Þjóðviljinn - 12.09.1989, Qupperneq 6
ERLENDAR FRÉTTIR
Noregur
Tvísýnt um vinstrimeirihluta
Flokkarnir yst til hœgri og vinstri á norska þinginu unnu stærstu sigrana íþingkosningum ígær.
Verkamannaflokkurinn tapaði minna en spáð hafði verið. Hægriflokkurinn galt afhroð. Líkur á óbreyttri stjórn
Þegar um helmingur atkvæða
hafði verið talinn í norsku
þingkosningunum í gær vantaði
vinstriflokkana aðeins eitt þing-
sæti til að ná meirihluta. Sigur-
vegari kosninganna var hins veg-
ar Carl I. Hagen, leiðtogi Fram-
faraflokksins sem tífaldaði þing-
mannatölu flokksins.
Framan af kosningabaráttunni
var Framfaraflokknum spáð allt
að 20% atkvæða en þegar helm-
ingur atkvæða hafði verið talinn
hafði Hagen þrefaldað fylgi
flokksins. í kosningunum fyrir
fjórum árum fékk þessi fyrrver-
andi sykursölustjóri 3,7% at-
kvæða og tvo menn kjörna en nú
fékk hann 12% og 21 mann kjör-
inn.
Storsigur SV
Það kom hins vegar meira á
óvart hversu vel Sósíalíska
vinstriflokknum gekk í kosning-
unum. Flokkurinn hafði fengið
um 10% atkvæða þegar síðast
fréttist og 17 þingmenn en fyrir
fjórum árum fékk flokkurinn
5,5% atkvæða og 6 menn kjörna.
í kosningabaráttunni lagði flokk-
urinn höfuðáherslu á umhver-
fismál og er það talið valda mestu
um fylgisaukninguna. Umhver-
fismál voru ekki sérlega mikið á
dagskrá í kosningabaráttunni en
þó gerði Vinstriflokkurinn stíft út
á þá sem aðhyllast „græn“ mál-
efni. SV virðist hafa unnið
slaginn um hjörtu græningja því
Vinstri virtist ekki ætla að koma
manni að þótt því hefði verið
spáð fyrir kosningarnar.
Þessi velgengni SV nægir þó
ekki til þess að vinstriflokkarnir
tveir geti myndað meirihluta-
stjórn. Verkamannaflokkurinn
tapaði að vísu ekki eins miklu og
við hafði verið búist en þó hefur
gengi hans ekki farið eins lágt síð-
an í stríðslok. Flokkurinn hlaut
64 menn kjörna á þing, tapaði 7
frá síðustu kosningum.
Að viðbættum einum óháðum
þingmanni frá Finnmörk skorti
vinstriflokkana þvf aðeins einn
þingmann til að fá meirihluta eins
og staðan var að helmingi at-
kvæða töldum. Þingmönnum á
norska þinginu fjölgar nú úr 157 í
165 og því þarf 83 þingmenn til að
mynda meirihluta.
Óeining til hægri
Við því má þó búast að minni-
hlutastjórn Verkamannaflok-
ksins verði áfram við völd og Gro
Harlem Brundtland forsætisráð-
herra kvaðst í gærkvöldi reiðubú-
in til að halda áfram. Það eru
nefnilega taldar afar litlar líkur á
að borgaraflokkarnir komi sér
saman um að taka upp samstarf
við Hagen og hans lið. Bæði hafa
forystumenn flokkanna þriggja -
Hægri, Kristilega þjóðarflokks-
ins og Miðflokksins - verið óspar-
ir á yfirlýsingar um að Framfar-
aflokkurinn sé óhæfur til sam-
starfs, og auk þess galt stærsti
staðgreiðs
Erik Solheim, leiðtogi Sósíalíska vinstriflokksins, hefur ástæðu til að
vera brosmildur eftir kosningarnar því flokkur hans tæplega þrefaldaði
þingmannatölu sína.
borgaraflokkurinn, Hægri, af-
hroð í kosningunum, tapaði 13
þingsætum og hefur nú aðeins 37
menn á þingi. Hinir flokkarnir
töpuðu lítillega.
að kjósa Framfaraflokkinn en
konur á sama aldri. Hins vegar
ætluðu þrefalt fleiri ungar' konur
að kjósa SV en jafnaldrar þeirra
af karlkyni. Er þetta talið endur-
spegla það að konur hafi meiri
áhyggjur af því að vegið sé að
velferðarkerfinu en karlar og
þess vegna kjósi þær allt annað en
Carl I. Hagen.
Enn eru taldar litlar líkur á að
Hagen komist til áhrifa á stefnu
norsku ríkisstjórninnar næsta
kjörtímabil þótt hann sé í odda-
aðstöðu á þinginu. Hugmyndir
hans um verulegar skattalækkan-
ir og einkavæðingu velferðark-
erfisins eru of róttækar fyrir hina
borgaraflokkana.
A hinum vængnum vilja margir
túlka fylgisaukningu SV sem á-
minningu til Gro Harlem Brundt-
land um að láta af þeirri sókn inn
á miðjuna sem hún hefur staðið
fyrir síðustu þrjú árin. Kosning-
aúrslitin gætu orðið til þess að
hún fylgdi eindregnari vinstri-
stefnu næsta kjörtímabil, einkum
þó ef síðustu atkvæðin hafa fært
henni þennan eina þingmann sem
upp á vantar meirihlutann. Þá
væri staða SV orðin sterk því þá
verður Gro að semja við minnst
tvo af miðjuflokkunum til að fá
meirihluta.
Þátttaka í kosningunum var
mikil þótt ekki hafi legið fyrir
tölur um hana þegar blaðið fór í
prentun. -ÞH
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
oln0e..a
**2*&'**~-
W^
Launaðreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15, hvers mán-
aðar.
Ekki skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru greidd né
hvort þau eru greidd fyrirfram eða
eftirá.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum", blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
Gerið skil tímanlega
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
Konur til vinstri
- karlar til hægri
Þeir sem fylgjast með kosning-
ahegðun norskra kjósenda tóku
eftir því að sigurvegararnir tveir,
SV og Framfaraflokkurinn,
sækja fylgisaukningu sína að
verulegu leyti til yngri kjósenda
en þó með næsta ólíkum hætti.
Þannig kváðust helmingi fleiri
karlar á aldrinum 18-30 ára ætla
Passio
UMFERÐAR
RAÐ
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
’áÆ.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Haustferð í Þórsmörk
30. september 1989
Laugardaginn 30. september fer ABK haustlitaferð í Þórsmörk. Farið verð-
ur frá Þinghóli klukkan 9 að morgni og ekið austur Hellisheiði. Farið verður
um ölfus, Flóa, Holt, Rangárvelli og Landeyjar allt austur yfir Markarfljót
undir Eyjafjöllum. Þaðan er farinn 25 kílómetra langur vegarslóði inn í
Þórsmörk. Gist verður í skála Ferðafélags íslands í Langadal.
Gengið verður á Valahnúk að venju og þeir sprækari fara fram í hella og
heim um Húsadal. Þeir sem skemmra ganga skoða nágrenni skálans sem
er víða skógi vaxið með skjólgóðum lautum. Um kvöldið sitja menn saman
og gera sér gaman.
Á sunnudag verður skoðað Slyppugil og þeir göngusnörpu skreppa upp í
Tindfjöll á Þórsmörk. Haldið verður heim á leið klukkan 14 og komið við I
Básum og í Merkurkeri. Heimkoma er áætluð klukkan 20 að kvöldi sunnu-
dagsins.
Athugið að þátttaka er öllum velkomin!!
Tilkynnið þátttöku í höfuðstöðvar flokksins, Hverfisgötu 105, sími 17500.