Þjóðviljinn - 16.12.1989, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 16.12.1989, Blaðsíða 8
BÆKUR Meiri pælingar Páll Skúlason Pælingar II. Safn erinda og greinastúfa. 206 bls. Útg. höfundur,1989. Á þessa bók hefur Páll Skúla- son safnað erindum og greina- stúfum, sem hafa birst í blöðum og tímaritum síðastliðinn áratug. Einnig tveimur viðtölum sem tekin voru við hann af Guðmundi Páli Arnarsyni og Páli Valssyni. Þetta eru styttri greinar en birtust í „Pælingum" fyrir tveimur árum og flestar frá þeim tíma sem lið- inn er síðan sú bók kom út. Les- andinn rifjar hér upp kynni við heldur viðaminni verk en birt eru í fyrri bókinni. En viðfangsefnin eru eggjandi og viðamikil sem fyrr eins og kaflaheitin bera með sér: Siðfræði, stjórnmál, þjóð- mál, kennslumál og lífsskoðanir. Innan hvers kafla eru mis- metnaðarfull verk. Ailt frá dæg- urgreinum, sem einkenna þjóðmálakaflann, til djúphugs- aðra erinda sem lengi verða í minnum höfð. Meðal þeirra er erindið um hamingjuna og for- sendur hennar. Páll segir í for- mála að sú grein sé „tilraun til að greina ólíka þætti hamingjunnar en jafnframt hugsuð sem hvatn- ing til íslendinga um að temja sér skynsamlegri lífsafstöðu. “ Fræðari, sem tekur sér svo metn- aðarfullt hlutverk, verður að hyggja vel að leiðum til að koma verki sínu á framfæri. Leið Páls með þetta erindi var: ráðstefna, erindi í útvarpi, birting í tímariti og loks bók. Pví miður eigum við ekki marga fræðimenn sem skila merkum verkum svo rækilega frá sér að almenn menntun og yfir- sýn þjóðarinnar skerpist við kynnin. En Páll er einn þeirra. f erindinu um hamingjuna birt- ast kostir helstu verka sem Páll Skúlason hefur kynnt okkur á seinni árum: Rökleg og skýr framsetning sem hvetur til um- hugsunar og er ögrandi á köflum. Eftir að hafa lýst fernskonar meg- inviðhorfum til hamingjunnar segir höfundur til dæmis: „Þetta ríkjandi löngunarviðhorf til ham- ingjunnar er hjá okkur íslending- um órofa tengt því sem ég vil kalla leikviðhorf til hamingjunn- ar. Satt að segja eru íslendingar upp til hópa seinheppnir ævin- týramenn sem freista gæfunnar í tíma og ótíma og láta sér ekkert fyrir brjósti brenna, þeim þykir jafnvel skemmtilegast að lifa HÖRÐUR BERGMANN SKRIFAR undir kjörorðinu „þetta reddast“ þegar allt er í kalda koli.“ Mín vegna mætti ögrandi broddur í þjóðmála- og kennslu- málaskrifunum vera hvassari. Er- indi um kennslu og nám frá 1984 ber forvitnilegt heiti, „Sjálfs- blekkingar kennarans“, en ég fæ ekki séð að textinn sá sæti sér- stökum tíðindum. Vandinn við að kenna vel er reifaður með at- hyglisverðum hætti og gerð ágæt grein fyrir því álagi sem fylgir ábyrgri og vandaðri kennslu. En vegna þess að Páll ræðir iðulega hina hlið vanda, sem hann fjallar um, sakna ég þess að ekki skuli vikið að vandamálinu óábyrg og óvönduð kennsla. Er ekki hugs- anlegt að meiri hluti nemenda fái kennslu sem ber þau einkenni hvort sem litast er um innan hins opinbera skólakerfis eða námsins sem einkaaðilar bjóða? Við höf- um heyrt meira en nóg um það hvernig kennsla ætti að vera - en allt of lítið um raunverulegt líf í kennslustofum. Eitt þungvægasta erindið í þessum pælingum Páls Skúla- sonar nefnist „Réttlæti, velferð og lýðræði." Það snýst um dygðir og lesti, völd og gæði lífsins, hug- sjónina um réttarríki og vel- ferðarsamfélag. Þar virðist mér hvað fróðlegust tilraun Páls til að skýra togstreitu sem getur skapast milli hugmynda manna um velferð annars vegar og sið- rænnar kröfu, réttlætis, hins veg- ar: „í ákafa sínum við að gera það sem horfir til góðs leiðast menn og flokkar út í að gera það sem er rangt, margoft óafvitandi“. í Páll Skúlason framhaldinu sjáum við þetta dæmi: „Árangur af öllu vel- ferðarstarfi veltur á því að fólk skilji það sem framfarir í opin- beru siðferði. Svo dæmi sé tekið er umhugsunarvert hvort það þjónar tilgangi að leggja tugi milljarða í heilbrigðiskerfi sem stuðlar að því að lengja líf fólks sem hefur hvorki efnisleg né and- leg skilyrði til að njóta lífsins. Það eru hins vegar brot á mannréttindum að hindra full- frísk gamalmenni í því að vinna sómasamlega fyrir sér á meðan þau hafa orku til.“ Fyrra dæmið virðist mér vísa til augljóss vanda, en hið meinta mannréttindabrot skil ég ekki. Ber að skilja svo að mikilvægari skuli telja réttinn til að paufast á vinnumarkaði þangað til maður hnígur niður en réttinn til að njóta lífeyris og hafa tíma til eigin nota? Hvort er mikilvægara: atvinna fyrir unga fólkið sem er að byggja og a\y upp börn eða atvinna fyrir gamalmenni? Málið hlýtur að verða að skoða með hliðsjón af því að flest störf, sem bjóðast á vinnumarkaði, eru leiðigjörn og tilbreytingarlaus. Og ekki hafa allir atvinnu. Hefur heimspekingur í skapandi og skemmtilegu starfi e.t.v. gleymt því í hita rökræðunnar? Hér er víst komið út yfir mörk þess rúms sem frekar lítið blað eins og Þjóðviljinn getur gefið umsögn um bók um þessar mund- ir. Og mörg fróðleg umræðuefni að sjálfsögðu óhreyfð. En ég má til með að láta þess getið hve vel er til útgáfunnar vandað. Bókin er myndskreytt af Sigríði Ás- geirsdóttur, pappírinn er þykkur og virðulegur, letrið stórt og fag- urt og bókin bundin inn með gömlu aðferðinni. Kristján Thorlacius mættur til leiks á ný Út er komin hjá Bókaútgáf- unni Reykholti bókin Kristján Thorlacius: Þegar upp er staðið. Kristján er hreinskilinn og afar SELDIHANN TUKTHUSIÐ LEYFISLEYSI? Braut hann flöskurnar viljandi? í samtalsbók Eðvarðs Ingólfssonar, metsölu- höfundar, er þessum spurningum og mörg- um fleiri nú loksins svarað af þjóð- sagnapersónunni sjálfri Árna Helga- syni, fréttaritara, gamanvísnahöfundi, sýsluskrifara, skemmtikrafti, útgerðarmanni, umboðs- manni, póstmeistara og spaugara. Árni í Hólminum hefur alltaf komið á óvart með hnyttnum tilsvörum, kveðskap og söng. í bókinni ÁRNI í HÓLMINUM - ENGUM LÍKUR! lýsir hann dvöl sinni á Eskifirði og í Stykkishólmi og segir ótal gamansögur af sér og samferðamönnum sínum - sumar ævintýrum líkastar. Ef spurt er eftir fróðleik, skemmtun og hraðri atburðarás, þá er svarið: ÁRNI í HÓLMINUM - ENGUM LÍKUR. ÆSKANh opinskár í þessari bók. Margt af því sem fram kemur um nærri 30 ára starfsævi Kristjáns sem for- maður BSRB á því eftir að vekja athygli. Má þar nefna misjöfn samskipti Kristjáns við yfirmenn og viðsemjendur. Þá segir frá því að „verkalýðsflokkarnir" séu oft verri viðsemjendur en íhaldið og að stærstu áfangarnir í kjarabar- áttu BSRB hafi náðst í samning- um við hægri stjórnir. Eftirminni- leg er frásögn Kristjáns af því þegar forstjóri Skipaútgerðar ríkisins háði stríðsleik gegn BSRB með stuðningi ráðuneytis- stjóra samgönguráðuneytisins, Ólafs Steinars Valdimarssonar. Um lífeyrissjóðamál kemur fram það álit Kristjáns að BHMR- menn séu fastir í skotgröfunum og ASÍ-menn þjáðir af öfund. Kristján skýrir frá ýmsu sem tengist þátttöku hans í stjórnmálum. Hann segir frá því að eitt sinn þegar ungliðarnir í Framsóknarflokknum greiddu atkvæði „rangt“ á aðalfundi, hafi atkvæðin verið geymd ótalin í bankahólfi í Búnaðarbankanum þar til búið var að semja um úr- slitin. Einnig skýrir hann frá því þegar Steingrímur Hermannsson stofnaði atvinnurekendaklúbb innan Framsóknarflokksins til mótvægis við verkalýðsmálaráð, sem síðan var lagt niður. Af skemmtilegum atvikum sem nefnd eru í bókinni má nefna það þegar alræmdir drykkjubolt- ar í Framsóknarflokknum gerðu tillögu um að flokkurinn yrði gerður að bindindisflokki - til að skaprauna Kristjáni. Bókin er skrifuð af sóknar- prestinum á Höfn í Hornafirði, sr. Baldri Kristjánssyni. í henni tekur hann skref frá við- talsforminu, nýtir kosti þess en kannar jafnframt baksvið at- burða. Slæmur fjárhagur og þverrandi olíubirgðir í austri og vestri valda ráðamönnum vaxandi áhyggjum svo að þeir hyggja á víðtækt samkomulag um afvopnun. Framleiðendur vopna og olíu í Bandaríkjunum svífast einskis til að koma í veg fyrir undirritun afvopnunarsamningsins. ISAFOLD

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.