Þjóðviljinn - 11.11.1989, Page 2
FRETTIR
Sjónvarpið
Sykurmolamir
útilokaðir
Skúli Helgason dagskrárgerðarmaður hœtti við að taka að sérkynn-
ingu á jólaplötunum ísjónvarpi þarsem hann mátti ekki sýna nýjasta
myndband Sykurmolanna
Skúli Helgason dagskrárgerð-
armaður á Rás 2 hætti við að taka
að sér kynningu á nýjustu ís-
lensku hUómplötunum fyrir jólin
vegna þess að Sveinn Einarsson,
dagskrárstjóri, lagði bann við að
hann sýndi nýjasta myndband
Sykurmolanna þar sem hljóm-
sveitin flytti texta lagsins á ensku.
Sveinn Einarsson sagði Þjóð-
viljanum að það hefði verið
ákveðið að í þeim tveimur þátt-
um sem ættu að vera í Iok nóvem-
ber og byrjun desember um nýj-
ustu íslensku plöturnar, að allt
efni yrði íslenskt og með íslensk-
um textum. Sjónvarpið hefði
fyrst haldið að það fengi mynd-
band á íslensku en svo hefði ekki
verið. Myndbandið myndi eiga
greiðan aðgang í aðra þætti um
popptónlist, Sjónvarpið hefði
ekkert á móti því sem slíku.
Skoða mætti þessa ákvörðun sem
ágætt innlegg í málræktarátak.
Sveinn gagnrýndi Skúla fyrir að
hætta við kynninguna nokkrum
klukkustundum fyrir upptöku.
„Þegar maður tekur að sér
svona þætti fær maður lista yfir
þau myndbönd sem eru í boði og
það fór ekki á milli mála að þátt-
urinn átti að fjalla um plötuútgáf-
una fyrir jólin, aðallega frá útgáf-
unum þremur," sagði Skúli.
Hann hefði strax tekið eftir því að
Sykurmoiarnir og ýmsir þeir sem
gæfu út á eigin vegum væru ekki
þarna á lista. Þegar hann hefði
grennslast fyrir um þetta hefði
hann komist að því að Sykurmol-
arnir voru nýbúnir að ljúka við
nýtt myndband við lagið „Pla-
net“, sem væri þeirra dýrasta
myndband.
Skúli sagðist sjálfur vera ís-
lenskumaður og hlynntur því að
enska eða önnur erlend tungumál
væru ekki látin vaða hindrunar-
laust yfir landið. Sykurmolarnir
hefðu hins vegar gefið plötur
sínar út bæði á ensku og íslensku
og kynnt íslenska tónlist erlendis,
meðal annars leikið tónlist Hauks
Morthens fyrir tónleika og fengið
íslenskar hljómsveitir til að hita
upp fyrir sig. Það væri fráleitt að
hafna þessu myndbandi í þennan
þátt, sem væri á miklu betri sýn-
Sykurmolamir ekki nógu íslenskir?
ingartíma en Poppkorn td. „Við
verðum að gera okkur grein fyrir
því að Sykurmolarnir eru alþjóð-
legt nafn,“ sagði Skúli. Þeir gætu
ekki búið til tvær útgáfur af ránd-
ýrum myndböndum. Prinsippum
íslenska texta gengi því ekki upp í
þeirra tilfelli, að hans mati. Syk-
urmolarnir væru heldur ekki að
fela getuleysi sitt til íslenskrar
textagerðar með því að hafa text-
ana á ensku.
Að sögn Skúla vildi hann ekki
vera bendlaður við þennan þátt
ef hann mætti ekki nota það besta
sem í boði væri. -hmp
Félagsmálaráð
Oldninaimál skipta aldraða ekki máli
Sjálfstæðismeirihlutinn vill ekki aðfulltrúi Félags eldri borgara sitji sem áheyrnarfulltrúiþegar málefni
aldraðra erutilumrœðu. Guðrún Ágústsdóttir: Sumum finnst lýðræðið þungt í vöfum
Sjálfstæðismeirihlutinn í fé-
lagsmálaráði Reykjavíkurborgar
felldi í gær tillögu frá Guðrúnu
Agústsdóttur fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins í ráðinu, um að Fé-
lagi eldri borgara væri boðið að
tilnefna áheyrnarfulltrúa í félags-
málaráð þegar ráðið fjallaði um
stefnumarkandi mál sem varða
aldraða.
„Ég tel eðiiiegt að aldraðir taki
virkan þátt í að móta stefnuna í
þessum málaflokki og Félag eldri
borgara, en í því eru um 7.000
manns, hefur sýnt mikið frum-
kvæði og hugmyndaflug sem gæti
nýst fólki I félagsmálaráði vel auk
þess sem fulltrúinn kæmi með
sínar ábendingar í þeim rnalum
sem væru til umfjöllunar hverju
sinni,“ sagði Guðrún við Þjóð-
viljann í gær.
Guðrún sagði að það væru
fordæmi fyrir þessu í nefndum
borgarinnar. í dagvist barna á
sæti áheyrnarfulltrúi frá For-
eldrafélagi barna á dagvistar-
stofnunum og eins eru bæði í um-
ferðarnefnd og skipulagsnefnd
fulltrúar hagsmunaaðila.
„Rök sjálfstæðismeirihlutans
fólust m.a. í því að þetta skapaði
fordæmi og að aðrir hópar myndu
þá vilja fá áheyrnarfulltrúa f fé-
lagsmálaráði þegar þeirra mál
kæmu fyrir. Að mínu mati væri
það bara jákvætt því það er stefna
okkar Alþýðubandalagsmanna
að það eigi að opna þetta kerfi
þannig að fólkið sjálft geti tekið
þátt í að móta stefnuna. Öðrum
finnst kannski lýðræðið þungt í
vöfum og hér í Reykjavík hefur
þótt hentugast að einn maður
taki ákvarðanir."
-Sáf
FRÉTTAKORN
Bankar brugðust
Össur Skarphéðinsson í Þjóðlífsviðtali: Þjónusta
peningastofnana gagnvartfiskeldi hefur verið
fyrir neðan
Fiskeldið hefur lent utan allrar
eðlilegrar bankastarfsemi í
landinu. Það er enginn sjóður eða
banki sem hefur það hlutverk að
lána sérstaklega til fiskeldis,
nema með skammtímafyrir-
greiðslum. Þær eru hins vegar of-
boðslega dýrar og rekstur fyrir-
tækjanna stendur ekki undir slík-
um fjármagnskostnaði. Þjónusta
peningastofnana gagnvart fisk-
eldinu hefur sannast sagna verið
fyrir neðan allar hellur, segir
Ossur Skarphéðinsson í ýtarlegu
viðtali um stöðu fískeldisins í ný-
útkomnu Þjóðllfi.
Össur nefnir m.a. dæmi um
fiskeldisstöð sem hefur verið
allar hellur
mergsogin með því að viðskipta-
banki stöðvarinnar hefur látið
hana framfleyta sér með því að
framlengja tíu miljónum á eins
mánaðar víxlum. Annað dæmi
sem hann tiltekur eru Laxal-
ónsfeðgarnir sem settu á stofn
stærstu kvíaeldisstöðina í
landinu. „Hlutafé var 20
milljónir, allt innborgað, rekstur-
inn hefur gengið ótrúlega vel og
fyrirtækið er nú byrjað að selja.
En í heilt ár hefur Faxalax ekki
komist í bankaviðskipti! Er furða
þótt mönnum finnist stundum
sem bankakerfið sé bókstaflega
að ganga frá einstökum stöðv-
um,“ segir Össur í viðtalinu.Sáf
75 ára
Loftur Ámundason
Loftur Ámundason eldsmiður
frá Sandlæk í Grúpverjahreppi,
til heimilis að Hlíðarvegi 23 í
Kópavogi, verður 75 ára n.k.
mánudag 13. nóvember.
Loftur vann mest af sinni
starfsævi við eldsmíði í Land-
smiðjunni. Hann var virkur
baráttumaður í sínu stéttarfélagi
og lengi gjaldkeri í stjórn Félags"
j árniðnaðarmanna.
Á afmælisdaginn dvelur hann
ásamt eiginkonu sinni ÁgústU
Björnsdóttur á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar að Álfta-
nesi í Aðaldal Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Þjóðviljinn óskar Lofti Á-
mundasyni og Ágústu allra heilla,
í tilefni af afmælinu.
(Ljósmynd: Gunnar Andrésson)
Leiklestur æfður í Skeifunni 3 C: Karl Guðmundsson, Ellert A. Ingimundarson, Sigurður Skúlason, Theodór Júlíusson,
Rúrik Haraldsson og Stefán Sturla Sigurjónsson. Mynd - Jim Smart.
Frú Emilía
Haust með Gorkí
Leikhúsið Frú Emilía stendur
nú í nóvember fyrir leiklestrum á
þremur leikritum Maxíms Gorkís
(1868-1936). Er þetta í fyrsta sinn
sem Emilía er með tvö verkefni í
gangi í einu, því enn eru eftir
nokkrar sýningar á Djöflum eftir
Nigel Williams.
Leiklestrarnir fara fram í
leikhúsi Frúarinnar í Skeifunni 3
C, sá fyrsti nú um helgina, en þá
verður lesið leikritið í djúpinu
eða Náttbólið, í íslenskri þýðingu
Halldórs Stefánssonar og leik-
stjórn Eyvindar Erlendssonar. í
djúpinu verður lesið í dag og á
morgun kl. 15, og verður sami
háttur hafður á með Sumargesti
og Börn sólarinnar, sem lesin
verða helgarnar 18.-19. og 25,-
26. nóvember.
Frú Emilía byrjaði á leiklestr-
um síðastliðinn vetur, en þá voru
fjögur af leikritum Tsjekhovs
leiklesin á hennar vegum í Listas-
afni íslands. Ætlunin er að
leiklestrarnir verði árviss við-
burður í verkefnavali leikhússins
til þess að, eins og segir í tilkynn-
ingu Emilíu, að gefa mönnum
færi á að hlusta á dýrlegan skáld-
skap í friði og ró frá skarkala,
hávaða og síbylju.
- Við lesum leikritin óstytt eða
eins og þau eru frá hendi höfund-
ar, að vísu í gegnum þennan milli-
lið, sem heitir þýðandi, segir
Guðjón Pedersen leikstjóri.
- Eitt þessara verka, Börn sólar-
innar, hefur aldrei áður verið
flutt opinberlega hér á landi, og
við erum mjög ánægðir með að fá
tækifæri til að verða fyrstir til
þess.
- Við gefum öll leikritin út
jafnóðum og þau eru lesin, því
okkur finnst kominn tími til að
fólki gefist kostur á að eignast
þessi verk í íslenskri þýðingu. Við
erum enn ekki nógu efnaðir til að
gefa út leikrit án sérstaks tilefnis,
en við höfum, frá því að við stofn-
uðum leikhúsið fyrir þremur
árum, haft þann háttinn á að gefa
út þau verk sem við sýnum, eða
leiklesum. Við byrjuðum á því að
gefa út Mercedes eftir Thomas
Brass, sem var okkar fyrsta verk-
efni og höfum nú, að þessum
þremur leikritum meðtöldum,
gefið út 11 leikrit. Eini munurinn
á útgáfu verka sem við sviðsetj-
um og verka sem við leiklesum er
að þau fyrrnefndu eru hluti af
leikskrá.
Eyvindur Erlendsson leikstýrir
í djúpinu og Börnum sólarinnar
og Guðjón Pedersen Sumargest-
um. Þeir sem lesa í djúpinu eru
Rúrík Haraldsson, Helga Þ.
Stephensen, Rósa Þórsdóttir,
Theodór Júlíusson, Ellert A.
Ingimundarson, Jón Júlíusson,
Bryndís Petra Bragadóttir, Vil-
borg Halldórsdóttir, Margrét
Helga Jóhannesdóttir, Kjartan
Ragnarsson, Sigurður Skúlason,
Sigurður Karlsson, Hallmar Sig-
urðsson, Karl Guðmundsson,
Valgeir Skagfjörð, Árni
Tryggvason og Stefán Sturla Sig-
urjónsson.
-LG
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. nóvember 1989