Þjóðviljinn - 22.12.1989, Blaðsíða 9
Glasnost á skopmyndum
M
Sovéskir skopteiknarar hafa upplifað nýja gullöld með málfrelsi því sem kennt er við glasnost.
Áður fyrr voru hæfileikar þeirra nokkuð svo bundnir við tvennt: annarsvegar að gera gys að einhverjum
föstum hryggjarlið eða skyldufanti í samfélaginu sem kallaður var skriffinnurinn. Mátti helst skilja að ef
hann væri ekki þá væri allt í besta lagi í landinu. Hinsvegar teiknuðu Sovétmenn Sám frænda, amríkanann
ljóta, þar sem hann var að ráðskast með heiminn - með atómsprengjur upp úr frakkavösunum.
Nú er þetta mjög breytt. Sumar teikningarnar eru reyndar framhald af skriffinnslýsingunum, nema hvað
þær eru orðnar miklu grimmari en áður. En fyrst og síðast er hugarflug þeirra sovésku listamanna sem fást
við pólitíska ádrepu miklu áleitnara, miskunnarlausara og göldróttara en fyrr.
Hér á síðunni eru nokkur sýnishorn, sem tekin eru úr bók sem byggir á teikningum úr nýlegum sovéskum
blöðum. áb tók saman.
Föstudagur 22. desember 1989.NYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 9