Þjóðviljinn - 16.12.1989, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 16.12.1989, Blaðsíða 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar JÓLALYNDI Landhelgismál- in eilífu Sigrar íslendinga í baráttunni fyrir útfærslu landhelginnar eru bersýnilega sú Lilja sem allir vildu kveðið hafa. Það sýna meðal annars þau skrif sem nú birtast í blöðum og stefnt er gegn nýútkominni bók Lúðvíks Jósepssonar, sem var sjáv- arútvegsráðherra í tveim erfiðustu hrinum þorskastríðanna. Menn bera sig illa og segja: það var Ólafur Jóhannesson en ekki Lúðvík sem sigraði Breta. Það var Sjálfstæðisflokkurinn sem kom málum í höfn meðan Lúðvík og hans menn vildu barasta hleypa öllu í bál og brand í Nató. Lífsreyndur maður hefur sagt: framtíðin er lítt á okkar valdi, nútíminn hraðfleygari en hönd verði á fest, því er fortíðin það eina sem við getum breytt. Þessi orð koma óneitanlega upp í hugann, þegar hugsað er til þess fram- halds á landhelgisdeilum sem við verðum nú vitni að. Um leið og við hljótum að spyrja: hvers vegna vilja menn „breyta fortíðinni" sér í hag í þessu máli? Ástæðurnar eru tvær. Önnur er sú að landhelgismálið var síðasta sóknin í íslenskum sjálfstæðismálum. í meira en öld höfðu íslendingar barist fyrir því að taka sín mál í sínar hendur, stjórnsýslu jafnt sem nýtingu landsins auðlinda. Það var blátt áfram lífsnauðsyn að staðfesta þá pólitísku þróun sem lauk með stofnun lýðveldis 1944 með íslensku forræði yfir fiskimiðunum. Hin ástæðan er sú, að þessi síðasta sókn í sjálfstæðismálum blandast saman við ósigra og margskonar tvísýnu að því er varðar stöðu smáþjóðar í heiminum. Ekki einungis vegna þess að sú staðreynd að ísland var komið í Nató og að hér var bandarísk herstöð hafði, eins og Lúðvík Jósepsson rekur í sinni bók, lamandi áhrif á fram- göngu forystumanna Natóflokkanna þriggja í landhelgismá- linu. Heldur vegna þess einnig, að sá vandi sem íslendingar nú standa frammi fyrir vegna viðræðna um aðlögun að viðskiptaháttum Evrópubandalagsins var þegar kominn upp á tímum þorskastríðanna. Árið 1972 var unnið að samkomu- lagi um viðskipti íslendinga við Efnahagsbandalagið Það laut að bví að iðnaðarvörur frá EB skyldu fá svipaða tolla- meðferð hér og hliðstæðar vörur frá EFTA-löndunum. Það þótti sanngjarnt að þessari lækkun tolla í innflutningi til Islands fylgdi lækkun tolla á íslenskum afurðum í löndum Efnahagsbandalagsins. En þegar kom að því að láta þetta samkomulag ganga í gildi sneru fulltrúar Efnahagsbanda - lagsins í Brussel við blaðinu. Þeir lögðu fram sérstaka bókun, svonefnda bókun nr. sex, sem kvað svo á að ísland fengi ekki notið þessara gagnkvæmu réttinda nema fyrst hefði tekist „ásættanlegt samkomulag í fiskveiðideilu íslendinga og Breta og Vestur-Þjóðverja". Og eins og Lúðvík Jósepsson rekur, þá var þetta ekki í fyrsta sinn sem reynt var að fá íslendinga til að gefa eftir í landhelgismálinu með viðskiptaþvingunum eða freisting- um. Þegar á ýmsum skeiðum landhelgismálsins kom það líka fram, að einmitt þeir sömu aðilar reyndust fúsastir til að semja um undanþágur og veiðiheimildir til erlendra aðila, sem nú eru bráðlátastir við að laga sig að viðskiptaháttum Evrópubandalagsins. Rétt eins og á dögum landhelgismáls- ins teljast nú allir flokkar sammála - það verði að tiyggja íslensk yfirráð yfir fiskimiðum og því komi ekki til mála að ganga beinlínis í Evrópubandalagið. En rétt eins og þá mun það koma á daginn, að þegar á reynir mun skerpast munur- inn á milli þeirra sem telja það afsal landsréttinda sem hinir Evrópufúsu kalla eðlilegt viðskiptafrelsi eða einhverjum enn áferðarfallegri nöfnum. pJÓÐVILJINN Síðumúla 6-108 Reykjavík Sími:681333 Kvöldsimi: 681348 Símfax:681935 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Rltstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H.Torfason. Fróttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Aðrirblaðamenn: DagurÞorleifsson, ElíasMar(pr.),Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pótursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Inavarsson (Ijósm.), Lilja Gunnarsdóttir, Ólafur Gíslason.ÞorfinnurOmarsson (Iþr.), ÞrösturHaraldsson. Skrif8tofuatjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir. Auglý8ingastjóri: Olga Clausen. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi- mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbrelðslu- og afgreiðslustjóri: Guðrún Gísladóttir Afgreiðsia: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 68 13 33 & 68 16 63. Símfax:68 19 35 Auglýsingar: Síðurnúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140kr. Áskr iftarverð á mánuði: 1000 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. desember 1989 I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.