Þjóðviljinn - 27.01.1990, Síða 11

Þjóðviljinn - 27.01.1990, Síða 11
VIÐHORF I DAG Kvennalístinn og sam- fylkingarhugmyndin Pau rök sem voru fyrir stofnun kvennalista á sínum tíma og byggðu á þörf kvenna til að ein- angra sig frá valdakerfi og vinnu- brögðum karla innan flokkanna eru að sjálfsögðu ennþá í fullu gildi. Hinsvegar hef ég þá skoðun að þau eigi einfaldlega ekki við, þegar rætt er um samfylkingu um framboðslista. Slík samfylking hefur ekki í för með sér sameiningu stjórnmála- afla og samtök og flokkar sem að henni standa munu eftir sem áður starfa á sínum eigin forsendum þótt fulltrúar þeirra í stjórn borg- arinnar séu hluti af formlegu samstarfi. Ef rökin um nauðsyn kvenna til að einangra sig frá rótgrónu karlaveldi og karllegum vinnu- brögðum eins og hanaderrings- hætti þeirra Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars á Hótel Sögu hér á dögunum (með fullri virðingu fyrir Ólafi Ragnari), eiga að standa í veginum fyrir samfylk- ingu um framboð, er í raun verið að segja að kvennalistinn treysti sér ekki til að taka þátt í annars- konar samfylkingu eins og ríkis- stjórn. Kvennalistinn hlýtur því að taka afstöðu með eða móti sam- fylkingu um framboð á grundvelli málefna og niðurröðunar á fram- boðslista. Kvennalistinn hefur hlutverki að gegna um ókomin ár og sem gamall stuðningsmaður listans bið ég þær að endurskoða afstöðu sína og vera með í sam- eiginlegu framboði til borgar- stjórnar. Framboði sem ekki er beint gegn einum né neinum, flokknum við hið villimannslega valdakerfi blóðsugunnar frá Rúmeníu. Davíð Oddsson og Ce- ausescu eiga álíka margt sam- eiginlegt og Ólafur Ragnar og Hitler. Satt best að segja hélt ég .. sem gamall stuðn- ingsmaður listans bið égþœr að endur- skoða afstöðu sína og vera með ísameigin- leguframboði til borgarstjórnar“ hvorki framkvæmdaforkinum Davíð Oddssyni né frændum okkar og vinum í Sjálfstæðis- flokknum, heldur framboði sem beint er að félagslegum gildum og jákvæðu mannlífi í Reykjavík fyrir alia þegna hvar í flokki sem þeir standa. Að lokum hlýt ég að fordæma að leiðtogar þeirra afla sem ég samfylki nú með skyldu líkja Davíð Oddssyni og Sjálfstæðis- að öfgafullir íhaldsmenn og frjálshyggjumenn hefðu einka- rétt á fáránlegum samlíkingum á borð við þessa, enda ófá þau skipti sem íslenskum jafnaðar- mönnum hefur verið líkt við Stal- ín og aðra glæpamenn sem framið hafa ódæði sín undir merkjum jafnréttis og félagshyggju. Asgeir Rúnar Helgason er upplýs- ingafulltrúi _________________I VIKULOKIN Lýst er eftir nom með skotthúfu Opinskáar jólabókajátningarnar hafa haft áhrif á mig. Djúp áhrif meira að segja. Mér hefur skilist að hér á landi sé enginn maður með mönnum nema hann Játi. Opinberlega. Þess vegna ætla ég að segja f rá leyndarmáli mínu þó það sé gasalega skammarlegt. Ehem... Égskilekkihvernig meðaljón- arogmeðalgunnurfaraððíaðlifaafáþessulandiog égskilekkiheldurhvernigþeirsemerufyrirneðan meðallagiðfaraððí. Punktur. Þáer þaðsagt. Ég hef nú stundað rannsóknir á þessu fyrirbæri í nákvæmlega tvö ár, þrjá mánuði og sextán daga og játamig sigraða. Migekkiskilja. Nei. Nákvæmur samanburður á launum og verðlagi í landinu, enda- lausir útreikningartekna og útgjalda mín og annarra (það sem er látið uppi) leiðir allt til sömu niðurstöðu: Þetta er ekki hægt. Eg hef náttúrlega alltaf verið svona heldurfyrir neðan meðallag í reikningi og nú er svo komið að mér f innst ég ekki vera betur sett en Marsbúi, sem hefði brotlent hérdiski sínum fyrir slysni. (Hann myndi sjálfsagt bjarga sérbetur.) Ég er hætt að þora að spyrja fólk hvernig það fari að. Og lengi hef ég ekki þorað að vera að koma með einhvern samanburð við önnur lönd eða lauma útúr mér að ég skilji þetta ekki. Slíkt þykir nefnilega hinn argasti dónaskapur, eða eitthvað þaðan af verra. Svoleiðis pakk fær gjarnan að heyra að úrþví það sé sona óánægt geti það bara hundskast aftur þangað sem allt sé svona gott, það sé hvort eð er orðið útlendingar (lesist landráðamenn og dónar). Ég get samt ekki sleppt því alveg að velta þessu fyrir mér. Reyna að skilja. Skilningsleit mín hefur leitt mig vítt og breitt um huglæg og hlutlæg fyrirbæri þessa lands, og á dög- unum, þegar íslenskirkvikmyndagerðarmenn (enn eitt óskiljanlegt fyrirbærið) boðuðu til ráðstefnu í tilefni tíu ára samfelldrar kvikmyndasögu íslenskrar fékk ég hugmynd. Við skulum kalla hanadrög að lausn. Skilningsvandans ekki þess ökónómíska, hann hef ég gefið frá mér í bili, hann gerir mig græna, - einsog Marsbúa. Hérna í árdaga, áður en veðrið varð vont, sá ég nef nilega bíómynd, sem átti eftir að hafa ómæld áhrif á drauma mína jafnt í vöku sem svefni í mörg ár. Tók við af Grýlumartröðinni. Þetta mikla upplif- elsi fór f ram í Tjarnarbíói og hét Síðasti bærinn í dalnum, byrjar að því er mig minnir á upphrópun- inni: Beeeerguuuuur..! Reyndar eru minningar mínar f rá þessari fyrstu íslensku kvikmynd lífs míns ærið þokukenndar, ef til vill vegna þess að inní minninguna um myndina blandast reiðileg rödd systur minnar, nöldrandi einsog venjulega yfir ósanngjarnri tilvist minni. Nokkuð sem hefur ekki haft nein áhrif á líf mitt. Ég skil ekki heldur hvers vegna ég er til. Hinsvegar var í myndinni atriði sem prentaðist inní sál mína og hef- ur haft þar ómæld áhrif: Einhverjir krakkar í sauðar- litunum flugu um á töfrakistu. í mínum huga er þessi kista blá og rósamáluð á lokinu og árum saman var ég sannfærð um að ætti maður slíkan grip gæti maðurflogið. Úníform farþeganna kærði ég mig hinsvegar kollótta um, sem er náttúrlega misskiln- ingur. Þegar ég komst til vits og ára einsog það heitir gleymdi ég töfrakistunni enda asnalegt að vera að skríða uppí eitthvert trog þegar hægt er að taka flugvél. Þó hefði ég átt að álpast til að muna eftir kisturæflinum því ég held að þar hafi höfundur myndarinnar séð inní framtíðina og gert alveg frá- bæra lýsingu á íslensku þjóðfélagi anno tæplega 2000. Hvernig? Jú, krakkaræflarnir voru plötuð í kist- una, lokinu skellt á og svo var allt heila klabbið sent á loft. Fyrir þeim framkvæmdum stóð einhver norn sem var endalaust að spinna, gott ef það var ekki Gilitrutt í eigin persónu, en þar er ég kannski farin að Ijúga uppá myndina. En hún var allavega að hlunnfara þau án þess að þau tækju eftir því, eða þannig. Lausnin, drög mín að skilningi á þessu öllu sam- an felst í því að ég held að þetta haf i gerst einhvern tíma á þessum tíu prósentum af öld sem ég var fjarverandi. fslenska þjóðin hefur verið plötuð uppí töf rakistu sem er að f Ijúga með hana eitthvað útí buskann, samanber sauðalitina. Þessvegna er ég eina manneskjan sem skil ekki neitt. Ég komstekki með út aðfljúga. Til að leysa málið þarf ég bara að finna leið til að komast í töfrakistuna líka. Það ætti að vera auðvelt að finna þessa norn. Það getafjandakornið ekki vera margir núorðið sem spinna myrkranna á milli. Svo var hún líka með skotthúfu. LG ÞlÓÐVILIINN FYRIR 50 ÁRUM Tveir leikararog einn Ijósamaður gerasig hlægilega. Leikfélag Reykjavíkur vill ráða gagnrýni blaðanna, annars auglýsir það ekki. Hin háastjórn Leikfélags- ins, leikararnir Gestur Pálsson og Brynjólfur Jóhannesson og Ijósamaðurinn HallgrímurBach- mann hafa ákveðið að auglýsa ekki í Þjóðviljanum og hafa fært þá ástæðu til, að þeim hafi ekki líkað gagnrýni Þjóðviljans á sýn- ingumfélagsins. 27.janúar laugardagur. 27. dagur ársins. 15. vika vetrar hefst. Sólarupprás í Reykjavík kl. 10.23 - sólarlag kl. 16.58. Viðburðir Verslunarmannafélag Reykja- víkur stofnað árið 1891. Kven- réttindafélag íslands stofnað áriö 1907. PAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöavikuna 26.jan.-1.febr. 1990 er í Lyfjabergi og IngólfsApóteki. Fyrrnefnda apótekið eropið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 trídaga). Siðarnefnda apótekið er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN ' Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur...........sími 4 12 00 Seltj.nes...........sími 1 84 55 Hafnarfj............sími 5 11 66 Garðabær............sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík...........sími 1 11 00 Kópavogur...........sími 1 11 00 Seltj.nes...........sími 1 11 00 Hafnarfj............sími 5 11 00 Garðabær............sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkuralla virkadaga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspit- alinn: Göngudeildin eropin 20-21. Slysadeild Borgarspitalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stööinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Kefjavik: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS HeimsóknarJimar: Landspítalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspitalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni ' 0 B. Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspitala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspftali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalinn: alladaga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: allavirka daga 15- 16og 19-19.30. SjúkrahúsAkraness: alladaga 15.30-16og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allan sólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum. Sími 687075. MS-félagiðÁlandi 13. Opiðvirkadagafrá kl. 8-17. Slminner 688620. Kvennaráðgjötin Hlaövarpanum Vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, simi21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrirsifjaspellum, s. 21500,simsvari. Upplýsingar um eyðni. Simi 622280, beir' samband við lækni/hjúkrunarfræðing á miövikudögum kl. 18-19, annars sím- svari. Samtök um kvennaathvarf, sími 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa veriö ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Símsvari á öðrum timum. Síminn er 91-28539. Bilanavakt rafmagns- og hiíaveitu:s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sif jaspellamál. Simi 21260allavirkadagakl. 1-5. uögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á f immtudagskvöldum. „Opiðhús" krabbameinssjúklinga Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögumkl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 - 22400 alla vlrka daga. GENGIÐ 26. jan. 1990 kl. 9.15. Sala Bandarikjadollar............. 60.61000 Sterlingspund................ 100.52200 Kanadadollar.................. 50.73000 Dönskkróna..................... 9.28890 Norsk króna.................... 9.30030 Sænskkróna..................... 9.85130 Finnskt mark................. 15.23820 Franskurfranki................ 10.57630 Belgískurfranki................ 1.71780 Svissneskurfranki............. 40.63690 Hollenskt gyllini............. 31.89580 Vesturþýskt mark.............. 35.93830 (tölsklíra.................... 0.04831 Austurriskur sch............... 5.10290 Portúg. Escudo................. 0.40790 Sþánskur þeseti................ 0.55400 Jaþansktyen................... 0.42241 (rsktþund..................... 95.11200 ^4, \ Hafirðu smakkað vín. - láttu þér þá AUDREI detta í hug að keyra! IUMFERÐAR 'RÁÐ Laugardagur 27. janúar 1990 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.