Þjóðviljinn - 16.01.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 16.01.1990, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 16. janúar 1990 10. tölublað 55. órgangur Þýsk-íslenska Miljóna skattsvik kærð Ómar Kristjánsson framkvœmdastjóri ogGuðmundurÞórðarson ákœrðirfyrir skattsvik og bókhaldsbrot. 44 miljónir vantaldar á skatt- framtali 1984. Þess krafistað ÓmarogÞýsk-íslenska missi verslunarleyfi Rflrissaksóknari hefur ákveðið að höfða opinbert mál á hend- ur Ómari Kristjánssyni, fram- kvæmdastjóra Þýsk-íslenska hf. og Guðmundi Þórðarsyni, hér- aðsdómslögmanni, fyrir brot á lögum um tekjuskatt og eignar- skatt, og bókhaldsbrot. Þess er krafist að Ómar og Þýsk-íslenska verði svipt verslunarleyfi. Málið verður dómtekið í sakadómi Rcykjavíkur þann 14. febrúar næstkomandi. Hinum ákærðu er m.a. gefið að sök að hafa vantalið tekjur fyrir- Framkvœmdastjórn AB Óttar Proppé formaður Óttar Proppé forstöðumaður fjármálasviðs Hafnarfjarðar- hafnar, var í gær kjörinn formað- ur framkvæmdastjórnar Alþýðu- bandalagsins, á fyrsta fundi framkvæmdastjórnar eftir lands- fund Alþýðubandalagsins. Óttar Proppé fékk 13 atkvæði við kjörið en tveir greiddu at- kvæði gegn honum, þau Skúli Al- exandersson og Birna Þórðar- dóttir. Stefanía Traustadóttir var kjörin varaformaður fram- kvæmdastjórnar ineð 13 sam- hljóða atkvæðum. Á fundinum í gær voru ræddar niðurstöður landsfundar og sinnt verkefnum sem landsfundur fól framkvæmdastjórn. Þá voru kjara- og sveitarstjórnamál til umræðu á fundinum. -Sáf Rafmagn Hækkun staðfest Iðnaðarráðuneytið hefur staðfest hækkun á gjaldskrá Rafmagns- veitu Reykjavíkur. Borgaryfir- völd segjast hinsvegar reiðubúin' til að endurskoða gjaldskrána til lækkunar í Ijósi væntanlegra kjarasamninga, ef niðurstöður þeirra breyta þeim forsendum, sem hækkunin er byggð á. í fréttatilkynningu frá iðnað- arráðuneytinu segir að ráðuneyt- ið staðfesti gjaldskrána þar sem sveitarfélögin hafi lögum sam- kvæmt sjálfsforræði á gjaldskrám eigin fyrirtækja og stofnana. Flestar orkuveitur í landinu hafa hinsvegar orðið við þeim til- mælum iðnaðarráðuneytisins að fresta hækkun á gjaldsicrám sem fyrirhugaðar voru 1. janúar. -Sáf tækisins um tæplega 44 miljónir króna á skattframtali ársins 1984. Eftir rannsókn ríkisskattstjóra á skattskilum og bókhaldi hlutafé- lagsins, og endurskoðun bók- halds- og reikningsgagna, voru opinber gjöld fyrirtækisins endurákvörðuð. Sú endur- ákvörðun leiddi til hækkunar á tekju- og eignarskatti fyrirtækis- ins um rúmar 45 miljónir króna. Ákærðu eru einnig sakaðir um að hafa farið með rangfærslur í blekkingarskyni í ársreikningum fyrir árið 1984. Þá segir í ákær- unni að vanræksla og óreiða á riggja daga verkfall um 70 langferðabílstjóra hófst í gær en fundur í deilu þeirra við at- vinnurekendur hefur ekki verið boðaður. Nokkuð bar á því að reynt væri að halda uppi ferðum í gær þrátt fyrir verkfallið en verk- fallsverðir komu í veg fyrir það, ýmist með því að úða ryðvarnar- efni á framrúður rútanna eða með því að hleypa lofti úr dek- kjum þeirra. Meintur verkfalls- brjótur keyrði á verkfallsvörð þegar hann reyndi að stoppa bfl- stjórann. Maðurinn slasaðist lítil- lega. Halldór Bergsson formaður verkfallsnefndar Bifreiðastjóra- félagsins Sleipnis sagði að komið hefði til ryskinga í nokkrum til- grundvallaratriðum í bókhaldi sama árs, og að færsla bókhalds- ins og gerð ársreikninganna hafi almennt verið fjarri því að upp- fylla kröfur um góða bókhalds- og reikningsskilavenju. Ákærðu er gefið að sök að hafa ranglega tilgreint undir liðnum „langtíma- skuldir“, skuldir við Samvinnu- ’bankann og Landsbankann upp á tæpar 38 miljónir króna, enda þótt um engar skuldir við bank- ana væri að ræða móti þessum skuldalið. Þá eru þeir sakaðir um að tilgreina ranglega viðskipta- kröfur, viðskiptavíxla og ógreidd fellum í gær. Hann sagði þó frá- leitt að verkfallsverðir hefðu skorið dekk langferðabfls til að koma í veg fyrir að hann færi af stað. Og verkfallsverðir sem Þjóðviljinn hitti á vaktinni sagði ásakanir um að viftureimar hefðu verið skornar væru fáránlegar. Engum með fullu viti kæmi til hugar að skera viftureim sem snérist 2.000 snúninga á mínútu. Verkfallið hefur töluvert mikil áhrif. Engar rútusamgöngur voru við Hafnarfjörð í gær og áætl- unarferð Norðurleiðar í gær- morgun féll niður ásamt ferð til Búðardals. Samkvæmt upplýs- ingum sem fengust á BSÍ ætlar rúta að fara af stað til Búðardals klukkan 8 fyrir hádegi í dag. vörukaup að upphæð rúmlega 22 miliónir. Ómar Kristjánsson sagði að ákæran kæmi mjög á óvart og erf- itt væri að skilja hvers vegna hún væri gefin út nú, þar sem sak- sóknari hefði haft mörg ár til þess. „Það er vonandi stutt í það að Hæstiréttur ákvarði í sjálfu skattamálinu sem ákæran er byggð á. Þess vegna hefðum við talið eðlilegt að beðið væri eftir Hæstaréttardóminum, fyrst búið er að bíða öll þessi ár, og ákæran byggð á þeirri niðurstöðu en ekki Grunnlaun bifreiðastjóra eru nú 41 þúsund krónur og sagði Halldór þá gera kröfu til þess að þessi laun verði 80 þúsund, 25% álag verði fyrir farmiðasölu og 50% fyrir tungumálakunnáttu, þegar sérstaklega væri óskað eftir bílstjóra sem ferðarstjórnanda með útlendingum. Bifreiðastjórar og atvinnurek- endur hafa ekki ræðst við síðan 11. desember. Halldór sagði Sleipnismenn halda félagsfund á miðvikudagskvöld og þar yrði tekin ákvörðun um framhaldið. Atvinnurekendum hefði hingað til tekist að brjóta samstöðu bfl- stjóra á bak aftur á síðustu stundu en ekki nú. Samstaðan væri ótrú- lega mikil. -hmp álagningu ríkisskattstjóra," sagði Ómar. Hann sagðist vera hissa á því að til væri kallaður sérstakur sak- sóknari í málinu þegar embættis- menn saksóknara væru því þaulkunnugir. „Það vekur ekki minni undrun að heyra að þessi umræddi maður er flokksbróðir skattamálaráðherra og ríkisskatt- stjóra. Maður spyr sig hvort ekki sé pólitík í málinu,“ sagði Ómar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Þýsk-íslenska hf. -gb Fiskverðsdeilan Samningar tókust Samningar tókust á milli togar- asjómanna á Fáskrúðsfirði og viðsemjenda þeirra um helgina og þá frestuðu sjómenn á Vopnafirði frekari aðgerðum fram yfir 1. fe- brúar. I gær náðist svo cinnig samkomulag milli togarasjó- manna á Eskifirði. Þar með lauk þessari fiskverðsdeilu sem staðið hafði yfir í hálfan mánuð og hafa togararnir haldið til veiða. Að sögn Eiríks Stefánssonar formanns Verkalýðs- og sjó- mannafélags Fáskrúðsfjarðar eru aðalatriði samnings togarasjó- manna við viðsemjendur sína þau að verð á öllum fisktegundum hækkar um 7,5% frá 1. janúar til 1. febrúar. Eftir þann tíma verð- ur skipuð samstarfsnefnd sjó- manna og viðsemjenda þeirra sem í verða tveir sjómenn af Hof- fellinu og tveir af Ljósafellinu. Nefndin mun kanna þær yfir- borganir sem eru á fiskverði á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum og greiða síðan það fiskverð samkvæmt því meðaltali sem fæst úr þessari könnun sem ætlunin er að hraða eins og kostur er. Þá gerir samningurinn ráð fyrir að samstarfsnefndin komi saman 3-4 sinnum á ári til að endurskoða fiskverðið hverju sinni. Ennfremur var samþykkt að öll eftirmæli deilunnar yrðu látin niður falla. Hliðstæður samningur var svo gerður á Eskifirði í gær á milli togarasjómanna og viðsemjenda þeirra. Aftur á móti ákváðu sjó- menn á Vopnafirði um helgina að fresta frekari aðgerðum fram yfir 1. febrúar en þá á að liggja fyrir nýtt fiskverð samkvæmt ákvörð- un Verðlagsráðs sjávarútvegsins. Að sögn Guðjóns Guðjónssonar stjórnarformanns Tanga hf. var þó samkomulag um að það fisk- verðið frá 1. febrúar muni gilda frá og með 1. janúar 1990. -grh Verkfallsmenn gættu stoppistöðva Landleiða í gær. Þessir voru í Lækjargötu seinnipartinn og greina má úðabrúsa með tannhjólaolíu í höndum eins þeirra. Frá vinstri: Karl Karlsson, Guðbergur Þorvaldsson, Þórarinn Grímsson og Sigurjón Jóhannsson. Mynd: Jim Smart. Bifreiðastjórar Framrúður rútubíla úðaðar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.