Þjóðviljinn - 04.07.1989, Síða 7
IÞROTTIR
1. deild
Mótið enn nokkuð jafnt
Deíldin er jöfn og opin þótt Valur hafi þriggja stigaforskot.
Framarar sex stigum frá toppnum eftir tap í Frostaskjóli
Að sjö umferðum loknum í 1.
deild karla er staðan enn mjög
jöfn og í raun lítið hægt að spá um
framgang mála á næstunni. Mest-
ur er stigamunurinn á toppnum
en þar hafa Valsmenn þriggja
2. deild
Úrslit
Völsungur-ÍBV 3-6
Selfoss-ÍR 1-0
Tindastóll-Leiftur 1-2
Einherji-UBK 3-2
Stjaman-Víðir 0-1
Staðan
ÍBV 6 5 0 1 16-8 15
Víðir 6 4 2 0 10-5 14
Stjarnan 6 4 1 1 17-7 13
Selfoss 6 3 0 3 6-7 9
Leiftur 6 2 2 2 5-7 8
UBK 6 2 1 3 12-11 7
Einherji 6 2 1 3 9-17 7
Tindastóll 6 1 1 4 7-11 4
ÍR 6 1 1 4 5-9 4
Völsungur .... 6 1 1 4 12-17 4
Sund
Aðeins eitt
íslandsmet
Ragnheiður Runólfsdóttir setti
eina íslandsmetið á Sund-
meistaramóti íslands sem fram
fór í Laugardalslauginni um helg-
ina. Það sætir tíðindum að aðeins
eitt met skuli líta dagsins Ijós á
móti sem þessu en venjulega
skipta þau tugum. Þess ber þó að
gæta að aðstæður voru ekki sér-
lega góðar og ekki er endalaust
hægt að bæta við íslandsmetum.
Ragnheiður setti íslandsmet í
400 metra fjórsundi, synti á
5.12,35 mínútum og sló þannig
eigið met. Hún vann einnig besta
afrek mótsins en það vann hún í
200 metra bringusundi. Að auki
vann sunddrottningin sigur í 100
metra bringusundi og 100 metra
baksundi.
Af öðrum sem stóðu sig vel á
mótinu má nefna Arnþór Ragn-
arsson sem vann sigur í þremur
greinum og Eðvarð Þór Eðvarðs-
son og Ragnar Guðmundsson
unnu til tveggja verðlauna hvor.
stiga forskot á næstu lið, sem eru
lið Skagamanna og KR-inga.
Þrjú stig verða fyótt að engu þeg-
ar illa gengur og því má segja að
baráttan sé mikii á toppnum sem
og annars staðar í deildinni.
KR-Fram...................1-0
Stórleikur sjöundu umferðar
var leikur KR og Fram sem
leikinn var í Frostaskjólinu á
sunnudagskvöld. Bæði Uð höfðu
10 stig fyrir Ieikinn og þarsem
Valur hafði náð 16 stigum var
mjög mikilvægt fyrir liðin að ná
þremur stigum úr þessari viður-
eign. Það gerðu KR-ingar og
skildu þannig íslandsmeistarana
eftir í miðri deild. Vesturbæing-
arnir voru nokkuð heppnir að
þessu sinni og áttu stigin þrjú
varla skilin. Þótt furðulegt megi
virðast léku Framarar einn sinn
besta leik á mótinu, sérstaklega í
síðari hálfleik þegar þeir nánast
yfirspiluðu KR-inga.
En það er ekki nóg að leika vel
úti á vellinum þegar engin skorast
mörkin. Fyrri hálfleikur var
markalaus og heldur tíðindalítill.
Strax í upphafi síðari hálfleiks
skoraði Pétur Pétursson eina
mark leiksins eftir að Þorsteinn
Þorsteinsson hafði misst knöttinn
á klaufalegan hátt. Björn Rafns-
son komst upp að endamörkum,
sendi á Pétur sem var óvaldaður í
markteig og skoraði auðveldlega.
Eftir markið komust Framarar
betur inn í leikinn og lá jöfnunar-
mark þeirra í loftinu allt þar til
slakur dómari leiksins, Eyjólfur
Ólafsson, flautaði til leiksloka.
Sóknir Framara hefðu þó mátt
vera markvissari því oft léku þeir
mjög vel allt að vítateig KR-inga
en komust ekki lengra. Skömmu
fyrir leikslok var Ragnar Mar-
geirsson felldur í dauðafæri innan
vítateigs en Eyjólfur lokaði
augunum fyrir vítaspyrnu. Um
sama leyti fékk Ríkharður „júní-
or“ Daðason einnig ákjósanlegt
marktækifæri en hitti knöttinn
illa og var langt frá því að skora.
KR-ingar fögnuðu stigunum
þremur innilega en Framarar
voru að vonum mjög óánægðir
með úrslitin. Það má segja Fram-
liðinu til hróss að samleikur leik-
manna var sérstaklega skemmti-
legur. En þótt liðið hafí marga
annálaða markaskorara í sínum
röðum gekk dæmið ekki upp að
þessu sinni. Fram er nú sex stig-
um á eftir Val en sú staða getur
breyst snögglega ef meistaramir
ná að leika eitthvað í líkingu við
síðasta ár. Pétur Arnþórsson átti
mjög góðan leik og var besti mað-
ur vallarins en aðrir vom nokkuð
jafnir.
KR verður greinilega í topp-
baráttunni í sumar en liðið leikur
mjög árangursríka knattspymu.
Vömin var sterk gegn Fram þótt
heppnin hafi einnig ráðið nokkru
þar um og sóknarmennimir Pétur
Pétursson og Björn Rafnsson em
mjög hættulegir með Rúnar
Kristinsson fyrir aftan sig. KR
hefur skorað flest mörk allra liða
í deildinni og er til alls líklegt.
Víkingur-ÍBK.............2-3
Nokkuð óvæntur sigur
Keflvíkinga sem átt hafa í mesta
basli það sem af er. Þeir hafa átt
erfitt með að skora mörk en á
laugardag skomðu þeir þrjú
mörk áður en Víkingar náðu að
svara fyrir sig. Kjartan Einarsson
skoraði eftir aðeins sjö mínútna
leik og skömmu síðar skoraði Óli
Þór Magnússon mjög glæsilegt
mark með því að vippa yfir Guð-
mund markvörð Hreiðarsson.
Rétt fyrir leikslok skoraði Jón
Sveinsson síðan þriðja markið og
úrslitin virtust nær ráðin.
Það munaði þó ekki miklu að
Víkingum tækist að jafna en
Andri Marteinsson skoraði tví-
vegis áður en yfir lauk. Síðara
markið skoraði hann beint úr
aukaspyrnu á mjög snyrtilegan
hátt.
Þessi þrjú stig eru
Keflvíkingum mjög mikilvæg í
komandi fallbaráttu. Þeir unnu
þarna sinn fyrsta sigur og haldi
Tommamótið
þeir áfram að berjast eins og ljón
eiga þeir alla möguleika á að
halda sér uppi í deildinni. Víking-
ar þurfa hins vegar að fara að
hugsa sinn gang eigi þeir ekki að
lenda í sömu fallbaráttunni og í
fyrra. Lið þeirra virðist nógu
sterkt til að halda sér uppi en það
hefst ekki nema með meiri bar-
áttu en á laugardag.
ÍA-FH.....................0-0
Markalaust jafntefli í jöfnum
og fjörugum leik. Bæði lið fengu
ákjósanleg marktækifæri en fóru
illa með þau og þurfa að sætta sig
við eitt stig úr þessari viðureign.
FH-ingar hljóta að vera nokkuð
ánægðir með þau úrslit því það er
jafnan erfitt að ná stigum á Skipa-
skaga.
Þór-Valur.................0-1
Sigur Valsmanna á Þórsurum
var nokkuð öruggur þótt þeir
næðu aðeins einu sinni að koma
boltanum í netið. Það gerði
markakóngur 1. deildar 1988,
Sigurjón Kristjánsson í upphafi
síðari hálfleiks. Gamli Þórsarinn
Halldór Áskelsson sendi knött-
inn þá frá hægri fyrir mark Þórs-
ara og eftir að þeim hafði mistek-
ist að hreinsa frá skaut Sigurjón í
slá og inn. Eftir þennan leik eru
Valsmenn efstir með 16 stig en
Þórsarar neðstir með 5 stig. Hinir
síðarnefndu verða að líkindum í
miklu basli á komandi vikum.
Víkingur og Fram unnu
Knattspyrnuhátfð yngstu kyn-
slóðarinnar, Tommamótið, var
haldið í Vestmannaeyjum um
helgina. Alls tóku um 800 peyjar
þátt í mótinu sem fór á allan hátt
vel fram.
Víkingur sigraði í keppni A-
liða. Liðið vann Fram í úrslitaleik
með þremur mörkum gegn einu.
Andri Ásgrímsson og Tryggvi
Björnsson skoruðu fyrir Víking í
fyrri hálfleik og Haukur Úlfars-
son bætti því þriðja við. Freyr
Karlsson minnkaði muninn fyrir
Fram en sigur Víkinga var ekki í i
hættu. KR hreppti þriðja sætið i
með 1-0 sigri á KA en ÍBK sigraði
IA 1-0 í keppni um fimmta sætið.
Fram lék einnig til úrslita í
keppni B-liða og sigraði þá KR,
5-3. Framarar komust í 3-0 fyrir
leikhlé og síðan 5-1 þannig að sig-
urinn var aldrei í hættu. Viðar
Guðjónsson skoraði fjögur
marka Fram og Birgir Sigurðsson
það fimmta. Guðmundur
Steindórsson skoraði tvö fyrir
KR og Guðni Þorsteinsson eitt.
Afturelding hafnaði í þriðja sæti
eftir 1-0 sigur á KA en FH vann
fimmta sætið með 4-1 sigri á
Fylki.
-þóm
Staðan
Valur 7 5 1 1 9-2 16
ÍA 7 4 1 2 9-6 13
KR 7 4 1 2 12-9 13
FH 7 3 2 2 7-7 11
Fram 7 3 1 3 6-7 10
KA 7 2 3 2 10-8 9
Víkingur. 7 2 1 4 11-9 7
Fylkir 7 2 1 4 7-13 7
ÍBK 7 1 3 3 7-12 6
Þór 7 1 2 4 5-10 5
Sálfræðingur óskast
Fræðsluskrifstofa Norðurlands eystra, Ráðgjaf-
ar- og sálfræðideild, óskar eftir sálfræðingi til
starfa frá 1. sept. n.k.
Nánari upplýsingar um starfið veita fræðslu-
stjóri, Trausti Þorsteinsson og forstöðumaður
sálfræðideildar, Már V. Magnússon.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist fræðslustjóra fyrir 15. júlí n.k.
Sérkennari
Stöður sérkennara við Starfsdeildirnar að
Löngumýri 9 og 15 eru lausar til umsóknar.
Upplýsingar veitir Trausti Þorsteinsson
fræðslustjóri í síma 2 46 55.
Breyting á skíptikjöruml. júU
Samkvæmt nýjum lögum um verðtryggingu, verða
bankarnir nú að breyta ákvæðum skiptikjarareikninga að
hluta. Það er gert á þann veg, að
verðtryggingarviðmiðunin gildir fyrir þann hluta
innstæðu sem staðið hefur óhreyfður heilt
samanburðartímabil.
Eftir sem áður munum við kappkosta að bjóða eigendum
skiptikjarareikninga bestu fáanleg kjör.
Alþýðubanklnn hf 0 lónaðaiDankinn
úo
op,
Útvegsbanki íslands hf
V/fRSLUNRRBRNKINN