Þjóðviljinn - 16.12.1989, Side 12

Þjóðviljinn - 16.12.1989, Side 12
—SPURNINGIN_ Hvað finnst þér um þann sið að drekka jólaglóð fyrir jólin? Sveinbjörg Sveinbjörnsd. kennari: Þetta er ágætur siður en menn verða að gæta hófs í þessu sem öðru. Ég er sjálf búin að halda eitt jólaglóðarhóf og býst ekki við að taka þátt í fleirum. Ómar Baldursson rafvirki: Mér finnst þetta vondur drykkur og smakka ekki á honum. Hins vegar er það ágætur siður að koma saman fyrir jólin ef fólk drekkur ekki of mikið. Sigurbjörg Sigfúsdóttir verslunarmaður: Ég er algerlega á móti jólaglóð- inni og áfengisdrykkju yfirleitt. Ég afþakka öll boð um að mæta í svona hóf, en ég myndi ef til vill þiggja það ef boðið væri upp á óáfenga jólaglóð. Örlygur Eyjólfsson vinnur hjá Varnarliðinu: Ég er ekkert fyrir þessa jólaglóð og mæti yfirleitt ekki í samkvæmi af þessu tagi. Það má nú frekar bjóða mér gott viskí en þetta sull. bJÓÐVILJINN Laugardagur 16. desember 1989 217. tölublað 54. árgangur. SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 SÍMFAX 681935 Nýjar bœkur Aldrei meiri viðbrögð lesenda En Vasabók Péturs Gunnarssonar veldur heilabrotum íröðum gagnrýnenda og bókasafnsfrœðinga Pétur Gunnarsson rithöfundur sendir nú frá sér bók sem á engan sinn líka í íslensku bók- menntasögunni, „Vasabók“. Þarna hefur hann safnað saman sýnishornum af því sem fléttast hefur inn í skáldverk hingað til. „Ég hef punktað niður mikið efni samfellt í vasabækur frá 1974,“ segir Pétur, „og smalað því síðan inn í verkin.“ Skrifarðu þá aldrei á pappírss- nifsi, servíettur og bíómiða? „Nei, ég er með margar minn- isbækur í gangi í einu, reyni að hafa eitt stykki í hverri yfirhöfn, auk þeirrar sem liggur á skrif- borðinu. Síðan vélrita ég efnið í tímaröð þegar tóm gefst til. Sumt fer í skáldverk, annað í greina- skrif.“ Hvað kemur til að þú birtir þetta úrval þriggja síðustu ára i „Vasabókinni“ núna? „Ég hef af mörgum ástæðum alltaf haft mikla löngun til að gera heila bók úr þessum efnivið. Klausurnar eiga skilinn sjálfstæð- an sess. í þeim felst viss lífsaf- staða sem ég kalla „að gefa lífinu tækifæri“. Af þessum sökum er heldur ekki nauðsynlegt að lesa Vasabókina frá upphafi til enda, lesandinn getur kroppað í hana hér og þar.“ Undir hvaða bókmenntagrein fellur Vasabókin? „Hún hefur þegar skapað mikil vandamál. Bókasafnsfræðingar sitja á erfiðum fundum og ræða hvemig á að skilgreina hana. Mér skilst að hún gæti þess vegna lent ” með bókum um badminton, hjól- reiðar eða kynlíf. Sjálfur held ég hún sé nú nær heimspeki. Hins vegar stendur bersýnilega í gagnrýnendum líka að fjalla um Vasabókina. Bókaútgáfan hér hefur etv. verið full stöðluð, bundin við fáar gerðir ritverka, menn eru óvanir þessu formi, þótt það sé alþekkt og vinsælt er- lendis.“ Hefurðu valið klausur sem tengjast einhverju heildarvið- fangsefni?“ „Nei, en hins vegar sé ég núna, að það er ákveðínn váboði í mörgum textanna, hugleiðing um dauðann, eins og það sé komið hausthljóð í vindinn.“ Útgáfufyrirtæki þitt sem gefur út Vasabókina heitir Punktar. Samt hafa varla sést færri pun- ktar í nokkurri bók, þá vantar fyrir aftan hverja klausu... „Já, þetta er til að undirstrika að textinn er ferskur og opinn, ég hef bannað mér að fullvinna hann. Meira að segja eru 6 auðar síður aftast handa lesandanum til að skrifa athugasemdir á.“ Eru klausur eins og Vasabókin geymir eitthvað í ætt við frumriss eða skissur listmálaranna?“ „Nei, þetta em sjálfstæðir og fullvaldasúputeningar. Sannleik- urinn er sá, að skáldsagan er staðlað og hefðbundið form, þar eru vissir kækir, sem erfitt er að sneiða hjá. Ef búið er að segja eitt, verður annað að fylgja. Ég tók svo eftir því, að minnispun- ktar sem ég setti inn í samhengi skáldsögunnar vildu stundum dofna þar. í Vasabókinni reyni ég að Iáta þann draum rætast að halda upprunaleika athugasemd- anna.“ Hver eru viðbrögð lesenda?“ „Þögn gagnrýnenda, en meiri persónuleg viðbrögð frá al- mennum lesendum en ég man eftir áður. Fólk finnur greinilega hvöt hjá sér til að láta mig vita að klausurnar hafi haft áhrif á sig.“ Um daginn last þú ásamt öðr- um rithöfundum úr nýjum skáld- verkum í Listasafni Sigurjóns, en það var allt önnur bók. „Já, það var óbirt skáldsögu- handrit sem ég hef haft í smíðum í nokkur ár og hugsanlega kemst á prent á næsta ári.“ Hvernig líst þér á hinar jóla- bækurnar? „Of snemmt er að spá um þær, en ég tek sérstaklega eftir því hvað núna hefur komið mikið af frambærilegum ljóðabókum.“ „Mér finnst best að skrifa með fótunum, segir Pétur og á þá við hugleiðingar á gönguför sem eiga drjúgan þátt í efni yfir 30 vasabóka, uppistöðunnar í skáldsögunum fjórum. Nú gefur skáldið okkur tæki- færi til að líta í smiðju sína með útgáfu á „Vasabók", lofsöng til augnabliksins. Mynd: Kristinn Hefurðu reynt að semja á frön- sku? „Það hefur aldrei hvarflað að mér. Til að skapa lifandi texta þarf maður að skrifa í eins á- reynslulausu ástandi og hægt er. Það er nægilegt öryggisleysi að fást við skáldskap þótt maður bæti ekki hinu ofan á, annarri tungu en móðurmálinu." Hvað er þér efst í huga núna? „Ég legg til að nagladekk verði lögð niður. Þau eru dæmi um sjálfseyðingarhvöt íslendinga, eins konar sjálfsköpuð móðu- harðindi. Nauðsynlegur þáttur í lífi mínu sem rithöfundar er úti- vera, gönguferðir. Mér gengur best að skrifa með fótunum, þarf að vera með vinnuna í huganum og ganga með hana. Nagla- dekkjaófögnuðurinn spillir og forklúðrar öllu umhverfinu, tætir upp tjöruryk, veldur kvefi og ógnar sálarheill vegfarenda." -ÓHT Ég og Iffið: Guðrún Ásmandsdóttir og Inga Hnld Hákonardóttir Mest selda íslenska bókin skv. raetsölnlista DV i :

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.