Þjóðviljinn - 22.12.1989, Page 24
KVIKMYNDIR
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Indælt stríð í áratug
Nýtt Helgarblað kannar bestu kvik-
myndir síðustu tíu ára. Svíar framar-
lega í flokki með Fanny og Alexander
á toppnum
Þaöhefurfylgtkvikmyndunum
fremur en flestum öörum list-
greinum aö ákveöin verk væru
sett á stall og sagt: þessi kvik-
mynd er betri en hinar, eða þess-
arkvikmyndireru bestu kvik-
myndir ársins, áratugarins eöa
jafnvel sögunnar. Slíkir sleggju-
dómar eiga vafalaust takmarkað-
an rétt á sér en einhvern veginn
má hafa gaman af því aö velta
vöngum yfir „bestu" kvikmynd-
unum.
Þannig hefur mátt sjá í ýmsum
erlendum blöðum val á bestu
kvikmyndum níunda áratugar-
ins, enda þótt tímatalsfræðingar
teiji vitaskuld heilt ár eftir af ára-
tugnum. Nýtt Helgarblað ákvað
að taka upp þennan ósið og þjóf-
starta rétt einsog kollegar víða
annars staðar. Tíu kunnir kvik-
myndaspekúlantar voru fengnir
til að nefna tíu uppáhalds kvik-
myndir sínar síðustu 10 árin, þe.
frá 1980-89. Mjög fáir einstak-
lingar fjalla reglubundið um
kvikmyndir hérlendis en auk of-
anritaðs tóku þátt í leiknum fimm
gagnrýnendur sem allir hafa rætt
og ritað um kvikmyndir í mörg
ár: Arnaldur Indriðason, Árni
Þórarinsson, Hilmar Karlsson,
Sigmundur Ernir Rúnarsson og
Sæbjörn Valdimarsson. Meiri
breidd fæst í kviðdóminn með því
að bæta við fimm annáluðum
kvikmyndagerðarmönnum, þeim
Friðrik Þór Friðrikssyni, Hilmari
10 bestu kvikmyndir
áranna 1980-89
1. Fánny og Alexander, Ingmar Bergman, Svíþjóð, 1983
2. Komið og sjáið, Elem Klimov, Sovétríkin, 1985
3. Hannah and Her Sisters, Woody Allen, Bandaríkin, 1985
4. Pelle erobreren, Bille August, Danmörk-Svíþjóð, 1988
5. Himmel iiber Berlin, Wim Wenders, V-Þýskaland, 1987
6. Ran, Akira Kurosawa, Japan-Frakkland, 1985
7. Fórnin, Andrei Tarkovskíj, Svíþjóð-Frakkland, 1986
8. The Purple Rose of Cairo, Woody Allen, Bandaríkin, 1985
9. Diva, Jean-Jacques Beineix, Frakkland, 1982
10-11. Mitt liv som hund, Lasse Hallström, Svíþjóð, 1985
10-11. Stutt mynd um dráp, Krzysztof Kieslowski, Pólland,
1988
Ingmar Bergman leikstýrir Ewu Fröling og Allan Edwall í Fanny og Alexander, bestu kvikmynd áratugarins.
Oddssyni, Hrafni Gunnlaugs-
syni, Karli Óskarssyni og
Kristínu Jóhannesdóttur. Tekið
skal fram að þau voru valin frem-
ur af handahófi en skipulagðri
réttvísi, en flest þeirra hafa raun-
ar verið viðloðandi Kvikmynda-
hátíð Listahátíðar í mörg ár.
Þátttakendum var í sjálfsvald
sett hvort þeir gerðu upp á milli
verka á eigin lista og kom á dag-
inn að færri treystu sér til þess og
er þeim kvikmyndum því raðað í
stafrófsröð og teljast allar jafn
háar. Reyndar voru allir sam-
mála því að mjög erfitt hefði ver-
ið að velja aðeins tíu verk og skal
tekið undir það hér. Þegar list-
arnir voru gerðir upp með klass-
ískum aðferðum kom í ljós að
kvikmynd Ingmars Bergmans,
Fanny og Alexander, telst besta
kvikmynd áratugarins og kemur
það varla mörgum á óvart. Sjö
þátttakendur völdu myndina á
sinn úrvalslista en fast á hæla
hennar kom hin magnaða stríðs-
saga Komið og sjáið, eftir Sovét-
manninn Elem Klimov. Hanna
og systur hennar og Pelle sigur-
sæli urðu nánast jafnar og sama
má segja um Himin yfir Berlín og
Ran í 5.-6. sætinu. Fórnin, Kairó-
rósin og Diva lentu nokkru neðar
en ekki var hægt að gera upp á
milli Stuttrar myndar um dráp og
Hundalífs í 10.-11. sæti. Aðrar
myndir sem bönkuðu á dyr stóra
listans voru Nostalgía, San Lór-
ensó nóttin og Blátt flauel.
Annars hljóta listarnir að skýra
sig sjálfir og eru minni listarnir
hver fyrir sig ekki síður athyglis-
verðir. Ofanritaður, sem sjálfur
setti reglurnar, beitti reyndar
bellibrögðum við að koma 11
myndum á sinn lista, þarsem
ómögulegt var að gera upp á milli
tveggja mynda Allens. Arni Þór-
arinsson hefur greinilega átt enn
erfiðara um vik og tók enga eina
mynd Allens fram yfir aðra og
Friðrik Þór Friðriksson hafði
bæði Stutta mynd um dráp og ást
á sínum lista. Margar kvikmynd-
anna hafa aldrei hlotið góða ís-
lenska þýðingu og var því ákveð-
ið að hafa nöfn myndanna nær
alltaf á frummálinu. Nokkrar
myndir, sem eru á fjarskyldum
tungum, eru þó nær eingöngu
þekktar undir íslensku heiti
(kannast einhver við Ídí í
smotrí?) og eru vitaskuld undir
því heiti hér. Fórn Tarkovskíjs er
t.d. lítt þekkt undir sænska nafn-
inu Offret hér á landi. Á eftir
nöfnum kvikmyndanna er getið
um Ieikstjóra, framleiðsluland og
árgerð. Þau verk sem settust á
fleiri en einn lista fá reyndar að-
eins einu sinni slíkar skýringar en
alls eru 54 kvikmyndir á þessum
11 listum.
Þorf innur Ómarsson
1. Komið og sjáið, E. Klimov,
sovésk, 1985
2. Hannah and Her Sisters/The
Purple Rose of Cairo, W. Allen,
bandarískar, 1986/5
3-6. Diva, J-J. Beineix, frönsk,
1982
3-6. La notte di San Lorenzo, P.
og V. Taviani, ítölsk, 1982
3-6. Pelle erobreren, B. August,'
dönsk-sænsk, 1988
3-6. The Unbearable Lightness of
Being, P. Kaufman, bandarísk,
1988
7-10. Au revoir les enfants, L.
Malle, frönsk, 1988
7-10. Blóðakrar, Z. Yimou, kín-
versk, 1988
7-10. Nostalghia, A. Tarkovskíj,
ítölsk, 1983
7-10. Ran, A. Kurosawa,
japönsk-frönsk, 1985
Arnaldur Indriðason
(í stafrófsröð)
Hannah and Her Sisters
Komið og sjáið
Last Temptation of Christ, M.
Scorsese, bandarísk, 1988
Mitt liv som hund, L. Hallström,
sænsk, 1985
Fórnin, A. Tarkovskíj, sænsk-
frönsk, 1986
Pelle erobreren
Raiders of the Lost Ark, S. Spiel-
berg, bandarísk, 1981
A Room with a View, J. Ivory,
bresk, 1985
Round Midnight, B. Tavernier,
bandarísk-frönsk, 1986
The Untouchables, B. DePalma,
bandarísk, 1987
Árni Þórarinsson
(í stafrófsröð)
Fanny og Alexander, I. Bergman,
sænsk, 1983
Járnmaðurinn, A. Wajda, pólsk,
1980
The King of Comedy, M. Scors-
ese, bandarísk, 1983
Komið og sjáið
Mitt liv som hund
Myndir Allens (alls 10 stykki!)
Fórnin
Paris, Tcxas, W. Wenders,
bandarísk-þýsk, 1984
Pelle erobreren
Zappa, B. August, dönsk, 1983
Friðrik Þór
Friðriksson
(f stafrófsröð)
L‘Argent, R. Bresson, frönsk-
svissnesk, 1983
Ashik Kerib, S. Paradsjanov,
sovésk, 1988
Himmel úber Berlin, W. Wend-
ers, v-þýsk, 1987
Komið og sjáið
Nostalghia
Radio Days, W. Allen, banda-
rísk, 1987
Raging Bull, M. Scorsese, banda-
rísk, 1980
RumbleFish, F. Coppola, banda-
rísk, 1983
Stutt mynd um dráp/ást, K. Ki-
eslowski, pólskar, 1987
Yol, Y. Gurney og S. Goren,
tyrknesk, 1982
Hilmar Karlsson
1. Fanny og Alexander
2. Himmel úber Berlin
3. My Beautiful Laundrette, S.
Frears, bresk, 1985
4. Hannah and Her Sisters
5. Diva
6. Kiss of the Spiderwoman, H.
Babenco, bandarísk-brasilísk,
1985
7. Once Upon a Time in America,
S. Leone, bandarísk, 1984
8. Local Hero, B. Forsyth, bresk,
1983
9. Raging Bull
10. The Untouchables
Hilmar Oddsson
1-3. Komið og sjáið
1-3. Fórnin
1-3. Ran
4-6. Fanny og Alexander
4-6. Himmel úber Berlin
4-6. Stutt mynd um dráp
7-10. Blue Velvet, D. Lynch,
bandarísk, 1986
7-10. Hannah and Her Sisters
7-10. Stranger Than Paradise, J.
Jarmusch, bandarísk, 1984
7-10. Witness, P. Weir, banda-
rísk, 1985
Hrafn
Gunnlaugsson
1. The Purple Rose of Cairo
2. Hairspray, J. Waters, banda-
rísk, 1987
3. La notte di San Lorenzo
4. Witches of Eastwick, G.
Miller, bandarísk, 1987
5. Fanny og Alexander
6. Mad Max 1, G. Miller, ást-
rölsk, 1980
7. Mitt liv som hund
8. People without Value, A. og
M. Kaurismki, finnsk, 1984
9. Once Upon a Time in America
I.
10. Witness
Karl Óskarsson
(í stafrófsröð)
Blade Runner, R. Scott, banda-
rísk, 1982
Blue Velvet
Brazil, T. Gilliam, bresk-
bandarísk, 1985
Carmen, C. Saura, spænsk, 1983
Diva
Fanny og Alexander
Last Emperor, B. Bertolucci,
ítölsk-kínversk-bresk, 1987
One from the Heart, F. Coppola,
bandarísk, 1981
Pelle erobreren
Stranger Than Paradise
Kristín
Jóhannesdóttir
(í stafrófsröð)
L‘Argent
Boy Meets Girl, L. Carax, frönsk,
1984
E.T., S. Spielberg, bandarísk,
1982
Fanny og Alexander
Himmel úber Berlin
L'Homme Atlantique, M. Duras,
frönsk, 1981
Nostalghia
Passion, J-L. Goddard, frönsk,
1982
Ran
Stutt mynd um dráp
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
(í stafrófsröð)
Betty Blue, J-J. Beineix, frönsk,
1986
Blue Velvet
E.T.
Fanny og Alexander
Hannah and Her Sisters
Hope and Glory, J. Boorman,
bresk, 1987
Last Emperor
Paris, Texas
Pelle erobreren
Witness
Sæbjörn
Valdimarsson
(í stafrófsröð)
Babette‘s gæstebud, G. Axel,
dönsk, 1987
Komið og sjáið
Hannah and Her Sisters
Kagemusha, A. Kurosawa, jap-
önsk, 1980
Kiss of the Spiderwoman
Mona Lisa, N. Jordan, bresk,
1986
Pelle erobreren
Platoon, O. Stone, bandarísk,
1986
Raging Bull
Ran
24 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. desember 1989