Þjóðviljinn - 27.06.1989, Page 5

Þjóðviljinn - 27.06.1989, Page 5
____________MINNING____________ ALDARMINNING Katrínar Pálsdóttur Fœdd 9. júní 1889 - Dáin 26. september 1952 Katrín Pálsdóttir fæddist að Fróðhólshjáleigu í Oddasókn, Rangárvallasýslu. Foreldrar hennar voru Elín Sæmundsdóttir frá Lækjarbotnum á Landi og er sú ætt kennd við Lækjarbotna og Páll Hallsson. Skömmu eftir aldamótin fluttist Katrín með for- eldrum sínum til Reykjavíkur. Hún gekk í Kvennasicóíann og brautskráðist þaðan með ágætis einkunn. Árið 1908 giftist hún Þórði Þórðarsyni frá Króktúni og hófu þau þar búskap, en bjuggu síðan á ýmsum bæjum austan- fjalls. Síðast höfðu þau greiða- sölu í Tryggvaskála við Olfusá. Þau fluttu til Reykjavíkur 1923 og hófu búskap á Einarsstöðum á Grímsstaðaholti. Á seytján ára brúðkaupsdegi þeirra 20. júní 1925 andaðist Þórður snögglega úr blóðeitrun. Þau höfðu eignast 12 börn en þrjú höfðu þau misst ung. Þegar Þórður fellur frá var elsta barnið 16 ára en það yngsta aðeins þriggja vikna. Þau höfðu bæði unnið samhent að því að geta veitt börnum sínum sem best uppeldi. En skyndilega stendur hún ein uppi með þennan stóra barnahóp. Á þeim árum voru engir styrkir til einstæðra mæðra, enginn réttur til neinna bóta, að- eins sveitastyrkir voru athvarf þeirra sem af eigin rammleik gátu ekki séð sér eða sínum farborða. Þegar Þórður deyr áttu þau sveitfesti austur í Landsveit og stóð henni til boða að senda börn sín þangað. Hafði hreppstjórinn skipt þeim upp á milli bæjanna. Katrín þáði ekki þetta boð því hún vildi reyna til þrautar að halda hópnum saman. Nú hófst barátta við að fá vinnu því lítið var um atvinnu á þessum árum. En með þrautseigju, dugn- aði og þrotlausu erfiði langt fram á kvöld tókst henni að fá tekjurn- ar til að nægja fyrir brýnustu nauðsynjum og þannig komast yfir erfiðustu árin hjálparlítið. Fyrir jól og aðrar stórhátíðar vakti hún langt fram á nætur til að sauma föt á börn sín því, henni fannst nauðsynlegt að þau fengju nýjar flíkur eins og önnur börn á slíkum hátíðisdögum. Eldri böm- in fóru fljótt að hjálpa til, því þau vildu mikið á sig leggja til að halda heimilinu saman. Móðir Katrínar, Elín, hafði orðið ekkja 1920 og fluttist þá til hennar og var hún hjálpleg við að annast heimilið meðan Katrín vann úti. Bjó hún hjá henni allt til dauða- dags. Sem fyrirvinna heimilis og uppalandi margra barna hafði hún komist í kynni við hin óblíðu kjör sem nokkur hluti þjóðfélags- þegnanna átti við að búa á þess- um árum. Atvinnuleysi ríkti svo vinnufúsar hendur fengu ekki vinnu. Lítið sem ekkert var um styrki eða aðstoð til fólks sem á þurfti að halda. Hún skildi því manna best nauðsyn þess að koma á fót einhvers konar félags- skap til að standa að baki þess fólks sem verst var sett. Um þetta leyti kynntist hún Laufeyju Valdimarsdóttur og urðu þær upp frá því nánar sam- starfskonur. Katrín vann mörg störf hjá Mæðrastyrksnefnd. Mæðra- styrksnefnd hóf skýrslusöfnun um hag einstæðra mæðra með börn á framfæri. Katrín var ein af þeim konum, sem safnaði þess- um skýrslum og var það mikið og vandasamt starf. Þar kynnist hún enn frekar hve einstæðar mæður voru margar og hve kjör þeirra voru bágborin, en það var henni enn meiri örvun til að vinna að bættum hag þeirra. Til mæðrastyrksnefndar leitaði þá mikill fjöldi fólks með alls konar vandamál, sem reynt var að greiða fyrir eftir mætti, jafn- framt því að fá réttarbætur til handa konum, hækkun barnalíf- eyris o.fl. Mæðrastyrksnefnd kom á stofn sumarheimili fyrir fá- tækar konur og börn þeirra. Þar gátu þær dvalið 3-4 vikur sér að kostnaðarlausu. Var Katrín for- stöðukona þessa heimilis í nokk- ur sumur. Þegar Mæðrastyrksnefnd tók að safna peninga- og fatagjöfum meðal bæjarbúa til úthlutunar til bágstadda mæðra fyrir jólin, var Katrín kosin í úthlutunarnefnd og átti hún sæti í henni meðan hún lifði. Hún skrifaði margar greinar í blað, sem Mæðrastyrksnefnd gaf út „Mæðrablaðið", m.a. um barnaleikvelli, almannatrygg- ingar o.m.fl. Hún flutti einnig er- indi í útvarp um þessi mál. Katrín og Laufey Valdimarsdóttir geng- ust fyrir stofnun Mæðrafélagsins 1936 með það fyrir augum að sameina konur til baráttu fyrir réttindamálum sínum. Félags- konur voru flestar einstæðar mæður og undir handleiðslu þess- ara forystukvenna var Mæðrafé- lagið vakandi og öflugur félags- skapur og alltaf á verði að fá sem best hlúð að bættum hag mæðra og barna. Árið 1942 var Katrín kjörin fulltrúi Sósíalistaflokksins í bæ- jarstjórn Reykjavíkur og átti þar sæti til ársins 1949, að hún varð að láta af störfum vegna veikinda. Hún hafði verið einn ötulasti fulltrúi alþýðu í bæjar- stjórn. Barðist fyrir því að bærinn byggði yfir það fólk, sem af eigin rammleik gat ekki greitt háa húsaleigu eða eignast sitt eigið húsnæði. Þá beitti hún sér mikið fyrir því að komið væri upp dag- heimilum og leikskólum og að leikvellir væru sem víðast í bæn- um. Katrín átti sæti í framfærslu- nefnd. Barðist hún ötullega fyrir því að framfærslustyrkurinn yrði hækkaður því hann var þá svo lágur að hann dugði alls ekki fyrir brýnustu nauðþurftum. Ótelj- andi voru þau mál, sem hún lét til sín taka í bæjarstjórn, en þau verða ekki frekar tíunduð hér. Árið 1933 var Katrín kosin for- maður nefndar, sem A.S.V. (Al- þjóðasamhjálp verkalýðsins) kaus til að setja á stofn og starf- rækja sumarheimili fyrir fátæk Reykjavíkurbörn. Fyrst og fremst vegna dugnaðar og áhuga hennar komst slíkt heimili upp og hlaut það nafnið Vorboðinn. Þar nutu börn ókeypis dvalar 3-4 vik- ur á sumri og starfaði hún þar af lífi og sál meðan henni entust kraftar. Katrín starfaði nokkuð í Kven- réttindafélaginu og hafði mikinn áhuga á þeim málum. Átti hún oft sæti á þingum. Kvenfélaga- sambands fslands og á landsfund- um Kvenréttindafélags íslands. Hún var mikil jafnréttiskona og þreyttist aldrei á að örva konur til að afla sér menntunar og þekk- ingar á sem flestum sviðum. Hún áíeit það fyrsta skilyrðið til þess að þær gætu gert sig gildandi sem jafnokar karla og notið trausts og álits í störfum sínum. Hún var mjög vel ritfær og ritaði margar greinar í blöð og tímarit en þó mest um sérmál kvenna. Smá- sögur skrifaði hún einnig og þýddi nokkuð úr erlendum mál- um. Þeir, sem unnu með Katrínu hafa allir sem einn borið henni gott orð. Áhugi hennar og ósér- hlífni á þeim verkefnum, sem hún tók sér fyrir hendur var með ein- dæmum. Hún var samvinnuþýð og reyndi að koma sínum málum fram með lipurð og hógværð en hélt þó fram skoðunum sínum með einurð og festu. Ég hef hér aðeins dregið upp fátæklega drætti um iíf og störf þessarar stórbrotnu konu, sem á engan hátt gefa nógu skýra mynd af fjölþættu starfi hennar. Hún hafði átt við vanheilsu að stríða í mörg ár en barðist samt sem hetja, fyrst við að halda heimiiinu saman og svo fyrir rétti annarra. Við sem lifum á tímum allsnægta, eigum erfitt með að skilja hvílíka baráttu hún hefur þurft að heyja til að halda heimilinu saman án styrkja eða nokkurrar utanað- komandi hjálpar. En minningin um Katrínu mun lifa í hugum barna hennar, barna- barna og vina, sem voru svo lán- söm að fá að kynnast henni. Því það sem einkenndi þessa stór- brotnu konu hvað mest var mannkærleikur, hún var stöðugt að berjast fyrir betra og fegurra lífi. Ekki bara fegurra lífi handa sér og sínum heldur vildi gera það auðugra fyrir alla en þó sérstak- lega þá, sem minnst máttu sín. Börn Katrínar og Þórðar sem upp komust eru: Sæmundur, múrarameistari (dáinn), kvæntur Bergrósu Jónsdóttur, Kári, raf- virkjameisíari, kvæntur Kristínu Elínu Theódórsdóttur, Margrét, gift Guðjóni Jónssyni, trésmið (dáinn) Þóra, Guðrún Sigríður gift Þorgrími Friðrikssyni, kaup- manni (dáinn), Hlíf, hjúkrunar- fræðingur (dáin), Elín (dáin) gift Gunnari Helgasyni, rafvirkja, Haraldur Páll, stýrimaður, kvæntur Ingibjörgu Kristjáns- dóttur, Þórunn, náttúrufræðing- ur, gift Odd Didriksen, mennta- skólakennara. Sigurrós Þorgrímsdóttir tók saman. (Stuðst m.a. við ÆVIMINNINGA- BÓK Menningar og minningarsjóðs kvenna útg. 1955.) VIÐHORF Að byggja framb'ð á slumpareikningi eða: Á að leggja landbúnað niður á grundvelli ágiskana? Gunnlaugur Júlíusson skrifar Markús nokkur Möller, hag- fræðingur hjá Seðlabanka íslands hefur ritað grein í Stefni, blað ungra Sjálfstæðismanna, þar sem hann setur fram hugleiðingar um búvöruverð og fleira. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að „í fljótu bragði virðist sennilegt að hægt væri að lækka heildsöluverð hefðbundinna búvara um tæp- lega tvo þriðju og spara ríkissjóði og neytendum allt að 9 milljörðum með einu pennastriki yfir núgildandi innflutnings- bann.“ Ástæða þess að ég sting niður penna út af fyrrgreindri grein er að með þessa niðurstöðu höfund- ar hefur verið farið eins og ein- hverja opinberun af himnum af ýmsum fjölmiðlum, s.s. ríkisút- varpi og sjónvarpi ásamt DV. Nú er eðlilegt að DV grípi allt það fegins hendi sem úr þessari átt kemur eins og landið liggur á þeim bæ. Hitt er allt annað mál þegar ríkissjónvarpið tekur langt viðtal við höfund í fréttatíma þann 8. júní, þrátt fyrir að aumingja maðurinn hafi í viðtal- inu varla átt nógu sterk orð yfir hve miklar ágiskanir þetta væru hjá sér og ekkert að marka niður- stöðurnar. Það er ljóst af þessu hvaða vindar blása á fréttadeild sjónvarpsins og er það sýnu al- varlegra en tuðið í DV, þar sem um hlutlausa ríkisstofnun á að vera að ræða. DV vitnar síðan í fyrrnefnda grein þann 20. júní eins og þar sé um grundvallar- rannsóknir að ræða á viðfangs- efninu. Ágiskanir og getgátur Eftir að hafa lesið fyrrgreinda ritsmíð, þá veit maður varla hvaðan á sig stendur veðrið. Eigi sjaldnar en 9 (níu) sinnum er tekið fram að um ágiskanir sé að ræða í meðferð forsendna og talna. Ágiskun þýðir samkvæmt orðabók Menningarsjóðs: „get- gáta“, „tilgáta“. I viðbót er í greininni allt mor- andi af fyrirvörum eins og eftir- farandi upptalningsýnir: „byggð- ar á lauslegu mati“, „fyrstu lausleg riss“, „með því að slumpa á“, „draga 10% frá út í loftið“, „má giska á“, „um afar lauslegt mat að ræða“, „hér er sem sé giskað á“, „eftirfarandi slumpa- reikningur“, „með sömu vanvirð- ingu og áður“, „með endalausum fyrirvörum", „óvissan í út- reikningunum gríðarleg“, „með endurteknum fyrirvörum", „allar tölur og áætlanir hér að ofan eru fyrstu riss“. „Málflutningur sem byggir álauslegu mati, ágiskunum og slumpreikningum og stefnir að því að leggja landbúnað nið- ur hérlendis og veikja þar með undirstöður þjóðfélagsins, erekki . rökræða heldur trú- arbrögð. “ Það er engu líkara en höfund- urinn sé ekki alveg viss um að þetta sé rétt sem hann er að reikna. Alls eru hér taldir upp að framan 22 (tuttugu og tveir) fyrir- varar höfundar á því sem hann er að setja fram og þeir ekki af veikara taginu. Ef eitthvað er eru fyrirvararnir fleiri en fullyrðing- arnar. Eru þetta vinnubrögð sem eru tekin góð og gild í áætlanagerð innan Seðlabanka íslands? Bygg- ist fagvinna hagfræðinga innan Seðlabanka íslands á ágiskunum, endalausum fyrirvörum og slumpareikningum? Fyrst þessar vinnuaðferðir eru viðhafðar þeg- ar færð eru rök fyrir þvf að hag- kvæmt sé að leggja niður land- búnað á íslandi, hvernig eru þá vinnubrögð við hin smærri og veigaminni verkefni? Nú er eðlilegt og heiðarlegt að menn hafi fyrirvara á sinni fram- setningu ef þeir eru ekki nægjan- lega öruggir með frumheimildir, en þegar höfundur getur ekki nógsamlega undirstrikað og áréttað hvað getgáturnar séu miklar, þá er orðin spurning hvort ekki sé betur heima setið en af stað farið. Þorvaldur Gíslason, prófessor í hagfræði við Háskóla íslands, byggði sína röksemdafærslu fyrir því að leggja niður kartöflurækt hérlendis á orðunum „Kaup- menn hafa sagst mundu...“. Markús Möller giskar, slumpar, rissar og metur. Hvar eru staðreyndirnar? Hvar er raunveruleikinn? Hvers vegna þarf að viðhafa slík vinnu- brögð? Er röksemdafærslan ekki sterkari en þetta eða þekkingin ekki víðtækari á viðfangsefninu? Hverjum er verið að þjóna? Rökræða ekki möguleg Ég fer ekki nánar út í að rök- ræða við Markús Möller um ein- stök atriði í grein hans eða efnis- tök, það er ekki mögulegt þar sem oft er erfitt að geta sér til um á hvað hann er að giska. Rök- ræða er ekki möguleg við menn sem byggja mál sitt á ágiskunum Framhald á bls. 9 Þriðjudagur 27. júní 1989 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.