Þjóðviljinn - 16.12.1989, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 16.12.1989, Blaðsíða 11
í DAG Hœstiréttur Þjóðviljinn sýknaður af refsikröfum Úrskurður Hœstaréttar ímáli Útgáfufélags Þjóðviljans, Árna Berg- manns og Össurar Skarphéðinssonar gegn Guðmundi G. Þórar- inssyni Nýlega kvað Hæstiréttur upp úrskurð í máli Útgáfufélags Þjóð- viljans, Árna Bergmanns og Ossurar Skarphéðinssonar gegn Guðmundi G. Þórarinssyni. í dómi sínum felldi Hæstiréttur niður refsisektir á hendur rit- stjórum blaðsins og Útgáfufélagi Þjóðviljans auk þess sem máls- kostnaður feUur niður hvað varð- ar Útgáfufélagið. Þá féll Hæsti- réttur frá þeirri kröfu undirréttar að dómsúrskurður birtist áber- andi á forsíðu Þjóðviljans. Hins- vegar er farið fram á að dómsorð og forsendur dóms birtist í Þjóð- viljanum i fyrsta eða öðru tölu- blaði ÞjóðvUjans sem gefíð verð- ur út eftir birtingu dómsins. Þjóð- viljanum barst dómurinn í fyrra- dag og er hér orðið við úrskurði Hæstaréttar: Forsendur „Fram er komið að síðari um- mælin, sem greind eru hér að framan, eru röng og ber að stað- festa niðurstöðu héraðsdómsins varðandi ómerkingu þeirra. Þeg- ar ummælin í fyrirsögn fréttarinn- ar eru metin verður að líta á fyrir- sögnina og fréttina í heild. í frétt- inni er sagt að rannsókn á bók- haldi fyrirtækisins nái nokkur ár aftur í tímann. Fyrirsögn og frétt lesin í heild verða ekki öðru vísi skilin en að verið sé að drótta því að stefnda að hann tengist meintum skattsvikum fyrirtækis- ins. Þessi ummæli hafa ekki verið réttlætt og ber því einnig að stað- festa niðurstöðu héraðsdóms um ómerkingu þeirra á þann hátt sem í dómsorði greinir. Aðdróttun sú er felst í hinum ómerktu ummælum er í héraðs- dómi réttilega talin varða við 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hér þykir mega líta til þess að samkvæmt framburði Guðmundar Þórðarsonar hafði embætti ríkisskattstjóra afskipti af álagningu söluskatts á því tímabili sem stefndi var fram- kvæmdastjóri, rangar tímasetn- ingar í fréttinni voru leiðréttar í Þjóðviljanum og ómótmælt er að úrskurður siðanefndar Blaða- mannafélags íslands frá 26. fe- brúar 1986, sem taldi fréttina al- varlegt brot á siðareglum félags- ins, var birtur athugasemdarlaust í blaðinu skömmu síðar. Refsing þykir því mega niður falla með hliðsjón af 8. tl. 1. mgr. 74. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 2 mgr. sömu greinar. Staðfesta má ákvæði hins áfrýj- aða dóms um 100.000,00 króna miskabætur stefnda til handa með þeim vöxtum sem í dóms- orði greinir. Samvæmt 22. gr. laga nr. 57/ 1956 ber að fallast á kröfur stefn- da um birtingu á dómsorði og for- sendum þessa dóms á þann veg að eftir verði tekið í fyrsta eða öðru tölublaði Þjóðviljans, sem gefið verður út eftir birtingu dóms þessa. Samkvæmt heimild í 2. mgr. laga nr. 19/1940 er stað- fest ákvæði hins áfrýjaða dóms um 50.000,00 króna greiðslu til stefnda til að kosta birtingu dóms þessa í opinberu blaði eða riti. Ákvæði hins áfrýjaða dóms um málskostnað eru staðfest. Áfrýjendum, Árna Bergmann og Össuri Skarphéðinssyni, ber að greiða stefnda 75.000,00 krón- ur í málskostnað fyrir Hæstarétti. Rétt þykir að málskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður að því er varðar Útgáfufélag Þjóðviljans. Dómsorð: Aðdróttun um tengsl stefnda Guðmundar G. Þórarinssonar við meint skattsvik, sem fram kemur í fyrirsögn forsíðufréttar 4. tölublaðs Þjóðviljans 51. ár- gangs hinn 7. janúar 1986, skal vera dauð og ómerk. Eftirgreind ummæli í sömu frétt: „Stjórnarformaður fyrirtækis- ins og annar framkvæmdastjóri þess fram á haustdaga 1984 var Guðmundur G. Þórarinsson... Hann er einn af stærstu hlut- höfum fýrirtækisins.“ skulu vera dauð og ómerk. Áfrýjendur, Ámi Bergmann og Össur Skarphéðinsson, greiði in solidum stefnda, Guðmundi G. Þórarinssyni, 100.000,00 krónur í miskabætur með dóm- vöxtum frá 30. janúar 1986 til 14. apríl 1987, en með hæstu innlánsvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987 frá þeim degi til greiðsludags. Birta skal dómsorð og forsend- ur dóms þessa með áberandi hætti í fyrsta eða öðru tölublaði Þjóðviljans sem gefið verður út eftir birtingu dóms þessa. Málskostnaður varðandi Út- gáfufélag Þjóðviljans fellur niður í héraði og fyrir Hæstarétti. Áfrýjendur, Ámi Bergmann og Össur Skarphéðinsson, greiði stefnda, Guðmundi G. Þórar- inssyni, 50.000,00 krónur til að kosta birtingu dómsins í opinber- um blöðum, og in solidum sam- tals 150.000,00 krónur í máls- kostnað í héraði og fyrir Hæsta- rétti.“ L llfj ÍI-i í 9 3: i \\á* ÁAá&L Skjöldur Eiríksson fyrrv. skóla- stjóri og Þórir Daníelsson fyrrum ritstjóri, sem sat í tugthúsi fyrir blaðaskrif. Tólf viðtalsþættir Skjaldborg hefur gefið út bók- ina Við manninn mælt eftir Val- geir Sigurðsson. í kynningu segir m.a. Lesand- inn kynnist fyrst þrem afbragðs- skáldum þjóðarinnar, þeim Heiðrelri Guðmundssyni, Ólafi Jóhanni Sigurðssyni og Þorsteini Valdimarssyni. Þá koma vísinda- mennirnir dr. Símon Jóhannes Ágústsson, Bjöm Magnússon, prófessor og dr. Sigurður Sig- urðsson fyrrv. berklayfirlæknir og landlæknir. Guðrún E. Jóns- dóttir frá Reykjahlíð og Jóhanna Bjömsdóttir í Kópavogi flytja stórmerkan sögulegan fróðleik. Eiríkur Guðmundsson frá Dröngum og Jóhann Pétursson fyrrv. vitavörður fara á kostum í sagnaskemmtun. Þjóðfélasmál ber einnig á góma. Þar tala þeir hanna ferðum sínum til tíu fjar- lægra landa. Hún kemur meðal annars við í Rúanda, á Máritíus og Malawi, í írak, ísrael og Túnis og ræðir þar jafnt við höfðingja, hirðingja og hjákonur og nálgast fólkið af varfæmi en jafnframt glettni þannig að frásögnin verð- ur í senn lífleg og sönn. Jóhanna Kristjónsdóttir er þjóðkunn fyrir ritstörf sín og blaðamennsku undanfama tvo áratugi. Hún starfar hjá Morgun- blaðinu en ver flestum frístund- um sínum til ferðalaga um fram- andi slóðir. Listin að grennast Af ferðum Jóhönnu Kristjónsdóttur Vaka-Helgafell hefur gefið út bókina Dulmál dódófuglsins eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur. Bókin ber undirtitilinn: Á ferð með augnablikinu um framandi löng. Hér em nýjar minningar Jó- hönnu Kristjónsdóttur frá ferða- lögum um framandi lönd, en sama forlag gaf út á síðasta ári ferðaminningar af svipuðu tagi undir nafninu „Ffladans og fram- andi fólk“. í kynningu Vöku-Helgafells á þessari nýjustu bók Jóhönnu Kristjónsdóttir segir meðal ann- ars: í Dulmáli dódófuglsins lýsir Jó- Út er komin hjá Emi og örlygi matreiðslubók fyrir þá sem vilja grennast án þess að fara í megr- un. Bókin nefnist Minna mittism- ál án fyrirhafnar. Höfundurinn er Kristín Gestsdóttir en hún er einnig höfundur hinna „220 ljúf- fengir lambakjötsréttir“, „220 gómsætir sjávarréttir“ og „220 ávaxta- og berjaréttir“. Kristín segir í formála sínum m.a.: „Það er ekki út í bláinn að bók þessi heitir „Minna mittism- ál“. Flestir eða allir vilja minna mittismál - án fyrirhafiiar. Það skemmtilega er að minna mitt- ismál og gómsætur matur eiga sannarlega samleið.“ í bókinni er tillaga að þriggja vikna megmnarfæði og er það síðasti kafli hennar. Bókin Minna mittismál án , fyrirhafnar er 328 blaðsíður. 16. desember laugardagur. 350. dagur ársins. FYRIR c;n ÁRI IM 9.vikavetrarhefst.Sólarupprásí rrnin OU MI-IUM Reykjavíkkl.11.17-sólarlagkl. Ný skáldsaga eftir Halldór Kiljan 15.30. Laxness kemur í bókaverslanir í dag. „Hús skáldsins“ þriðj a bindi sögunnar um Ólaf Kárason er gefið út á 20 ára rithöfundaraf- mæli Halldórs. Viðburðir Framsóknarflokkurinn stofnaður árið 1916. DAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúðavlkuna " 15.-21. des. er í Laugamesapóteki og Arbæjarapóteki. Fyrmefnda apótekið eropiðumhelgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 fridaga). Sfðamefnda apótekið er ( opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN . 7 Reykjavlk sfmi 1 11 66 Kópavogur............sfmi 4 12 00 Seiq.nes.............sfmi 1 84 55 Hafnarfj.............sími 5 11 66 Garðabær.............sími 5 11 66 Slökkvlllð og sjukrabflar: Reykjavik............sfmi 1 11 00 Kópavogur............sfmi 1 11 00 Seltj.nes............sfmi 1 11 00 Hafnarfj.............sfmi 5 11 00 Garðabær.............sfmi 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavfk, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, simaráðleggingar og tlma- pantanir f síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu em gefnar (slm- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eöa ná ekki til hans. Landspft- allnn: Göngudeildin eropin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn slmi 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan slmi 53722. Næturvakt lækna slmi 51100. Garöabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsimi vaktlæknis 985-23221. Kef lavfk: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt læknae. ,1966. SJUKRAHUS Heimsóknartímar: Landspftalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspftallnn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-t8, og eftir samkomulagi. Fæðlngardeild Landspftalans: 15-16. Feðratfmi 19.30- 20.30. Öldrunarlæknlngadelld Land- spitalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdelld Borgarspftala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Hellsuvemdarstöðln við Barónsstfg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspftall: alla daga 15-16 og 18.30-19. Bamadeild: . heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17 daglega. St. Jósefsspftali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spftallnn: alla daga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. SJúkra- húslð Húsavlk: alla daga 15-16 og 19.30-20. YMISLEGT Hjálparstöð RK(. Neyðarathvarf fyrir ung- lingaTjarnargötu 35. Simi: 622266, opið allansólarhringinn. Sálfræðfstöðin. Ráðgjöf I sálfræðilegum ’ efnum. Sími 687075. MS-félaglð Álandi 13. Opið virkadagafrá 'kl.6-17. Sfminner 688620. Kvennaráðgjöf in Hlaövarpanum Vestjir- götu 3. Oplð þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, sími 21500, símsvari. Sjálf shjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, sfmsvari. Upplýsingar um eyðni. Slmi 622280, beintsamband við lækni/hjúkrunarfraeðing á miövikudögum kl. 18-19, annars slm- svari. Samtök um kvennaathvarf, sfmi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konursem beittar hafa verið ofbeldi eöa orðið fyrir nauðgun. Samtökin ’78. Svarað er f upplýsinga- og ráögjafarsima félags lesbia og homma á , mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21 - ‘ 23. Sfmsvari á öðrum tfmum. Slminn er 91-28539. Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf magnsvelta bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um slf jaspellamái. Slmi 21260 allavirkadagakl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt f sfma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Oplð hús“ krabbameinssjúkllnga Skógarhlið 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklingaog aðstandendurþeirra á fimmtudögumkl.17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmlsvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið I síma 91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 15. des. 1989 kl. 9.15. Sala Bandarfkjadollar............ 61.95000 Sterlingspund............... 99.24700 Kanadadollar................ 53.28300 Dönskkróna................... 9.18800 Norsk króna.................. 9.25460 Sænskkróna................... 9.86940 Finnsktmark................. 15.09140 Franskurfranki.............. 10.43410 Belgískurfranki............ 1.69540 Svissnesku'rfranki.......... 39.81360 Hollenskt gyllini.......... 31.59020 Vesturþýsktmark............. 35.65780 Itölskllra................... 0.04790 Austurrískursch.............. 5.06980 Portúg. Escudo............... 0.40690 Spánskurpeseti............... 0.55050 Japansktyen.................. 0.43046 Irsktpund................... 94.17300 KRÓSSGÁTA bd 7 Lárátt: 1 ruddaleg4 skjöl 6 súld 7 öruggur 9 holdug12þáttur14 «15fuglahópur Iur19friður20 heiti21 hrúgar Lóðcátt: 2 sefi 3 viljuga 4stafn5geiti7rýr8 festa 10 reikar 11 ferðin 12hest17tré 18kven- mannsnafn Lausn á sfðustu kroMoáftu uSStí1óþæg4högg 6eir7efli9ágæt12 ■ orgar14dún15afl16 déinn19skor20endi 121 nisti Lóðrátt: 2 þóf 3 geir 4 I i hráa 5 glæ 7 endast 8 ! London 10granni 11 i i tældir 13 gái 17 ári 18 jnet Laugardagur 16. desatnber 1989 ÍPJÓÐVIUINN - SlÐA 11.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.