Þjóðviljinn - 05.12.1989, Page 12
Auður Hansen
verslunarskólanemi
Að kaupa jólagjafir, en ég bý
einnig til gjafir sjálf. Ég sem Ijóð
og gengur alveg ágætlega en
helst ætti maður aö gefa út Ijóða-
bók.
Arnbjörg Stefánsdóttir
kennaraháskólanemi
Ég baka piparkökur. Annars
baka ég ekki mikið en hef þegar
lokið við piparkökubaksturinn.
Guðmundur Haraldsson
sjómaður
Það er nú eiginlega deild kon-;
unnar en ég reyni að hjálpa til t.d.
við jólainnkaupin og laufa-
brauðsbakstur. Við erum nú lítið
byrjuð ennþá, enda nægur tími til
stefnu.
Brynja Sigurmundsdóttir
húsmóðir
Ég byrja náttúrlega á því að þrífa.
Það gengur vel að þrífa og ég er
líka búin að hnoða í tvær tertuteg-
undir.
Þórður Jóhannsson
vörubílstjóri
Það er nú eiginlega ekkert
ákveðið. Ég hef að vísu keypt
gjafir sem þarf að senda erlendis,
en þær verður að kaupa í tíma.
SPURNINGIN,
Hvert er fyrsta verk þitt í
jólaundirbúningi?
þJÓBVUIINN
Þriðjudagur 5. desember 1989 208. tölublað 54. örgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
SÍMFAX
681935
Tæki og tól ásamt Ijósmyndum, fundargerða-
bókum ogfleiru sem varpar Ijósi á söguþessa
merkilega félags
hreint launþegafélag og gekk ári
síðar í Alþýðusamband íslands.
Litlar breytingar hafa orðið á
skipulagi félagsins frá þessum
tíma.
Þegar atvinnuleysi iðnaðar-
manna var sem mest, á árunum
1968 til 1971 skipulagði Trésmið-
afélagið flutninga smiða til Sví-
þjóðar og hafði milligöngu við
samningsgerð og aðra pappírs-
vinnu í sambandi við flutingana.
Flestir fóru smiðirnir í vinnu fyrir
skipasmíðastöð í Malmö og um
mitt sumar 1969 höfðu um 160
smiðir flutt til Svíþjóðar. Flestir
sneru aftur til íslands að nokkr-
um tíma liðnum. Það mun vera
einsdæmi að skipulagðir flutning-
ar úr landi á vegum stéttarfélags
hafi farið fram með þessum hætti.
Sýning Trésmiðafélagsins
stendur fram til 17. desember.
Hún er opin á skrifstofutíma
virka daga og á sunnudögum frá
klukkan 14 til 18 og er öllum
opin. iþ
íhuguðu þeir framboð sérstaks
lista trésmiða til bæjarstjórnak-
osninganna. Af því varð þó ekki
heldur tóku trésmiðir þátt í fram-,
boði lista iðnaðarmanna. Af
þeim lista voru 2 trésmiðir kosnir1
í bæjarstjórn, annar þeirra var
Sveinn Jónsson í Völundi. Síðan
hafa trésmiðir nær óslitið átt full-
trúa í bæjarstjórn og nú er húsa-
smiðurinn Sigurjón Pétursson,
fulltrúi Alþýðubandalagsins í
borgarstjórn.
í upphafi var Trésmiðafélagið
stofnað til að koma á samræmdri
verðskrá trésmiða. Styrr stóð þó
alltaf um verðskrána og fannst
'mörgum til dæmis ófært að sama
verð gilti fyrir vinnu nýútskrifaðs
sveins og meistara. Meistarar
höfðu iðulega meirihluta í stjórn-
inni þó félagsmenn væru flestir
sveinar og þegar kom að því að
gera kjarasamninga í fyrsta
skipti, árið 1949, kom sú ein-
kennilega staða upp að meistarar
í stjórn Trésmiðafélagsins sömdu
við Vinnuveitendasambandið
fyrir hönd sveinanna, en meistar-
ar áttu einnig aðild að vinnu-
veitendasambandinu. Árið 1955
gengu meistarar út úr Trésmið-
afélaginu og var þá félagið orðið
Trésmiðir gengu ákaflega vel klæddir til vinnu sinnar á árunum áður
enda heldri menn þess tíma og menntaðir erlendis. Það fara sögur af
þvi að sumir þeirra hafi klæðst gömlu kjólfötunum sínum við vinnuna.
Mynd-Jim Smart.
Trésmiðafélag Reykjavíkur hefur komið upp safni gamalla verkfæra sem vikið hafa fyrir nýrri tölvu. Á
þessari mynd má sjá verkfæraskáp Karls. Þ. Þorvaldssonar sem var um skeið varaformaður Trésmiðafé-
lagsins, en skápinn smíðaði Karl árið 1920. Mynd-Jim Smart.
Ihúsakynnum Trésmiðafélags
Reykjavíkur, að Suðurlands-
braut 30, stendur nú yfir sýning
úr 90 ára sögu félagsins og úr
starfi reykvískra trésmiða á liðn-
um áratugum. A sýningunni eru
ýmsir munir sem varpa ljósi á
starf trésmiða og sögu félagsins,
s.s. verkfæri, ljósmyndir, skjöl og
teikningar. Komið hefur verið
upp gömlu verkstæði með til-
heyrandi verkfærum og á öðrum
stað er sýnt sýnishorn af verkfær-
um og öryggisbúnaði sem nú er
notaður.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
var stofnað 10. desember 1899 og
hét þá Hið íslenska trjesmiðafje-
lag. Það var lengi framan af eitt
fjölmennasta iðnaðarmannafé-
lagið á landinu, og frá upphafi lét
félagið til sín taka í ýmsum fram-
faramálum í bænum, beitti áhrif-
um sínum m.a. þegar kom að
skipulagsmálum. Pólitísk virkni
var mikil í félaginu og árið 1908
Trésmiðafélag Reykjavíkur
Sögusýning
í tilefni
90 ára afmælis
I