Þjóðviljinn - 09.01.1990, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 09.01.1990, Qupperneq 6
ERLENDAR FRÉTTIR Innrásin í Panama Háar mannfallstölur Fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna telur að þúsundir óbreyttra borgara hafi verið drepnar. Ljóster að manntjónvarð mikið er sprengjuárásir voru gerðar á íbúðahverfi Tveir háttsettir embættismenn bandarískir, Bent Scowcroft þjóðaröryggisráðunautur og Lawrence Eagleburger aðstoðar- utanríkisráðherra, drógu í fyrra- dag í efa að Ramsey Clark, fyrrum dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, heíði á réttu að standa um manntjón meðal óbreyttra borgara í Panama- innrás Bandaríkjamanna, sem hófst 20. des. Ljóst er hinsvegar af ummælum þeirra að manntjón Panamamanna hefur verið mikið, miðað við það hve skamma hríð var barist, en heim- ildir greinir á um það atriði. Clark, sem var dómsmálaráðherra í stjórn Lyndons B. Johnson, var í Pan- ama um s.l. helgi. Sagðist hann þrásinnis hafa heyrt þarlendis að um 4000 Panamamenn hefðu ver- ið drepnir meðan barist var og sumir héldu því fram að um 7000 manns hefðu látiþ lífið. Eagleburger hefur eftir her- 'stjórn Bandaríkjahers að líklegt sé að um 400 Panamamenn, her- menn og óbreyttir borgarar, hafi verið drepnir í innrásinni, en ekki sé þó vitað um það með vissu. Áður höfðu talsmenn Banda- ríkjaherstjórnar tilkynnt að um 300 manns hefðu fallið af Panam- aher. Scowcroft sagðist ekki vita hversu mikið manntjón Panama- manna hefði orðið, en taldi að Clark væri honum engu fróðari um það. Bandaríska vikuritið Time telur um 600 Panamamenn hafa verið drepna en hefur eftir óopinberum heimildum að um 800 kunni að hafa látið lífið. Eagleburger kvað Bandaríkjaher hafa unnið verk sitt af snilld og undir það tekur Time, sem ber Panamainnrásina saman við bág- borna frammistöðu Bandaríkja- hers í Líbanon og á Grenada 1983. Hernaðaraðferð Bandaríkja- manna í Panamainnrásinni virð- ist hafa í stórum dráttum verið sú að spara ekki breiðu spjótin, beita óspart þungavopnum og flugliði til að mola þegar í upphafi innrásarinnar viðnám Panama- hers og halda eigin manntjóni í lágmarki. Hafa Bandaríkjamenn raunar farið þannig að í öllum sínum stríðum allt frá því í heimsstyrjöldinni fyrri. Þetta tókst að því leyti til að þeir misstu aðeins 23 menn fallna og að allt varnarkerfi Panamahers var í slitrum eftir fyrstu klukkustund stríðsins, að sögn foringja eins í því liði. Varðliðasveitir Noriega veittu hinsvegar meiri mótspyrnu en búist hafði verið við. En ljóst er að miklu fleiri urðu fyrir stór- skotum Bandaríkjamanna en vopnaðir menn, t.d. voru þéttbýl fátækrahverfi í kringum aðal- stöðvar Noriega hart leikin, er stöðvarnar voru skotnar í rústir, og fleiri íbúðahverfi voru að miklu leyti lögð í rústir með sprengjuárásum. Á frétta- mönnum Time má skilja, að þeim finnist þetta ekki alveg nógu gott, en kalla það skiljanleg mistök. -dþ- Gas banaöi sex manna fjölskyldu Sex manneskjur, 36 ára karlmaður, þrítug kona og fjögur börn þeirra 18 mán. til átta ára, fundust í gær látin í íbúð sinni í einni af suðurút- borgum Stokkhólms. Hafði íbúðinni verið læst innan frá, loftræsting stífluð og skrúfað frá gasi. Líklegast er talið að foreldrarnir, annað eða bæöi, hafi ráðið sér og börnunum bana. Ráðherrar úr kommúnistaflokki Tveir ráðherra tékkóslóvakíska kommúnistaflokksins hafa sagt sig úrhonumog verðurþar með staða flokksins íríkisstjórn, þarsem hann var í naumum minnihluta, veikari að mun. Þessir tveir eru Valtr Komar- ek, fyrsti aðstoðarforsætisráðherra og helsti ráðamaður í stjórn um efnahagsmál, og Vladimir Dlouhy, áætlanamálaráðherra. bUNSKU vömmmmaumm Tilgangur íslensku bókmenntaverðlaunanna er að styrkja stöðu frumsaminna íslenskra bóka, efla vandaða bókaút- gófu, auka umfjöllun um bókmenntir og hvetja almenna les- endur til umræðna um bókmenntir. Dómnefnd valdi tíu eftirtaldar bækur sem athyglisverðustu bækur órsins 1989 og úr þeim verður valin ein bók sem verð- launin hlýtur: • Ég heiti ísbjörg, ég er Ijón höf. vigdIs grImsdóttir. • Fransí biskví höf. elIn pálmadóttir. • Fyrirheitna landið. höf. einar kárason. • Götuvísa gyðingsins höf; einar heimisson. • íslensk orðsifjabók höf. Asgeir bl. magnússon. • Nóttvíg HÖF. THOR VILHJÁLMSSON. • Nú eru aðrir tímar. höf. ingibjörg haraldsdóttir. • Snorri ó Húsafelli HÖF. ÞÓRUNN VALDIMARSDÓTTIR. • Undir eldfjalli HÖF. SVAVA JAKOBSDÓTTIR. • Yfir heiðan morgun. höf. stefán hörður grImsson. Almenningi gefst kostur ó að hafa óhrif ó úthlutun verðlaun- anna með því að útfylla atkvæðaseðil sem birtist í íslenskum bókafíðindum 1989, en einnig mó skrifa upp nafn þeirrar bókar sem menn telja best að verðlaununum komna, undirrita með nafni og kennitölu og senda til Félags íslenskra bókaútgefenda, Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík. Frestur til að póstleggja atkvæðaseðla rennur út 10. janúar. Dagsetning póststimpils gildir. Nónari grein er gerð fyrir verðlaununum í íslenskum bókatíðindum. FÉLA6 ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA Jafnað við jörðu í orðsins bókstaflegu merkingu - hverfið El Chorillo í Panamaborg. Búlgaría Trúarréttindum Tyrkja mótmælt Um 6000 manns voru í fyrradag á útifundi í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, og mótmæltu ákaft þeirri ákvörðun stjórnvalda að hverfa frá harðhentri aðlögunar- stefnu stjórnar Todors Zhivkov gagnvart múslímum þarlendis. Var fundurinn haldinn við dóm- kirkju, sem kennd er við Alex- ander Nevskíj, fursta af Novgor- od, og byggð var í minningu þeirra um 200.000 rússnesku her- manna, sem féllu í stríði Rússa og Tyrkja 1877-78, er Búlgarar losn- uðu við fimm alda undirokun Tyrkja. Georgi Atanasov, forsætisráð- herra, ávarpaði fundinn og sagði að frelsi yrði að verða hlutskipti allra landsmanna jafnt, en var hrópaður niður. Yfirstandandi mótmælaaðgerðir hófust eftir að hin nýja Búlgaríustjórn Petars Mladenov ákvað að veita mús- límum á ný trúarréttindi, er stjórn Zhivkovs hafði svipt þá. Neyddi Zhivkov múslíma til að taka upp búlgörsk nöfn og lét loka moskum. S.l. árleiddi þetta til þess að um 300.000 búlgarskir múslfmar, sem flestir líta á sig sem Tyrki, flýðu til Tyrklands, en nærri þriðjungur þeirra hefur síð- an snúið heim aftur. Mótmælafólkið krefst þjóðar- atkvæðagreiðslu um þjóðernis- og trúarmál þetta og segist vilja að tryggt verði í stjórnarskrá að Búlgaría verði í framtíðinni land einnar þjóðar, eins tungumáls og einna trúarbragða. Flestir Búlg- arar aðhyllast rétttrúnaðar- kristni. Gamalgróinn ótti við Tyrki mun öðrum þræði liggja á bakvið mótmæli þessi, en því hef- ur verið haldið fram í Búlgaríu að í tyrkneskum blöðum hafi undan- farið komið fram tilhneigingar til útþenslu á Balkanskaga. Ibúar Búlgaríu eru um níu miljónir, þar af um hálf önnur miljón múslím- ar. Reuter/-dþ. NatólÞýskaland Afvopnunaitillögu Gysi fálega tekið Hann leggur til að þýsku ríkinfœkki íherjum sínum um helming til loka næsta árs og að allur erlendur her hverfifrá Þýskalandi á nœstu tíu árum Hjá Nató og í Vestur- Þýskalandi hefur verið tekið fremur fálega afvopnunartillögu sem Gregor Gysi, formaður austurþýska kommúnistaflokks- ins, kom fram með á laugardag. Lagði Gysi til að þýsku ríkin bæði fækkuðu í herjum sínum um helming á þessu ári og því næsta og að allir erlendir herir yrðu farnir af þýskri grund árið 1999. Undirtektirnar af hálfu Nató eru á þá leið, að heppilegast sé að afvopnun fari fram samkvæmt heildarsamkomulagi, fremur en að samið sé um afvopnun á hin- um og þessum svæðum. Vísa tals- menn Nató í því sambandi til af- vopnunarviðræðna þess banda- lags og Varsjárbandalagsins í Vín, en vonir standa til að þar semjist á þessu ári um að Banda- ríkin og Sovétríkin fækki í Evrópuherjum sínum niður í 275,000 manns, hvort stórveldi um sig. f þeim samningi yrði einnig gert ráð fyrir mikilli fækk- un skriðdreka, fallbyssna og herf- lugvéla. Hjá Nató er einnig bent á að ekki hefði komið fram að austurþýska stjórnin eða Var- sjárbandalagið hefðu lagt blessun sína yfir tillögu Gysis. Nató hefur eigi að síður áður gefið í skyn, að bandalagið sé til viðtals um niðurskurð vígbúnaðar framyfir það, sem gert er ráð fyrir að sam- ið verði um í Vín í ár. Sovétríkin hafa nú um 380.000 manna lið í Austur-Þýskalandi, en því fækkar í samhengi við heimkvaðingu um 50.000 sové- skra hermanna frá Austur- Evrópu. Er það liður í einhliða ráðstöfun Sovétmanna um að fækka um hálfa miljón manna í her sínum. Bandaríkin hafa 246.000 manna her 1 Vestur- Þýskalandi, Bretland 67.000 og Frakkland 50.000 auk þess sem ríki þessi þrjú hafa 11.000 manna lið í Vestur-Berlín. Her Austur- Þýskalands er 173.000 manns og Vestur-Þýskalands 494.000. Reuter/-dþ. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi Magnús Björnsson Hrauntungu 83, Kópavogi lést í Landspítalanum sunnudaginn 7. janúar. Hildur Einarsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.