Þjóðviljinn - 16.01.1990, Síða 4

Þjóðviljinn - 16.01.1990, Síða 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar KLIPPTOG SKORIÐ Áhrif - áhrifaleysi Hvaöa afstöðu sem menn taka í stjórnmálum á (slandi verður sjálft verklagið í stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar ævinlega undir smásjánni vegna þeirra áhrifa sem það get- ur haft, ekki bara innan hreyfingarinnar og á þjóðmálin, heldur líka vegna fordæmis sem það getur skapað almennt í félagsmálum. Fjölmennasti stjórnmálaflokkur landsins, Sjálfstæðis- flokkurinn, hefur oft legið undir því ámæli að vera ekki lýð- ræðisleg fjöldahreyfing, heldur aðeins stórvirk vinnuvél þröngs hóps sérhagsmunaseggja. Af þeim sökum verði upplýsingaflæði innan flokksins að vera sem minnst, um- ræður njörvaðar og reynt að ná málamiðlunum baksviðs, til að fela um hvað ágreiningur snýst. Með því móti sé einnig auðveldast að fela fyrir stuðningsmönnum Sjálfstæðis- flokksins, hverra erinda hann í rauninni gengur. Af þessum sökum m.a hefur það verið lífsnauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa enga stefnuskrá. Sú stað- reynd, að stærsti flokkur þjóðarinnar vill ekki birta stefnu- skrá, er í sjálfu sér ekki endilega neikvætt, en þegar við bætast aðrar aðferðir til að þrengja stefnumörkun og ák- varðanatöku innan flokksins, vaknar efi margra um lýðræð- islegt innihald hans. Um skeið reyndi Sjálfstæðisflokkurinn að hrinda þessu orðspori með ýmsum hætti. Eitt ráðið til þess voru prófkjörin. Aðrar aðferðir voru hermdar eftir Bandaríkjamönnum, til dæmis skrautsýningaformið á samkomum. Kostnaðar- 'samar auglýsingaherferðir og persónudýrkun í bandarísk- um stíl í tilefni prófkjöranna gengu út í öfgar og ollu andstöðu við þau. Aðeins sterkefnað fólk, eða það sem gat notið fjárstyrkja, hafði möguleika í auglýsingastríðinu. Nú hafa veður skipast í lofti í Sjálfstæðisflokknum á nýjan leik. í stað þess að taka áhættu „frelsisins", rekur nú hver viðburðurinn annan, sem birtir nýja tíma í flokksstarfinu. Flokkurinn er að lokast, ganga miðstýringunni á hönd. Sjálf- stæðisflgkkurinn sérfram á langvarandi stjórnarandstöðu á Alþingi íslendinga og grefur sig niður í skotgrafir. Aldrei hefur verið jafn mikilvægt að smíða leiktjöld samstöðunnar og einingarinnar. Tvö atvik hafa markað þetta skýrast fyrir kjósendum núna, varaformannskjör á landsfundi flokksins og ákvörðun fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna vegna komandi borgar- stjórnarkosninga í Reykjavík. Á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins gátu fundarmenn ekki látið í Ijós vilja sinn vegna varaformannskjörs, þegar í Ijós kom, að tveir menn höfðu áhuga á starfinu. Gagnlegt hefði verið fyrir Sjálfstæðisflokk- inn og stjórnmálin í landinu að átta sig á raunverulegu fylgi Friðriks Sophussonar og Davíðs Oddssonar í Sjálfstæðis- flokknum. Kosning milli tveggja andstæðra sjónarmiða og áhugamála hefur líka heilbrigt fordæmisgildi fyrir félagsstarf almennt. Það var ósigur fyrir lýðræðið að Friðrik Sophusson skyldi ekki láta línur skerpast og nota tækifærið til að kanna viðhorf Sjálfstæðisflokksmanna til sín og baráttumála sinna í samanburði við borgarstjórann í Reykjavík. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík tók síðan þá afdrifaríku ákvörðun í síðustu viku að hafna prófkjöri í Reykjavík. Einum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík varð af því tilefni á að lýsa því yfir í DV, að prófkjör væru samt „stíll Sjálfstæðisflokksins." Réttara hefði kannski verið að segja: „Prófkjör voru hugsjón Sjálfstæðisflokks- ins.“ Fróðlegt verður fyrir lýðræðissinnaða kjósendur að fylgj- ast með því næstu vikurnar hvernig ákvarðanir eru teknar innan Sjálfstæðisflokksins og stefnan mörkuð vegna bæjar- og sveitarstjórnrakosninganna. Á fundi Fulltrúaráðs Sjáíf- stæðisfélaganna sl. miðvikudag voru t.d. kosnir fulltrúar Reykvíkinga í flokksráð, æðstu stofnun flokksins milli lands- funda. Vart þarf að geta þess, að engar hugmyndir komu úr hópi tæplega 400 fundarmanna, sem voru fulltrúar þúsunda flokksmanna í stærsta vígi Sjálfstæðisflokksins, aðrar en tillögur þeirra sem undirbjuggu fundinn. Voru þessir 18 full- trúar síðan kosnir rússneskri kosningu, án mótframboða, samkvæmt nýjum stíl Sjálfstæðisflokksins. Pétur Halldórsson myndskreytir grein Jóhönnu í Mbl. Sprenging í samtalsbókum Jóhanna Kristjónsdóttir skrif- ar athyglisverða grein í Morgun- blaðið um helgina sem hún kallar „Hvað er svona merkilegt við það að ég viti allt um þig“ og fjallar um samtalsbækur. Þar kemur fram að þessi nýjasta tískuvara á bókamarkaði hefur aukist og margfaldast hratt, jafnvel hraðar og markvissar en unglingabækur. Viðtalsbækur urðu 45 talsins fyrir síðustu jól! „Það ber öllum sam- an um að það hafi orðið spreng- ing,“ segir Jóhanna, „markaður- inn hafi ofmettast og margir útgef- endur sleiki nú sár sín.“ Um söluna á þessum bókum segir Jóhanna ennfremur: „Undir venjulegum kringum- stæðum mundi hnýsileg samtals- ævibók seljast í 6-8 þúsund ein- tökum. Toppsölubækur nú fóru varla í meira en 4-5 þúsund ein- tökum hvað sem líður hressi- legum fullyrðingum útgefenda. Sönnu nær að fæstar hafi farið yfir 2 þúsund. Og margar náðu ekki helmingi þess.“ Vafasamt er að draga þá álykt- un af þessu að fólk hafi misst áhugann á samtalsbókum, því samanlagt hafa þessar 45 bækur selst í tugþúsundum eintaka, jafnvel fleiri eintök farið inn á heimilim í landinu en þegar toppsölubækurnar voru miklu söluhærri. Það sem gerðist núna var að engin ein bók „sló í gegn“, fólki var ekki stýrt eins rækilega af markaðinum, það keyptu ekki allir sömu bókina eins og þegar Halla Linker kom út eða bók Steinunnar Sigurðardóttur um Vigdísi forseta. Þó að 45 sé áreiðanlega of há tala yfir samtalsbækur á einu ári á litlum bókamarkaði er jafnáreið- anlega ágætt að salan dreifist á nokkrar bækur en að allir hendi sér á eina. Sama virðist raunar hafa gerst með aðrar bækur, salan dreifðist jafnar en oft áður, það voru margir litlir toppar en ekki bara einn stór. Þetta er miklu hollara fyrir bókaútgáfuna í heild, þó að auðvitað gefi það engum einum útgefanda jafnháar fjárhæðir í vasann og metsölubókin. Sölutíminn styttist Miklu alvarlegra er það sem einnig kemur fram í grein Jó- hönnu að sölutími bóka er alltaf að styttast. Ekki er aðeins að fólk kaupi aðallega bækur síð- ustu þrjá fjóra dagana fyrir jól heldur er bók sem kemur út í okt- óber orðin lumma í desember. Kjörorðið virðist vera að hugsa sig ekkert um heldur kaupa bara það sem glænýjast er. Þetta kann að eiga við um fisk en alls ekki bækur. Allt bendir nú til að virðis- aukaskatturinn eigi eftir að treysta þennan nýja sið í sessi. í ráði er að vísu að fella niður virð- isaukaskatt af bókum - en ekki fyrr en um miðjan nóvember, nánar tiltekið þann 16! Sú dag- setning er vægast sagt all- sérkennileg og virðist enga skýr- ingu eiga í reglugerð um virðis- aukaskatt. Fram til 16. nóvember kaupir auðvitað enginn jólabækur, og kennarar eru strax farnir að tala um að engin leið verði að fá ung- linga til að kaupa skólabækur í haust. Þessu þyrfti að huga betur að. Endurminningin merlar æ En aftur í endurminningabæk- urnar, þar sem „mönnum er boð- ið að viðra nærfötin sín á al- mannafæri,“ eins og Gunnar Gunnarsson rithöfundur orðaði það í ágætri grein í DV rétt fyrir jól. Hvað laðar fólk svona að endurminningum annarra manna - sem oft eru yfirborðslegar og átakalitlar? Klippari hefur á öðrum vett- vangi bent á að kannski myndi þær eins konar mótvægi við nú- tímaskáldsögur: í endurminning- unum er reiða á óreiðu lífsins, búið að raða öllu snyrtilega upp og ákveða vægi persóna og at- burða. Og þær enda ábyggilega vel af því að söguhetjan er ennþá lifandi og hefur komist klakklítið gegnum lífsins þrautir. Sjálfsagt er forvitni þáttur í áhuga okkar á viðtalsbókum, eins og Jóhanna gefur í skyn í titlinum á grein sinni. En það þarf ekki að vera forvitni í illkvittinni merkingu. Það getur líka verið eðlileg mannleg forvitni í heimi sem er orðinn býsna persónulaus um það hvernig aðrir hafa leyst úr vanda sínum. Til dæmis held ég að vel heppnuð kynning á bók Ingu Huldar Hákonardóttur og Guðrúnar Ásmundsdóttur í DV fyrir jólin hafi vakið forvitni fólks á hjónabandsmálum Guðrúnar, aðallega forvitni um hvernig hjónaband bjargast gegnum erf- iðleika á tímum þegar fólk virðist óhóflega fljótt á sér að skilja. Viðtalsbækur verða þá eins konar vasasálfræðileg leiðsögn á lífsinsbrautum. „... trúlegagetur prentað samtal og myndaval úr fjölskyldusafninu sparað háar peningafúlgur sem ella færu í sálgæslukostnað," segir Gunnar Gunnarsson í áðurnefndri grein, og það á kannski bæði við um höfunda bókanna og viðtakend- ur. Nærsýni borgarbúa Það er kannski óþarfi að klippa Þjóðviljann fyrir Þjóðviljales- endur, en óneitanlega var nokk- uð skondið að lesa þessa klausu í viðhorfsgrein eftir Kjartan Val- garðsson um sveitarstjórnar- kosningar á fimmtudaginn: „... þess vegna skulum við hefjast handa, henda gömlu þrætueplunum foreldra okkar og horfa fram en ekki aftur. „First we take Reykjavík, then...““ Ekki vegna þess að höfundur vildi taka Reykjavík á ensku heldur af því að hann vildi taka hana „fyrst". í sama blaði kom nefnilega fram að Alþýðubanda- lagið er í meirihlutasamstarfi á yfir tuttugu stöðum á landinu. Kannski ættum við að geyma Reykjavík þangað til síðast ... Kosningar óþarfar Talandi um kosningar þá á Dagfari snjallan pistil í DV í gær sem heitir „Engar borgarstjórn- arkosningar". Þar styður höfund- ur þá skoðum pottþéttum rökum að best sé að láta Davíð ráða ein- an í borginni, hann geri það svo prýðilega að ekki verði bætt um betur. „Aðrir borgarfulltrúar eru til uppfyllingar og handaupprétt- inga og hafa staðið sig með mikilli prýði í þeim hlutverkum." Kosn- ingar séu algert formsatriði við þessar aðstæður og óþarfi að kosta til fjármunum og mann- skap í þær. Þetta er stórkostlegt ástand, segir Dagfari, og heldur áfram: „Dagfari bendir á að svona sta- bílt pólitískt ástand er einsdæmi í Evrópu um þessar mundir. Til skamms tíma var ástandið einnig stabflt í Austur-Evrópu þar sem einn flokkur og einn maður réðu ferðinni, en nú er búið að eyði- leggja það. Nú er déskotans lýð- ræðið búið að eyðileggja það. Reykjavík stendur ein eftir eins og vin í eyðimörkinni. Við getum verið stoltir af þessu stabfliteti, Reykvíkingar." SA pJÓÐVILJINN Síðumúla 6-108 Reykjavík Sími: 681333 Kvöldsími: 681348 Símfax:681935 Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason. Fróttast jóri: Sigurður Á. Friðþjófsson. Aðrir blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Guðmundur RúnarHeiðarsson, HeimirMár Pétursson, HildurFinnsdóttir(pr.), Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Lilja Gunnarsdóttir, ólafurGíslason.Þorfinnurömarsson (íþr.), Þröstur Haraldsson. Skrif stofustjórl: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifatofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Olga Clausen. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi- mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Guðrún Gísladóttir. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 68 13 33 &68 16 63. Símfax:68 19 35 Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð i lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1000 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 16. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.