Þjóðviljinn - 21.12.1989, Síða 1
Fimmtudagur 21, desember 1989 220. tölublað 54. árgangur
Mið-Ameríka
Bandaríkin raðast á Panama
Sovétmenn fordœma, Japanir áhyggjufullir. Verður Noriega píslarvottur?
Bandarískar hersveitir réðust í
fyrrinótt á bækistððvar Nori-
ega, einræðisherra í Panama, og
panamska hersins í Panamaborg
og víðar í landinu. Bardagar
geisuðu enn síðdegis í gær og var
vitað að tugir manna höfðu fallið.
Bandaríkjamenn höfðu hugsað
sér að ná Noriega, sem lengi hefur
staðið upp í hárinu á þeim, á sitt
vald, en hann komst undan og ber
fregnum ekki saman um hvar
hann haldi sig. Margaret Thatc-
her, forsætisráðherra Bretlands,
hefur lýst yfir stuðningi við
Bandaríkin í máli þessu en So-
vétríkin og Kúba fordæma árás-
ina sem brot á stofnskrá Samein-
uðu þjóðanna og hvetja Banda-
ríkin til að kveðja herlið sitt til
baka. Japanska stjórnin hefur
lýst yfir áhyggjum út af þessari
hernaðaraðgerð Bandaríkjanna.
Gert var ráð fyrir að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna kæmi sam-
an í gærkvöldi til að ræða árás-
ina.
Sumir fréttaskýrendur telja að
vopnin geti snúist ónotalega í
höndum Bandaríkjastjórnar í
máli þessu. Þótt Noriega sé illa
ræmdur má vera að Bandaríkja-
mönnum takist með grímulausri
hernaðarárás á land hans að gera
hann að píslarvotti í augum
margra rómanskra Ameríkana,
sem vel muna fyrri hernaðar-
íhlutanir Bandaríkjanna í Mið-
Ameríku, Mexíkó og Vestur-
Indíum.
dþ.
Sjá síðu 6
Alþingi
Samkomulag, en
Samkomulag náðist ígœr umframgang mála
fyrirjól. Sjálfstœðismenn vilja afsökun frá
Guðrúnu Helgadóttur sem segist ekki skilja
hvað hún eigi að afsaka. Forsœtisráðherra
ánœgður með samkomulagið
Eftir mikil fundahöld, sem ma.
leiddu til þess að fresta varð
deildarfundum í þrígang á Al-
þingi í gær, náðu þingflokkar
stjórnar og stjórnarandstöðu
samkomulagi um framgang mála
á Alþingi fyrir jólaleyfi. Fjár-
málaráðherra gekk einnig frá
samkomulagi við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga um hlut-
deild sveitarfélaganna í greiðslu
tannlæknakostnaðar og eitt af
frumvörpunum sem samkomulag
varð um að fresta fyrir áramót er
frumvarp um hcilbrigðisþjónustu
en innihald þess er tilefni deilu
borgarstjórans í Reykjavík við
fjármálaráðhcrra.
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra sagðist í gær
vera ánægður með samkomulag
þingflokkanna og hann liti svo á
að þingið gæti lokið störfum fyrir
föstudagskvöld. Ríkisstjórnin
kæmi með samkomulaginu flest-
um þeim málum í gegn fyrir jól
sem hún legði áherslu á. Hann
hefði boðið sl. föstudag að nokk-
ur mál biðu; umhverfisfrumvörp-
in tvö, skattur á orkufyrirtæki,
bifreiðagjald, en nú hefði frum-
varpi um heilbrigðisþjónustu ver-
ið bætt þar við. Aðalatriðið væri
samkomulag sem náðst hefði við
sveitarfélögin og borgarstjóra.
Viðhorf ríkisstjórnarinnar
varðandi stjórnunarfyrirkomulag
Borgarspítalans hafa ekkert
breyst að sögn forsætisráðherra
og borgarstjóri heldur fast við
sína afstöðu. En samkomulagið
gerir ráð fyrir að ríkið greiði allan
kostnað við rekstur Borgarspítal-
ans á næsta ári en viðræður verða
hafnar á milli aðila um rekstur
heilbrigðisstofnana.
Olafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra vildi ekki segja að
hann hefði staðið í deilu við borg-
arstjóra. Málið hefði hins vegar
snúist um að ef Reykjavík vildi
ekki sætt sig við að Alþingi og
ríkisstjórnin ákveddu stjórnar-
form Borgarspítalans og vildi
áfram óbreytt form, yrði borgin
að taka þátt í kostnaði við rekst-
urinn. Eftir fund forsætisráð-
herra með borgarstjóra lægi ljóst
fyrir að ríkisstjórnin muni beita
sér fyrir því í janúar að frumvarp
um stjórn sjúkrahúsa og heilsu-
gæslustöðva verði afgreitt, í sam-
„Æ Óli minn, hvaða pappír er þetta?" gæti Steingrímur Hermannsson verið að segja á þessari mynd, þar sem hann sat í
Kringlunni í Alþingishúsinu með Óla Þ. Guðbjarttssyni dómsmálaráðherra og Júlíusi Sólnes hagstofuráðherra. Mynd:
Jim Smart.
ræmi við stefnu stjórnarinnar.
Að sögn fjármálaráðherra átti
hann fróðlegan fund með fulltrú-
um starfsfólks Borgarspítalans í
gær. Það hefði sett fram ósk um
meiri hlutdeild í stjórn spítalans
og sér þættu þær hugmyndir mjög
athygliverðar. Nánar yrði rætt
um þetta við starfsfólkið í janúar
en borgarstjóri hefði afsalað sér
möguleikum til að hafa afgerandi
Fjárdráttur
Týndur í kerfinu
Fjársvikum íOrkubúi Vestfjarða stungið undirstól ísjö mánuði.
Uppgjör innkaupastjórans látið nœgja
Enda þótt rúmt ár sé liðið frá
því að upp komst um fjársvik
innkaupastjóra Orkubús Vest-
fjarða hefur málið ekki hlotið
eðlilega sakameðferð. Innkaupa-
stjórinn gerði upp skuldir sínar
við fyrirtækið og verður það að
líkindum látið nægja, því málið
virðist nú „týnt í kerfinu“.
Eftir að upp komst um fjár-
dráttinn viðurkenndi innkaupa-
stjórinn að hann hefði dregið til
sín rösklega eina miljón króna.
Málið var þá sent ríkissaksókn-
ara, en þaðan var það sent til iðn-
aðarráðuneytisins til umsagnar.
Ráðuneytinu ber að senda málið
aftur til saksóknara en þar hefur
málið verið í sjö mánuði.
Að sögn Jóns Erlendssonar
fulltrúa ríkissaksóknara bárust
viðbótargögn frá ísafirði 5. maí
sl. þarsem fallið var frá kæru.
Gögnin voru send í ráðuneytið og
hefur ekki verið hreyft við málinu
síðan. Jón sagði saksóknara taka
afstöðu til málsins þegar það bær-
ist aftur frá ráðuneytinu.
Bæjarfógetaembættið á ísa-
firði gat engar upplýsingar gefið
um hvort eða hvers vegna fallið
var frá kæru. Orkubúið mun
hinsvegar ekki hafast frekar að í
málinu, enda kærði það aldrei
innkaupastjórann.
„Við óskuðum einfaldlega eftir
rannsókn og hún fór féHdega
fram. Viðkomandi er búinn að
gera upp sín mál við okkur og það
er ákæruvaldsins að ákveða
næsta skref,“ sagði Kristján Har-
aldsson orkubússtjóri í samtali
við Þjóðviljann.
-þóm
áhrif á stjórn spítalans á næstu
árum.
Samkomulag fjármálaráð-
herra við sveitarfélögin gerir ráð
fyrir að sveitarfélögin greiði 1/3
af kostnaði við tannlækningar,
eða um 250 milljónir í stað 346
milljónir eins og fyrirhugað var.
Ólafur taldi þetta gott samkomu-
lag. Þá hefði verið ákveðið að
setja 40 milljónir í Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga á þessu ári, til að
styrkja verst settu sveitarfélögin.
Á næsta ári færu síðan fram við-
ræður við sveitarfélögin um
hvernig haga ætti málum til fram-
búðar.
Sjálfstæðismenn halda fast í
kröfu sína um að Guðrún Helga-
dóttir forseti sameinaðas þings
biðjist afsökunar á ummælum
sínum varðandi fjarstýringu
borgarstjóra á málþófí flokksins
á þingi og fl. Guðrún segist ekki
ætla að biðja afsökunar, enda
skilji hún ekki hvers vegna hún
ætti að gera það.
Olafur G Einarsson þing-
flokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins sagði að það lægi í
augum uppi að það færi eftir því
hvað forseti gerði í upphafi fund-
ar sameinaðs þings í dag, hvernig
gengi að þoka málum áfram þar.
Sjálfstæðismenn myndu ekki
ganga af fundi komi afsökunar-
beiðnin ekki en hann ítrekaði að
hann væri hræddur um að þing-
stöf gengju ekki vel biðjist Guð-
rún ekki afsökunar.
3
dagar tíl jóla
ijJjfx Eíto et'fSiöfcfei.''
Tíundi var
Gluggagægir
Lilja Eggertsdóttir, 12 ára,
teiknaði þennan jólalega jóla-
svein.
-hmp