Þjóðviljinn - 16.12.1989, Page 3

Þjóðviljinn - 16.12.1989, Page 3
FRETTIR Leó Jóhannesson og fjölskylda taka hér við lyklum að bifreiðinni sem var 1. vinningur í byggingarhapp- drætti Þjóðviljans: Lada Samara, árgerð 1990. Hallur Páll Jónsson, framkvæmdastjóri Þjóðviljans óskar vinningshafa til hamingju. Til vinstri á myndinni er Hlynur Árnason, sölustjóri Bifreiða- og landbúnaðarvéla. Byggingarhappdrœtti Þjóðviljans Ladan fór til Akraness Áskrifandi á Akranesi vann aðalvinninginn íbyggingarhappdrœtti Þjóðviljans Leó Jóhannesson, kennari á Akranesi, reyndist vera sá heppni þegar dregið var í bygg- Lngarhappdrætti Þjóðviljans. Hann hlaut fyrsta vinninginn, bifreið af gerðinni Lada Samara að verðmæti 454 þúsund krónur. - Ég á nú eina Lödu fyrir svo ég býst við að ég selji þessa fljótlega. Vinningurinn kom mér auðvitað þægilega á óvart og kemur sér einkar vel núna þar sem ég er í launalausu leyfi frá kennslunni, sagði Leó. Hann sagðist ekki vera vanur að kaupa mikið af happdrættis- miðum, en hefði þó ávallt tekið þátt í happdrætti Þjóðviljans og verið áskrifandi að blaðinu í fjöldamörg ár. - Þjóðviljinn hefur verið keyptur á mínu heimili frá því að ég man eftir mér. Ég tel Þjóðvilj- ann ómissandi og hef yfirleitt ver- ið ánægður með blaðið, sérstak- iega nú á síðustu misserum, sagði Leó. Vinningsnúmerin birtust í Þjóðviljanum 7. desembers.l. en nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu blaðsins, Síðumúla 6. •Þ Poemi, Fantasía og Elegía Verk eftir Hafliða Hallgrímsson, Vaughan-Williams og Linjama á tónleikum íslensku hljómsveitarinnar í Langholtskirkju Guðný Guðmundsdóttir og Guðmundur Emilsson, einleikari og stjóm- andi á tónleikum íslensku hljómsveitarinnar. FÍM-salurinn Upplestur og tónlist Bókmennta- og tónlistardagskrá, jólaglögg og piparkökur í FÍM-salnum í dag Poemi, verðlaunaverk Hafliða Hallgrímssonar, Fantasía fyrir strengjasveit eftir Ralph Vaughan-Williams og Elegía eftir Jyrki Linjama, eru á efnisskrá ís- lensku hljómsveitarinnar, sem heldur tónleika í Langholtskirkju í dag, laugardag. Tónleikarnir hefjast kl. 17, og þar leikur 22 manna hljómsveit undir stjórn Guðmundar Emilssonar auk Guðnýjar Guðmundsdóttur konsertmeistara Sinfóníunnar, en hún leikur einleik í verki Haf- liða. Hafliði Hallgrímsson hlaut Norðurlandaverðlaun tónskálda árið 1986 fyrir Poemi, verk fyrir einleiksfiðlu og strengjasveit. Hann skrifaði verkið upphaflega fyrir Skosku kammersveitina og fiðluleikarann Jaime Laredo, en Hafliði er fyrsti sellóleikari kammersveitarinnar. Breska tónskáldið Ralph Vaughan-Williams er þekktur fyrir að skírskota til enskrar þjóðlagatónlistar og hefðar í verkum sínum. Þykir Fantasía vera ágætt dæmi um þetta ein- kenni á tónlist Williams, en verk- ið byggir hann á stefi eftir enska endurreisnartónskáldið Thomas Tallis. Jyrki Linjama er finnskt tón- skáíd, tæplega þrítugur og mun nýverið hafa vakið athygli finnskra tónlistarunnenda. Hann stundaði tónsmíðanám við Síbel- íusar akademíuna í Helsinki og þykir sérlega næmur á blæbrigði strengjahljóðfæra. Elegíaeróður hans til fiðlunnar. \ -LG Jólasýning FÍM-félaga í sýning- arsal félagsins að Garðastræti 6 stendur nú yfir, en á sýningunni er Qölbreytt úrval listaverka, meðal annars tréskúlptúr eftir Sigurjón Ólafsson og myndir eftir marga þekkta málara og grafík- listamenn. Boðið er upp á bókmennta- og tónlistardagskrá á hverjum laugardegi meðan á sýningu stendur og hefst dagskrá dagsins í dag kl. 15:30. Þá les Jóhanna Kristjónsdóttir úr bók sinni Dulmál dódófuglsins og Pétur Gunnarsson úr nýjustu bók sinni Vasabók - dagbókarglefsur. Tveir Orðmanna lesa úr ljóða- bókum sínum; Eyvindur Eiríks- son úr Viltu og Þór Stefánsson úr Haustregnið magnast. Loks les Jónas Þorbjömsson úr sinni fyrstu ljóðabók, sem heitir í jaðri bæjarins. Um tónhstina sjá þær Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó- leikari og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikari. Jólaglögg og pipar- kökur verða á boðstólum, salur- inn er opinn frá kl. 14 til 20.-LG ■■ -■------------------------—-------- ■■ -------------------------------------------- Laugardagur 16. desember 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Loðna Hrnndi stofninn fundinn Kom undan ísnum Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson fann I fyrrinótt loðnugöngu við Kolbeinsey og var loðnan feit og af eðlilegri þyngd. Með þessum fundi þykir nokkuð Ijóst að sá stofn sem talinn var af sé kominn í leitirnar. Að sögn Ástráðar Ingvars- sonar hjá Loðnunefnd var dræm veiði á miðunum í fyrrinótt þótt ekki væri tunglskini fyrir að fara. Loðnan stendur enn djúpt á um 60 faðma dýpi og er það vegna þess að hitaskil í sjónum eru þar fyrir ofan. Bræla var á miðunum í gær og 10 stiga frost og vænta menn að það leiði til þess að efri lög sjávarins kólni með þeim af- leiðingum að loðnan leiti þangað upp og þar með verði auðveldara fyrir loðnuveiðiskipin að ná henni í nætumar. Hingað til hafa aðeins þau skip sem em með djúpa nót eitthvað fengið ss. Helga 2. en önnur hafa rétt getað kroppað í efstu lög torfanna. í fyrradag og í gær tilkynntu 10 skip samtals aðeins 2.950 tonn. Þá reif hnúfubakur gat á nótina hjá Víkurberginu og er það ekki í fyrsta skipti sem það gerist á mið- unum á þessari vertíð. í gær var spáð 5- 7 vindstigum nyrðra og því getur bmgðið til beggja vona hvort einhver veiði verður um helgina sökum veðurs. -grh VSÍ Hættuleg heimild Framkvœmdastjórn VSÍ telur stórhættulegt að sveitarstjórnir nýti sér heimild um hœkkun fasteignaskatta Vinnuveitendur eru uggandi hreint tilræði við búsetu fólks og vegna möguleika sveitar- fyrirtækja á landsbyggðinni, ef stjórna á að nýta sér nýfengna sveitarstjómir falla í þá freistni lagaheimild til hækkunar fast- að hækka fasteignaskatta langt eignaskatta, sem byggir á að allar umfram verðlagsþróun,“ einsog fasteignir væru staðsettar í segir orðrétt í ályktuninni. Reykjavík. Tefja þeir fyrirtæki á Framkvæmdastjómin varar landsbyggðinni ekki þola frekari einnig sveitarstjórnir við að skattahækkanir umfram al- hækka aðstöðugjöld á einstaka menna verðlagsþróun. atvinnugreinar. „Áform um Fundur framkvæmdastjómar aukna skattheimtu sveitarfélaga VSÍ ályktaði í gær að þarsem án tillits til afkomu lýsa sorglegu atvinnurekstur á landsbyggðinni skilningsleysi á stöðu fyrirtækja, hefðu staðið höllum fæti að und- atvinnuástandi og kjömm fólks á anfömu og fjöldi fólks flust til tímum samdráttar í þjóðarbú- höfuðborgarsvæðisins „væri það skapnum,“ segir í ályktuninni. HELGARRÚNTURINN GJAFAKAPPHLAUPIÐ færist nú í algleyming því í kvöld era verslanir opnar til kl. 22. Hætt við að kúltúrinn verði undan að láta í þeim darraðardansi. Galleríin reyna að fylgjast með og lokka til sin fólk með upplestri, jólaglöggi og piparkökum en á stöku stað em þó einkasýn- ingar í gangi. Hringur sýnir í Myndlistaskóla Akureyrar, Gunnar Bjamason sýnir málverk í Bókasafni Kópavogs, vestur í Slúnkaríki á Isafirði eru fjórir listamenn með leir, myndvefnað og teikningar, Gunnar Hjartarson sýnir myndir frá Ítalíu á Mokka, Grímur Marinó Steindórsson sýnir klippimyndir og fleiri verk í SafnaðarheimiU Kópa- vogskirkju og vestur á Seltjamamesi sýna Myndlista- og handíða- skólinn og Þjóðkirkjan verk sem bámst í samkeppni um kirkjulista- verk, að sjálfsögðu í kirkjunni... KIRKJUR LANDSINS em óhemju virkar þessa dagana enda mikil hátíð í nánd. I Laugarneskirkju stendur yfir tónlistarvika og í dag kl. 17 verður leikið á orgel kirkjunnar en við messur á morgun verður bamakór og Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur. í kvöld verður svo Lúsíuhátíð í Akureyrarkirkju og hefst kl. 20.30. Á morgun sunnudag kl. 16 verður ensk jólamessa í Hallgrímskirkju en kl. 17hefjastjólatón- leikar Kirkjukórs Akraness í Vinaminni. Annað kvöld kl. 20.30 minn- ast Hafnfirðingar þess að 75 ár eru liðin frá vígslu Hafnarfjarðarkirkju og verður fyrst jólavaka í kirkjunni en svo afmælishóf í Hafnarborg... TÓNLISTIN verður með æ meiri helgiblæ eftir því sem jólin nálgast. Þó er það ekki algilt, ekki er víst að jólalögin verði allsráðandi á nemendatónleikum FÍH-skólans í Rauðagerði 27 en þar leika nemend- ur í almennri deild kl. 14, slagverksnemar kl. 15.30 og rokkarar og sveiflumeistarar framtíðarinnar kl. 17.00. Klukkan 17 hefjast einnig tónleikar Islensku hljómsveitarinnar í Langholtskirkju en um kvöldið er hægt að hrista úr sér jólastressið með Hallbirni kántríkóngi í Holly- wood. Á morgun kl. 17 verða tónleikar hjá Kammersveit Revkjavíkur í Áskirkju og svo er hægt að slaka enn betur á í Heita pottinum í Duus-húsi um kvöldið því þar fer Guðmundur Ingólfsson fimum fingr- um um slaghörpuna... LEIKLISTIN komin í jólafrí en leikarar bregða á leik í Leikhúskjallar- anum á morgun kl. 15. Og svo er ýmislegt jólastand í gangi. Kveikt á jólatré í Kópavogi á morgun kl. 16, brúðuleikur og helgileikur undir stjórn Maríu Eiríksdóttur í íþróttahúsi fatlaðra kl. 14.30 á morgun, brúðuleikhús Jóns E. í Þjóðminjasafninu í dag og á morgun kl. 14, jólagleði fvrir böm í Norræna kl. 15 á morgun, tónlist og upplestur úr bókum í FIM-galleríinu í dag kl. 15 og nú í hádeginu les Stefán Hörður Grímsson ljóð sín í Listasafni íslands... SPiMlTAKUS er kannski engin jólamynd en þar er stiginn hinn feg- ursti ballett og hann má sjá á kvikmyndasýningu í MÍR-salnum á morgun kl. 16... HANDBOLTINN er á fullu og í dag verða þrír leikir í fyrstu deildinni, þeir síðustu fyrir jól því nú fer deildin í frí fram í miðjan janúar. Nú er það landsliðiö sem gildir. Og það verða fjórir leikir í úrvalsdeild körfúboltans, átta liða úrslit í blaki og jólamót Ármanns í frjálsum...

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.