Þjóðviljinn - 16.01.1990, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 16.01.1990, Qupperneq 7
MINNING lagnús Bjömsson húsasmiður Fæddur 3. maí 1923. Dáinn 7. jan. 1990 gjörðum mátti með sanni segja að verkin lofuðu meistarann. Magnús var glöggur maður, góð- um íþróttum búinn, átti fastmótaða lífsskoðun félags- hyggjunnar og einarðlega fylgdi hann sínum ákveðnu skoðunum hvar á vettvangi sem var, en átti ekki síður auðvelt með að slá á léttari strengi þegar það átti við. Magnús var sannur lánsmaður á lífsbrautinni og þar var sterkast- ur þáttur ofinn í hans framúrskar- andi lífsförunaut Hildi Einars- dóttur, sem er atgerviskona til allra þátta litið. Hildur er dóttir þeirra sæmdarhjóna Guðbjargar Kristjánsdóttur og Einars Jóns- sonar kennara og vegaverkstjóra eystra um árabil. Þau hjón voru samhent vel og eignuðust yndislegt heimili, þar sem bæði lögðu fram sinn verð- uga skerf, svo allt mætti á bezta veg verða. Þau gengu í hjónaband 7. des. 1946, bjuggu fyrst í Reykjavík, en síðustu 23 árin í Kópavogi, fögru húsi þar sem handbragð beggja naut sín til fullnustu. Börn þeirra eru: Björn læknir, kona hans er Anna Sigurveig Ólafsdóttir nemi og eiga þau fjögur börn; Einar lyfja- fræðingur, kona hans er Guðný Helga Gunnarsdóttir kennari og eiga þau tvær dætur; Anna bóka- safnsfræðingur, hennar maður er Þorbergur Karlsson verk- fræðingur og eiga þau tvo syni; Hildur kennari, hennar maður er Þóroddur Helgason skólastjóri og eiga þau tvön börn; Hjördís íþróttafræðingur, hennar maður er Benedikt Höskuldsson hag- fræðingur og eiga þau tvön börn og Sverrir verkamaður, ókvænt- ur. Óhætt mun að segja að þeirra barnalán sé óvenju mikið og gott, enda heimilið hollur skóli í hví- vetna. Það hefur sannarlega syrt að hjá Hildi og hennar fólki öllu og sár er eftirsjáin, þegar ástvinur hefur verið hrifsaður á braut. En enginn firrir sig dauðans kalli og kvöð. Þá mýkir og mildar söknuð- inn sólbjört minning um góðan og gegnan dreng, ötult prúð- menni og ástríkan heimilisföður. Við hjónin biðjum Hildi og henn- ar fólki öllu blessunar á örðugri stund og um alla framtíð. Magnús kveðjum við með þökk í þeli, í honum fundum við hlýja einlægni hjartans, dyggð og dáð og drenglund sanna. Dýrmætt er að hafa mátt eiga með honum dvöl. Blessuð sé minning hins mæta sómamanns, þar sem göfgandi gleðin geislar skærast. Helgi Seljan í dag kveðjum við ástkæran tengdaföður okkar, Magnús Björnsson trésmið, sem lést 7. þ.m. aðeins 66 ára að aldri. Magnús var fæddur á Vopr.a- firði þann 3. maí 1923. Hann var sonur hjónanna Björns Jóhanns- sonar skólastjóra og Önnu Magnúsdóttur ljósmóður og var sjötti í röð níu systkina og fyrsta barn þeirra er fæddist á Vopna- firði. Haustið 1921 höfðu þau flust þangað frá Veturhúsum á Jökulsdalsheiði. Að loknu námi í barna- og unglingaskóla á Vopnafirði fór hann í Laugaskóla en fluttist til Reykjavíkur 1943 og hóf nám í trésmíði hjá Steinari Erlendssyni og lauk sveinsprófi 1947. i Magnús kvæntist Hildi Einars- dóttur 7. desember 1946 en þau kynntust sumarið 1942 er hún var með föður sínum og systrum í vegavinnu á Fljótsdalshéraði. Hildur er fædd 6. október 1927, dóttir hjónanna Einars Jónssonar vegavinnuverkstjóra og Guð- bjargar Kristjánsdóttur húsmóð- ur. Magnús og Hildur bjuggu í Reykjavík fram til ársins 1966 er þau byggðu húsið að Hrauntungu 83 í Kópavogi og hafa átt þar heimili síðan. Börn þeirra eru Björn læknir, fæddur 1947, kvæntur Önnu Sigurveigu Ólafs- dóttur, Einar lyfjafræðingur, fæddur 1949, kvæntur Guðnýju Helgu Gunnarsdóttur, Anna bókasafnsfræðingur, fædd 1952, gift Þorbergi Karlssyni, Hildur kennari, fædd 1960, býr með Þór- oddi Helgasyni, Hjördís íþrótta- fræðingur, fædd 1960, gift Bene- dikt Höskuldssyni og Sverrir verkamaður, fæddur 1968. Barnabörnin eru orðin tólf. Mestan hluta starfsævi sinnar vann Magnús hjá Trésmíðaverk- stæði Reykjavíkurborgar. Hann var mjög útsjónarsamur og laginn trésmiður og nutu hæfi- leikar hans sín vel við endurbætur og viðhald eldri húsa í eigu borg- arinnar, ekki síst við endurreisn Viðeyjarstofu, en við það starf- aði hann tvö síðustu árin sem hann vann hjá borginni. Hann hafði næmt auga fyrir vönduðu handbragði fyrri kynslóða og var oft leitað ráða hjá honum, þegar um viðgerðir gamalla bygginga var að ræða. Minnisstæðastur er Magnús okkur fyrir þann kraft og lífsorku sem í honum bjó. Hann var íþrótta- og útivistarmaður. Á yngri árum stundaði hann aðal- lega fimleika og skíði, vann til verðlauna og var m.a. þátttak- andi í fimleikaflokki ÍR, sem sýndi á Þingvöllum árið 1944. Hann greip ávallt hvert tækifæri sem gafst til skíðaiðkana, göngu- ferða eða hjólreiða. Síðastliðinn vetur voru skíðin oft tekin fram, þótt heilsan væri tekin að bresta. Alla tíð hafði Magnús mikið dálæti á æskustöðvum sínum á Vopnafirði. í sumar gafst nokkr- um okkar tækifæri til að dveljast þar í vikutíma ásamt Magnúsi og Hildi í bústað Vopnfirðinga- félagsins. Áttum við þar ógleym- anlegar stundir saman. Þrátt lyrir að veðrið væri ekki eins og best verður á kosið naut hann þess að rifja upp minningar æskuáranna og hitta vini og ættingja. Eitt af síðustu verkum hans var að setja upp nýja fánastöng við bústað- inn. Magnús var góður heimilisfað- ir. Hann hafði lag á að laða að sér barnabörnin og hjá honum fundu þau gott athvarf. Hann hafði yndi af tónlist og höfðu krakkarnir ætíð gaman af að hlusta á afa sinn spila á orgelið eða nikkuna. Virðng hans gagnvart heimilinu og Hildi eiginkonu sinni var mikil og var eftirtektarvert hversu umhyggjusamur og nærgætinn hann var ætíð við hana. Þau hjón- in hafa alla tíð verið mjög sam- hent við að fegra heimili sitt og gera það vistlegra. Blómastofan, þar sem fjölskylda og vinir hafa átt margar ánægjulegar samveru- stundir, er gott vitni um það. Fyrir rúmlega einu ári kenndi Magnús sér fyrst þess meins er dró hann til dauða. Þrátt fyrir vitneskju um að alvara væri á ferðum lét hann ekki bugast og snerust áhyggjur hans meira um líðan annarra en sjálfs sín. Þján- ingar sínar bar hann með sjálfum sér enda var honum ekki tamt að láta þær í ljós. Við kveðjum Magnús með söknuði, en það er huggun harmi gegn að eiga minningu um góðan félaga og vin. Tengdabörnin ERLENDAR FRÉTTIR Tékkóslóvakía Samið um Samningaviðræður Tékka og Sovétmanna um brottkvaðningu sovésks herliðs frá Tékkóslóvakíu hófust í gær. Alls eru um 75.000 sovéskir hermenn í Tékkóslóvakíu. Ték- knesk stjórnvöld hafa krafist þess að sovéski herinn verði horfinn frá landinu fyrir árslok. Sovéskar hersveitir hafa verið í Tékkóslóvakíu frá því að Sovét- Sovéttier menn réðust inn í landið 1968 og steyptu þáverandi valdhöfum af stóli. Samningaviðræður um fækkun í Evrópuherjum Atlantshafs- bandalagsins og Varsjárbanda- lagsins standa yfir í Vínarborg. Búist er við að samkomulag náist í ár og að Sovétmenn fækki um 300.000 manns í herafla sínum í Austur-Evrópu. Reuter/rb Tyrkland Skólum lokað vegna mengunar Skólum í Ankara, höfuðborg Tyrklands, var lokað í gær vegna loftmengunar. Þykkt mengunarský liggur yflr borginni og hefur skyggni oft ekki verið nema um 100 metra undanfarna daga. Mikil röskun hefur orðið á ætlunarflugi um flugvöllinn við Ankara af þessum sökum. Tyrknesk heilbrigðisyfirvöld skýrði frá því í gær að allt að þús- und mígrógrömm af brenni- steinsdíoxíði hefði mælst í rúm- metra andrúmslofts í Ankara sem er sex- til sjöfalt meira en viðmið- unarmörk Alþjóðaheilbrigðis- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Opinberum starfsmönnum, sem eiga ungbörn, var gefið frá frá vinnu í gær til að sinna börn- um sínum því að barnaheimilum var lokað eins og skólum. Stjórnvöld hafa fyrirskipað fyrirtækjum í iðnaði, sem mikil mengun stafar af, að minnka framleiðslu sína um helming. Ennfremur hefur verið bannað að brenna olíu með háu brenni- steinshlutfalli. Reuter/rb Vinningstölur laugardaginn 13. jan. ‘90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 2.395.250 2. 4a"íl® 1 416.115 3. 4af5 76 9.444 4. 3af5 2.806 596 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.201.485 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Um áramótin lækkaöi allt lambakjöt um 8%. Sparaðu og kauptu lambakjöt. SAMSTARFSHÓPUR U M SÖLU LAMBAKJÖTS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.