Þjóðviljinn - 01.06.1989, Side 11
Að Tannastööum í Fljótsdal er mikil gróðrarstöð þar sem ræktaðir eru
nytjaskógar. Mynd: Sig. Blöndal.
Guðbrandur
Brynjúlfs-
son skrifar
sem duga myndi meira en helm-
ingi fjölmennari þjóð? Eða hin
nýju íburðarmiklu musteri
„Mammons“. Eru þau öll reist af
raunverulegri þörf? Svari nú hver
fyrir sig, en mín skoðun er sú, að
við höfum ekki spilað nógu
skynsamlega úr fjármunum okk-
ar.
Ég er sannfærður um að ef
þjóðin, til að mynda á næstu 10
árum, verði til skógræktar og
gróðurverndar svo sem helmingi
þeirrar upphæðar, sem varið hef-
ur verið umfram þarfir í áður-
nefndar fjárfestingar, þá mætti
stíga umtalsvert skref í þeim mál-
um.
Það má hverjum manni vera
ljóst að nytjaskógrækt í jafn stór-
um mæli og hér er gerð að umtals-
efni verður að vera fjármögnuð
af almannafé. Eðlilegast er að
Skógrækt ríkisins tæki þetta sem
sérverkefni sem unnið væri sam-
kvæmt fyrirfram gerðri áætlun til
langs tíma í samvinnu við land-
eigendur og hugsanlega sveitar-
félög í héraðinu. Hvernig væri
t.d. að sveitarfélög Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu og Akranes-
kaupstaður verðu eins og 1.5-2%
af tekjum sínum árlega til svona
verkefnis? Með því hefðu fengist
5.000.000.- kr. á árinu 1988. Með
ríkisframlagi til viðbótar sem
væri að minnsta kosti fjórfalt
framlag sveitarfélaganna er kom-
in dágóð framkvæmdaupphæð.
Með framlagi sínu stuðla
sveitarfélögin að sköpun stór-
kostlega skemmtilegs útivistar-
svæðis þegar tíma líða, - hreinnar
útivistarparadísar, hvar gróður-
far og fuglalíf yrði fjölbreyttara
en annars staðar þekkist á landi
hér. Væri það ekki verðugt verk-
efni að vinna að nú á tímum vax-
andi firringar og flótta mannsins
frá heilbrigðum lífsháttum?
Hver er tilgangur með
skógrækt í þessum
mæli?
Endanlegt markmið með
nytjaskógrækt er timburfram-
leiðsla. Skógræktarsérfræðingar
telja að nú þegar sé komin vissa
fyrir því að á Islandi sé hægt að
rækta nytjaskóg. En tilgangur
skógræktar getur m.a. verið eftir-
farandi: Að skila landinu fegurra
og hlýlegra til afkomenda okkar.
Að auka afraksturlandsins. Bæta
landinu það tjón sem núlifandi og
gengnar kynsióðir hafa unnið á
því í nauðvörn og af vanþekk-
ingu. Skapa komandi kynslóðum
margþættari möguleika til land-
nýtingar en nú er gerlegt og fjöl-
breyttari atvinnutækifæri.
Atak sem þetta krefst þess að
menn horfi lengra en nef þeirra
nær, hugsi ekki um stundarhag,
því hann er ekki tiltækur þeirri
kynslóð er hrindir verkinu í fram-
kvæmd. Skógræktarmenn vita að
ekki hentar að hugsa í árum, þeg-
ar um skógrækt sem atvinnugrein
er að ræða, heldur áratugum og
öldum.
Það er bjargföst sannfæring
mín að ræktun nytjaskóga á ís-
landi sé ekki draumsýn ein, held-
ur raunhæf og skynsamleg leið til
fjölbreyttari afkomumöguleika
fyrir komandi kynslóðir þessa
lands. Það er því að mínum dómi
tímabært að stjórnvöld fari í al-
vöru að huga að þessum málum,
og vonandi hafa Borgfirðingar og
Mýramenn og aðrir Vestlending-
ar til að bera þá framsýni að vilja
stuðla að framgangi jafn heillandi
verkefnis og þetta er. Það er ósk
mín og von að innan fárra áratuga
getum við litið víðfeðman skóg í
vexti í þessu héraði og þá tekið
undir með skáldinu á Draghálsi:
Viður er tekinn að vaxa
vörnum í sókn er snúið.
Gagnprýði grœnna faxa
gróðurveldið er búið.
Fœrist þá fegri litur
fjörs og máttar á landið.
Ljúfur er laufaþytur,
Ijóðið hans gáskablandið.
Guðbrandur Brynjúlfsson er bóndi og
býr að Brúarlandi í Mýrasýslu.
SKÓGRÆKT
___________________RÍKISINS______________________
Garðeigendur
sumarbústaðaeigendur
Skógrœkt ríkisins selur plöntur á eftirtöldum stöðum:
Hvammi í Skorradal
Sími 93-70061
Opið virka daga og um helgar eftir samkomulagi
Laugabrekku við Varmahlíð, Skagafirði
Sími 95-6216
Sami opnunartími og á Vöglum
Vöglum í Fnjóskadal
Sími 96-25175
Svaraðísímakl. 10-12virkadaga
laugardaga og sunnudaga kl. 11 -12
Opiðvirkadagafrá kl. 10-18,umhelgarfrákl. 14-16
Hallormsstað ó Fljótsdalshéraði
Sími 97-1774
Opið vi rka daga f rá kl. 8 -17
ogumhelgarfrákl. 13.30-17
Tumastöðum íFljótshlíð
Sími 98-78341
Opið mánudaga- laugardaga kl. 8-18.30
Mógilsá TKollafirði
Sími 666071 og 666014
Opið kl. 10 - 20 virka daga
umhelgarkl. 10-18
Mismunandi er hvaða plöntur eru til á hverjum stað.
Hafið samband við gróðrarstöðvarnar, þær veita upplýsingar um það
og benda yður á hvað er til annars staðar, ef þær hafa ekki til þær
plöntur sem yður henta.
VERÐIÐ HVERGILÆGRA
SKOGRÆKTARFELAG
REYKJAVIKUR
FOSSVOGSBLETTI 1 SÍMI 641770
GRÓÐRARSTÖÐ OKKAR ER í
FOSSVOGI
Þar fást yfir 100 tegundir trjáa og runna, ódýrar skógarplöntur,
valin garðtré, kröftugar limgerðisplöntur, rósir o.fl. allt vetrarúðað
þar sem við á.
Flestar tegundir fást í pottum og má því gróðursetja fram eftir sumri.
Skógræktarfélagið veitir ókeypis faglega ráðgjöf um plöntuval og ræktun.
Nú er líka á boðstólum „Kraftmold" í 30 lítra pokum. Þetta er alhliða
ódýr ræktunarmold sem má treysta. Efnainnihald rannsakað á RALA.
Skógræktarfélagið styður þig við ræktun trjágróðurs.
Gerist félagar
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11