Þjóðviljinn - 10.08.1989, Qupperneq 3
Útgáfa
Dagur fær
greiðslu-
stöðvun
Offjárfestingar að ríða
rekstri Dags og Dags-
prents á slig
Akureyrsku fyrirtaekin Dagur
og Dagsprent hafa sótt um og
fengið greiðslustöðvun í þrjá
mánuði. Að sögn forsvarsmanna
fyrirtækjanna eiga þau í crfið-
leikum sem rekja má til offjárfest-
inga, einkum í 1.600 fermetra ný-
byggingu sem reist var við
Strandgötu á Akureyri á tímum
góðærisins. Rekstur dagblaðsins
Dags hefur hins vegar staðið
undir sér það sem af er árinu.
í frétt frá stjórnum fyrirtækj-
anna segir að hallinn á rekstri
þeirra hafi verið 19 miljónir
króna á síðasta ári og réð þar
mestu að fjármagnskostnaður
var 25 miljónir. Á þessu ári hefur
prentsmiðjan haldið áfram að
tapa en rekstur blaðsins stóð í
járnum að fjármagnskostnaði
greiddum.
Að sögn Braga V. Bergmanns
ritstjóra Dags var gripið til ýmiss
konar hagræðingar í rekstri
blaðsins í fyrrahaust og hafa þær
skilað árangri. „Við höfum gert
það sem við getum og það stend-
ur ekki til að gera neinar frekari
breytingar á útgáfunni,“ sagði
Bragi. Dagur er eina dagblaðið
sem kemur út utan Reykjavíkur.
Bragi sagði það skoðun útgef-
enda að fjögurra ára reynsla af
útgáfu dagblaðs á Akureyri sýndi
að grundvöllur væri fyrir henni.
Hörður Blöndal framkvæmda-
stjóri Dags sagði að greiðslu-
stöðvunin gæfi svigrúm til að
huga að sölu eigna en það væri
eina leiðin út úr vandanum. „Við
stöndum í viðræðum við Prent-
verk Odds Björnssonar um að
sameina prentsmiðjurnar og er
góður vilji fyrir því á báða bóga.
En ef svo fer verður til eitt fyrir-
tæki sem einnig þarf að glíma við
offjárfestingu. Það þarf því eftir
sem áður að losa um eignir,“
sagði Hörður.
Fyrirtækin hafa boðið Byggð-
astofnun nýbygginguna við
Strandgötu til kaups en stofnun-
ina vantar húsnæði undir útibú
sitt á Akureyri. Stofnunin hefur
hugleitt að byggja en það telur
Hörður óráðlegt. „Það er engin
glóra í því að bæta enn einu stór-
hýsinu við hér á Akureyri. Hér
hefur verið offramboð á atvinnu-
húsnæði síðan verksmiðjur Sam-
bandsins voru fluttar suður og
sameinaðar Álafossi,“ sagði
Hörður Blöndal.
Stjórn Byggðastofnunar hefur
fjallað um tilboð fyrirtækjanna
en ekki tekið afstöðu til þess
hvort hún kaupir húsið. _|>j|
Vestur-Landeyjar
Hrepps-
nefnd
áfrýjar
Hreppsnefnd Vestur-Land-
eyjahrepps samþykkti nýlega að
áfrýja dómi sem féll 20. júní sl.
um að hreppsnefndin hafi glatað
rétti sínum til að neyta fork-
aupsréttar á jörðinni Eystri-Hól.
Hreppsnefndin tapaði málinu
m.a. vegna þess að hún sinnti
ekki rannsóknarskytdu sam-
kvæmt stjórnsýslurétti og byggði
ákvörðun sína um að neyta for-
kaupsréttar á sögusögnum.
Eggert Haukdal oddviti
hreppsnefndar sagði í samtali við
Þjóðviljann, að hann teldi eðli-
legt að mál þetta færi lengra, en
vildi að öðru leyti ekki segja neitt
um málið. ns.
FRETTIR
Alþjóða samskipti
Greitt fyrir útflutningi til Mexíkó
Ólafur Ragnar Grímssonfjármálaráðherra beitti sérfyrir útflutningi héðan til Mexíkó íför sinni
þangað. Rœddivið Carlos Salinas, forseta Mexíkó, um nœsta skref í afvopnun á höfunum
r
Olafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, er nýkominn
frá Mexíkó. Aðal erindi ráðherr-
ans var að ræða næsta skref varð-
andi afvonun kjarnorkuveldanna
á höfunum, en Olafur er forseti
Alþjóðlegu þingmannasamtak-
anna sem beitt hafa sér fyrir nýj-
um leiðum í afvopnun. Þing-
mannasamtökin stuðluðu meðal
annars að samfloti „ríkjanna sex“
sem þrýstu á stórveldin um af-
vopnun og talið er að hafi haft
einhver áhrif á jákvæða niður-
stöðu Reykjavíkurfundarins í
Höfða.
Á Stöð 2 hefur það verið gert
að umtalsefni að íslensk
stjórnvöld greiddu tvo þriðju af
ferðakostnaði fjármálaráðherr-
ans til Mexíkó. Ólafur sagðist
enda hafa eytt tveimur þriðju
ferðarinnar í erindrekstur fyrir ís-
lenska hagsmuni. Fjármálaráðu-
neytið hefur sent frá sér greinar-
gerð um ferð Ólafs og birtist hún
hér í heilu lagi.
fslensk fyrirtæki sem framleiða
vélar og tæki og selja markaðs-
ráðgjöf og framleiðsluþekkingu í
sjávarútvegi geta á næstu árum
þróað nýjan markað fyrir útflutn-
ing frá lslandi til Mexíkó. f við-
ræðum sem Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra átti
við stjórnvöld í Mexíkó var
ákveðið að kanna til hlítar opnun
á nýjum íslenskum útflutnings-
markaði í Mexíkó. Ríkisstjórn
Salinas forseta Mexíkó hefur gert
þróun sjávarútvegs að forgangs-
verkefni í atvinnumálum og er
reiðubúin að greiða fyrir stór-
felldum kaupum á vélum og ráð-
gjafarþjónustu frá þjóðum með
mikla reynslu í sjávarútvegi. Eftir
ítarlega athugun á upplýsingaefni
frá íslenskum útflutningsfyrir-
tækjum og íslenska sjávarútvegs-
ráðuneytinu sem fjármálaráð-
herra kynnti ráðherrum og emb-
ættismönnum í Mexíkó tilgreindu
stjórnvöld í Mexíkó sérstaklega 9
íslensk fyrirtæki sem áhugi væri á
að ræða við nánar um sölumagn,
verðlag, samstarfsskilmála og
önnur ákvæði langtíma viðskipt-
asamnings sem gerður yrði bæði
við stórar fyrirtækjasamsteypur,
einkafyrirtæki og opinbera at-
vinnuvegasjóði í Mexíkó.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra átti viðræður við
Carlos Salinas forseta Mexíkó,
Fernando Solana utanríkisráð-
herra, Jaime Serra ráðherra
utanríkisviðskipta og iðnþróun-
ar, Maria de los Angeles Moreno
sjávarútvegsráðherra, aðstoðar-
ráðherra og embættismenn í sjáv-
arútvegsráðuneytinu og utan-
ríkisviðskiptaráðuneytinu og auk
þess viðræður við forseta öld-
ungadeildar og fulltrúadeildar
þjóðþings í Mexíkó og forystu-
menn utanríkismálanefnda og af-
vopnunarnefnda þingsins. Fjár-
málaráðherra heimsótti einnig
tvö af sambandsríkjum Mexíkó,
ríkin Yucatán og Ouintana Roo á
austurströnd Mexíkó í boði ríkis-
stjórnar og ríkisstjóra þessara
ríkja.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
á undanförnum árum átt ítarlegt
samstarf við stjórnvöld í Mexíkó
vegna formennskustarfa í þing-
mannasamtökum Parliamentari-
ans Global Action. Tilgangur
viðræðnanna í Mexíkó nú í lok
júlí og byrjun ágúst var annars
vegar að nýta þau kynni og sam-
bönd sem skapast hafa á undan-
förnum árum til að reyna að opna
nýja útflutningsmöguleika fýrir
íslendinga og hinsvegar að ræða
um nokkur meginverkefni á sviði
afvopnunarmála.
Viðræður í Mexíkó fjölluðu
um þrjá meginþætti:
í för sinni til Mexíkó ræddi Ólafur Ragnar Grímsson m.a. við Salinas, forseta Mexíkó.
í fyrsta lagi að kynna þær iðn-
aðarvörur og ráðgjafarþjónustu
sem íslensk útflutningsfyrirtæki í
sjávarútvegi bjóða til sölu á er-
lendum mörkuðum.
í öðru lagi kynna þá stefnu ís-
lensku ríkisstjórnarinnar að af-
vopnun í höfunum verði eitt af
meginefnum í viðræðum um
fækkun og takmörkun kjarnork-
uvopna en Mexíkó hefur um ára-
raðir verið meðal helstu forystu-
ríkja við mótun afvopnunar-
stefnu á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna.
í þriðja lagi ræða alþjóðlegan
samning um allsherjarbann við
tilraunum með kjarnorkuvopn
sem þingmannasamtökin Parli-
amentarians Global Action hafa
unnið að á undanförnum árum,
Mexíkó hefur ásamt 40 öðrum
ríkjum gert slíkan samning að
stefnumáli sínu.
Nýr útflutnings-
markaður
í viðræðunum um að opna ís-
lenskan útflutningsmarkað í
Mexíkó voru lögð til grundvallar
kynningarrit íslenska sjávarút-
vegsráðuneytisins og Útflutn-
ingsráðs íslands, og upplýsinga-
efni frá ýmsum íslenskum fyrir-
tækjum. Af hálfu sjávarútvegs-
ráðuneytisins og utanríkisvið-
skiptaráðuneytisins í Mexíkó
kom fram sérstakur áhugi á að
kaupa vélar og tæki til frystingar
og geymslu á sjávarafurðum, að
gera samning um kaup á ráðgjaf-
arþjónustu við að skipuleggja
vinnslukerfi, vörudreifingu og
markaðskerfi fyrir sjávarafurðir,
bæði innan Mexíkó og í helstu
viðskiptaríkjum þess, að koma á
samvinnu um þróun fiskeldis, að
skipuleggja þjálfun starfsfólks í
sjávarútvegi, og gera að öðru
leyti langtímasamninga um kaup
á vörum. tæknikunnáttu og ráð-
gjöf frá Islandi. Slíkir samningar
yrðu gerðir við bæði opinbera at-
vinnuvegasjóði í Mexíkó, fyrir-
tækjasamsteypur og einkafyrir-
tæki. Eftir ítarlegar umræður og
kynningu á því sem íslensk fyrir-
tæki hafa að bjóða á þessum svið-
um tilgreindu fulltrúar ráðuneyt-
anna í Mexíkó sérstaklega 9 ís-
lensk fyrirtæki og fyrirtækjasam-
steypur, og óskuðu mexíkönsk
stjórnvöld eftir ítarlegum skýrsl-
um frá þessum íslensku fyrirtækj-
um og stjórnvöldum um búnað
og þjónustu, um verð, sölumagn,
afhendingartíma, greiðsluskil-
mála og önnur efnisatriði við-
skiptasamninga.
A fundi ríkisstjórnar íslands í
gær greindi fjármálaráðherra frá
þessum óskum stjórnvalda í Mex-
íkó og á næstunni munu utan-
ríkisráðuneytið, sjávarútvegs-
ráðuneytið og viðskiptaráðu-
neytið fá nánari greinargerð um
viðræðurnar auk þess sem óskum
stjórnvalda í Mexíkó verður
komið á framfæri við Útflutn-
ingsráð íslands og þau 9 íslensku
fyrirtæki sem stjórnvöld í Mexíkó
tilgreindu sérstaklega.
Afvopnun
í höfunum
Annar meginþáttur viðræðna
fjármálaráðherra í Mexíkó, sér-
staklega á fundum með Salinas
forseta og utanríkisráðherranum
Fernando Solana, var að kynna
þá áherslu sem ríkistjórn íslands
hefur á undanförnum mánuðum
lagt á nauðsyn alþjóðlegra samn-
inga um afvopnun á höfunum.
Vaxandi umferð kjarnorkukaf-
báta og vígbúnaðarkapphlaup á
höfunum ógna ekki aðeins friði
heldur skapa stórfellda hættu á
geigvænlegum umhverfisspjöll-
um eins og hinn mikli fjöldi
kjarnorkukafbátaslysa á undan-
förnum árum sýnir rækilega.
Mexíkó hefur í áratugi gegnt for-
ystuhlutverki á Afvopnunarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
Genf og við mótun ályktana um
afvopnunarmál á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna. Má í því
sambandi nefna að sendiherra
Mexíkó í afvopnunarmálum, Al-
fonso Garcia Robles, hlaut frið-
arverðlaun Nóbels fyrir nokkrum
árum. Forseti Mexíkó og utan-
ríkisráðherra lýstu miklum áhuga
á tillögum íslensku ríkisstjórnar-
innar um afvopnun á höfunum og
lýstu því yfir að Mexíkó mundi á
næstunni taka til sérstakrar at-
hugunar að veita afvopnun á
höfunum aukið vægi í viðræðum
ráðherra Mexíkó og embættis-
manna við önnur ríki.
Bann við
kjarnorkutiiraunum
Þriðji þáttur viðræðna Ólafs
Ragnars Grímssonar í Mexíkó
snerti það stefnumál samtakanna
Parliamentarians Global Action
að haldin verði formleg samning-
aráðstefna um allsherjarbann við
tilraunum um kjarnorkuvopn, í
samræmi við ákvæði samnings
um takmarkað tilraunabann sem
Kenndey og Krústjov gerðu árið
1963. Fyrir fjórum árum fóru
þingmannasamtökin þess á leit
við ríkisstjórnir Mexíkó og nokk-
urra annarra landa að þær gerðu
þessa kröfu um samninga að
stefnumáli sínu og samþykkti þá-
verandi ríkisstjórn Mexíkó að
taka ásamt fimm öðrum ríkjum
forystu í þessu máli. Samstarf
þingmannasmtakanna við þessi
sex ríki hefur nú leitt til þess að
rúmlega þriðjungur aðildarríkja
samningsins, eða rúmlega 40 ríki,
hafa formlega tilkynnt Banda-
ríkjunum, Sovétríkjunum og
Bretlandi að efna skuli til sér-
stakra samninga um allsherjartil-
raunabann. Kjarnorkuveldin eru
því samkvæmt ákvæðum samn-
ingsins frá 1963 orðin skuldbund-
in til að gangast fyrir slíkum
samningum um allsherjartil-
raunabann, en slíkt bann væri
áhrifaríkasta skrefið til að stöðva
kjarnorkuvopnakapphlaupið. í
viðræðunum nú við forseta Mex-
íkó og utanríkisráðherra var sér-
staklega rætt um næstu áfanga í
þessu máli, þar sem málið er nú
komið á nýtt stig, meðal annars
um undirbúning, tímasetningu og
skipulagningu hinnar alþjóðlegu
samningaráðstefnu. Sérstaklega
var fjallað um meðferð málsins á ;
fundi fulltrúa þeirra 40 ríkja sem j
óskað hafa eftir ráðstefnunni, en !
sá fundur verður haldinn í New i
York síðar í þessum mánuði, á
fundi leiðtoga bandalags óháðra
ríkja sem haldinn verður í Júgó-
slavíu í næsta mánuði, og á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
á komandi hausti.
Fjármálaráðuneytið,
9. ágúst 1989
Flmmtudagur 10. ágúst 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3