Þjóðviljinn - 29.11.1989, Page 5
_________________________ÞJÓPMÁL________________________
Landsfundur Alþýðubandalagsins 1989
Umsköpun Evrópu og hagsmunir íslands
Frá panelumræðum um málefni Evrópu. Mynd: Kristinn
Miklar og hraðar breytingar
eiga sér nú stað í Evrópu. Löndin
í Austur-Evrópu feta sig inn á
braut blandaðs hagkerfis og lýð-
ræðislegra stjórnarhátta. Evr-
ópubandalagið er að hrinda í
framkvæmd ákvæðum Rómar-
sáttmálans frá 1958 um innri
markað og stefnir í áttina að
ríkisheild.
Ríkin í Fríverslunarsamtökum
Evrópu (EFTA), sem ísland er
aðili að, leita aðlögunar að
breyttum aðstæðum. Bcrlínar-
múrinn er fallinn og járntjaldið
sem skipt hefur álfunni í austur og
vestur mun brátt heyra sögunni
til.
Skriður hefur komist á afvopn-
un í Evrópu með samningi um
afnám meðaldrægra eldflauga og
einhliða fækkun í hefðbundnum
herafla. Góðar horfur eru á að
þáttaskil verði í afvopnunarmál-
um á meginlandi álfunnar á næstu
misserum með samningum um
hefðbundin vopn og traustvekj-
andi aðgerðir.
íslendingar eiga að leggja sitt
af mörkum til afvopnunar og
bættra samskipta í Evrópu og á
alþjóðavettvangi. Það gerum við
best með því að vísa erlendum
her úr landinu og draga okkur út
úr Nató. Jafnframt þurfum við að
leggja ríka áherslu á kjarnorkuaf-
vopnun á og í höfunum, sem ís-
lendingum stafar gífurleg hætta
af. Afvopnun á meginlandinu og
lýðræðisþróunin í Austur-
Evrópu fela í sér mestu breyting-
ar í málefnum álfunnar um langt
skeið og minna á vorleysingu.
Mestu varðar að þær hafa farið
friðsamlega fram og geta leitt til
stórbættra samskipta í okkar
heimshluta.
Evropubandalagiö og
hagsmunir íslands
íslendingar hljóta að fylgjast af
sérstökum áhuga með þróuninni í
Evrópu og leggja þar sitt fram í
samstarfi við helstu viðskipta-
þjóðir okkar og þær þjóðir sem
eru okkur skyldastar að menn-
ingu og í félagslegum efnum.
Aukin tengsl við Evrópu og
Norðurlönd sérstaklegaundan-
farin ár, hafa verið skýrt mótvægi
við bandarísk áhrif og er ástæða
til að styrkja þau enn.
Landsfundur Alþýðubanda-
Iagsins telur að ekki komi til
greina að fsland gerist aðili að
Evrópubandalaginu. Aðild að
EB fæli í sér valda afsal til yfir-
þjóðlegra stofnana. Slík aðild
væri á engan hátt eftirsóknarverð
fyrir okkur íslendinga og bryti í
bága við sjálfsákvörðunarrétt og
efnahagslega hagsmuni þjóðar-
innar. Samskipti Islands við Evr-
ópubandalagið eru hins vegar
mikil og hafa aukist samhliða
stækkun bandalagsins og
breytingum á mörkuðum.
Ymsir þættir innan EB snerta
hagsmuni þjóða sem standa utan
bandalagsins og kalla því á við-
brögð og samræmingu. Þetta
varðar m.a. staðla á framleiðslu-
vörum, gæðakröfur, réttindi til
náms og starfa, svo og
rannsókna- og þróunarstarfsemi.
í samstarfi á þessum sviðum geta
falist ýmsir jákvæðir möguleikar,
en einnig eru þar mörg álitamál
og þættir að varast. Við þurfum
að eiga góð samskipti við Evr-
ópubandalagið og gæta þess að
bregðast við breytingum sem þar
verða út frá langtímahagsmunum
þjóðarinnar.
Sérstaða íslands
- Sjávarútvegsmál
Evrópubandalagið er nú mikil-
vægasta markaðassvæði fyrir ís-
lenskar sjávarafurðir. Viðskipta-
samningur fslands og bandalags-
ins frá 1972 ásamt bókun 6 hefur
reynst vel, en þarfnast nú endur-
skoðunar, ekki síst að því er varð-
ar tolla EB á saltfisk og fersk
fiskflök. Gífurlegir styrkir til sjá-
varútvegs innan EB skerða einn-
ig samkeppnisstöðu íslendinga. í
því sambandi ber að hafa í huga,
að íslendingar heimila tollfrjáls-
an og hindrunarlausan innflutn-
ing a iðnvarningi frá EB til ís-
lands.
íslendingar gera kröfu um frí-
verslun með fisk án tolla og
styrkja. EFTA-ríkin hafa fallist á
þá stefnu, en langt virðist í land
að hún hljóti undirtektir innan
EB, þar sem með sjávarú-
tvegsmál er farið svipað og land-
búnað. Gæta verður þess í samn-
ingum um þessi mál, að fríverslun
gangi ekki svo langt að við mis-
sum möguleika til þess að stýra
ráðstöfun fiskaflans og tryggja að
vinnsla haldist í landinu. fsland
hefur algjöra sérstöðu hvað
snertir mikilvægi sjávarafurða
fyrir þjóðarbúskapinn. Því hljót-
um við að sækja það fast að ná
viðbótarsamningi við Evrópu-
bandalagið vegna útflutnings
sjávarafurða til bandalagsins.
Sjávarútvegsmál eru aðalatriðið í
viðskiptalegum samskiptum ís-
lendinga við bandalagið og eðli
málsins samkvæmt hljóta samn-
ingar um þau að vera viðfangs-
efni í tvíhliða viðræðum.
í viðræðum við EB er það ófrá-
víkjanleg forsenda að íslendingar
stjórni einir nýtingu fiskistofna
við landið og krafa okkar er að fá
tollfrjálsan og hindrunarlausan
aðgang með sjávarafurðir að
mörkuðum bandalagsins hlið-
stætt því sem gerist um iðnaðar-
vörur. Jafnframt því þurfa ís-
lendingar sjálfir að marka sér
sjávarútvegsstefnu sem taki mið
af heildarhagsmunum og þeirri
nauðsyn að hafa í landinu öfiug
íslensk fyrirtæki í fiskiðnaði og til
að annast sölu afurða.
Á sviði sjávarútvegsmála
eigum við aðeins takmarkaða
samleið með öðrum EFTA-
ríkjum, þar sem iðnaðarhags-
munir sitja í fyrirrúmi.
Undirbúa þarf því hið fyrsta
tvíhliða viðræður við Evrópu-
bandalagið, m.a. með því að
móta skýra íslenska sjávarút-
vegsstefnu.
Fjármagnshreyfingar
íslendingar þurfa á næstu árum
að meta, hvort þeir telji sér hag-
kvæmt að draga úr einhverjum
hömlum varðandi fjármagns-
hreyfingar og erlenda fjármála-
þjónustu. í því sambandi er
nauðsynlegt að gera sér ljóst að
óheftar fjármagnshreyfingar og
erlend bankastarfsemi í landinu
getur haft ýmsar hættur í för með
sér.
Óheftar fjármagnshreyfingar
takmarka verulega möguleika á
að reka efnahagsstefnu, sem tæki
mið af íslenskum aðstæðum.
Ekki liggur nú fyrir með hvaða
hætti komið verður í veg fyrir að
erlendir hagsmunir muni ná
ítökum í íslenskum sjávarútvegi
ef fjármagnshreyfingar yrðu
óheftar, erlendir bankar störfuðu
í landinu og útlendingar fengju
hér fullan búseturétt. Reynsla
ýmissa jaðarsvæða bendir til þess
að óheftar fjármagnshreyfingar
leiði til útstreymis fjármagns, og
fyrir byggðamál á íslandi gæti
slíkt haft hörmulegar afleiðingar.
Við íslendingar eigum því ekki
að gera breytingar á núverandi
skipan á flutningi fjármagns og
varðandi þjónustu og búseturétt
nema ljóst sé að það hafi jákvæð
áhrif á íslenskt efnahagslíf og
samfélag.
Samskipti EFTA og EB
Viðræður á vettvangi EFTA
við EB á grundvelli Óslóar-
yfirlýsingarinnar frá í mars 1989
snúast fyrst og fremst um að yfir-
færa innri markað Evrópubanda-
lagsins til EFTA-ríkjanna og
mynda þannig svokallað Evr-
ópskt efnahagssvæði. Þótt afnám
á einhverjum hömlum varðandi
fjármagn, þjónustustarfsemi og
búsetu geti verið jákvætt á vissum
sviðum, hefur það um leið í för
með sér augljósar hættur fyrir
efnahag okkar og sjálfstæði. Því
verður að fara að með fyllstu gát.
Evrópubandalagið hefur engin
svör veitt um fyrirvara, sem gerð-
ir hafa verið um náttúruauðlindir
og búseturétt.
Eftir viðræður milli EB og
EFTA að undanförnu um Evr-
ópskt efnahagssvæði liggur það
m.a. fyrir, að af íslands hálfu
hafa engin sérstök skilyrði eða
fyrirvarar verið settir fram um
fjármagnsflutninga.
Engar niðurstöður eru fengnar
innan EFTA um breytingu á
skipulagi samtakanna, en flest
bendir til þess að tilkoma Evr-
ópsks efnahagssvæðis leiði af sér
yfirþjóðlegt vald innan EFTA
varðandi stofnanir, eftirlit og
dómstóla.
Almenningur á íslandi hefur
lítið ráðrúm haft til þess að setja
sig inn í Evrópumálin, og skoð-
anakannanir benda til þess að
þekking á þeim sé í molum meðal
landsmanna. Alþingi hefur enn
ekki fengið skýrslu um niðurstöð-
ur viðræðna á vettvangi EFTA og
EB og er ætlaður sáralítill tími til
að fjalla um málin.
Ekki er hægt að fallast á að á
næstu vikum verði knúin fram af-
staða um aðild íslands að form-
legum samningaviðræðum
EFTA við Evrópubandalagið um
myndun Evrópsks efnahagssvæð-
is. Óhjákvæmilegt er að frekari
umræður fari fram, áður en til
slíkrar ákvörðunar er gengið og
að almenningi gefist kostur á að
setja sig inn í málavexti.
Landsfundurinn telur óhjá-
kvæmilegt, að farið verði vand-
lega yfir málið í heild og þá skýru
fyrirvara sem nauðsynlegt er að
fyrir liggi, áður en afstaða er
tekin til formlegra samningavið-
ræðna.
í ljósi ofangreindra sjónarmiða
felur landsfundurinn þingflokki
Alþýðubandalagsins, að höfðu
samráði við framkvæmdastjórn
flokksins, að taka endanlega af-
stöðu til málsins á Alþingi og í
ríkisstjórn.
Víðtæk athugun
á samskiptum
við umheiminn
Landsfundur Alþýðubanda-
lagsins telur mikla þörf á að fram
fari víðtæk og vönduð athugun á
samskiptum Islands við umheim-
inn, jafnt í viðskiptalegum,
menningarlegum og félagslegum
efnum.
Leita á samvinnu til allra átta
án þess að skerða svigrúm og
sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinn-
ar.
Þátttaka í EFTA er eðlileg nú
sem fyrr, sem og þátttaka í sam-
starfsverkefnum á mörgum svið-
um gagnvart EB á grundvelli
Lúxemborgaryfirlýsingarinnar
frá 1984.
Jafnframt þarf að fara fram ít-
arleg athugun á möguleikum til
að að efla samskipti við önnur
lönd og svæði, m.a. í Austur-
Evrópu, Norður-Ameríku,
Suður-Ameríku og Austur-Asíu.
Þannig þarf sem fyrst að draga
upp skýra mynd af viðskipta-
legum hagsmunum landsins í
víðu samhengi og taka ákvarðan-
ir á grundvelli slíkrar athugunar.
Leiðrétting
í Þjóðviljanum í gær birtist
með tveim ályktunum 9. lands-
fundar Alþýðubandalagsins til-
laga sem ber nafnið „Grundvall-
arbreyting auðlindaskatts á sjáv-
arútveg". Niður féll að geta þess
að tillagan var ekki samþykkt á
landsfundinum en var vísað til
miðstjórnar flokksins til umfjöll-
unar.
Alyktun um eiiend samskipti
Alþýðubandalagið telur mikil-
vægt að eiga góð samskipti við
sósíalista og aðra jafnaðarmenn í
öðrum löndum. Skoðanaskipti
sósíalista á Norðurlöndum og
öðrum löndum Evrópu eru sér-
staklega þýðingarmikil á næstu
árum, m.a. vegna örrar þróunar í
málefnum álfunnar.
Alþýðubandalagið mun því
nýta þau tækifæri sem gefast á
næstunni er veita Alþýðubanda-
lagsfólki kost á að kynnast við-
horfum sósíalista sem víðast og
skýra sjónarmið fslendinga, jafn-
framt sem tækifæri fæst til gagn-
legra skoðanaskipta.
Samskipti af þessu tagi verða
m.a. með gagnkvæmum heim-
sóknum, þátttöku í fundum, ráð-
stefnum og öðrum samkomum
þar sem koma saman fulltrúar
flokka og samtaka sem byggja á
viðhorfum sem falla að þeim
sjónarmiðum sem Alþýðubanda-
lagið byggir á.
Landsfundur Alþýðubanda-
lagsins samþykkir að fela fram-
kvæmdastjórn að skipa starfshóp
er fái það hlutverk að afla upplýs-
inga um erlenda flokka og
samtök sem gagnlegt kann að
vera fyrir Alþýðubandalagið að
eiga samskipti við. Jafnframt skal
hópurinn standa fyrir kynningu
og umræðum um þessi efni innan
flokksins á næstu tveimur árum.
Miðvikudagur 29. nóvember 1989 ÞJÓÐVILJINN — SfÐA 5