Þjóðviljinn - 26.07.1989, Síða 12
Sigríður Sæmundsdóttir
ræstitæknir:
Það eru 50 þúsund krónur á mánuði fyrir
fjögurra herbergja íbúð sem mér finnst
vera glæpsamlega há upphæð. Þessu
þarf auðvitað að breyta en hvernig veit
ég ekki.
Guðrún Agnarsdóttir
þingmaður:
Ég kann ekki að nefna ákveðna upp-
hæð en þær tölur sem ég hef heyrt al-
mennt nefndar eru yfirleitt ekki í sam-
ræmi við laun fólks. Þær eru alltof háar
og stafa ma. af skorti á félagslegum
íbúðum sem verður að bæta úr.
P^SPURNINGIN’"
Hvað er hæsta húsa-
leiga sem þú hefur heyrt
um?
þiómnuiNN
Miðvikudagur 26. jglf 1989 128. fölublað 54. örgangur
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Þórunn Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur:
Ætli það sé ekki rúmar 50 þúsund krón-
ur á mánuði fyrir fimm herbergja íbúð og
svo virðist sem lítill munur sé á leigu
stórra sem lítilla íbúða. Ég hef ekki lausn
á reiðum höndum en þessu þarf að
breyta hið fyrsta með einhverjum
ráðum.
„Eg keppi til að sigia“
segir Sigurbjörn Bárðarson, stigahæsti knapinn á íslandsmótinu
Rögnvaldur Pétursson
viðskiptafræðingur:
Það mesta sem ég hef heyrt um eru 45
þúsund krónur á mánuði fyrir þriggja
herbergja íbúð. Lausnin á þessu er ma.
fólgin I því að hraða byggingu
kaupleiguíbúða auk þess að fjölga stú-
dentagörðum hér í höfuðborginni.
Rúnar Þór Pétursson
tónlistarmaður:
Það hæsta sem ég hef heyrt um eru 45
þúsund krónur á mánuði fyrir tvö lítil
herbergi og eldhús. Til lausnar gæti ver-
ið að byggja margar kaupleiguíbúðir.
Islandsmótið í hestaíþróttum,
hið tólfta í röðinni, var haldið í
Vindási við Borgarnes um helg-
ina. Mót hestamanna eru núorðið
haldin til muna oftar en áður var,
enda eru hestamenn farnir að
kunna vel til verka við skipulagn-
ingu - bæði móta og aðstöðu við
kcppnissvæði.
„Þetta var vel heppnað mót,“
sagði Sigurbjörn Bárðarson, sem
hlaut margan sigur á þessu móti
sem oft áður. „Tímasetningar
standast núorðið í aðalatriðum
og mótssvæðið hjá Borgnesingun-
um var frábærlega gott. Það er
kominn á þetta stórmótsbragur,
menn taka þetta alvarlega. Þetta
var hörkuvelskipulagt.“
Sigurbjörn var ekki einn um að
ríða hrossum sínum upp í verð-
launasæti, enda fjölgar stöðugt
keppnis- knöpum á íslandi. Rúna
Einarsdóttir tamningamaður var
áberandi á mótinu, sigraði í tölti á
glæsihryssunni Dimmu frá Gunn-
arsholti á Rangárvöllum. „Það er
gaman að keppa á móti þessu
unga fólki,“ sagði Sigurbjörn.
„Þau taka starf sitt alvarlega. Þau
eru vel til fara, hrossin þeirra eins
vel hirt og kostur er - þetta eru
atvinnumenn, hörkufólk sem
hefur jafnframt mikla reynslu.
Hún Rúna var nú ekki að byrja á
þessu í gær. Hún er reyndur
knapi, öguð og einbeitt og þannig
hugarfar, þannig vinnubrögð
skila sér.“
Margt býr
í hestinum
Blaðamaður hafði það á til-
finningunni mótsdagana í Borg-
arnesi að fslenskir hestar væru
gerbreyttir, orðnir allir aðrir en
fyrrum þegar smalamenn riðu til
fjalls vor og haust.
„Það er rétt,“ sagði Sigur-
björn. „Ræktunin hefur skilað
okkur betri hestum. Breiddin er
orðin miklu meiri en fyrrum. Og
ræktunin hefur einnig laðað bet-
ur fram á eiginleika sem auðvitað
hafa alla tíð búið í hrossinu."
Börnin áberandi
Daníel Jónsson, ungur meist-
araknapi úr Reykjavík sigraði í
barnaflokki í tölti á hesti sínum,
Geisla. Daníel sigraði einnig í
skeiði í unglingaflokki, reið þá
hryssunni Glettu.
Hjörný Snorradóttir varð
stigahæst knapa í unglingaflokki.
Sigurbjörn Bárðarson sigraði í
fjórgangi fullorðinna og varð
jafnframt stigahæstur allra knapa
á mótinu.
„Ég berst eins og ljón í hverri
keppni," sagði Sigurbjörn, þegar
blaðamaður spurði hvort unglið-
unum í hestaíþróttinni myndi
ekki bráðum takast að þoka hon-
um til hliðar. „Unga fólkið stend-
ur sig vel og það er heiður að því
að keppa við það. En ég fer ekki í
keppni til annars en að sigra. Svo
spyr maður bara að leikslokum."
Evropumót næst
Næsta stórmót hestamanna
verður á Hellu um næstu helgi.
Þar verða eflaust margir þeirra
sem kepptu í Borgarnesi. Sigur-
björn hefur hinsvegar sett stefn-
una á Jótland, þar verður haldið
Evrópumeistaramót í hestaí-
þróttum þeirra sem eiga íslenska
hesta og Sigurbjörn er f íslenska
landsliðshópnum. Að sjálfsögðu.
„Ég er hvergi banginn,“ sagði
Sigurbjörn. „Ég ætla mér að
vinna. Eins og jafnan áður. Svo
sjáum við bara til.“
-GG