Þjóðviljinn - 26.07.1989, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 26.07.1989, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRÉTTIR Snvé.tríkin Verkföll á enda Tugþúsundum saman héldu sovéskir námamenn til vinnu sinnar í gærmorgun og virðist því sem lengstu og alvarlegustu vinnudeilu frá því á bernsku- dögum Sovétríkjanna sé lokið. En ekki er ein báran stök þar eystra því í gær fylktu Georgímenn liði og gengu um götur Tbílísí annan daginn í röð og kröfðust sjálf- stæðis lýðveldisins. Embættismaður í Donbass í Úkraínu, helsta kolanámusvæði Sovétríkjanna, skýrði frá því að námamenn í Dónetsk hefðu snú- ið til vinnu í gærmorgun. Nikolaj Ryzhkov forsætisráðherra hefði sent þeim kveðju og heitið að ganga að þorra krafna þeirra. „Aðaltorgið er alveg autt. Þeir héldu allir til vinnu í rnorgun," sagði embættismaðurinn í símtali við Reuter. Aðaltorgið í Dónetsk var helsti samkomustaður verk- fallsmanna. Starfsmaður á náma- svæðinu staðfesti þetta, nám væri hafið í öllum kolanámum við Dónetsk. Georgíumenn héldu í gær uppteknum hætti frá því í fyrra- dag, gengu þúsundum saman um götur Tbílísí og kröfðust sjálf- stæðis lýðveldisins. Georgíu- menn héldu sérstakan sorgardag í gær til minningar um landa sína sem fallið hafa í valinn í átökum við Abkhaza. Mótmælendur veifuðu svart/hvítum fánum hins skammlífa Georgíuríkis sem inn- limað var í Sovétríkin 1921. í Moskvu er mikið bollalagt hvaða afleiðingar verkföll kola- námamanna muni hafa fyrir um- bótastefnu Míkhaíls Gorbatsjovs og félaga. Er það mál manna að þótt þau verði stjórnvöldunum dýrkeypt reynsla hafi þau hleypt nýju blóði í perestrojku. Og þótt Gorbatsjov hafi þurft að þræða einstigið milli hagsmuna ríkis og verkamanna í vinnudeilunni þá hafi hann ekki beðið skipbrot einsog fjendur hans í flokki og skrifræði. Þvert á móti. „Verkföllin voru áfall fyrir efnahagslífið en algjört reiðar- siag fyrir skriffinnskubáknið,“ sagði Viktor Losjak, aðstoðarrit- stjóri Moskvufrétta, í gær. Breytingar þær sem Margrét Thatcher gerði á ríkisstjórn sinni í fyrradag eru þær róttæk- ustu á miðju kjörtímabili frá því hún varð forsætisráðherra 1979. Þær hafa mælst vel fyrir í röðum íhaldsmanna sem gera sér vonir um að ný andlit og nýtt blóð stem- mi stigu við fylgistapi flokksins. Nýr formaður íhaldsflokksins, Kenneth Baker, sagði að breytingarnar myndu hvessa klær ríkisstjórnarinnar. Almennt eru íhaldsmenn undrandi á því hve viðamiklar breytingarnar eru en „Vinnudeilurnar hafa orðið vatn á myllu umbótanna og Gorbat- sjov getur notfært sér það. Verkamenn hafa blásið nýju lífi í áætlun sem var komin að fótum fram.“ Ýmsir spá því að Gorbatsjov muni sæta færi og ganga á milli bols og höfuðs á óvinum sínum í stjórnmálaráði flokksins og víðar, mönnum á borð við Jegor Lígatsjov, Lev Zaíkov og Viktor Tsjerbítskíj. íhaldsmenn hafa reynt að færa sér verkföllin í nyt segjast sáttir við þær því flokkur- inn verði að snúa vörn í sókn þar sem hann hafi sjaldan verið jafn óvinsæll og nú. Ósætti um stefnu gagnvart Evrópubandalaginu, vaxandi verðbólga og hækkandi vextir, vinnudeilur í iðnaði og víðar, um- deild nýmæli í heilbrigðisþjón- ustu og áætlanir um einkavæð- ingu vatnsveitunnar, allt stuðlaði þetta að því að íhaldsflokkurinn fékk skell í kosningunum til Evr- ópuþingsins í fyrra mánuði og má muna sinn fífil fegri í fylgiskönn- með því að kenna perestrojku um vöru- og matvælaskort en enginn ljær þeim eyra. „Verkamenn láta ekki blekkjast af þessurn áróðri. Enda hafa þeir sýnt að þeir eru þess umkomnir að skipuleggja eigin baráttu gegn skrifræðinu fyrir raunverulegum umbótum," er haft eftir Anatólíj Rybakov, höfundi „Arbat-barnanna“, róm- aðrar skáldsögu um stalínstím- ann sem selst hefur í risaupp- lögum. Reuter/ks unum. Það kom á óvart að John nokk- ur Major skyldi skipaður utan- ríkisráðherra í stað Sir Geoffrey Howe sem verður varamaður Thatchers og leiðtogi íhalds- manna í fulltrúadeild þingsins. Major var ekki í sviðsljósinu fyrir umskiptin, hægri hönd Nigels Lawsons fjármálaráðherra og sá um að halda útgjöldum ríkissjóðs í lágmarki. Einsog margir skjól- stæðinga Thatchers er hann ekki hefðbundinn yfirstéttar „toríi“ heldur fyrrum byggingaverka- England Erfingi útnefndur Thatcher stokkar spilin oggefuráný íkjölfarfylgistaps íhaldsflokksins Kúba Lausnarorðið er agi Kúbanskir ráðamenn kunna aðeins eittráð við útbreiðslu spillingar og glœpa: hert viðurlög og hertan aga. Alþýða manna er valdalaust vitni að innbyrðis uppgjöri œðstu manna Réttarhöldin, dauðadómar og aftökur Arnaldos Ochoas hershöfðingja og þriggja söku- nauta hans fyrir aðild að eitur- smygli kólómbískra kókaínbar- óna til Bandaríkjanna hafa valdið mikilli umræðu um útbreiðslu glæpa og spillingu á Kúbu. For- seti þjóðsamkomunnar, löggjaf- arþings Kúbana, Severo Aguirrc, og varnarmálaráðherra landsins og næstráðandi til sjós og lands, Raúl Kastró, hafa báðir viðrað þau viðhorf sín að herða þurfi viðurlög við dreifingu og sölu fíkniefna og hverskyns spiilingar- glæpum. Samkvæmt kúbönskum hegn- ingarlögum er refsað fyrir ofan- nefnd afbrot með 1-20 ára inni- lokun í fangelsi. Ochoa og félagar voru hinsvegar dæmdir af herfor- ingjum við herrétt sem fóru að herlögum. „Mál þar sem fjallað er um smygl og dreifingu fíkniefna heyra til undantekninga á Kúbu en ef við hertum viðurlög við spillingu er ég hræddur um að ansi margir yrðu lokaðir á bak við lás og slá um lengri eða skemmri tíma“, hefur Reuter eftir emb- ættismanni í Havana sem ekki vill láta nafns síns getið. „Vandinn er sá að þótt við getum státað af miklum þjóðfélagslegum fram- förum þá er spillingin gífurleg, allt frá svartamarkaðsbraski með smotterí og þjófnuðum á eigum ríkisins uppí allsherjar misnotk- un valds hið efra þar sem hver skarar eld að sinni köku.“ Kvikmyndaskáld og ákafur byltingarsinni, að sögn Reuters, staðhæfir að á Kúbu sé skortur á öllu en um leið sé allt fáanlegt, í ríkisverslunum glotti auðar hillur framaní viðskiptavini en svarta- markaðsbraskarinn geti orðið þeim úti um hvaðeina sem hann skorti. „Það er ekkert leyndar- mál hér að húsamálning er ófáan- leg í byggingarvöruverslunum en auðfengin á svörtum markaði fyrir 35 pesos gallónið (c. 2.400 kr.). Og henni hefur örugglega verið stolið frá ríkinu. Sömu sögu er að segja af varahlutum í bif- reiðar og nánast allt sem nöfnum tjáir að nefna.“ Fídel Kastró forseti hefur árum saman lagt sig fram um að upp- ræta spillingu, reynt að höfða til Arnaldo Ochoa, bugaður maður, fyrir herrétti í beinni sjónvarpsút- sendingu. hins betri manns í þegnum sínum og skara í glæður byltingareld- móðsins. í ræðu sem hann flutti 1986 sagðist hann vera orðinn áhyggjufullur vegna miður æski- legra tilhneiginga sem farið væri að gæta í fari þjóðarinnar, svo sem agaleysis, ábyrgðarleysis og spillingar. „Við verðum að vinna bug á þessu áður en þetta verður að þjóðarmeini.“ En afdrif Ochoas (fyrrum þjóðhetju á Kúbu og náins vinar Kastrós frá því á dögum bylting- arinnar) og annarra sakborninga hafa beint sjónum landsmanna að valdahópnum eða „byltingar- aðlinum" sem svo er nefndur. Óvenju hreinskilin grein í mál- gagni hersins, Verde Olive, benti nýverið á eitt afsprengi hinnar kúbönsku nómenklatúru, spillt og ofdekruð börn háttsettra manna eða hin svonefndu „ninos papas“. Hermt er að þetta unga fólk kæri sig kollótt um fábreytt og fórnfúst líferni í anda byltingar- innar og sé hvergi nærri jafn frá- bitið hofmóði og drembilæti og æskilegt geti talist. „Alþýða manna hefur þær hugmyndir um þessi ungmenni að þau aki um í embættisbifreiðum feðra sinna, klæðist erlendum tískufatnaði og eigi nýjustu hljómflutningstæki. Það er ennfremur almannarómur að fæst þeirra hafi orðið að gegna herþjónustu og berjast í Ang- óla.“ En Kastró og félagar virðast fá bjargráð kunna önnur en að herða aga og viðurlög og reka áróður fyrir „hreinleika bylting- arinnar". Sjálfir lúra þeir á alræð- isvaldi einsog ormur á gulli og efnahagslífið er ekki uppá marga fiska. Og hvorki bólar á glasnosti né perestrojku. En hætt ervið því að þolinmæði almennings þrjóti fyrr en síðar fái hann ekki að hafa hönd í bagga með þróun þjóðfé- lags sem hann stjórnar í orði kveðnu. Fólk veit sem er að Oc- hoa var aðeins hin opinbera ásýnd spillingarinnar, ekki spill- ingin sjálf. Reuter/Information/ks Pólland Walesa vill umboð Walesa hvetur Jaruzelskí til þess að fela Samstöðu myndun ríkisstjórnar Lech Walesa, leiðtogi Sam- stöðu, gekk á fund Wojciechs Jar- uzelskís, forseta Póllands, í gær og hvatti hann til þess að fela sam- tökum sínum að mynda ríkis- stjórn. En hann sagðist jafnframt ekki eiga von á því að Kommúnista- flokkurinn féllist á að Samstaða tæki við valdataumum, að minnsta kosti ekki enn sem kom- ið væri. Hann bætti því við að hann myndi ekki bregða fæti fyrir þá félaga samtaka sinna sem féll- ust á að taka sæti í ríkisstjórn sem lyti forræði Kommúnistaflokks- ins, svo fremi þeir gerðu það ekki í nafni Samstöðu. Að fundi ioknum kvaðst Wa- lesa hafa tjáð forsetanum að bregðast þyrfti skjótt við og mynda ríkisstjórn sem væri í stakk búin til þess að takast á við þá djúptæku kreppu sem þjakaði landsmenn, bæði í þjóðlífi og efnahagslífi. Samstaða hefði unn- ið glæsilegan sigur í þingkjörinu í fyrra mánuði, þjóðin treysti sam- tökunum til þess að fara með völdin og því bæri að fela þeim að mynda ríkisstjóm. Reuter/ks maður og atvinnuleysingi sem hætti námi 16 ára gamall en braust til auðs og áhrifa. Hann er 46 ára gamall. Fréttaskýrendur segja augljóst á skipun hans í embætti utanríkisráðherra að Thatcher hefur tekið ástfóstri við hann og hyggst búa svo um hnúta að hann erfi ríki sitt. Reuter/ks Mexíkó Skuldar- sættir Lánardrottnar sam- þykktu aðfella niður 35 % skuldar Mexíkó- stjórnar Samningar tókust með Mex- íkóstjórn og helstu lánardrottn- um hennar á sunnudag um nýja greiðsluskilmála og niðurfeliingu hluta skuldarinnar. Mexíkó er eitthvert skuldugasta ríki heims (erlendir bankar áttu fyrir samn- ing rúma 50 miljarða dollara hjá Mexíkóstjórn) en jafnframt i hópi hinna fátækustu, hagvöxtur hef- ur verið lítill sem enginn á þcssum áratug. Samningaviðræður Mexíkó- manna og lánardrottna þeirra höfðu staðið óslitið í þrjá mánuði og verið mjög strangar. Stjórnvöld höfðu farið þess á leit við skuldareigendur að þeir féll- ust á að fella 55% upphæðarinnar niður en bankarnir boðið 15%. Samningar tókust um 35%. Þetta er í fyrsta skipti að lánar- drottnar fallast á að gefa ríkis- stjórn í þriðja heiminum upp svo stóran hluta skuldar. Forseti Mexíkó, Carlos Salinas de Gort- ari, var ánægður með niðurstöð- una: „Mexíkómenn hafa nú lagt skuldakreppuna að baki. Þetta er stór stund í sögu Mexíkó." Reuter/ks 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 26. júlí 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.