjölærar plöntur
- Sumarblóm
- Matjurtir
- og að sjálfsögðu dahlíur og petuníur
GROÐRAR
STÖÐIN
GRÆNAHLÍÐ
Furugerði 23
(v. Bústaðaveg)
Sími 34122
Garðrósir, tré
og runnar.
Sumarblóm
og fjölær
blóm.
Munið
töfratréð!
Garðyrkjustöðin
Grímsstaðir
Hveragerði — Sími 98-34230 og 98-34161
GARÐAR OG GRÓÐUR
Þrjár íslenskar
lækningajurtir
Jurtir hafa verið notaðar til
lækninga frá alda öðli. Til eru
sagnir og rannsóknir sem
benda til þess að grasalækn-
ingar hafi verið stundaðar í
Evrópu fyrr á öldum.
Hér á landi eru blóðberg og
fjallagrös máske þekktust, en
auk þess vaxa hér aðrar jurtir
sem góðar eru til lækninga þó
lítt þekktar séu. Má þar nefna
garðabrúðu og vallhumal.
Blóðberg
í blóðbergi eru beiskju- og sút-
unarsýruefni sem talin eru maga-
styrkjandi. Blóðbergiðertínt
blómgað og er auðvelt að geyma
það þurrkað. Til eru sagnir um að
blóðbergste sé gott við timbur-
mönnum. Blóðbergiðermest
notað til tegerðar og mun vera
gott meðal við hósta og hæsi.
Garðabrúða
Garðabrúða er stórvaxin jurt sem vex villt um
sunnanvertlandið. Úrþurrkuðumjarðstönglinum
eru unnin lyf sem hafa róandi áhrif.
Rótin hef ur róandi áhrif á taugakerfiö og er því
víða notuð til lyfjagerðar, en er ekki vanabindandi.
Garðabrúðan blómstrar í júlí og ágúst en besti
tínslutíminn er í seþtember.
Ef nota á jurtina til tegerðar ber að þurrka hana og
geyma í loftþéttum umbúðum.
Gott er að nota garðabrúðute við svefnleysi og
stressi, en þó ekki að staðaldri.
Vallhumall
Vallhumall er gömul lækningajurt kennd við
fornkappann gríska Akkilles, en hann á að hafa
notað hana til sáralækninga.
Vallhumalsseyði hefur frá fornu fari verið notað
við niðurgangi, magaverkjum og nýrnakvillum.
Vegna beiskjuefna vallhumalsins var hann not-
aður við ölgerð, líkt og humall nú til dags.
Vallhumall er einnig góður fyrir húðina.
Danskir fegrunarf ræðingar halda því f ram að
hægt sé að slétta úr hrukkum með því að breiða
yfir þær vallhumalsblöð. Það er nauðsynlegt að
sjóða vallhumalsblöðin þannig að þau verði eins
og grautur og smyrja síðan grautnum í léfeftstusk-
ur sem lagðar eru á andlitið í tíu mínútur. Þessa
meðferö verður að endurtaka nokkrum sinnum
eigi árangur að nást.
eb
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN