Þjóðviljinn - 24.10.1989, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 24. október 1989 178. tölublað 54. órgangur
Þjóðarbókhlaðan
Hagsmunum háskólans þjónað
Olafur Ragnar Grímsson: Ekkert eitt hús veldur eins miklum tímamótum í húsnœðismálum háskólans.
Háskólaráð segir áform um að happdrœttisfé fari til Þjóðarbókhlöðu ógna sjálfstœði háskólans
Eg þarf ekki að láta neinn innan
naskólans segja mér hver eru
brýnustu verkefnin í húsnæðis-
máium háskólans. Þau þekki ég
vel af eigin raun eftir 20 ára starf
við Háskóia íslands, sagði Óiafur
Ragnar Grímsson, fjármólaráð-
herra, vegna mótmæla háskólar-
áðs Háskóla Isiands gegn því að
gert er ráð fyrir því í fjárlagafr-
umvarpi að 60 miiijónir af tekjum
Happdrættis háskólans fari tii
byggingar Þjóðarbókhlððu. Ekki
hafi verið kvartað eins mikið
undan neinu einu atriði innan há-
skólans og skorti á viðunandi
húsnæði fyrir háskólabókasafn
og skorti á nútíma bóka-
safnsaðstöðu og lesaðstöðu fyrir
hundruð nemenda. Ólafur Ragn-
ar sagði að ekkert eitt hús myndi
valda eins miklum tímamótum í
húsnæðismálum háskólans og
Þjóðarbókhiaðan.
í ályktun sem háskólaráð hefur
sent frá sér er því andmælt ein-
dregið að fjárveitingarvaldið
hyggist ráðstafa sjálfsaflafé há-
skólans. Sérstaklega er því and-
mælt að 60 milljónir af tekjum
happdrættisins renni til fram-
kvæmda við Þjóðarbókhlöðu og
15 milljónir eigi að renna tii
bóka- og tímaritakaupa háskóla-
bókasafns og 12,5 milljónir eigi
að fara til tækjakaupa stofnana
skólans sem hafi sjálfstæðan fjár-
hag. Pá er segir háskólaráð að
happdrættið hafi átt ómetanlegan
þátt í að tryggja sjálfstæði há-
skólans.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Ólafur Ragnar að vinir hans í
háskólanum segðust vilja ákveða
í hvað peningarnir færu. Það
hefði verið ánægjulegt ef háskól-
aráð hefði haft frumkvæði og víð-
sýni til að skilja og ákveða að
hagsmunum háskólans væri best
þjónað með því að Þjóðarbók-
hlaðan kæmi sem fyrst til starfa.
Sér hefði skilist að háskólaráð
vildi frekar setja peningana í
húsnæði tannlæknadeildar,
Tanngaró. „Ég spyr sjálfan mig
og aðra, hvort þjónar betur húsn-
æðismálum háskólans í heild, að
Þjóðarbókhlöðunni verði lokið
sem fyrst eða að Tanngarðinum á
Landsspítalalóðinni miði eitt-
hvað áfram,“ sagði Ólafur Ragn-
Þegar Þjóðarbókhlaðan hefur
verið tekin í gagnið munu að sögn
ráðherrans losna á bilinu 1-2.000
fermetrar í núverandi húsnæði
háskólans. Þjóðarbókhlaðan
muni því ekki eingöngu bæta að-
stöðu háskólabókasafns og nem-
enda til mikilla muna, heldur líka
losa um mikið af húsnæði fyrir
skólann. í Þjóðarbókhlöðu verði
fullkomnasta tenging við alþjóð-
lega gagnabanka og rannsóknar-
bókasöfn. Ólafur sagðist harma
að háskólaráð skyldi kjósa að
gera úr þessu deilumál og spurn-
ingu um sjálfstæði háskólans.
Tmðfullt í Útvaipshúsinu
Mikið fjölmenni var í Útvarpshúsinu á sunnudag við upphaf barnabókavikunnar. Þar ávarpaði Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands landsmenn í beinni útsendingu og Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra opnaði sýningu á barnabókum í Útvarpshúsinu. Alla þessa viku munu svo skólar, bókasöfn og
fjölmiðlar reyna að vekja athygli barna á bókum. Þá verðureinnig sérstakt málræktarátak ígrunnskólum
(vikunni. Mynd: Jim Smart.
EFTA-EB
Kaflaskil í samningaviðræðum
Samstarfsnefndembœttismanna EFTA/EB skilaði afsér áföstudag. Jón Baldvin:
Bráðabirgðakönnun ávalkostum, en stefntað eiginlegum samningaviðrœðum á nœsta ári
Samstarfsnefnd háttsettra
embættismanna EB og EFTA
skilaði síðastliðinn föstudag sam-
eiginlegu áiiti um frekara sam-
starf aðila í átt að sameiginlegu
evrópsku efnahagssvæði. Nefnd-
in hóf störf í aprfl síðastliðinn í
kjölfar Oslóaryfírlýsingar forsæt-
isráðherra EFTA-ríkjanna, þar
sem kveðið var á um að stefnt
skyldi að samkomulagi um
„óhindraðan flutning á vöru,
þjónustu og fjármagni og um
atvinnu- og búseturétt fólks, með
það að markmiði að koma á einu
samræmdu efnahagssvæði“.
Jón Baldvin Hannibaisson
utanríkisráðherra, sem nú gegnir
formennsku í ráðherraráði
EFTA, sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að hinum sameigin-
legu niðurstöðum samstarfs-
nefndar EB og EFTA yrði nú
skilað til ríkisstjórna og þjóð-
þinga EFTA-ríkjanna annars
vegar og framkvæmdastjórnar
EB hins vegar. Þá mun EFTA-
hluti nefndarinnar skila sérstakri
skýrslu til óformlegs ráðherra-
fundar EFTA-ríkjanna, sem
haldin verður í Genf
næstkomandi föstudag. Þar mun
fyrsta pólitíska umræðan um
niðurstöðurnar fara fram, þar
sem ráðherrar munu leggja mat á
niðurstöðurnar fyrir hönd sinnar
ríkisstjórnar. Hér heima mun
málið verða á dagskrá á ríkis-
stjórnarfundi og fundi utanríkis-
málanefndar um næstu helgi.
Jón Baldvin sagði að framhald
málsins yrði síðan væntanlega að
ríkisstjórnir EFTA-ríkjanna leiti
eftir formlegum samnings-
umboðum frá viðkomandi þjóð-
þingum fyrir fyrirhugaðan ráð-
herrafund EFTA og EB í París
19. desember næstkomandi.
Jón Baldvin sagði að verkefni
samstarfsnefndarinnar sem nú
hefði skilað af sér hefði f alist í því
að greina þau vandamál er stæðu
í vegi fyrir frekara samstarfi og
koma með tillögur um aðgerðir.
Niðurstaðan væri síðan umræð-
ugrundvöllur, sem að mati nefnd-
armanna dygði til þess að málið
haldi áfram. Hér væri um kafla-
skil í samstarfi EFTA og EB að
ræða. Jón Baldvin sagði jafn-
Málið hefði ekkert með sjálfstæði
háskólans að gera. Sjálfstæði há-
skólans snérist um menningarlegt
og vísindalegt starf, sjálfstæða
hugsun og þekkingarsköpun, en
ekki húsnæðismál.
Ekkert eitt í starfsemi háskóla
er eins mikill grundvöllur að efn-
islegu sjálfstæði hans í vísindum,
umræðum og þekkingarsköpun
og fuilkomið bókasafn eins og
Þjóðarbókhlaðan, að mati Ólafs
Ragnars. Hún væri þess vegna
hornsteinn í sjálfstæði hans og
meira en innantóm orð.
-hmp
framt að skýrt væri tekið fram í
niðurstöðum samstarfsnefndar-
innar að um bráðabirgðakönnun
væri að ræða, þar sem grein væri
gerð fyrir þeim valkostum er til
greina koma, þar sem hvorugur
aðili hefur tekið á sig neinar
skuldbindingar. „Hins vegar hef-
ur það legið fyrir að ef og þegar
réttir aðilar hafa tekið sínar pólit-
ísku ákvarðanir, þá verði stefnt
að því að hefja eiginlegar samn-
ingaviðræður á næsta ári. Slík
ákvörðun sé í höndum ríkis-
stjórna og þjóðþinga EFTA-
landanna."
Jón Baldvin Hannibalsson
kemur heim frá Genf næstkom-
andi föstudag.
-ólg
Ferðaskrifstofur
Riftunin
skiptir
engu
Pólaris riftir samningi um
kaup Samvinnuferðal
Landsýnar áferðaskrif-
stofunni. Helgijóhanns-
son: Þykjumst heppnir að
vera lausir við að eiga
samvinnu við menn með
viðskiptasiðferði á svo
lágu plani
„Þessi riftun Pólaris á samn-
ingnum við Samvinnuferðir/
Landsýn er einhliða og við ætlum
ekki tinusinni að kanna hvort
þetta er löglegt eða ekki. Ef við-
skiptasiðferði þessara manna er
ekki meira en þetta þykjumst við
heppnir að vera lausir við að eiga
samvinnu við þá,“ sagði Helgi Jó-
hannsson framkvæmdastjóri
Samvinnuferða/Landsýnar við
Þjóðviljann i gær.
Stjórn Pólaris tilkynnti
Samvinnuferðum/Landsýn í gær
að ekki yrði staðið við kaupsamn-
inginn frá því fyrir helgi, en hann
var undirritaður með fyrirvara
um samþykki stjórna fyrirtækj-
anna. Helgi segist hafa fullvissu
fyrir því að gengið hafi verið frá
samningi við Svavar Egilsson,
stærsta eiganda Veraldar, áður
en málið var tekið fyrir á
stjórnarfundi Pólaris.
„Þetta skiptir okkur engu máli.
Við vorum stærstir á markaðin-
um áður en til þessa kom, þannig
að við keyrum bara áfram með
okkar félögum og höldum áfram
að vakta það að Flugleiðir komist
ekki í einokunaraðstöðu á ferða-
skrifstofumarkaðinum,“ sagði
Helgi.
-Sáf