Þjóðviljinn - 29.11.1989, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Vel samkeppnisfærar við eriendar
Samanburður á tilboðum íslenskra skipasmíðastöðva og erlendra á viðgerðum og breytingum
íslenskra skipa á árunum 1986-1988 erþeim innlendu íhag. Þá virðistframleiðni innlendra
togara vera meiri en þeirra sem smíðaðir hafa verið erlendis
Skipasmíðar
uðum innanlands en aðeins 13,9 . erlendis.
tonn hjá þeim sem smíðaðir voru Síðan er það spurning hvort
erlendis. Þá var aflaverðmæti á þorskurinn þekkir sína eða hvort
úthaldsdag að meðaltali 507 þús- skýringanna sé að leita í betri
und krónur hjá þeim íslensku en skipum, fuilkomnara vinnslu-
427 þúsund hjá skipum byggðum kerfi, betri búnaði, betri aðbún-
Virðisaukadeilan
Legið yf ir lausnum
Stjórnarflokkarnir stefna að sameiginlegri niðurstöðufyrir lok vik-
unnar
Það hvílir á forsætisráðherra að samræma sjónarmið innan ríkisstjórn-
arinnar í virðisaukamálinu. Það er kannski táknrænt að á Alþingi í gær
leit Steingrímur í blað sem heitir „Frost“. Mynd: Kristinn
egar íslensku tilboðin eru bor-
in saman við þau erlendu
kemur í Ijós að 36% íslensku til-
boðanna lenda í lægsta verðflokki
en 33% hinna erlendu, 39% ís-
lensku tilboðanna lenda í mið-
flokknum en 33% þeirra erlendu.
í hæsta verðflokki lenda hins veg-
ar aðeins rúmlega 25% innlendu
tilboðanna en 34% hinna er-
lendu.
Þetta eru niðurstöður 52 al-
þjóðlegra útboða íslenskra út-
gerðarfyrirtækja á viðgerðum og
breytingum á árunum 1986 til
1988, en tilboðin eru flokkuð í
þrjá verðflokka, lægsta verð,
miðjuverð og hæsta verð. Þessar
upplýsingar koma fram í nýjum
kynningarbæklingi um skipa-
smíðastöðvar á íslandi sem Félag
dráttarbrauta og skipasmiðja
hefur nýlega gefið út í samvinnu
við iðnaðarráðuneytið. Af þess-
um samanburði er dregin sú á-
lyktun í bæklingnum að íslenskar
skipasmíðastöðvar séu vel sam-
keppnishæfar við erlendar í verk-
efnum sem þessum.
Þá er einnig bent á að þegar
erlent tilboð er tekið í stað inn-
lends bætast við stórir kostnaðar-
liðir hjá viðkomandi útgerð ss.
sigling skipsins, laun áhafnar,
flugfargjöld, uppihaldskostnaður
og stóraukinn eftirlits- og úttekt-
arkostnaður að viðbættum ýms-
um lagfæringum á skipinu þegar
heim er komið.
Svo virðist sem samanburður á
framleiðni skipa sem smíðuð hafa
verið innanlands og þeirra sem
smíðuð hafa verið erlendis sé
þeim sfðari í óhag. Samkvæmt því
veiddu ísfisktogarar smíðaðir
innanlands um 4.600 tonn að
meðaitali árið 1988 en þeir sem
smíðaðir voru erlendis aðeins um
3.500 tonn. Aflaverðmæti þeirra
íslensku var að meðaltali um 130
miljónir króna en þeirra erlendu
107 miljónir. Afli á úthaldsdag
var 18,2 tonn hjá togurum smíð-
Ríkisstjórnin ræddi á fundi sín-
um í gær þær deilur sem
komnar eru upp á milli stjórnar-
flokkanna um virðisaukaskatt-
inn. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði allar hlið-
ar málsins hafa verið skoðaðar og
meðal annars hefði verið farið
yfir útreikninga á því hvernig
tveggja þrepa virðisaukaskattur
kæmi út.
Forsætisráðherra sagði ljóst að
það myndi taka sinn tíma að
komast að niðurstöðu í málinu. Á
fundinum í gær hefði ekki skýrst
hvort Alþýðuflokksmenn væru
reiðubúnir að standa að því með
hinum stjórnarflokkunum að
virðisaukaskattur tæki gildi um
áramót með þeim hætti sem áður
var samkomulag um. Steingrím-
ur sagði ekki óeðlilegt að Al-
þýðuflokksmenn vildu skoða
vandlega hvernig tveggja þrepa
virðisauki kæmi út, þar sem þeir
væru svo eindregið fylgjandi
þeirri leið að hafa aðeins eitt
þrep.
Að sögn forsætisráðherra er
lögð áhersla á það innan ríkis-
stjórnarinnar að málið verði af-
greitt í vikunni. Þegar hann var
spurður hvort hann hefði áhyggj-
ur af því að það myndi ef til vill
ekki takast, svaraði hann: „Þetta
hefur nú yfirleitt tekist.“
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra er sá ráðherra sem
málið hvílir kannski þyngst á.
Það er hann sem mælir fyrir
skattafrumvörpum ríkisstjórnar-
aði áhafnar og betri vinnuað-
stöðu, þannig að áhafnir íslensku
skipanna komist yfir að vinna
meiri afla en áhafnir erlendu
skipanna.
-grh
innar. Flann vildi ekki tjá sig um
gang mála í gær. Utanríkisráð-
herra heldur utan á fimmtudag í
EFTA-erindum og er ekki vænt-
anlegur til baka fyrr en 19. des-
ember.
-hmp
Alþingi
Má Stefán
spyrja?
Alþingismenn greiða
atkvœði um það hvort
Stefán Valgeirsson
megi bera uppfyrir-
spurníþinginu. Guð-
rún Helgadóttir: Tel
þessafyrirspurn vafa-
sama
Guðrún Helgadóttir forseti
sameinaðs Alþingis hefur ákveðið
að fram skuli fara atkvæða-
greiðsla í þinginu um það hvort
Stefán Valgeirsson, þingmaður
Samtaka um jafnrétti og félags-
hyggju, fái að bera upp fyrir-
spurn til dómsmálaráðherra á Al-
þingi, um málarekstur ríkisins
gegn Magnúsi Thoroddsen. Guð-
rún segist telja fyrirspurnina
vafasama vegna þess að hún varði
viðkvæmt einkamál sem nýflutt
sé í Hæstarétti og sé nú í dómi og
hún teldi vafasamt að Alþingi ætti
að taka til umræðu slíkt mál á því -
stigi málsins.
I fyrirspurninni sem er í
tveimur liðum, spyr Stefán hvað
valdi því að mál Magnúsar Thor-
oddsens hafi ekki verið
rannsakað að hætti opinberra
mála, eins og boðið sé í 2. máls-
grein 11. greinar laga númer 38
frá 1954. En þessi lög eru um rétt-
indi og skyldur starfsmanna ríkis-
ins. Stefán segir fullt tilefni virð-
ast til að taka málið upp með
þessum hætti ef marka megi
kvartanir lögmanns Magnúsar.
Þá spyr Stefán hvað valdi því að
aðeins sé höfðað mál á hendur
Magnúsi Thoroddsen vegna áf-
engiskaupa hans, einum hand-
hafa forsetavalds, en ekkert gert í
áfengiskaupum annarra sem þó
virtust sambærileg að verulegu
leyti.
-hmp
Nýtt þorp er risið við skólann á Bifröst og telur háskólasamfélagið
þar alls um 180 manns. Nemendur eru nú 90 og meðalaldur 28 ára.
Um lokubúnað
bílastæða
Byggingarnefnd Reykjavíkur
hefur samþykkt tillögu frá Gunn-
ari Gunnarssyni fulltrúa Alþýðu-
bandalagsjns í byggingarnefnd
varðandi lokubúnað bílastæða.
Nefndin samþykkir að fela bygg-
ingafulltrúa að rita öllum þeim
sem sett hafa upp rafdrifinn loku-
búnað til þess að takmarka að-
gang bifreiða að bílastæðum við
húseignir sínar og tilkynna þeim
að þeir þurfi að sækja um leyfi
fyrir slíkum útbúnaði til nefndar-
innar. Samanber grein 3.1.1. í
byggingarreglugerðinni.
Afgreiðslutími
verslana
Samkvæmt reglugerð um af-
greiðslutíma verslana í Reykja-
vík og ákvæði kjarasamninga
verslunarfólks er heimilt að hafa
verslanir opnar á laugardögum í
desembermánuði sem hér segir:
Laugardaginn 2. desember til kl.
16,9. des.tilkl. 18,16. des. tilkl.
22, 23. des. til kl. 23 og laugar-
daginn 30. desember til klukkan
16.
Fimmtu haskóla-
tonleikar
í dag miðvikudaginn 29. nóv-
ember verða haldnir fimmtu há-
skólatónleikar í Norræna húsinu
og hefjast þeir klukkan 12.30.
Flytjendur verða Ólöf Kolbrún
Ólöf Kolbrún Harðardóttir
Harðardóttir, sópran, Sigurður I.
Snorrason klarinetta, Óskar Ing-
ólfsson bassethorn og Kjartan
Óskarsson bassaklarinetta. Á
efnisskránni verður barokktón-
list: svíta fyrir þrjú chalumeau
eftir Jóhann Christian Graupner
og sálmaforleikir eftir J. S. Bach
útsettir af Harrison Birtwistle.
Athygli er vakin á að efnisskráin
er breytt frá þeirri sem áður var
auglýst.
Námstefna Blaða-
mannafélagsins
í dag miðvikudagsmorgun og
næstu tvo morgna frá kl. 9-12
stendur Blaðamannafélag fs-
lands í samvinnu við mennta-
málaráðuneytið að námstefnu
um menntamál, menningu og
málrækt og er hún haldin þessa
morgna að Borgartúni 6. Þessi
morguntími er sérstaklega valinn
til að tryggja sem flestum mögu-
leika á að sækja námstefnuna, en
með hliðsjón af fyrri reynslu hef-
ur morguntíminn reynst mjög
heppilegur.
Endurgreiðsla
á söluskatti
Þeir viðskiptamenn vátryg-
gingafélaga sem greitt hafa sölu-
skatt af iðgjöldum vátrygginga
sem gilda yfir á næsta ár eiga von
á að fá þann hluta söluskattsins
endurgreiddan á næstunni. Vá-
tryggingafélögunum var falið að
annast þessar endurgreiðslur til
vátryggingataka fyrir hönd ríkis-
sjóðs og skulu þær fara fram fyrir
15. desember og munu félögin
senda viðkomandi ávísanir í
pósti.
Teiknimyndin
Oliver og
félagar
í dag klukkan 15 verður haldin
sérstök boðssýning á teiknimynd-
inni Óliver og félagar fyrir börn
af nokkrum barnaheimilum
borgarinnar í Bíóhöllinni.
Teiknimyndin er byggð á sögunni
um Óliver Twist eftir Charles.
Dickens og verður myndin frum-
sýnd um alla Evrópu um þessi jól.
Á sýningunni mun Bjössi bolla
skemmta krökkunum og mun
verksmiðjan Vífilfell bjóða öllum
upp á gos á sýningunni.
Samvinnu-
háskólinn verður
sjálfseignar-
stofnun
Á næstunni verður Samvinnu-
háskólinn á Bifröst gerður að
sjálfseignarstofnun. Ýmis skipul-
agsatriði í því sambandi og einnig
vegna breytingar skólans í sér-
skóla á háskólastigi árið 1988
verða formlega ákvörðuð um
leið. Þá var skipulagsskrá Sam-
vinnuháskólans nýlega samþykkt
í stjórn Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga og í skólanefnd. Með
skipulagsskránni er nafni skólans
breytt í Samvinnuháskólann í
samræmi við þá miklu um-
Siðvæðing skatt-
heimtunnar
Stjórn Smáfyrirtækja innan
Verslunarráðs Islands lýsir yfir
fullum stuðningi við áform um
gildistöku virðisaukaskattsins um
næstu áramót. Jafnframt harmar
stjórnin ábyrgðarlausar kröfur
sem birst hafa á liðnum vikum um
breytingu sem varð á stofnuninni
í fyrra er skólinn varð sérskóli á
háskólastigi með viðurkenningu
menntamálaráðuneytisins og er
þessi nafnbreyting í samræmi við
það sem áður hefur gerst í öðrum
sambærilegum fræðslustofnun-
um í landinu. Samkvæmt skipu-
lagsskránni verður Samvinnuhá-
skólinn að sjálfseignarstofnun en
hann hefur hingað til verið í eigu
SÍS. Gert er ráð fyrir að skólinn
muni leigja fasteignirnar á Bif-
röst en þær eru sameign Sam-
bandsins, Olíufélagsins og Vá-
tryggingafélags íslands. Hins
vegar mun sjálfseignarstofnunin
væntanlega eignast skólalóðina í
samræmi við ákvæði í gjafabréfi
jarðeigenda Hreðavatns.
enn eina frestun á þessu réttlætis-
máli. f ályktun stjórnar SIVÍ um
skattamál segir að upptaka virð-
isaukaskattsins sé siðvæðing í ís-
lenskri skattheimtu þar sem nú-
verandi kerfi mismuni fyrirtækj-
um og hvetji til skattsvika. Smáf-
yrirtæki hafi sérstaklega mátt
þola óréttláta skattheimtu í núg-
ildandi söluskattskerfi.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN MiSvikudagur 29. nóvember 1989