Þjóðviljinn - 21.12.1989, Síða 16
■SPURNINGIN,
Af hverju höldum við jól?
Einar Jóhannes Sindrason
8 ára:
Nú, af því aö Jesús fæddist á jól-
unum og þess vegna gefum viö
líka alla þakkana.
Gísli Freyr Óiafsson
8 ára:
Jesús fæddist á jólunum og hann
er frelsari okkar.
Ágústa Sif Brynjarsdóttir
6 ára:
Út af því að á jólunum á Jesús
afmæli.
ívan Örn Hilmarsson
6 ára:
Ég veit það ekki, kannski af því
að Jesús á afmæli.
Helga Sjöfn Óttarsdóttir
5 ára:
Af því að þá koma jólasveinarnir í
bæinn úr fjöllunum.
þJÓÐVIUINN
Fimmtudagur 21. desember 1989 220. tölublað 54. örgangur
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
SÍMFAX
681935
HIMINGEÍ
SÓLIR * ST !
GERVITUNGL •
SJÖ FURE
VERAI
-*5/ón
wmw.
Fróðleiksbækur fyrir
böm og unglinga
Á undanförnum árum hefur borið œ meir á bókum fyrir börn og
unglinga sem œtlað er að miðlafróðleik: líklegt má telja aðþarfir
skólabókasafna eigi þar hlut að máli
Þetta er svo gert með ýmsum
hætti. Til dæmis gefur Isafold út
fimm fáorðar smábarnabækur
sem leika á áhuga yngstu barn-
anna á skilningarvitunum og
heita þær eftir þeim: Sjón,
Heyrn, Lykt, Bragð og Tilfinn-
ing. Texti er i lágmarki, viðfangs-
efnið er sýnt í skondnum mynd-
um eftir ágæta spænska lista-
menn, en aftast er svo lítill fræði-
legur kafli sem á að gera foreldr-
um eða fóstrum auðveldara að
svara spurningum barnanna.
„Þrumuguðinn Þór“, sem
Bjallan gefur út, er svo tilraun til
að samræma fróðleik og sagna-
'skemmtun. Þorsteinn frá Hamri
þýðir textann, sem er norskur:
þar fá börnin í senn hugmynd um
heimsmynd heiðinna forfeðra
okkar og svo sögur af Þór þrumu-
guði (ekki þó allar sem við þekkj-
um; má vera að einhverjar þeirra
verði nýttar annarsstaðar því hér
er boðið upp á bókaflokk). Tex-
tinn er vandaður og myndir Ing-
unnar van Etten kátlegar og frá-
leitt hvunndagslegar.
„Heimur vísindanna" (eftir
Annabel Craig og Cliff Rosney,
útgefandi Forlagið) er fjölfræði-
bók fyrir börn og unglinga. Þar er
skynsamlega þrædd leið frá út-
skýringum fyrirbæra til þess
hvernig við notum okkur skilning
á þeim. Til dæmis byrjað á að
útskýra hvernig hlutir hreyfast og
endað með frásögn af vélum ým-
iskonar og geimförum. Myndin
ræður ríkjum í þessari bók, einatt
er í þeim haglega spilað á það
kímilega í fræðunum og þegar á
heildina er litið er bókin vel
„þétt“, þar kemst mikið fyrir í
stuttu máli.
„Gluggi alheimsins" heitir
flokkur fræðandi bóka sem Mál
og menning gefur út. Tvær eru út
komnar. Ónnur fjallar um Him-
ingeiminn - bæði sól tungl og
stjörnur og ekki síst möguleika
okkar á því að þekkja þessa
himnakroppa og skoða þá úr
geimskipum. Hin fjallar um Sjö
furðuverk veraldar og fleiri stór-
virki. Þar er lagt út af hinum sjö
furðuverkum fornaldar (pýra-
míðum, hengigörðum í Babylon
ofl) á þann veg, að bæði er skýrt
frá því í máli og myndum hver
þessi mannvirki voru og svo því
hvernig menn fóru að því að búa
þau til með tækni síns tíma. Enn-
fremur eru „furðuverkin“ borin
saman við seinni tíma mannvirki
- til dæmis vitinn á Rodós saman
við aðra fræga turna, Eiffelturn,
skýjakljúfa ofl. Hér eru les-
endur væntanlega orðnir eldri en
þeir sem Heimur vísindanna
höfðar til. Myndir og textar eru í
jafnvægi og eiga fyrst og síðast að
miðla fróðleik án málalenginga -
verður ekki betur séð en það tak-
ist dável.
AB tók saman
Fatlaðir
Fram-
færendur
studdir
Ný reglugerð: Raunveru-
leg umönnunarþörf
meira metin en áður
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur gefið út
reglugerð um fjárhagsaðstoð við
framfærendur fatlaðra sem sjálf-
ir annast fötluð börn í heimahús-
um og þarfnast verulegrar um-
önnunar en njóta takmarkaðrar
þjónustu stofnana.
í tilkynningu frá félagsmála-
ráðueytinu segir að með reglu-
gerðinni sé komið til móts við
kröfur samtaka fatlaðra og að-
standenda, um að meira tillit
verði tekið til hversu mikið fatl-
aðir einstaklingar eru og hver
umönnunarþörf barna sé. Til
þessa hefði aðeins verið miðað
við hversu marga tíma barn
dveldi utan heimilis.
í lögum um málefni fatlaðra er
miðað við 8. taxta Dagsbrúnar.
Sambærilegur taxti er 42.172 kr.
en tíminn sem börn njóta um-
önnunar utan heimilis er dreginn
frá. Með reglugerðinni er raun-
veruleg umönnunarþörf barn-
anna metin meira en áður, segir í
tilkynningu ráðuneytisins. Þetta
muni hafa í för með sér hærri
greiðslur vegna mjög alvarlega
fatlaðra barna en minni vegna
vægari fötlunar.
Svæðisstjórnum um málefni
fatlaðra er ætlað að fylgjast með
högum hins fatlaða og framfær-
anda og segir ráðuneytið nýju
reglugerðina taka gildi um ára-
mótin.
-hmp
Mjóddin
Ný skiptistöð
Ný skiptistöð SVR ogpóstútibúið R-9 opnað íMjóddinni. Breytingar á leiðakerfi
SVR
Strætisvagnar Reykjavíkur og
Póstur og sími standa sam-
eiginlega að byggingu húsnæðis í
Mjóddinni í Breiðholti sem opnuð
verður l'ormlega á morgun. Þar
verður ný skiptistöð SVR og póst-
útibúið R-9. Þess er vænst að
sambýli þessara aðila muni verða
til hagræðis fyrir þá sem búa og
starfa í þessum hluta borgarinn-
ar.
í póstútibúinu verður öll al-
menn póstþjónusta og sala sím-
tækja, póstfaxþjónusta, for-
gangspóstþjónusta og þjónusta
við fyrirtæki.
Með nýju skiptistöðinn komast
á tengsl milli nánast allra austur-
hverfa borgarinnar. Stöðin verð-
ur opin alla daga frá klukkan 7 til
23.30. Leiðir 11,12,13 og 14 hafa
viðkomu á skiptistöðinni og leiðir
4 og 15c hafa endastöð í Mjódd á
virkum dögum auk þess sem
Kópavogsvagn hefur viðkomu á
stöðinni sömu daga. Samhliða
opnun skiptistöðvarinnar verða
gerðar breytingar á leiðakerfi
SVR, m.a. verða leiðir 1 og 16
sameinaðar undir heitinu Leið 1
Hlíðar-Eiðsgrandi, endastöðvar
leiðar 4 færist frá Holtavegi í
Mjódd og endastöð leiðar 15c
færist frá Álftahólum í Mjódd.
Nánari upplýsingar um breyting-
ar á leiðakerfinu er að finna í
nýrri leiðabók, auk þess sem upp-
lýsingar verða sendar í öll hús í
austurhluta borgarinnar. iþ