Þjóðviljinn - 21.12.1989, Side 2
_____________________FRÉTTIR______________________
Borgarspítalinn
Starfsmenn mótmæla
Vilja enga ráðherraskipaðafulltrúa ístjórn. Telja breytingar á heilbrigðis-
lögum fela í sér aukna miðstýringu
Frá fundi starfsmanna Borgarspítalans í gær þar sem mótmælt var frumvarpi til laga um breytingar á heilbrigðislögum.
Ljóst er að frumvarp þetta verður ekki afgreitt fyrir jól, svo starfsmenn spítalans geta andað léttar í bili. Mynd-Kristinn
Starfsmenn Borgarspítalans
mótmæla harðlega því ákvæði í
frumvarpi til breytinga á
heilbrigðislögum sem kveður á
um að stjórn spítalans verði
skipuð af heilbrigðisráðherra.
Einnig er mótmælt ýmsum öðrum
ákvæðum lagafrumvarpsins sem
talið er að miði að því að færa
ábyrgð og forræði frá sveitarfé-
lögum yilr til ráðuneytis og þeim
áformum að gera alla starfsmenn
spítalans að ríkisstarfsmönnum.
Nái frumvarpið fram að ganga
telja starfsenn spítalans að stigið
sé skref í átt til aukinnar miðstýr-
ingar sem leiði til verri og dýrari
þjónustu þegar fram í sækir.
Starfsmenn spítalans vilja halda
óbreyttri stjórn hans og telja ekk-
ert það fram komið sem réttlæti
breytingar þar á.
Þetta kom fram á fjölmennum
fundi sem haldinn var á Borgar-
spítalanum í gærmorgun. Seinni
partinn í gær var síðan ákveðið að
frest afgreiðslu þessa frumvarps á
Alþingi fram yfir áramót.
I ályktun sem samþykkt var á
fundinum segir m.a. að þrátt fyrir
- Okkur hefur ekki borist nein
áksorun frá stjórn sjúkrastofn-
ana en hins vegar hefur áhuga-
hópur um bætta fæðingarþjón-
ustu sent okkur bréf sem við mun-
um taka afstöðu til síðar í þessari
viku. Þá munum við væntanlega
einnig fjalla um bréf stjórnar
sjúkarstofnana, hafí okkur borist
það innan þess tíma, sagði Arni
nauðsyn þess að saman fari fjár-
hagsleg og rekstrarleg ábyrgð,
réttlæti það ekki eignaraðild eða
forræði ríkisins í Borgarspítalan-
um. Ríkið kaupir þjónustu af
spítalanum og engin fjárhagsleg
Ingólfsson læknir, en hann er
einn þeirra 11 lækna sem hyggjast
leigja tvær hæðir Fæðingar-
heimilisins.
Eins og greint var frá í Þjóðvilj-
anum fyrr í vikunni hefur stjórn
sjúkrastofnana Reykjavíkur-
borgar samþykkt að senda lækn-
unum 11 áskorun um að falla frá
fyrirætlunum um að leigja húsn-
rök eru fyrir yfirtöku ríkisins,
enda hefur vel tekist til um rekst-
ur hans á undanförnum árum.
Aðrar sjúkrastofnanir hafa
einnig mótmælt þessum
ákvæðum frumvarpsins, m.a.
æði Fæðingarheimilisins og áhug-
ahópur um bætta fæðingarþjón-
ustu hefur sent læknunum sams
konar áskorun.
Samningaviðræður standa nú
yfir milli borgarinnar og lækn-
anna en Árni vildi ekki tjá sig um
hvort hugsanlega yrði hætt við þá
samningsgerð vegna þrýstings frá
áðurgreindum aðilum. -iþ
hafa stjórnendur Sólvangs og St.
Jósepsspítala í Hafnarfirði sent
frá sér mótmæli vegna þessa.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að ríkið, þ.e. heilbrigðisráðherra
skipi stjórnarformann í stjórn
sjúkrastofnana. Aðra fulltrúa í
stjórnina á ráðherra líka að skipa
að skipa formlega, að fengnum
tillögum frá sveitarfélögum og
stofnunum.
- Þetta þýðir að í raun munu
stjórnarmeðlimir starfa á ábyrgð
ráðherra en ekki þeirra sem þeir
eru tilnefndir af, sagði Magnús
Skúlason, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Borgarspítalans.
Á fundi heilbrigðisráðs borgar-
innar var lögð fram bókun vegna
þessa máls frá fulltrúa Alþýðu-
bandalags, Kvennalista og Fram-
sóknarflokks. Þar er því mótmælt
að allir stjórnarmenn verði skip-
aðir af ráðherra en talið eðlilegt
og til hagsbóta fyrir báða aðila að
ríkisvaldið hafi einn fulltrúa í
stjórnum sjúkrastofnana. -iþ
Fœðingarheimilið
Engin viðbrögð enn
Arni Ingólfsson, læknir: Tökum afstöðu til áskorananna síðar í vikunni
Húsaleiga hækkar
Frá og með 1. janúar hækkar
leiga fyrir íbúðarhúsnæði og at-
vinnuhúsnæði um 2,5%.
Reiknast þessi hækkun á þá
leigu, sem er í desember 1989.
Leiga helst svo óbreytt næstu tvo
mánuði, þ.e. febrúar og mars
1990. Þetta gildir um þá leigu sem
samkvæmt samningum fylgir vísi-
tölu húsnæðiskostnaðar eða
breytingum meðallauna.
Ný stjórn Ætt-
fræðifélagsins
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi
Ættfræðifélagsins sem haldinn
var í lok síðasta mánaðar. Nýju
stjórnina skipa þau Jón Valur
Jensson formaður, Hólmfríður
Gísladóttir varaformaður, Ing-
imar Fr. Jóhannsson ritari, Þór-
arinn B. Guðmundsson gjaldkeri
og Kristín Guðmundsdóttir
meðstjómandi. í varastjórn em
Anna Guðrún Hafsteinsdóttir og
Sigurgeir Þorgrímsson. Á sjötta
hundrað manns em félagar í
Ættfræðifélaginu.
Kringlukast
Samtök um byggingu tónlistar-
húss munu standa fyrir hlutavelt-
unni „Kringlukasti“ í Kringlunni
daglega21.,22. og23. desember.
Mörg fyrirtæki í Kringlunni og
utan hennar hafa gefið vinninga,
stóra og smáa og suma mjög
glæsilega, t.d. vöruúttektir, fatn-
að, snyrtivörur, leikföng, hljóm-
plötur og bækur. Hlutaveltan
stendur á meðann verslanir em
opnar eða þar til uppselt er. Mið-
averð er kr. 50. Hljómsveitar-
menn úr Sinfóníuhljómsveit
æskunnar annast miðasölu. Einn-
ig koma margir þekktir tónlistar-
menn í heimsókn og flytja Kring-
lugestum ljúfa tónlist. Allur
ágóði af Kringlukasti rennur til
byggingar tónlistarhúss.
Fertugir kratar
Alþýðuflokksfélag Kópavogs
verður 40 ára 27. desember, en
félagið var stofnað árið 1949. í
tilefni afmælisins hefur Alþýðu-
flokksfélagið í Kópavogi opið hús
milli kl. 17 og 19 í Félagsheimili
Kópavogs 27. desember.
Bylting í
sjúkraþjálfun
þroskaheftra
Ný sjúkraþjálfunardeild á Kópa-
vogshæli var opnuð sl. laugardag.
Þar mun vera ein fullkomnasta
aðstaða fyrir sjúkraþjálfun
þroskaheftra hér á landi. Þrír
sjúkraþjálfarar hafa verið ráðnir
til starfa og tveir aðstoðarmenn
og gjörbreytir það þeirri þjón-
ustu sem vistmenn búa við. Allt
fram til þessa hefur aðstöðuleysi
háð sjúkraþjálfun vistmanna og
erfitt reynst að fá sjúkarþjálfara
til starfa. Á Kópavogshæli búa nú
146 fatlaðir einstaklingar og
þurfa allir líkamsþjálfun að ein-
hverju leyti.
Samstarfshópur friðarsamtaka
stendur fyrir blysför niður Lauga-
Skata á Borginni
Undanfarin ár hefur Hótel Borg
boðið upp á skötu síðustu daga
fýrir jól. Föstudaginn 22. des-
ember og á Þorláksmessu verður
hægt að fá skötu á Borginni. Jóla-
hlaðborðið er einnig á sínum stað
fram að jólum.
veg í Reykjavík á Þorláksmessu
einsog undanfarin ár. Gangan
hefst við Hlemm kl. 19 og endar í
Lækjargötu fyrir framan Torf-
una. Þótt horfur í heiminum séu
friðvænlegri nú um þessi jól en
mörg undanfarin ár er enn barist
víða og þjóðir og kynþættir í
mörgum löndum búa við kúgun
og harðrétti. Blysförin er farin til
að minna á að baráttunni fyrir
friði er hvergi nærri lokið. Blys
verða seld á staðnum.
Hafísinn
Enn ófært
fyrir Hom
„Það er mikil hreyfing á ísnum
nyrðra og ekki laust við nýmynd-
un íss þar sökum kulda. Siglinga-
leiðin fyrir Horn að ísafjarðar-
djúp er þó enn lokuð. Á siglinga-
leiðum á Húnaflóa og fyrir Vest-
fírði ber sjófarendum að gæta
fyllstu varúðar,“ sagði Þór Jak-
obsson veðurfræðingur.
Flugvél Landhelgisgæslunnar
TF-Sýn fór í ískönnunarflug í gær
og kannaði hafísinn fyrir Norður-
landi og Vestfjörðum. Sam-
kvæmt því er ísjaðarinn um 60.
sjómílur norðaustan af Kol-
beinsey að þéttleika þrír tíundu
og liggur þaðan til suðvesturs á
Húnaflóa og áleiðis að Homi.
grh
Hitaveitan
Aukið álag
„Ég held bara að það gangi
nokkuð vel að halda hita á
Reykvíkingum um þessar mundir
og nóg til af heita vatninu. En þeg-
ar kuidinn verður svona mikÚI er
alltaf eitthvað um kvartanir cg
bilanir og því höfum við fengið
mannskap frá lokunardeildinni
til aðstoðar,“ sagði Hjörleifur
Jónsson á bilanavakt Hitaveitu
Reykjavíkur.
I gær var tólf stiga gaddur í
borginni með fjórum til fimm
vindstigum sem er kannski ekk-
ert miðað við það sem var í inn-
sveitum fyrir norðan í gær. Þar
mældist frostið vel yfir tuttugu
stig og þegar reiknað er með
vindinum er ekki fjarri lagi að
kuldinn samsvari nálægt fjörutíu
stigum í logni. í dag er spáð á-
framhaldandi frosti frá tíu til
fimmtán stigum með hvassri
norðaustan átt sem eykur kuld-
ann enn til muna.
-grh
Hitt, nýtt
unglingablað
Hitt nefnist nýtt unglingablað
sem kemur út um þessar mundir.
Blaðið er allt litprentað en rit-
stjóri er Steinar Viktorsson.
Poppið fær ýtarlega umfjöllun í
blaðinu og má m.a. nefna viðtal
við Ný dönsk, viðtöl við bflskúrs-
hljómsveitir, hljómplöturýni og
ýmislegt fleira. Þá er fjallað um
tískuna, kvikmyndir, myndbönd,
stjörnuspeki, kynlíf, áfengismál,
billjard og þannig mætti áfram
telja. Einnig er ljóð og smásaga í
blaðinu. Hitt blaðið er rúmar 50
síður að stærð og kostar 390 kr.
Monk í
Heita pottinum
Tónlist eftir bandaríska tón-
skáldið og píanóleikarann Thel-
onius Monk verður leikin á tón-
leikum í Heita pottinum, Duus-
húsi, í kvöld. Monk, sem lést fyrir
10 árum, hefur stundum verið
flokkaður með áhrifamönnum
bebop-jassins, en stóð um margt
sér á parti. Frægð hans var lítil
framan af, en nú er hann álitinn
eitt af höfuðtónskáldum jassins.
Er tónlist hans leikin um allan
heim og kunnasta lag hans, Ro-
und Midnight, orðið þjóðsöngur
jassara. Að kynningunni stendur
kvintett skipaður þeim Kjartani
Valdimarssyni píanóleikara, Sig-
urði Flosasyni saxófónleikara,
Hilmari Jenssyni gítarleikara,
trymblinum Matthíasi Hemstock
og Tómasi R. Einarssyni bassa-
leikara. Tónleikarnir hefjast kl.
21.30.
2 SÍÐA — ÞJÖÐVIUIINN Flmmtudagur 21. desember 1989